Morgunblaðið - 08.07.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1987
27
Myndband frá mannræningjum:
Glass segist hafa
verið njósnari.
Beirut, Reuter.
MANNRÆNINGJARNIR, sem
stóðu að því að nema blaðamann-
Moi vill ekki fjöl-
fiokkakerfi í Kenýa
Nairobi, Reuter.
inn Charles Glass á brott í Beirut
í Líbanon, sendu á þriðjudags-
morgun myndband til alþjóðlegr-
ar fréttastofu í borginni. Þar
segir Glass frá því,grátandi, að
hann hafi verið njósnari banda-
risku leyniþjónustunnar.
„Margir héldu, að ég væri blaða-
Pýreneaskagi:
Mannskæð
bílslys
Covilha, Portúgal. Reuter.
TVÖ MANNSKÆÐ slys urðu á
Pýreneaskaga um helgina er
stórar fólksflutningabifreiðar
ultu út af vegi. Alls létust 56
ellilífeyrisþegar I slysunum.
Annað slysið varð nálægt bæn-
um Covilha í Norður-Portúgal á
sunnudaginn. Hemlar fólksflutn-
ingabifreiðar biluðu og hún
stakkst ofan í eitthundrað metra
djúpt gljúfur. í bifreiðinni voru 60
ellilífeyrisþegar í skemmtiferð. 18
þeirra létust.
Um 160 kílómetrum norðar, í
spænska héraðinu Orense, valt
fólksflutningabíll út í skurð. Fjoru-
tíu og þrír voru innanborðs og
biðu 38 bana. Fólkið, sem flest
var á gamals aldri, var á leið heim
úr skoðunarferð. 22 hinna látnu
voru frá sama þorpinu, Sarinera.
Súmatra:
Fílamir
átu frá
íbúum
JakartiL Reuter.
ÞRJÁTÍU þúsund landnemar á
Súmatra eru nú í sárum vanda
eftir að fílahjörð tróðst inn á
akra og ræktaðar lendur þeirra
og át uppskeruna í Lampung-
héraði, eins og hún lagði sig.
Fílarnir virtust sérstaklega
sólgnir í dýrindis sojabaunir,
sem voru orðnar vel þroskaðar.
Bændur höfðu gert sér vonir
um að fá gott verð fyrir
gróskumikla uppskeru.
í fréttum segir að tjónið sé
metið á milljónir, en það sem þung-
bærara sé, að þetta geti orðið til
þess, að matarskortur og hungur
geri vart við sig. Einnig sé hætt
við, að þetta dragi kjark úr íbúun-
um, sem flestir hafi nýlega flutzt
frá Java til Súmatra og hafíð að
bijóta land og rækta af kappi.
Fjöldi manns kom íbúunum til
aðstoðar að reyna að hrekja filana
af ökrunum; voru barðar bumbur
og höfð uppi háreysti. Fílamir,
sem eru friðaðir samkvæmt lög-
um, skelltu skollaeyrum við allri
áreitni, átu nægju sína og hurfu
ekki á braut fyrr en allt var uppét-
ið.
Áskriftcirsiminn er 83033
maður, en fæstir vissu sannlei-
kann...að ég hef unnið fyrir CLA,“
sagði Glass á bandinu. Samtök sem
kalla sig „Vemdara fijálsrar þjóð-
ar“ segjast hafa Glass í haldi og
frá þeim kom ofangreint mynd-
band. Aftur á móti eru menn litlu
nær um hveijir þeir eru, því að
enginn virðist fyrr hafa heyrt þess-
ara samtaka getið.
Glass var rænt þann 17.júní.
Hann var sérfræðingur um málefni
Líbanons og þekkti þar fjölda
manns. Hann var að vinna að bók
um ófriðinn í landinu. Sonur vamar-
málaráðherra landsins sem var
gripinn um leið og hann, var látinn
laus nokkru síðar. Hann hefur verið
ófáanlegur til að tjá sig um neitt
sem þessu máli viðkæmi.
Glass var óskýrmæltur á mynd-
bandinu, sagður þreytulegur og
órakaður.
Fyrst eftir að Glass var rænt var
búizt við að honum yrði sleppt fljót-
lega. Eftir ýmsu að dæma virðist
sýrlenzka herstjómin hafa vænzt
þess að mannræningjamir yrðu við
tilmælum þar að lútandi. Önnur
hefur þó orðið raunin og ekkert
kemur fram á myndbandinu um
það, hvað bíði hans á næstunni.
FORSETI Kenýa, Daniel Arap
Moi, lýsti þvi yfir á laugardag
að hann myndi hafa að engu
áskorun Oginga Odinga, fyrrum
stjóraarandstöðuleiðtoga, um að
koma á fjölflokkakerfi i landinu
á ný.
Odinga sakaði stjómarflokkinn,
Þjóðareiningarflokk Kenýa, um að
skerða málfrelsi og hvatti Moi til
að leyfa aðra stjómmálaflokka á
ný. Einsflokksstjóm var tekin upp
í Kenýa árið 1969. Þá var flokkur
Odingas, Alþýðufylking Kenýa,
bannaður.
Moi varði einsflokksstjóm lands-
ins með því að segja að flokkamir,
sem áður voru við lýði, hefðu verið
samtök ættbálka og oft hefði kom-
ið til blóðugra átaka milli þeirra.
Moi varði einnig hið nýja kosn-
ingakerfi, sem ætlunin er að taka
upp í Kenýa. Leynilegar kosningar
veiða aflagðar að mestu, en þess í
stað eiga kjósendur að koma saman
á kjörstað og taka sér stöðu í hala-
rófu að baki frambjóðandanum,
sem þeir styðja.
á (MM ****£££
Verö eru
miöuð við
staðgreiðslu
........... .