Morgunblaðið - 12.06.1987, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987
AKUREY&
Verkfræðistofa Norðurlands:
Hafnar öllum til-
boðum í byggingu
húss fyrirtækisins
Verkfræðístofa Norðuriands augiýsti fyrir nokkru útboð
á byggingu við Hofsbót 4 á Akureyri, þar sem risa á meðal
annars húsnæði fyrirtækisins, auk fatahreinsunar og hús-
næði nokkurra tannlækna. Þijú tilboð bárust í verkið, en
eftir að útboðsaðili hafði litið á þau, féll hann frá öllum til-
boðum og hóf að semja sérstaklega við tilboðsaðila.
Hæsta tilboðið hljóðaði upp á
17.709.070 krónur frá Norðurverki
hf. sem er 28,53% fyrir ofan kostn-
aðaráætlun útboðsaðila er hljóðar
upp á 13.777.620 krónur. Bygg-
ingafyrirtækið SJS bauð í verkið
litlu minna, 17.144.384 krónur sem
er 24,43% fyrir ofan áætlaðan
kostnað og lægst buðu Híbýli hf.,
eða 16.330.850 krónur sem er
18,53% fyrir ofan kostnaðaráætlun.
Hörður Túlinfus, framkvæmda-
stjóri Híbýla hf., sagðist í samtali
við Morgunblaðið ekki vita til þess
að þessi leið hefði verið valin áður
að hafna öllum tilboðum. Hinsvegar
væri sú leið mjög varasöm, ekki
síst vegna þess að það kostaði fyrir-
tæki allt frá 50.000 til 100.000
krónur að gera slíkt tilboð svo verk-
takafyrirtæki hlytu að halda að sér
höndum í framtíðinni yrði raunin
sú að þetta leyfðist. „Okkur finnst
svo sannarlega ekki heiðarlega að
hlutunum staðið. Einnig vefengjum
við þá kostnaðaráætlun sem gerð
var og teljum hana að minnsta kosti
10% of lága. Iðnaðarmenn hafa
verið á láglaunasvæði hér norðan-
lands. Við erum að vísu famir að
greiða þeim 10% hærra en umsamd-
ir taxtar hafa hljóðað upp á, en það
er samt of lágt miðað við það sem
gengur og gerist í Reykjavík."
Hörður sagði að lagalega séð
hefðu útboðsaðilar rétt til að hafna
tilboðum ef þeir höfnuðu öllum aðil-
um til að hefja samninga við aðra,
en hann sagðist álíta að tímabært
væri fyrir siðanefnd Verkfræðifé-
lagsins að endurskoða þessar
útboðsreglur.
Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdðttir
Ólafur Guðmundsson á öðrum vinnudegi I fræðslustjórastólnum.
Einhliða aðgerðir
ekki heilladijúgar
- segir Ólafur Guðmundsson, nýsettur
fræðslustjóri Norðurlandsumdæmis eystra
„ÉG ER tilbúinn til að hætta í
starfínu hvenær sem er ef menn
ná samkomulagi og held ég raun-
ar að það hljóti að vera einn
liðurinn í samkomulaginu að ég
víki,“ sagði Ólafur Guðmunds-
Ólafur sagði að málið yrði að
skoðast í heild. Fræðsluráðinu þætti
miðstýringaraflið í ráðuneytinu far-
ið að keyra úr hófí á meðan
fræðsluráðin hefðu ekkert að segja.
Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdóttir
Ferðalangar i einni af fyrstu fjórhjólaferðum ábúendanna á Stóruvöllum í Bárðardal.
Ný búgrein á Stóruvöllum í Bárðardal:
Fjórhjól bundin á
bás í stað kúnna
Roðið upp á fjórhjólaferðir um Bárðardal
í SUMAR gefst fólki tækifæri á að taka þátt í óbyggðaferðum
meðfram Skjálfandafljóti í Bárðardal. Þessar ferðir eru óvenju-
legar að þvi leyti að farkostirair eru fjórhjól, sem svo mjög hafa
rutt sér til rúms á íslandi. Blaðamaður brá sér i eina af fyrstu
ferðum sumarsins undir leiðsögn Jóhönnu Rögnvaldsdóttur, sem
ásamt manni sínum, Garðari Jónssyni, hefur snúið sér alfarið frá
hefðbundnum búskap en þess í stað keypt ein tíu fjórhjól og
ætlar að gera út á ferðamennskuna.
Þau hjónin búa að Stóruvöllum
í Bárðardal og vinna þau nú að
því að breyta fjósi sínu í fjórhjóla-
geymsiu. Það verða því flórhjólin,
sem bundin verða á bás að Stóru-
völlum í framtíðinni. íbúðarhúsið
að Stóruvöllum er elsta hlaðna
steinhús í sveit á íslandi sem búið
er í, byggt á sama máta og Al-
þingishús okkar íslendinga. Þar
fara nú fram endurbætur sem
miðast meðal annars við móttöku
ferðamanna. Þau Garðar og Jó-
hanna eru einnig að setja upp
minkabú og hyggjast leggja rælöt
við það samhliða ferðaútveginum.
Eftir að hafa fengið þjálfun á
tækjunum er lagt upp frá Stóru-
tungu og áður en varir gleypir
stórbrotið hraun ferðalanginn og
fljótið í tign sinni beljar á hægri
hönd. Farið er upp að Hrafna-
bjargafossum, þar skammt frá
tekur við greiðfærara land og
haldið er í slóð bárðdælskra
gangnamanna gegnum aldimar
upp í Réttartorfu þar sem gangna-
mannakofi stendur. Þaðan er ekið
um sendna bakka Skjálfandafljóts
og öslað yfir Sandmúladalsá og
Krossá og endað í fallegu Kross-
árgilinu. Þaðan er haldið heim á
leið.
Að sögn Jóhönnu er náttúru-
skoðun og útivera meginmarkmið
þessara ferða. Reiknað er með að
ferðalangurinn hafi nægan tíma
til að skoða sig um, taka myndir
og næra sig. Ferðin tekur um
átta klukkustundir, án nokkurra
kappakstra. Séu hópar stærri en
tíu manns þarf að panta með
góðum fyrirvara, ekki er lagt af
stað með færri en þijá.
Góðir stangveiðimöguleikar eru
í nágrenninu, í Svartá, og gistiað-
staða er í sumarhótelinu Kiðagili
sem stendur í túnfætinum hjá
Stóruvöllum. Þar er jafnframt
hægt að fá fæði auk þess sem
þar er sauna. Þannig gæti fjór-
hjólaferð orðið hluti af lengra fríi
í Bárðardal.
Bílaleigan Öm á Akureyri sér
um kynningu og sölu á ferðunum.
Dagsferð kostar 5.500 krónur
fyrir manninn. Innifalið í því verði
eru laun leiðsögumanns, sölu-
skattur, afnot af vindþéttum
fatnaði, hjálmi og húftrygging.
Hægt er að kaupa nestispakka á
900 krónur, en sá möguleiki er
fyrir hendi að fólk nesti sig sjálft.
Fólki er það í sjálfsvald sett hvort
það ekur sínum eigin bíl til Stóm-
valla, tekur bfl hjá Bflaleigunni
Emi eða lætur aka sér til og frá
Bárðardal.
Mikil umræða hefur orðið um
náttúmspjöll fjórhjóla og rétt er
að gáleysisleg notkun þeirra veld-
ur skemmdum. Hér hefur hins-
vegar verið kappkostað að ekkert
slíkt gerist með því að leiðsögu-
maður er með í för, leiðin hefur
verið valin með það fyrir augum
að spjöll verði ekki unnin og fyrir-
hugað er að bjóða náttúruvemda-
raðilum að fylgjast með leiðinni.
son, nýsettur fræðslustjóri, I
Mmfali við Morgunblaðið í gær.
Blaðamaður leit inn til Ölafs á
fræðsluskrifstofuna í gær. Ólafur
sagðist ekki búast við að dvelja
lengi í embættinu, en taldi þó ein-
hliða aðgerðir ekki af hinu góða.
„Það em tveir aðilar sem eiga í
deilum sín á milli og sættir munu
aldrei takast alfarið á kostnað ann-
ars aðilans. Ég held að fræðsluráðið
gangi ekki til fullra sátta við ráðu-
neytið nema að ég láti af störfum
og starfið verði auglýst aftur. Þessi
afstaða er einnig mjög ríkjandi hjá
stjóm Félags skólastjómenda í
umdæminu."
Fyrsta skemmtiferða-
skipið með 350 farþega
FYRSTA skemmtiferðaskip sum-
arsins kom til Akureyrar í
gærmorgun með um 350 Þjóð-
veija. Skipið, sem er rússneskt,
heitir Kazahstan og er eitt af
þremur stærstu skemmtiferða-
skipum Rússa ásamt Evrópu og
Maxim Gorki.
Farið var með farþega í skoðun-
arferð í Mývatnssveit í gærdag og
tóku 230 manns þátt í þeirri ferð.
Skipið hélt úr höfti í gærkvöldi
áleiðis til Noregsstranda.
Tólf skemmtiferðaskip til við-
bótar eru væntanleg til Akureyrar
í sumar og kemur það næsta þann
23. júní. Mestmegnis eru þetta
rússnesk skip. Tíu þeirra koma í
júlí og eitt í ágúst.
Morgunblaðið/JAhanna Ingvarsdóttir
Rússneska skemmtiferðaskipið Kazahstan við bryggju á Akureyri I
gær.