Morgunblaðið - 08.07.1987, Page 5
MORGUNBLAÐH), MIÐVTKUDAGUR 8. JÚLÍ 1987
5
i
\ --------------
Borginann-
ast útför
Gunnlaugs
Péturssonar
Borgaryfírvöld hafa óskað þess
við fjölskyldu Gunnlaugs Péturs-
sonar, fyrrverandi borgarritara,
að Reykjavíkurborg annist útför
hans, sem verður gerð frá Dóm-
kirkjunni föstudaginn 10. júlí nk.
kl. 13.30. Hefur Qölskyldan fal-
list á þá tilhögun, segir í frétt frá
skrifstofu borgarinnar.
Skrifstofa borgarstjóra verður
lokuð frá hádegi þann dag.
Fimmtán
búnir með
kvótann á
Suðurlandi
FIMMTÁN bændur á Suðurlandi
höfðu lokið við að framleiða
mjólk upp í fullvirðisrétt sinn um
siðustu mánaðamót. Þeir halda
áfram að leggja mjólk inn í
Mjólkurbú Flóamanna þr&tt fyrir
að ekki sé tryggt að þeir fái
greitt fyrir nýólkina.
Ástandið er mun betra nú en á
sama tíma f fyrra að sögn Birgis
Guðmundssonar mjólkurbússtjóra,
en þá höfðu 70 bændur lokið við
að framleiða upp í fullvirðisrétt
sinn. Um 700 bændur framleiða
mjólk á svæði Mjólkurbús Flóa-
manna og er fullvirðisrétturinn
samtals 37,6 milljónir lítra. Birgir
sagði að búist væri við að framleidd-
ir yrðu 800.000 til 1.000.000 lítrar
umfram fullvirðisréttinn á móti
2.500.000 lítrum í fyrra.
„Við sjáum fram á að á þessu
ári verði mun minna framleitt af
mjólk umfram fullvirðisrétt en í
fyrra. Sjálfsagt er það vegna þess
að nú fengu bændur að vita hver
fullvirðisréttur þeirra var með
sæmilegum fyrirvara. í fyrra fengu
þeir hins vegar að vita það á miðju
verðlagsári."
Þessir 800.000 lítrar samsvara
u.þ.b. viku framleiðslu af mjólk og
sagði Birgir að það væri kannski
erfitt að framleiða nákvæmlega það
magn sem upphaflega var áætlað.
Menn vildu frekar framleiða heldur
of mikið en of lítið. Einnig bæri að
taka tillit til þess að nú hefur verið
gott árferði og því meiri líkur á því
að framleiðslan verði meiri.
„Við höfum sent bændum til-
kynningu um samþykkt sem var
gerð á stjómarfundi Mjólkurbúsins
þann 8. maí síðastliðinn. Þar kom
fram að Mjólkurbú Flóamanna mun
taka við allri mjólk sem bændur
framleiða og óska að leggja inn,
en hvorki verður greitt fyrir um-
frammjólkina né innheimtur flutn-
ingskostnaður fyrr en séð verður
hvert verðmæti hennar er. Við ætl-
um -því að sjá til hvort við fáum
eitthvað fyrir þessa mjólk til dæmis
með að flytja hana út. Með því
væri ef til vill hægt að fá eitthvað
upp í flutningskostnað og jafnvel
hráefniskostnað. Menn vita ekkert
ennþá um hvemig þetta tekst, en
útlitið er ekki bjart,“ sagði Birgir.
Cterkurog
O hagkvæmur
auglýsingamióill!
Morgunblaðið/Sverrir
Slasaður maður
fluttur tíl Dan-
merkuríþotu
ÞOTA frá Þotuflugi hf. flutti i
gær slasaðan Grænlending til
Danmerkur, en maðurinn hafði
dvalist á Landsspítalanum um
hrið.
Maðurinn brenndist illa í Græn-
landi og óskuðu læknar þar eftir
að hann yrði fluttur á sjúkrahús á
íslandi. Fyrir skömmu var komið
með hann á Landsspítalann, en
íslenskir læknar töldu manninn bet-
ur kominn í Danmörku. Því var
Þotuflug hf. fengið til að flytja
manninn þangað í gær.
Slasaður Grænlendingur var
fluttur til Danmerkur í gær
meðþotu.
23,81%
ársávöxtun
Bónusreikningur Iðnaðarbankans
er þannig úr garði gerður, að allir
geti nýtt sér hann til þess að
ávaxta fé sitt á sem bestan,
einfaldastan og öruggastan hátt.
Hann er ailt sem þú þarft.
• Háirvextir
• Laus hvenær sem er
• Ekkert úttektargjald
Síðustu 6 mánuði var
ársávöxtunin 23,81 %
Láttu
Bónusreikning
vinna fyrir þig
© lónaöarbankínn
rntim tonki
i.