Morgunblaðið - 08.07.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.07.1987, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1987 Kynferðisafbrot gegn telpum: Maður úr- skurðaður í gæslu MAÐUR á fertugsaldri, búsettur í Hafnarfirði, hefur verið úr- skurðaður í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á meintum kynferðisafbrotum hans gegn ungum telpum. Upp komst um málið þegar starfsfólk framköllunarstofu lét lögreglu vita af klámfengnum myndum sem maðurinn hafði tekið af tveimur stúlkum, níu og tólf ára. Hann var úrskurðaður í gæsluvarð- hald til 22. júlí. Rannsóknarlögregla ríkisins vinnur nú að málinu, en verst allra frekari fregna af atvik- um. Maðurinn, sem nú situr í gæsluvarðhaldi, mun um tíma hafa rekið sumarbúðir fyrir böm ásamt eiginkonu sinni. Akranes: Þrír sækja umstarf bæjarstjóra AlcranesL Umsóknarfrestur tun stöðu bæjarstjóra á Akranesi rann út um helgina. Þijár umsóknir bár- ust og óskuðu allir eftir nafn- leynd. Bæjarstjórn kemur saman fljótlega til að ráða í stöðuna. Núverandi bæjarstjóri er Ingi- mundur Sigurpálsson. Hann hefur nýlega verið ráðinn bæjarstjóri í Garðabæ. -JG Morgunblaðið/Anu Sæberg Stórmeistaramir sex saman komnir á heimili Margeirs Péturssonar í fyrrakvöld. Frá vinstri: Friðrik Ólafsson, Margeir Pétursson, Guðmundur Sigurjónsson, Helgi Ólafsson, Jóhann Hjartarson og Jón L. Áraason. Stórmeistarar stofna félag FÉLAG stórmeistara var stofn- að í fyrradag og eru félags- menn allir þeir sex íslendingar sem sæmdir hafa verið nafn- bótinni Alþjóðlegur stórmeist- ari af Alþjóðaskáksambandinu, FH)E. Slík félög hafa nýlega verið stofnuð i ýmsum löndum í framhaldi af stofnun alþjóða- samtaka stórmeistara fyrr á þessu ári, en í forsæti þar er Gary Kasparov, heimsmeistari. Hyggjast stórmeistarar með þessu tryggja sér áhrif í FIDE. í stjóm Félags stórmeistara vom kosnir þeir Jóhann Hjartar- son, formaður, Friðrik Ólafsson, varaformaður, og Jón L. Ámason. Félagið hyggst beita sér í ýmsum málum auk samskiptanna við Al- þjóðaskáksambandið, meðal annars er ætlunin að tiyggja að íslenskir skákmenn dragist ekki aftur úr við tölvuskráningu skáka. í ýmsum löndum er kominn vísir að því að stórmeistarar og aðrir hafi aðgang að skákum væntan- legra andstæðinga í gagnabönk- um og er gífurlegt hagræði að slíku við undirbúning fyrir keppni. Forseti íslands kominnfráMön FORSETI íslands, Vigdis Fínn- bogadóttir, kom tíl landsins laust eftir miðnætti i gær úr opinberri heimsókn frá eynni Mön þar sem hann hefur dvalið í boði lands- stjómarinnar í fjóra daga. í gær, á lokadegi heimsóknarinn- ar, fór forsetinn ásamt fylgdarliði í skoðunarferð um eyna og skoðaði hún meðal annars fomminjar frá Víkinga- tímum. Síðdegis hélt Vigdfs frá Mön til London, þaðan sem hún fór með Flugieiðavél til íslands. Verslunarskolinn stofnar tölvuháskóla Tilgangurinn að þjálfa nemendur í stjórnun tölvudeilda, segir Þorvarður Elíasson, skólastjóri TÖLVUHÁSKÓLI hefur verið stofnaður við Verslunarskóla ís- landa og mun hann taka til starfa í ársbyrjun 1988. Boðið verður upp á eins og hálfs árs tölvunám við skólann. I fyrstu verða teknir inn sextíu nemendur, en síðar á árinu er gert ráð fyrir að fjölga nemendum um heiming. Þorvarður Elíasson, skólastjóri Verslunarskóla íslands, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að það hefði lengi staðið til að auka tölvunám í VÍ þar sem skólinn ætti nú yfir að ráða góðum tölvukosti. Þá væri skólinn fluttur f nýtt og glæsilegt húsnæði og væri nú loksins einset- inn sem gæfí honum aukið rými Félag íslenskra iðnrekenda: Skattahækkanir leiða til aukinnar verðbólgu Aðhald í ríkisbúskap vænlegri leið FÉLAG íslenskra iðnrekenda tel- ur að fyrirhugaðar skattahækk- anir nýrrar ríkisstjórnar muni fyrst og fremst leiða til aukinnar verðbólgu á næstu mánuðum og þar með til aukins kostnaðar fyr- ir atvinnulifið. Skattahækkanir skaði íslensk fyrirtæki, sem eigi í harðri samkeppni við erlend fyrirtæki, og þessar aðgerðir vinni því gegn þeim markmiðum rikisstjórnarinnar að draga úr verðbólgu og búa atvinnulifinu sem best vaxtarskilyrði. Skatta- hækkanir muni auka verðbólg- una árið 1987 um a.m.k. 2% og þvi sé hætta á að verðbólgan á árinu nálgist 20% og stefni hærra. Þetta kemur fram í ályktun, sem stjóm Félags íslenskra iðnrekenda samþykkti á fundi sfnum í gær. Þar segir ennfremur, að ekki sé einung- is hætta á aukinni verðbólgu, heldur feli sumar skattahækkanimar f sér aukna mismunun milli atvinnu- greina og fyrirtækja. Þetta eigi til dæmis við um skattlagningu mat- væla, þar sem sumar vömr em undanþegnar. Þá sé skattur á er- lendar lántökur mjög varhugaverð- ur þar sem hann skaði samkeppnis- aðstöðu innlendra fyrirtækja gagnvart erlendum keppinautum. Fyrirhugaður skattur á auglýsinga- stofur gæti einnig leitt til þess að íslensk fyrirtæki sæktu til erlendra auglýsingastofa, en það gangi þvert á það markmið að efla íslenskt at- vinnulíf í samkeppni við erlent. Iðnrekendur benda á, að skattur á tölvur samrýmist ekki því mark- miði að auka framfarir í atvinnulíf- inu á gmndvelli aukinnar framleiðni og nýsköpunar og alls ekki því markmiði að greiða fyrir stofnun og starfsemi smáfyrirtækja á sviði fjarskipta og upplýsingatækni, sem byggjast á hugviti og markaðs- þekkingu. I lok ályktunar stjómar FÍI er skorað á ríkisstjómina að hverfa frá áformum um skattahækkanir og fylgja þannig eftir markmiðunum um að draga úr verðbólgu og efla atvinnulífið. í staðinn verði stefnt að því að ná jöfnuði í ríkisbúskapn- um með aðhaldi í ríkisútgjöldum, án þess að skattar verði hækkaðir. Það sé árangursríkasta leiðin sem stjómvöld hafí til að draga úr þenslu og ná jafnvægi í utanríkisviðskipt- um. Sjá einnig viðbrögð við efna- hagsaðgerðum ríkisstjórnar- innar á bls. 30. miðað við það sem áður þekktist á Gmndarstígnum. Skólanefnd skipaði sérstaka nefnd í desember 1986 sem gera átti tillögur um stofnun tölvuhá- skóla. Nefndin skilaði tillögum sínum í apríl síðastliðnum. Þá ákvað skólanefiid að stofna til skólans og verða teknir inn stúdentar, sem útskrifast hafa af viðskiptasviðum framhaldsskólanna. Hafi hinsvegar stúdentar ekki lokið prófum sínum af viðskiptasviði, þurfa þeir sem áhuga hafa á námi við tölvuháskól- ann, að bæta við sig bókfærslu, vélritun og hagfræði. Menntamála- ráðuneytið hefur nýverið samþykkt stofnun skólans og mun greiða jafn- háa upphæð og sambærilegt nám á háskólastigi kostar. „Ég geri ráð fyrir að rekstrarkostnaður fyrir árið 1988 muni nema 10 milljónum króna, en auk þess verður skólinn sjálfur að standa undir fjárfesting- um í tölvubúnaði og hugbúnaði sem svarar jafnhárri upphæð, en nú þegar hefur skólinn yfir að ráða yfir 100 einkatölvum," sagði Þor- varður. Þá þarf að ráða kennara við nýja skólann, bæði laus- og fastráðna. „Við munum leggja áherslu á að fá til liðs við okkur kennara, sem hafa reynslu úr atvinnulífínu," sagði Þorvarður. Markmiðið með stofnun skólans er að nemendur geti að loknu námi skipulagt, séð um og framkvæmt tölvuvæðingu hjá fyrirtækjum og séð um kennslu og þjálfun starfs- fólks. „Námið hjá okkur er helmingi styttra en tölvunám í Háskóla ís- lands enda er því ætlað að vera frábrugðið. Við ætlum fyrst og fremst að gefa nemendum innsýn í stjómunarstörf tölvudeilda fyrir- tækja, en við ætlum hinsvegar ekki að fara út í mikla stærðfræði né fræðilega undirstöðu um hvemig tölvan er byggð upp. Ég á von á að námið verði eftirsótt af hálfu nemenda enda hefur eftirspumin verið mikil eftir slíku námi,“ sagði Þorvarður. Vestfirðir: Ekkisam- komulagum fiskverð lufirði. FULLTRÚAR sjómanna og fisk- kaupenda á Vestfjörðum hafa fundað vegna óánægju sjómanna með fiskverð sem kaupendur ákváðu einhliða. Sjómenn á norð- anverðum Vestfjörðum ákváðu í síðustu viku að hætta róðrum á mánudag ef ekki fengjust viðræð- ur við kaupendur. Nokkrir skuttogarar og minni bát- ar stöðvuðust á mánudag. Á mánudagskvöld héldu aðilar fund án þess að samkomulag næðist, en þó héldu skipin til veiða í gær. Fiskkaup- endur þinguðu I gær, en að þeim fundi loknum hófst fundur með full- trúum sjómanna og stóð hann fram á nótt. Sigurður R. Ólafsson, formaður Sjómannafélags ísfirðinga, sagði í gær að menn hefðu greinilega vilja til samninga. Hann tók fram að ekki yrði samið um annað en lágmarks- verð. Einar Oddur Kristjánsson, formað- ur viðræðunefndar fiskkaupenda, lagði áherslu á að mál þetta yrði að leysa þannig að ekki kæmi til sárinda og allir hefðu fullan sóma af. Úlfar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.