Morgunblaðið - 25.06.1987, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1987
5j
RÖRA-
FITTINGS-
ÚRVALIÐ
ERHJÁOKKUR
HU5A5MIOJAN
SUDARVOG! 3-5 O 687700
afsláttur
í júní og júlí veitum við
15% staðgreiðsluafslátt af
pústkerfum í Volksvagen
og Mitsubishi bifreiðar.
Kynntu þér okkar verð,
það getur borgað sig.
m
HEKLAHF
SÍMAR:
91-695500
91-695650
91-695651
7
Metsölublad á hverjum degi!
Stærsta vörusýning á ís-
landi haldin í september
Sýningarsvæðið verður rúmlega 5000 fm
ÍSLENSKA sjávarútvegsýningin 1987, sem haldin verður dagana
19.- 23. september, verður að líkindum stærsta vörusýning sem hald-
in hefur verið hérlendis fram til þessa. Sýningin verður í Laugar-
dalshöllinni, en til viðbótar verður slegið upp tveimur sýningarhúsum,
innfluttum frá Bretlandi, þannig að alls verður sýningarsvæðið rúm-
lega 5000 fermetrar að stærð. Þegar hafa fyrirtæki frá 14 þjóðum
boðað þátttöku sína, en þar á meðal eru 35 sýningaraðilar frá Dan-
mörku, 22 frá Noregi, 18 frá Svíþjóð, 17 frá Bretlandi, auk þátttak-
enda frá Frakklandi, Hollandi, og víðar að. Þá verða nálægt 50
íslensk fyrirtæki meðal sýningaraðila.
Það er breska sýningarfyrirtækið
Industrial and Trade Fairs Intem-
ational Ltd. sem sér um fram-
kvæmd þessarar sýningar, en það
fyrirtæki mun vera all framalega á
sínu sviði. Eiríkur Tómasson, lög-
fræðingur og fulltrúi Alþjóðlegra
vörusýninga sf., sagði á blaða-
mannafundi sem haldinn var á
Hótel Loftleiðum á mánudag að um
svo stóra sýningu væri að ræða að
íslenskir aðilar hefðu að líkindum
ekki bolmagn til að skipuleggja
hana.
Sýningin mun taka til allra þátta
sjávarútvegs, þar á meðal veiði,
framleiðslu og úrvinnslu, auk pökk-
unar, og er þegar búið að ráðstafa
öllu sýningarplássi. Búist er við að
töluverður fjöldi erlendra gesta
komi hingað til lands í tilefni sýn-
ingarinnar, og að sögn Patriciu
Foster, framkvæmdastjóra hennar,
hefur verið reynt að gera ráðstafan-
ir til að fá hingað til lands ferju til
að sjá þeim fyrir gistingu, en gisti-
rými mun vera af skomum skammti
hér í Reykjvaík yfir ferðamannatí-
mann.
Þetta er í annað sinn sem íslensk
sjávarútvegssýning af þessu tagi
er haldin, en sú fyrri var í Laugar-
dalshöllinni fyrir þremur árum
síðan. Þá var hún talsvert smærri
í sniðum, en hún þótti ákaflega vel
heppnuð, en íslenskum fyrirtælq'um
vegnaði þá ágætlega við koma vör-
um sínum á framfæri.
Eiríkur Tómason sagði að sýning
af þessu tagi hefði mjög mikla þýð-
ingu fyrir okkur Islendinga, og
sérstaklega þau fyrirtæki sem
Morgunblaðið/Þorkell
Eiríkur Tómasson, lögfræðingur, John V. Legate, einn framkvæmda-
stjóra ITF, og kona hans Patricia Foster, framkvæmdastjóri sýning-
arinnar, á fréttamannafundi sem haldin var á mánudag á Hótel
Loftleiðum.
þarna kynntu sína vöru.
„Stærð sýningarinnar og fyöldi
þátttakenda sýnir okkur íslending-
um að við njótum álits meðal
annarra þjóða sem fískveiðiþjóð og
fískiðnaðarþjóð því þessi sýning er
alþjóðlegur viðburður þar sem reynt
er að gera hana úr garði eins og
best gerist úti í heimi," sagði Eirík-
ur á fundinum á mánudag. „Þessi
sýning gerir okkur kleift að mark-
aðsetja vöru okkar og kynna
iðnaðinn, og takmarkið með henni
er fyrst og fremst að sýna tækni-
búnað og koma á viðskiptum."
í tengslum við sýninguna verður
svo haldin hér ráðstefna á vegum
Norræna iðnaðarsjóðsins um tölvu-
tækni í sjávarútvegi.
/
_ • •
TOLUR
A BLAÐI
VERÐA AÐ
PENINGUM
STRAX
TIMAMÓT í REKSTRI FYRIRTÆKJA
Tölur á blaði geta gefið upplýsingar um
góða afkomu og trygga stöðu fyrirtækja, en
þær koma að takmörkuðum notum sem
rekstrarfjármagn. Vanskil, erfið innheimta
o. fl. kostar bæði tíma og fé og geta skipt
sköpum um afkomu fyrirtækjanna.
Kröfukaupadeild KAUPÞINGS hf. kaupir
og/eða innheimtir:
— Reikninga
— Víxla
— Euro-Visa afborgunarsamninga
— Euro-Visa sölunótur
og greiðir handhafa skuldaviðurkenningar
andvirðið samdægurs.
KRÖFU
<AUPA
DEILD
KAUPÞINCS HF
Bolholti 4 • simi: 68 90 80