Morgunblaðið - 08.07.1987, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 08.07.1987, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1987 Góð afkoma hjá Söltunarfélagi Dalvíkur: Marks og Spencer viður- kennir verksmiðjuna DaJvik. MJÖG góð rekstrarafkoma var hjá Söltunarfélagi Dalvíkur á síðasta ári og nam rekstrar- hagnaður fyrirtækisins 47,8 miiyónum króna. Aðalfundur fé- lagsins var haldinn föstudaginn 26. júní en þá var greint frá því að breska verslunarfyrirtækið Marks og Spencer hefði viður- kennt rækjuverksmiðju Söltun- arfélagsms. Viðskiptasamningur við þetta fyrirtæki segir sína sögu um verksmiðjuna þvi Bretar gera mjög strangar kröfur um hreinlæti og gæðamat þeirrar matvöru sem þeir kaupa og greiða jafnframt hærra verð fyr- ir rækjuna en gerist og gengur á markaðinum. Söltunarfélag Dalvíkur starfræk- ir rækjuverksmiðju auk þess sem það gerir út togarann Dalborgu EA. Þá hefur félagið verið með skip á leigu að undanförnu og gert út tog- arann Sigurborgu GK og Skagaröst GK. Félagið er einnig hluthafi í Upsaströnd sem gerir út togskipið Baldur. Upphaflega var félagið stofnað til síldarsöltunar en um árið 1975 hóf það rækjuvinnslu að frumkvæði Snorra Snorrasonar skipstjóra sem þá var einn aðaleigandi félagsins. Snorri er brautryðjandi í úthafs- rækjuveiðum fyrir Norðurlandi og gerði fyrst út á þær veiðar á litlum báti, en árið 1977 keypti Söltunar- félagið Dalborgu einkum með það í huga að gera hana út á úthafs- rækju. Arið 1984 varð breyting á eignar- haldi fyrirtækisins. Átti það í miklum rekstrarerfiðleikum vegna þess hve markaðsverð rækju var lágt. Keypti Kaupfélag Eyfirðinga og Dalvikurbær þá flest hlutabréf í félaginu og freistuðu þess að halda fyrirtækinu gangandi. Kaupfélagið á nú nær 66% hlutafjár en Dalvíkur- bær um 33%. Hlutafé var aukið og nausðynlegar breytingar gerðar á fyrirtækinu. Hefur því tekist að reisa það úr öskustónni og hafa ytri aðstæður hjálpað til því mjög góð rækjuveiði hefur verið og gott markaðsverð á rækjunni einkum á síðasta ári. Á undanfömum árum hefur verið unnið að lagfæringum á verksmiðj- unni. Tekin var í notkun ný vinnslu- lína og er öll vinnuaðstaða verksmiðjunnar hin snyrtilegasta. Mjög strangar hreinlætiskröfur eru gerðar m.a. er öll vinnslulínan af- skermuð og fær enginn að fara þangað inn nema þeir sem vinna við að pilla rækjuna. Fyrirtækið hefur lagt sig fram um að standast kröfur Marks og Spencer og hefur nú fengið viðurkenningu þess, en það fá einungis verksmiðjur í háum gæðaflokki. Það kom fram á aðal- fundi hjá Kristjáni Ólafssyni stjóm- arformanni fyrirtækisins að á sfðasta ári hafi fyrirtækið eitt þriggja ekki fengið eina einustu athugasemd við framleiðslu sína frá rannsóknarstofnun fískiðnaðarins og segir það sína sögu. Marks og Spencer hafa gert pöntun á rækju hjá fyrirtækinu og hefur fyrsta sending þegar verið afgreidd og uppfyllti varan allar þær kröfur sem Bretar gera og er nú verið að vinna upp í næstu sendingu. Starfsfólki fyrirtækisins vom þökkuð vel unnin störf en velgengni fyrirtækisins byggist ekki síst á þvi að það hefur mjög góðu starfsfólki á að skipa sem leggur sig allt fram um að framleiða sem besta vöm. Hjá verksmiðjunni starfa ú 45 manns og fjölgaði þeim um nær heiming á síðasta ári. Samtals námu launagreiðslur um 15,5 millj- ónum króna. Dalborg, togari félagsins, er ný- kominn úr sinni fyrstu veiðiferð eftir gagngerar endurbætur sem gerðar vom á skipinu hjá Slippstöð- inni á Akureyri. Landaði Dalborg um 90 tn af þorski. Skipt var um brú á því og endurbætur gerðar á matsal skipveija. Brúin var byggð yfir dekkið að hluta og þá var einn- ig bætt við bobbingarennum á skipið. Þá var sett í skipið nýtt tog- spil og ný ljósavél. Dalborg er mjög gott sjóskip og hefur reynst hin mesta happafleyta. Em forstöðu- menn Söltunarfélagsins þegar famir að gæla við lengingu skips- ins. Fréttaritari smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Dyrasímaþjónusta Gestur rafvirkjam. — S. 19637. Gistiþjónusta fbúðagisting. Sími 611808. UTIVISTARFERÐIR Helgarferðir 10.-12. júlí 1. Þórsmörk — Goðaland. Góð gisting í Útivistarskálunum Bás- um. Gönguferðir viö allra hæfi. M.a. verða Teigstungur skoðað- ar. en það svæði hefur opnast með tilkomu göngubrúar Útivist- ar á Hrunaá. 2. Veiðivötn. Gengiö verður að útilegumannahreysinu við Snjó- öldufjallgarð. Skoðuð falleg gígvötn. Farið að Hraunvötnum og víðar. Tjöld. Einstök ferð. Sumarleyfi í Básum Þórsmörk. Feröir alla miðvikudaga kl. 8.00, sunnudaga kl. 8.00 og föstudaga kl. 20.00. Heimkoma sömu daga. Pantið timanlega. Dags- ferðir í Þórsmörk alla sunnu- daga. Sumarleyfisferð 9.-12. júlí Sprengisandur — Drangey — Kjölur. Brottför fimmtud. kl. 8.00. Örfá sæti laus. Uppl. og farm. á skrifst. Grófnni 1, sfmar: 14808 og 23732. Miðvikudagur 8. júlí kl. 20.00 Selför á Almenninga. Létt ganga sunnan Straumsvíkur. Fornar seljarústir skoðaðar. Verð 400 kr., fritt f. börn m. full- orðnum. Brottför frá BSl, bensínsölu. Fimmtudagur 9. júlí kl. 20.00 Viðey. Þessari sögueyju og úti- vistarparadís Reykvíkinga ættu allir að kynnast. Lelðsögumað- ur: Lýöur Björnsson sagnfræð- ingur. Verð 350 kr., frítt f. börn 12 ára og yngri með foreldrum sínum. Brottför frá kornhlöðunni Sundahöfn. Kaffiveitingar til sölu í Viöeyjarnausti. Sjáumstl Utivist, ferðafélag Hörgshlíð 12 Samkoma í kvöld, miðvikudags- kvöld, kl. 20.00. 1927 60 ára 1987 FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR11798 og 19533. Helgarferðir 10.-12. júlí: 1) Lómagnúpur — Meðalland. Gist í svefnpokaplássi á Kirkju- bæjarklaustri. skoðunarferðir um Fljótshverfi og Meðalland. 2) Landmannalaugar — Velöl- vötn. Gist í sæluhúsi F.i. i Laugum. Ekið til Veiðivatna og gengið um svæðið. 3) Hveravelllr. Gist i sæluhúsi F.í. á Hveravöllum. Gönguferðir um Þjófadali, Kjalhraun og víðar. 4) Þórsmörk. Gist í Skagfjörðs- skála/Langadal. Við bjóöum sumarleyfisgestum ódýra dvöl í Skagfjörðsskála. Til Þórsmerkur er farið á föstudögum, sunnu- dögum og miðvikudögum. Farmiðasala og upplýsingar á skrifstofu F.Í., Öldugötu 3. Ferðafélag íslands. 1927 60 ára 1987 FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR 11798 og 19533. Sumarleyfisferðir Ferðafélagsins 10.-15. júlí (6 dagar); Land- mannalaugar — Þórsmörk Gengið með svefnpoka og mat frá Landmannalaugum til Þórs- merkur. Gist i sæluhúsum F.f. á leiðinni. Fararstjóri: Arnar Jóns- son. 15.-19. júlí (5 dagar): Hvftárnes — Þverbrekknamúll — Hvera- vellir. Gengið með svefnpoka og mat milli sæluhúsa F.f. á Kjalarsvæð- inu. Skoðunarferðir frá áningar- stöðum. Fararstjóri: Dagbjört Óskarsdóttir. 15.-19. júlf (5 dagar): Land- mannalaugar — Þórsmörk. Ekið á miövikudegi til Land- mannalauga og gengið sam- dægurs í Hrafntinnusker. Glst i sæluhúsum F.f. Fararstjóri: Hilmar Þór Sigurðsson. 17.-24. júlí (8 dagar): Lónsör- æfi. Flug eða bill til Hafnar i Horna- firði. Jeppar flytja farþega inn á lllakamb. Gist í tjöldum. Farar- stjóri: Egill Benediktsson. Farmiðasala og upplýsingar á skrifstofu F.í. — Oldugötu 3. ATH.: Takmarkaður fjöldi í „Laugavegsferðirnar". Ferðafélag Islands. f raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Útgerðarmenn minni báta og aðrir athafnamenn Til sölu er lítil fiskverkunarstöð búin m.a. góðri ísvél og góðum lausfrystibúnaði. 2 góð einbýlishús og ca 600 fm annað húsnæði. Einnig fylgir ca 100 ha lands, sumt ræktað og hluti af veiðivatni. Þessi staður liggur að einhverjum bestu fiski- miðum við ísland og náttúrufegurð er mikil. Góðir möguleikar á ferðamannaþjónustu. Mjög góðir tekjumöguleikar. Áhugasamir vinsamlega leggið inn tilboð á auglýsingadeild Mbl. merkt. „S — 5177“ fyr- ir 20. júlí. Smáfyrirtæki athugið! Viljið þér tölvuvæða fyrirtækið? Tvær Atari ST tölvur með skjám og drifum, hvor um sig V2 megabyte. Tveir prentarar 18 og 24 nála A3, modem og hugbúnaður að verðmæti u.þ.b. 95.000,- Upplýsingar í símum 39355 og 72639 eftir kl. 19.00 á kvöldin. Jörð til sölu Jörðin Tirðilmýri í Snæfjallahreppi er til sölu. Tún í góðri rækt. Vatn 12 gráðu heitt nálægt húsum. Á jörðinni eru góð steinhús er gefa möguleika á ferðamannaþjónustu. Upplýsingar gefur eigandi Engilbert Ingvars- son í símum 94-4815 og 985-20816. Nýr fiskibátur til sölu Tilboð óskast í nýjan 9,9 lesta fiskibát. Báturinn er frambyggður súðbyrðingur úr furu og eik, með 180 ha. vél. Fiskiskip, Austurstræti 6. Sími 22475. Heimasími sölumanns 13742. Söluturn miðsvæðis í Reykjavík til sölu. Einnig kemur til greina að selja húsnæði undir reksturinn. Upplýsingar á skrifstofu. Sölumenn: Sigurður Dagbjartsson, Hallur Páll Jonsson, Ingvar Guðmundsson, Hilmar Baldursson hdl. Jarðvinna vegna stækkunar Háskólabíós F.h. byggingarnefndar Háskólabíós óskast tilboð í jarðvinnu, holræsalagnir og fleira vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar við Há- skólabíó við Hagatorg. Helstu magntölur eru: Gröftur 14.600 m3og holræsi, 100, 150 og 200 cm í þvermál — 350 m. Verkið skal unnið á tímabilinu 4. ágúst til 16. október 1987. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík, gegn 3000 kr. skila- tryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 21. júlí 1987 kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS HwRGAi'.IUNJ 7 SiV.I VcH44 Til leigu í Ármúla Til leigu 600 fm húsnæði á jarðhæð í Ármúla. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „Ármúli - 6424“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.