Morgunblaðið - 12.06.1987, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987
9
KfeWásHí?
íslenskar Brrruður!
- því það er stutt
úr bökunarofnunum okkar
á borðið tíl þín.
Hagsmunir
sjómanna
í samtalinu við Pétur
Sigurðsson i Sjómanna-
dagsblaðinu, sem Jakob
F. Ásgeirsson skráir, er
mx vikið að stðrfum
hans að hagamunum sjó-
manna. Þar segir Pétur:
„Það er náttúrlega úti-
lokað að fara yfir alla
mina þingsögu án þess
að hafa þingtiðindi fyrir
framan sig. En ég held
að ég hafí verið ýmist
flutningsmaður eða með-
flutningsmaður að flest-
um frumvörpum sem
snert hafa hagsmuni sjó-
manna. Og það sem er
kannski ánægjulegast úr
öllu þvi starfi er það sem
gerst hefur nú siðustu
árin eftdr að Matthias
Bjamason samgönguráð-
herra skipaði öryggis-
málanefnd sjómanna í
vetrarlok 1984. Mér leist
satt að segja ekki alltof
vel á það tiltæki til að
byija með, þvi þama
vom samankomnir ólíkir
einstaklingar úr öllum
flokkum. Alls vorum við
niu í nefndinni og ég
formaður, en reyndin
varð sú að þessi hópur
vann geysilega vel sam-
an. Ailir sýndu starfinu
mikinn áhuga, bæði kon-
ur og karlar, nllir lögðu
eitthvað gott til málanna,
en það besta af öllu var
hvað ráðherra brást
fljótt við að framkvæma
allar þær tillögur sem
nefndin lagði til. Bendi
ég þar sérstaklega á
breytmgar á lögum um
lögskráningu sjómanna
en þar var að öllu leyti
tekið tillit til þess sem
öryggismálanefnd sjó-
manna hafði til málanna
að leggja. En að öðm
leytd fólst starf öryggis-
málanefndarinnar aðal-
lega í miklum áróðri
fyrir auknu öryggi sjó-
manna, eins og ég lýstd
ma i síðasta Sjómanna-
dagsblaði, og slagorð
nefndarinnar van Ekk-
ert kemur í veg fyrir slys
á sjó, nema árvekni, dóm-
greind og kunnátta.
Frá þingsetunni á ég
yfirleitt aðeins góðar
minningar og ég hverf
Málsvari sjómanna
Pétur Sigurðsson, sem alþjóð þekkir sem
Pétur sjómann, lét af þingmennsku við
síðustu alþingiskosningar eftir að hafa setið
á Alþingi nær samfellt frá 1959. Sjómanna-
dagsblaðið, sem nýkomið er út, birtir
athyglisvert viðtal við Pétur um störf hans
og stjórnmálaskipti og vitna Staksteinar í
það í dag.
þaðan núna með friði og
spekt Mér þóttd vænt um
að skömmu fyrir þinglok
var samþykkt breytdng á
lögum sem ég beitti mér
fyrir um happdrættd
DAS og byggingarsjóð
aldraðra, og ekki þóttd
mér síður vænt um þau
nýju lög, sem sjávarút-
vegsráðherra hafði
frumkvæði að, þar sem
sjómannadagurinn er
löghelgaður frídagur."
I samtalinu segir frá
því þegar Pétur Sigurðs-
son gekk í Sjómannafé-
lag Reykjavíkur árið
1945 og tók fjjótt að láta
að sér kveða og gekk á
ýmsu hjá honum og
stjómendum felagsins
sem vom kratar.
„Já, það var ekkert
launungarmál að Al-
þýðuflokksmenn ráku
Sjómannafélagið sem sitt
eigið félag, það var eins
konar útdbú frá Alþýðu-
flokknumm. Ég er ekki
að segja að félaginu hafi
verið illa stjómað, heldur
að því hafi verið pólitiskt
stjómað og sem sjálf-
stæðismaður var ég
auðvitað ekld sáttur við
ráðsmennsku kratanna
og tók að þeiýa mig um
eitt og annað. Það kast-
aðist svo hressilega í
kekki veturinn sem ég
var í Stýrimannaskólan-
um að taka Fisldmann-
inn. Samt var það einmitt
þennan vetur sem skarst
I odda með mér og
kommum, en við höfðum
reynt að standa saman
gegn ofríki alþýðu-
flokksmanna í félaginu.
Einhveiju sinni á mik-
ilvægum fundi var
mættur einn af framá-
mönnum kommúnista í
landinu, en hann hafði
seturétt á fundum félags-
ins sem stjómarmaður i
Alþýðusambandinu. Eins
og við var að búast varð
ósætti mikið á fundinum
og endaði það með því
að við gengum margir
út af fundinum í mót-
mælaskyni við afgreiðslu
mála. Kommúnistafor-
inginn fór fyrir sinum
mönnum og hélt beina
leið yfir S hús Prentara-
félagsins og fyigdum við
hópnum nokkrir félagar.
Þá kom i ljós að allt hafði
þetta verið undirbúið.
Þama áttí að stofna nýtt
félag tdl höfuðs Sjó-
mannafélagi Reykjavík-
ur. Þá skarst ég úr leik,
sagði nær að við reynd-
um að vinna sameigin-
lega að okkar málum
innan Sjómannafélagsins
heldur en að kjjúfa okk-
ur frá þvi. Það kæmi
ekki tíl álita fyrir mér
að standa að sliku og bað
menn að láta ekki hafa
sig út í þá bölvaða vit-
Ieysu. Gekk ég síðan út
af þessum fundi og
fylgdu mér nokkrir og
leiddi þetta tdl þess að
ekkert varð af félags-
stofnun."
Loks má gripa hér nið-
ur i samtalinu, þar sem
hann segir frá átökum
um stjóm Sjómannafé-
lagsins.
„Haustíð eftír að ég
varð þingmaður var mér
boðið að taka sætí á
framboðslista stjómar-
og trúnaðarráðs Sjó-
mannafélagsins. Það
urðu hörkukosningar,
þvi þetta var í byijun við-
reisnar og alþýðubanda-
lagsmenn innan
Sjómannafélagsins lögðu
ofurkapp á að fella stjóm
kratanna. Nú var það
orðið sameiginlegt
áhugamál okkar krata
og sjálfstæðismanna að
halda félaginu, og það
var ekki aðeins i Sjó-
mannafélagi Reykjavík-
ur, heldur almennt i
verkalýðshreyfingunni.
Sjómannafélag
Reykjavíkur hefur alltaf
getað velt ríkisstjóm ef
þvi er beitt tdl þess og
það hefðu kommamir
gert hefðu þeir náð yfir-
tökum i félaginu á
Viðreisnarárunum. Og
það munaði oft mjóu,
stundum ekki nema örf-
áum atkvæðum.
En nú er sem betur fer
hin pólitiska barátta inn-
an félagsins miklu hóf-
legri og menn reyna að
hugsa meira um félags-
legu hliðina en þá
pólitisku, hugsa orðið
mest um það sem best
gagnast félaginu og fé-
lagsmönnum en síður um
það sem þjónar þeim
pólitisku flokkum sem
þeir em i. Nú em menn
ekki lengur valdir eftir
pólhdskum lrt tdl ábyrgð-
arstarfa í félaginu og
samstarfið innan félags-
ins hefur i mörg ár verið
einstaklega gott.“
Atvinnuleysi í
maí:
Minnsta at-
vinnuleysi
síðan 1982
MIKIL eftirspurn hefur verið
eftir vinnuafli nú í vor og endur-
speglast það í tölum um skráð
atvinnuleysi í maímánuði. 8800
atvinnuleysisdagar voru þá
skráðir á landinu öllu sem jafn-
gildir að 400 manns að meðaltali.
eða 0.3% af áætluðum mannafla
á vinnumarkaði, hafi verið at-
vinnulausir. Þetta er minnsta
atvinnuleysi sem skráð hefur
verið í maímánuði síðan árið
1982 og skráðum atvinnuleysis-
dögum fækkaði um helming frá
sama mánuði í fyrra.
Eina svæðið þar sem atvinnulausum
hefur fjölgað miðað við maí í fyrra
er Vestfirðir, úr 5 í 8. Mest hefur
hlutfallslega dregið úr atvinnuleysi
í Reykjavík eða úr 339 atvinnulaus-
um árið 1986 í 99 atvinnulausa nú
og síðan á Suðumesjum, úr 35 í
12. A Vesturlandi voru 52 nú at-
vinnulausir í maí á móti 57 í fyrra,
31 á Norðurlandi vestra á móti 67,
92 á Norðurlandi eystra á móti
143, 37 á Austurlandi á móti 48
og 76 á Suðurlandi á móti 97.
rSíéa/natíadutinn
%&'í
iiiit
^fj-tettirgötu 12-18
M. Benz 280 SE '84
40 þ.km. Sjálfsk. o.fl. V. 1300 þ.
Daihatsu Runabout '83
47 þ.km. V. 210 þ.
V.W Golf '82
56 þ.km. V. 210 þ. (Gófi lán).
Porsche 928 '78
Glæsilegur sportbíll. V. 1100 þ. (sklpti).
Mazda 323 1.3 '84
43 þ.km. Gott eintak. V. tilboð.
Subaru 1800 station '84
38 þ.km. Sjálfsk. m/aflstýri. V. 460 þ.
Fiat Uno 45 '86
13 þ.km. Sem nýr. V. 250 þ.
Ford Escort 1600 L '85
19 þ.km. Sjálfsk. V. 450 þ.
Toyota Tercel 5 dyra '84
47 þ.km. Dekurbill. V. 350 þ.
Saab 99 GL '82
62 þ.km. V. 300 þ.
Toyota Landcrusier '86
20 þ.km. Krómfelgur o.fl. V. 880 þ.
Toyota Tercel 4x4 '83
68 þ.km. Topp bíll. V. 380 þ.
Honda Civic 1.5 Sport 1984
Blásans, ekinn 50 þ.km. 5 gira. Mjög fal-
legur bfll. VerÖ 380 þús.
Subaru 1.8 GL 1987
Rauösans., 5 gíra, ekinn 6 þ.km. Rafm. í
rúöum o.fl. Sem nýr. Verð 640 þús.
Citroen BX TRS 16 '85
Rauður, ekinn 42 þ.km. Sjálfsk. m/afl-
stýri, rafm. í rúðum, 2 dekkjag. o.fl. Verð
545 þús.
Saab 900 Turbo 1982
Grásans., ekinn 78 þ.km., sóllúga. Verö
480 þús. (Skipti ódýrari).
Dodge Daytona T urbo Z1985
Svartur, 5 gíra, 4 cyl. (2.2), vökvastýri,
sóllúga, cruise control o.fl. Sprækur
sportbfll. Verð 790 þús.
Toyota Tercel GL 1984
Gullsans., ekinn 46 þ.km. Sem nýr. Verð
350 þús.
Ath: Mikið af bílum á 10-24 mán. greiðslukjörum.