Morgunblaðið - 08.07.1987, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1987
15
Þessi ungi maður fylgdist með
því að dósirnar væru fullar og
lokin föst á þeim.
Morgunblaðið: Bjami Eiríksson
Davíð Sch. Thorsteinsson, framkvæmdastjóri Sólar hf., heldur
hér á flösku og dós úr hinu nýja plasti.
Nýtt íslenskt gos
frá Sól á markaðinn
Teknar í notkun umbúðavélar sem eru þær fyrstu
sinnar tegundar í heiminum
GOSDRYKKIR frá fyrirtækinu
Sól hf. koma á markað á morg-
un undir nafninu Sól-gos.
Undirbúningur þessarar fram-
leiðslu hefur staðið yfir síðan
árið 1984. Um leið verða teknar
í notkun umbúðavélar sem eru
þær fyrstu sinnar tegundar í
heiminum.
Að sögn Davíðs Sch. Thor-
steinssonar, framkvæmdastjóra
Sólar hf., eru dósimar búnar til
úr náttúrulegum efnum, þeim
sömu og eru í andrúmsloftinu.
Vélarnar sem framleiða dósirnar
eru frá Japan og eru þær einu
sinnar tegundar í heiminum. Þær
hafa vakið mikla athygli og hafa
erlendir aðilar heimsótt fyrirtækið
í þeim tilgangi að skoða þær.
Dósirnar eru framleiddar úr
tveimur lögum af efninu PET
(terelyne) með millilagi úr MX-
nyloni.
Fyrst búa vélarnar til flöskur
sem síðan er breytt í dósir með
því að skera flöskuhálsinn af.
Þetta er gert í vél sem er sú
fyrsta sinnar tegundar í heimin-
um. Vélamar geta bæði fyllt á
dósir og 1,5 lítra plastflöskur.
Auk vélanna verður tekin í
notkun framleiðslukeðja með vél-
búnaði frá alls tólf löndum sem
eru Japan, Frakkland, England,
Fyrsti drykkurinn, Sól-Cola, komin í dósir.
Þýskaland, Bandaríkin, Venezu-
ela, Holland, Spánn, Sviss,
Danmörk og Svíþjóð.
Davíð sagði að engin erlend
stórfýrirtæki gætu hugsanlega
hagnast á uppskriftum eða einka-
leyfum þar sem uppskriftir eru
allar íslenskar og blöndunarkerfíð
íslensk hönnun.
A þessu framleiðsluferli kemur
mannshöndin hvergi nærri fram-
leiðslunni en tölvustýrðar vélar sjá
um allt. I verksmiðjunni eru
hundrað tölvur þar af 19 forritan-
legar.
Til að byrja með verða fram-
leiddar fímm bragðtegundir en
þær em Cola, Límó, Appelsín,
Súkkó og Grape. Þær verða allar
framleiddar með og án sykurs.
Nú þegar er hafin framleiðsla á
Cola drykknum en framleiðsla á
hinum bragðtegundunum hefst á
næstu dögum.
Að sögn Davíðs hafa erlendir
aðilar sýnt mikinn áhuga á að
kaupa íslenskt drykkjarvatn í
plastdósum og hafa verið send
sýnishorn til útlanda til frekari
athugana.
Pryor og kvíðasvipurinn.
Grínlaus Pryor
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Hættuástand (Critical Conditi-
on). Sýnd í Regnboganum.
Stjörnugjöf: ☆
Bandarísk. Leikstjóri: Micha-
el Apted. Helstu hlutverk:
Richard Pryor, Rachel Tictin
og Rubin Blades.
Richard Pryor hefur undanfarin
ár átt í umtalsverðum erfiðleikum
með að fínna bæði sjálfan sig í
gamanmyndatilverunni og áhorf-
endur að myndum sínum. Það er
orðið svo langt síðan hann kom
manni til að hlægja að maður fer
að velta því fyrir sér hvort hann
hafi nokkumtíma verið fýndinn.
En á meðan hafa aðrir grínarar
eins og Eddie Murphy stolið sen-
unni og kannski sérstaklega Steve
Martin, sem er í stöðugri þróun
og virðist vera að slá í gegn um
þessar mundir með Roxanne.
Pryor hefur algerlega fallið í
skuggann af þeim og auðvitað
fjöldamörgum öðrum. Á meðan
þeir geta á góðum degi og tækni-
brellulaust fengið mann til að
tárast af hlátri, gónir maður á
lætin og fyrirganginn í Pryor og
hugsar með sér að betra hefði
verið að fara á aðra mynd. Það
er sama hvað hann reynir. Honum
tekst ekki að framkalla bros og
hvað þá hlátur.
Hættuástand (Critical Conditi-
on), sem sýnd er í Regnb'oganum,
er ein af þessum kjánalegu og
bjánalegu grínmyndum sem eru
ekkert nema hávaðasamur og á
endanum leiðigjarn skrípaleikur-
inn og svo sneyddar fyndni að þær
hafa eiginlega ekkert að gera með
að vera kallaðar gamanmyndir.
Hún gerist að mestu á slysadeild
í stóru sjúkrahúsi og Pryor leikur
mann sem fýrir misskilning er
tekinn fyrir lækni en hann er
annars að stinga af undan lögg-
unni eftir að hafa mistekist að
leika sig geðveikan til að sleppa
undan dómi í dópmáli sem hann
lenti í fyrir misskilning. Það eina
sem heldur þessari mynd saman
og er rauði þráðurinn í henni er
hinn eini og sanni og frostþurrk-
aði kvíðaasvipur Pryors (sjá
mynd). Það eru orðin einu svip-
brigði gamanleikara sem, ef
minnið bregst manni ekki, maður
gat hlegið að fyrir langa löngu.
Seðlabankinn vinnur að reglum um fjármögnunarleigur og greiðslukort:
Ekki hugmyndin að hneppa
þessi viðskipti í fjötra
- segir Jón Sigurðsson, viðtakandi viðskiptaráðherra
„Seðlabankinn er að vinna að
reglum um þessi nýju fyrirbæri
á fjármagnsmarkaðinum, fjár-
mögnunarleigurnar og greiðslu-
kortin, sem ástæða er til að
athuga hvernig best sé að fella
að þeim leikreglum sem gilda um
lánastofnanir," sagði Jón Sig-
urðsson, sem tekur við embætti
viðskiptaráðherra í dag, en í
stef nuyf irlýsingu ríkisstjórnar-
innar er boðað að settar verði
reglur um fjármögnunarleigu,
afborgunarviðskipti og greiðslu-
kort.
„Menn hafa ekki hugsað sér að
hneppa þessi viðskipti í neina fjötra
heldur líta til þess að þessi nýju form
fyrir lánsviðskipti sitji við sama borð
og þau sem fýrir eru, meðal annars
hvað varðar heimildir til að taka er-
lend lán og jafnframt takmarkanir á
útlánastarfsemina," sagði Jón. Hvað
greiðslukortin varðaði sagði hann að
fyrst og fremst yrði athugað hvort
haga mætti reglum um starfsemina
þannig að kostnaður af kortunum
lenti á þeim sem nytu hagræðis af
þeim. Engin áform eru uppi um að
íeggja opinber gjöld á viðskipti með
greiðslukort.
Jón var spurður um hvað átt væri
- segir Jóhanna Sig-
urðardóttir um að-
stoð við húsbyggjend-
ur í erfiðleikum
„ÞETTA er raunverulega skuld-
breyting á skammtíma lánum
yfir í þau lán sem eru hjá Hús-
næðisstofnun," sagði Jóhanna
Sigurðardóttir sem tekur við
embætti félagsmálaráðherra í
við í stjómarsáttmálanum, með
ftjálsari gjaldeyrisverslun milli Is-
lands og annarra landa. „Þama er
um að ræða að líta á þær reglur sem
nú gjlda um gjaldeyrisviðskiptin og
þá meðal annars það sem lýtur að
fjármagnshreyfingum og yfirfærsl-
um. Þetta hefur verið á dagskrá
nokkuð lengi og þokast í fijálsræði-
sátt og má þar nefna gjaldeyrisreikn-
- segir Steingrímur
Hermannsson, verð-
andi utanríkisráðherra
„ÆTLI þessi setning þýði ekki sitt
hvað þjá sitt hverjum flokki,"
sagði Steingrímur Hermannsson,
dag, en í stefnuyfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar er boðuð aðstoð við
þá sem lent hafa í erfiðleikum
vegna öflunar ibúðarhúsnæðis.
Jóhanna sagðist ekki vilja úttala
sig nánar um þennan lið stjórnar-
sáttmálans að svo stöddu en hér
væri um skuldbreytingu á eldri lán-
um sem fólk ætti í erfiðleikum
með, yfir í nýja kerfið hjá Hús-
næðisstofnun.
inga einstaklinga og útflytjenda. Þar
væri kannski hægt að rýmka enn
um rétt fólks til að eiga gjaldeyri á
reikningum hér og að færa hann á
milli landa. Eins og orðin standa
þama þá er fyrst og fremst um al-
menna stefnumótun að ræða og færa
viðskiptin nær því sem tíðkast í þeim
löndum sem við höfum mest við-
skipti við,“ sagði Jón.
sem tekur við utanríkisráðherra-
embættinu i dag, er hann var
inntur eftir merkingu yfirlýsingar
í stefnuskrá ríkisstjórnarinnar,
þar sem segir að verktakastarf-
semi fyrir varnarliðið verði tekin
til endurskoðunar.
„Það er búið að tala um þetta í
mörg ár og ég er ekki tilbúinn að tjá
mig um þetta á þessari stundu," sagði
Steingrímur. Hann var þá inntur eft-
ir því hvort yfirlýsingin hefði í raun
ekkert gildi. „Jú, hún getur haft það,“
svaraði Steingrímur. „Mér skilst á
sjálfstæðismönnum að þeir vilji hafa
þessa starfsemi sem fijálsasta, þann-
ig að aðilar geti boðið beint í hana,
en við erum ekki á því og að ég held
kratar ekki heldur. Það hafa í mörg
ár verið uppi raddir um að endur-
skoða starfsemi íslenskra aðalverk-
taka og ég man ekki betur en að það
sé í stefnuyfirlýsingu þeirrar ríkis-
stjómar sem nú fer frá. Ég held að
við ættum bara að bíða og sjá hvað
setur,“ sagði Steingrímur Hermanns-
son.
Verktakastörf fyrir varnarliðið:
Misjafn skilning-
ur eftir flokkum
Skuldbreyting á eldri lán