Morgunblaðið - 08.07.1987, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1987
Fjórðungssjúkrahúsinu afhent Sel II:
HjúkmnaiTÚin
fyrir aldraða
eru 30 talsins
HJÚKRUNARDEILD aldraða, Sel II, við Pjórðungssjúkrahúsið
var formlega afhent í gærdag. Tíu rúm bætast við þau 20 sem
fyrir eru í Seli I, og hefur hjúkrunardeildin þvi á að skipa 30
rúmum fyrir aldraða. Hin nýju húsakynni eru um 200 fermetr-
ar að stærð, auk þess sem tengibyggingin við Sel I er um 100
fm og er hún fyrirhuguð sem setustofa fyrir heimafólk.
Gestir við opnunina
Mun betri nýting á gisti-
„ ..„ ....
rými í sumar en í fyrra
Jón Kristinsson afhenti nafna
sínum Jóni Sigurðarsyni, formanni
stjómar Fjórðungssjúkrahússins,
Sel II fyrir hönd áhugamannahóps-
ins sem hefur unnið að því undan-
farin misseri að reisa þessa aðstöðu
fyrir aldraða, og sagði af því til
efni: „í dag er góður dagur. í dag
eru þáttaskil, áfanga er náð. Tíu
rúma viðbót er að vísu ekki ýkja
stórt stökk, en er þó 50% aukning
frá því sem fyrir var. Þegar þessi
viðbót er komin í gagnið hefur
hjúkrunardeildin í Seli yfír 30 rúm-
um að ráða.
Söfnunarfé er þó á þessari stundu
orðið 11,5 milljónir króna, og er ég
þess fullviss að okkur takist að ná
endum saman og skila þessu nauð-
synjaverki heilu í höfn og með
fullum sóma,“ sagði Jón Kristins-
son.
Framkvæmdir við Sel II hófust
í september á síðasta ári, en þá fór
áhugamannahópurinn af stað með
fjársöfnun og sagði Jón að söfnunin
hefði gengið vonum framar vegna
þess að mikill fjöldi fólks hefði af
örlæti og áhuga rétt fram hjálpar-
hönd. Flutti hann öllum sem það
gjörðu hugheilar þakkir.
Að lokinni stuttri tölu Jóns Sig-
urðarsonar, urðu nokkrir til að taka
til máls og ljúka lofsorði á þetta
framtak áhugamannahópsins, sem
síður en svo er hættur störfum því
um helgina ætlar Jón Kristinsson
að leggja upp í hjólferð til
Reykjavíkur með viðkomu í flestum
bæjum á leiðinni, og er tilgangurinn
sá að safna fé til að hefja fram-
kvæmdir við þriðja áfanga Sels.
*
Atta verk eft-
ir Harald Inga
sýnd í Al-
þýðubankanum
Myndlistarmaðurinn Haraldur
Ingi Haraldsson sýnir um þessar
mundir 8 verk unnin í akrýl,
pastel og blek á listkynningu í
Alþýðubankanum við Skipagötu.
Það eru Menningarsamtök Norð-
lendinga og Alþýðubankinn sem að
þessari sýningu standa, en hún
stendur yfír til 7. ágúst næstkom-
andi.
Haraldur Ingi fæddist 12. nóv-
ember árið 1955 og lauk hann
stúdentsprófí frá MA 1976. Hann
nam síðan myndlist í Myndlista- og
Eitt verkanna á sýningunni.
handíðaskóla íslands og árið 1981
útskrifaðist hann þaðan úr nýlista-
deild. Hann fór síðan til framhalds-
náms í Hollandi og dvaldi þar í
þijú ár, en að því loknu fiuttist
hann hingað til Akureyrar þar sem
hann hefur unnið að list sinni og
ekki verið fleiri en tvö til þijú her-
bergi laus hveija nótt.
Það höfðu þó ekki allir sömu
sögu að segja varðandi betri nýt-
ingu á gistiaðstöðu. Amfínnur
Amfínnsson, hótelstjóri á Hótel
Varðborg, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að sér virtist þetta sumar
ætla að verða svipað því sem var í
fyrra; nýting á gistiaðstöðu þetta í
kringum 60-70%, og fannst honum
það ekki mikið í ljósi þess að búið
var að spá mikilli §ölgun ferða-
manna hingað til lands í sumar.
833 þúsund söfnuð-
ust til sundlaugar-
innar við Sólborg
Fólk kemur með peninga þó það haf i
ekki tekið þátt í útvarpssöfnuninni
Maraþonútsending þeirra Óm-
ars Péturssonar og Þráins
Brjánssonar, Hljóðbylgjumanna,
í þágu sundíaugarbyggingar við
Sólborg skilaði inn 833 þúsund
krónum og gott betur því í sam-
tali við Morgunblaðið sagði Ómar
að fólk væri að koma til þeirra
með peninga þó svo það hefði
ekki tekið þátt í söfnuninni um
helgina.
Þeir félagar Ómar og Þráinn
vöktu í 60 klukkustundir, frá
fímmtudagsmorgni og fram á laug-
ardagskvöld, og sendu allan tímann
stanslaust út efni sem einungis var
rofíð með fréttaútsendingum. Tókst
þeim að safna þessari upphæð hjá
einstaklingum og starfsfólki fyrir-
tækja á þeim tíma. Hæsta fjárupp-
hæðin kom frá starfsmönnum
Útgerðarfélags Akureyringa, en
þeir létu af hendi rakna 80 þúsund
krónur.
„Við förum í gang með fram-
kvæmdir eins fljótt og hægt er og
látum ekki staðar numið fyrr en
sundlaugin er komin í gagnið,"
sagði Kolbrún Guðveigsdóttir,
deildarstjóri hjá Sólborg. „Sund-
laugin er búin að standa fokheld í
tvö ár og það hefur verið svekkj-
andi að þurfa að horfa upp á að
ekki hafí verið hægt að nota hana,“
sagði Kolbrún. „Fyrir okkur sem
heilbrigð erum er það ekkert til-
tökumál að fara í sund, og okkur
fínnst það bráðnauðsynlegt, en fyr-
ir þá sem vangefnir eru er þetta
bráðnauðsynlegt. í vatninu er miklu
betra að komast í samband við þá,
auk þess sem þjálfun í vatni er
nauðsynleg. Þessi laug verður því
bæði til þjálfunar og skemmtunar
og tilbreytingar. Það vantar að vísu
nokkuð upp á til að hægt sé að ljúka
þessu verki, en við erum full bjart-
sýni og staðráðin í að láta ekki
staðar numið fyrr en verkinu er
lokið. Þetta framtak piltanna er
mjög lofsvert og ég er þakklát því
fólki hér á Norðurlandi eystra sem
lét fé af hendi rakna til þessarar
söfnunar," sagði Kolbrún Guðveigs-
dóttir að lokum.
Kristín sýnir
á Café Torgi
KRISTÍN G. Gunnlaugsdóttir,
myndlistakona, sýnir nokkur
verka sinna á Café Torgi fram
yfir miðjan mánuð .
Kristín er 24 ára og nýútskrif-
uð úr Myndlista- og handiðaskóla
Islands og hefur tekið þátt í sam-
sýningum.
Vistmenn á hjúkrunardeildinni Sel II.
Ferðamannastraumur hingað
til Akureyrar virðist hafa verið
mun meiri það sem af er þessu
ári en verið hefur á sama tíma
undanfarin ár. Herbergjanýting
hótelanna er yfirleitt mun betri
en á sama tíma í fyrra, auk þess
sem herbergjum hefur fjölgað
nokkuð.
Gunnar Karlsson, hótelstjóri á
Hótel KEA, sagði í samtali við
Morgunblaðið að í síðasta mánuði
hefði nýting á herbergjum verið
rúmlega 80%, sem er mjög góð
nýting að hans sögn, og mun betri
en sú sem var á sama tíma í fyrra.
„Ferðamannastraumurinn byij-
aði greinilega fyrr á þessu ári en
áður. Hann hefur yfírleitt ekki haf-
ist fyrr en eftir 20. júní, en að þessu
sinni hófst hann í lok maímánað-
ar,“ sagði Gunnar Karlsson og
bætti við að það væri nær fullbókað
út september.
Á Hótel Stefaníu hafði Stefán
Sigurðsson svipaða sögu að segja,
en þar hafði mjög mikil aukning á
herbergjanýtingu átt sér stað frá
því í fyrra, og hvert herbergi verið
skipað undanfama tvo mánuði. „í
fyrra dróst þetta svolítið saman
tvær fyrstu vikumar í júlí og það
sama sýnist mér vera að gerast
núna,“ sagði Stefán Sigurðsson
hótelstjóri að lokum.
Hótel Edda tekur ekki til starfa
fyrr en um miðjan júnímánuð, en
samkvæmt upplýsingum sem Morg-
unblaðið aflaði sér þar þá hefur
þessi tími sem af er verið mun betri
en á sama tíma í fyrra. Af 79 her-
bergjum á Hótel Eddu hafa oft
kennt við Myndlistaskólann.
Helstu sýningar Haraldar Inga
fram að þessu eru: Einkasýning í
Rauða húsinu árið 1981, samsýn-
ingar í Nýlistasafninu árin 1983 og
1987 og samsýning í Bjargi á Akur-
eyri árið 1986.