Morgunblaðið - 12.06.1987, Page 44
'jhiji pt fltiiJirr'iTp/Va ova Tpunr.ti'Tiur
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987
44
fclk í
fréttum
Haukur Hauksson á sviðinu í Broadway
V
Bróðirinn
hljóp
í skarðið
Nell’s í New York
HÚN heitir Nell Campbell, kon-
an sem rekur “Nell’s",
vinsælasta diskótekið í New York
þessa dagana. Staðurinn er með
nokkuð öðru sniði en aðrir slíkir á
Manhattan. Innréttingin er í stíl
þriðja áratugarins; þungir leður-
sófar og persnesk teppi og á efri
hæðinni leikur dæmigert djassband
gömlu góðu lögin. I kjallaranum
dynur nýjasta diskótónlistin en ekki
er þar ljósadýrðinni fyrir að fara.
Eina “ljósasjóið" er þegar plötu-
snúðurinn, sem er að sjálfsögðu
breskur eins og allt annað á staðn-
um, slekkur og kveikir á veggljós-
unum.
Gestimir á Nells eru heldur ekki
af verri endanum en meðal fasta-
gesta eru þau Bianca, Mick og Jerry
-öðruvísi diskótek
Hall, Calvin Klein, Debby Harry,
David Bovie, Michael Douglas, Fay
Dunaway og Thierry Mugler svo
einhverjir séu nefndir. En þó fræga
fólkið skemmti sér á Nell’s er það
svo sannarlega ekki vegna þess að
það fái ókeypis inn, því allir þurfa
að greiða sinn aðgangseyri við inn-
gangin, sem er annars óþekkt í New
York. Og það sem meira er; það
komast ekki allir inn. Eins og á
flestum betri klúbbum í heims-
borginni fá aðeins útvaldir aðgang
að staðnum og þykir þá vænlegast
að vera annaðhvort þekkt andlit eða
óhemju vel eða a.m.k. spennandi til
fara. Nell segist ekki hleypa neinum
inn sem hún ekki mundi vilja fá inn
í stofu heima hjá sér. Meðal þeirra
sem ekki fá aðgang eru nöfn eins
og Grace Jones, Don Johnson og
Diana Ross.
Laura “Nell“ Campbell er þijátíu
og fjögura ára gömul, ættuð frá
Ástralíu og steig sín fyrstu skref
fram í sviðsljósið þegar hún fór
með hlutverk Columbíu í Rocky
Horror Picture Show. Eftir að hún
flutti til New York vann hún við
mótttöku á hinum þekktu veitinga-
stöðum The Odeon og Cafe
Luxembourg, sem vinir hennar úr
Rocky Horror, þeir Keith McNally
og Lynn Wagenknecht reka og upp
úr því fékk hún þá hugmynd að
setja á stofn klúbb í sínum persónu-
lega stíl þar sem hún gæti haft
allt eftir sínu höfði og verið sjálf
miðpunktur kvöldsins, öll kvöld.
Laura “Nell“ Campbell á diskó-
tekinu sínu.
AÐ vakti athygli þeirra sem
fylgdust með rokkkabarettin-
um “Allt vitlaust" á Broadway á
föstudaginn var að í stað Eiríks
Haukssonar stóð á sviðinu “annar
Eiríkur". Þessi óþekkti söngvari
reyndist vera Haukur Hauksson,
yngri bróðir Eiríks, sem hafði með
íitlum fyrirvara hlaupið í skarðið
fyrir bróður sinn í forföllum hans.
í samtali við blaðamann sagðist
Haukur hafa vitað það með fimm
daga fyrirvara að hann þyrfti að
taka að sér hlutverk bróður síns.
“Eg tók eina æfíngu með Gunnari
Þórðarsyni og skoðaði svo mynd-
band með sýningunni." Þó Haukur
hefði varla haft tíma til að læra
lögin og textana utanað áður enn
hann steig á sviðið var það ekki
að sjá né heyra og kom frammi-
staða hans á óvart, enda lítið heyrst
til hans opinberlega áður.
Haukur Hauksson er 23 ára gam-
all og hefur sungið með ýmdum
danshljómsveitum síðan hann var
sextán ára. Hann er nú söngvari í
nýstofnaðri hljómsveit sem nefnist
Stjómin.
Kvikmyndaleikur
Okkur vantar fólk...
20 ára og eldri í hópsenu í kvikmyndina
„Tristan og Isold'*.
Því litríkari hóp og ólíkari persónur þvl
betra. Upptökudagur er laugardagurinn
25. júli og fer upptakan fram utan
Reykjavíkur.
Allir sem hafa áhuga á að vera með eru
velkomnir á Lindargötu 24, laugardaginn
13. júní kl. 14.00.
F.I.L.M.
CINEMA ART PRODUCTION.
BnRSBnmnnnranni
HERRA Ólafur Egilsson sendiherra kannar írskan heiðursvörð í Aras an Uachtarain þar sem hann
afhenti trúnaðarbréf sitt 26.maí s.l. Ólafur er nú Sendiherra íslands í Bretlandi og Hollandi og hefur
aðsetur í London.