Morgunblaðið - 08.07.1987, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 08.07.1987, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1987 + Faðir okkar og tengdafaðir, HANNES GUÐBRANDSSON bóndi, , Hækingsdal, Kjós, andaðist mánudaginn 6. júlí sl. Börn og barnabörn. t Móöurbróðir okkar og vinur, JÓNATAN GUÐNI JÓNATANSSON, Utlu-Helðl, Mýrdal, lést í sjúkrahúsi Vestmannaeyja 6. júlí sl. Jarðsett verður frá Reyniskirkju, Mýrdal, þ. 15. júlí kl. 14.00. Helga Ólafsdóttir, Margrót Ólafsdóttir og fjölskyldurnar frá Litlu-Heiði. + SIGURJÓN MAGNÚSSON, tll heimilis á Laugarvegi 158, lést í Borgarspítalanum 6. júlí. Jarðarförin auglýst síðar. Jón Sigurjónsson. + Ástkær eiginmaður minn, faöir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURVIN BREIÐFJÖRÐ PÁLSSON, frá Höskuldsey, Vatnsnesvegi 24, Keflavík, lést í Landspítalanum að morgni 7. júlí. Júlía Guðmundsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA C. JESSEN, Hrafnistu, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 9. júlí kl. 10.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeir sem vilja minnast þeirrar látnu er bent á líknarstofnanir. Erna V. Ingóifsdóttir, Sigurbjörn Ævarr Jónsson, Leifur Ingólfsson, Anna Dam, Sif Ingólfsdóttir, Hörður Sigurðsson, Sigþrúður Ingólfsdóttir, Eðvarð Olsen, börn, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir mín, fósturmóöir og amma okkar, ÓLÖF MARÍA SIGURVALDADÓTTIR, sem lést á Droplaugarstöðum þann 30. júní sl., verður jarðsung- in frá Fossvogskirkju föstudaginn 10. júlí kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Hallgrímskirkju. Hallfriður Björnsdóttir, Marfa Bergmann, Hilmar Björgvinsson, Birna B. Stefánsson, Friðrik Björgvinsson, Sigurbjörg Björgvinsdóttir. + Minningarathöfn um föður okkar og tengdaföður, HAFLIÐA HALLDÓRSSON fyrrverandi bónda á Hvallátrum, er andaðist í Landakotsspítala 5. júlí sl., fer fram frá Fossvogs- kapellu fimmtudaginn 9. júlí kl. 16.30. Jarösett verður frá Patreksfjarðarkirkju þriöjudaginn 14. júlí kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á líknarstofnanir. Anna Hafliðadóttir, Árni Helgason, Erla Hafliöadóttir, Ólöf Hafliðadóttir, Þórður Guðlaugsson. + Bróðir okkar, ÞORLÁKUR G. SIGURSTEINSSON, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 9. júlí kl. 15.00. Rannveig Sigursteinsdóttir, Unnur Sigursteinsdóttir, Marfa Sigursteinsdóttir, Sigursteinn Sigursteinsson, Skafti Skaftason. Minning: Anton Nikulás- son sölustjóri Fæddur 30. október 1923 Dáinn 27. júní 1987 í janúar 1970 hóf ég störf hjá Lindarbæ. Mér var sagt hvenær ég ætti að mæta og að þar væri mað- ur sem myndi kynna mér starfíð. Þetta var dökkhærður, þrekvaxinn maður, sem setti í brýmar og mældi mig út frá hvirfli til ilja. Hann sagð- ist heita Anton Nikulásson „en kallaðu mig Tona,“ sagði hann. Þama hófst ævilöng vinátta okkar. Hann var einstakur maður, heiðar- legur, traustur og ævinlega tilbúinn að leysa vandamál manna. Mér er það vel kunnugt að margir, og þar á meðal ég, leituðu oft til hans og með rökvísi sinni fékk hann mann til að sjá hlutina í öðru og oftast bjartara ljósi. í starfí okkar í Lindarbæ þurfti hann oft að taka ákvarðanir, sem fóm í skapið á sumum, sem kvört- uðu þá við mig. Það varð strax einfalt að afgreiða málið. í tæp þrettán ár vom það sömu orðin „allir hafa galla en kostimir hans Tona em mörgum sinnum fleiri en gallamir". Því vom allir sammála. Eftir að ég fór að starfa með Tona hjá OLIS fengum við okkur ávallt göngutúr i hádeginu, út að Tjöm og til baka, hvemig sem viðr- aði, á meðan heilsa hans leyfði. Við spjölluðum mikið og nær alltaf var umræðurefnið vinnan og hvað betur mætti fara hjá OLÍS. Besta lýsing- in, sem ég hef á Tona, em orð sem forstjórinn okkar sagði: „Ef við gætum fengið 50 menn eins og Anton var, þá væm engin vanda- máj hér.“ Ég og fjölskylda mín sendum þér, Jóhanna, og þinni ^ölskyldu okkar innilegustu samúðarkveðjur. Ég hlakka til, þegar þar að kem- ur, að hitta minn kæra vin handan landamæranna miklu og halda áfram að þiggja hans góðu ráð. Gunnar H. Pálsson Þegar síðasta kallið kemur er gott að fá að kveðja á sama hátt og minn góði samstarfsmaður og félagi Anton Nikulásson vélstjóri, en hann lést í svefni þ. 26. júní, þá staddur á Akureyri í sumarleyf- isferð með konu sinni. Anton var að vísu búinn að ganga í gegnum mikið veikindastríð síðustu árin, en okkur sem höfum átt u.þ.b. vikulega fundi með honum um langt skeið hnykkti þó við fregn- inni um fráfall hans, því lengi hafði hann ekki litið betur út eða virst frískari en þegar hann kvaddi og hélt af stað í sumarleyfí sitt til Vopnafjarðar. En þar fasddist An- ton Marino eins og hann hét fullu nafni, 30. október 1923. Alitaf hélt hann tryggð við fæð- ingarbyggð sína, tók þátt í og aðstoðaði heimamenn m.a. í fjár- og efnissöfnun til elliheimilisins þar á staðnum. Ég mun alltaf minnast gleði- glampans í augum hans þegar áfanga var náð í þessari fram- kvæmd. Slíkan glampa fékk ég oft að sjá á síðustu nær tveim áratug- um sem Anton var náinn samstarfs- maður minn í stjóm Sjómanna- dagsráðs og Hrafíiistuheimilanna, en á þessum vettvangi hefur margt gott verið gert í þágu aldraðra á þessu sem fyrri árabilum. Árið 1970 var Anton kjörinn full- trúi í ráðið fyrir Mótorvélstjórafélag Islands. Að vonum var jafíi félags- lyndur og stéttarfélagslega sinnað- ur maður og Anton heilshugar hlynntur þvf að vélstjórafélögin tvö sameinuðust, vann því ötullega og við sameininguna 1976 verður An- ton fulltrúi Vélstjórafélags íslands í Sjómannadagsráði, eða alls í 17 ár. A sameiningarári félaganna var Anton kosinn varamaður í stjóm Sjómannadagsráðs og 1982 í aðal- stjóm sem meðstjómandi og vara- formaður og gegndi þessum störfum til dauðadags. Náin starfskynni okkar Antons hófust 1976 er hann var ráðinn til eftirlitsstarfa við byggingu A-álmu Hrafnistu í Hafnarfirði. Var hann starfsmaður okkar til ársloka 1979 og aðstoðaði við efnisútvegun auk eftirlitsstarfsins. Reyndist hann frábærlega í þessum störfum sem t Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför systur okkar, LÁRU J. EINARSDÓTTUR, Rekagranda 10. Anna Maria Baldvinsdóttir, Jóhanna Sigríður Baldvinsdóttir. t Þökkum hjartanlega auðsýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför eiginmanns míns, bróöur, föður, tengdafööur, afa og langafa, AXELS SIGURÐSSONAR matsveins, Melgerði 21, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Guðrún Guðmundsdóttir, Adolf Sigurðsson, Sigurbjörg Axelsdóttir, Axel Ó. Lárusson, Guðmundur Axelsson, Ólafía Lárusdóttir, Axel Axelsson, Steinunn Gunnarsdóttir, barna- og barnabörn. t Innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö fráfall og jaröarför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdaföður og afa, JÚLÍUSAR B. ANDRÉSSONAR, Álfaskeiði 64, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki Sólvangs. Soffía Ólafsdóttir, Sverrir Júlíusson, Brynja Árnadóttir, Halldóra Júli'usdóttir, Karel Karelsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir og barnabörn. öðmm er hann tók að sér fyrir sam- tök sjómanna. Eftir þetta hóf hann störf hjá Olíuverslun íslands og vann þar til dauðadags. Anton bjó yfír eftirtektarverðum eiginleika, en það var umhyggjan fyrir samstarfsfólki sínu, bæði ungu ■ sem öldnu. Tók ég eftir þessu áður en hann hóf störf hjá Sjómanna- dagsráði, en þá starfaði hann hjá heildversluninni Heklu. Sama var einnig og ekki sfður eftir að hann hóf störf hjá OLÍS. Anton lauk meira-mótorvél- stjóraprófí Fiskifélags íslands árið 1949. Hann sigldi á næstu ámm á skipum SÍS, Vitamálastjómar o.fl. Sjálfsagt hefur áhugi hans á fé- lagsmálum átt sinn þátt í að hann leitaði starfa í landi, en á því sviði var hann ákaflega frambærilegur. Hann gat sem góðum ræðumanni sæmir dregið saman í kjama megin- þætti þess sem hann vildi koma á framfæri og flutti mál sitt skýrt og skipulega. Iðulega var hann fenginn til að stýra fundum, enda ágætur fundarstjóri. Eiginkona Antons er Jóhanna Guðjónsdóttir og sendi ég henni, bömum þeirra, tengdabömum og bamabömum innilegar samúðar- kveðjur. Pétur Sigurðsson Eigi má sköpum renna. Þetta var okkur samstarfsmönnum Antons Nikulássonar efst í huga, þegar við fréttum andlát hans. Fyrir rúmum fjórum vikum kvaddi hann okkur, glaður og hress í anda og fór í lang- þráð sumarleyfi. Fyrst dvaldi hann i vikutíma hjá dóttur sinni á Kópa- skeri, en síðan fór hann til gömlu heimkynnanna við Vopnafjörð. Hann var þar í tvær vikur, ásamt Jóhönnu konu sinni, í sumarhúsi Vopnfírðingafélagsins. Það var á sínum tíma eitt af mörgum mann- legu áhugamálum hans að koma því húsi upp og búa það út sem best. Þar naut hann lífsins. Á dag- inn og kvöldin heimsótti hann vini og skyldrnenni og lék við hvern sinn fíngur. Á heimleið átti hann nætur- stað á Akureyri. Þar varð hann brákvaddur aðfaranótt laugardags- ins 27. júní. Anton hóf störf hjá Olíuverzlun íslands hf. á miðju sumri 1979. Hann var sölustjóri síðustu árin. Vélstjóramennt, reynsla og fjöl- mennur vina- og kunningjahópur kom honum oft að miklu gagni. Anton rækti starf sitt með slíkri samviskusemi að til fyrirmyndar var. Hann var mjög félagslyndur og hið mikla og óeigingjama starf hans að málum aldraðra og sjó- manna munu aðrir rita um. Um árabil stóð hann fyrir og tók mikinn þátt í skemmtanalífí höfuð- borgarinnar. Hann var dansmaður góður og bindindismaður alla ævi. Nú, þegar við lítum jrfir farinn veg, þá er okkur efst í huga persónan, sem ætíð var reiðubúin að leysa ýmis persónuleg vandamál annarra og ekki síst samstarfsmannanna. Það voru ófáir, sem leituðu tíl hans. Við minnumst hans fyrir glaðværð og oft var kátína í kring um hann. Fyrir þær góðu minningar þökkum við nú að leiðarlokum og vottum Jóhönnu og fjölskyldu samúð okkar. Samstarfsmenn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.