Morgunblaðið - 08.07.1987, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1987
23
* sakaðir um að gleyma gamla Sjálf-
stæðisflokknum og það sé óneitan-
lega viss styrkur fólginn í því að
gleyma honum ekki.
Þá heyrast sjónarmið þess efnis,
að það muni valda Þorsteini veru-
legum erfíðleikum, að Matthías
verður áfram ráðherra, þrátt fyrir
þá staðreynd að utanríkisráðuneyt-
ið hverfur nú til Framsóknar, en
Sverrir Hermannsson verður ekki
ráðherra, þótt bæði ráðuneytin sem
hann hefur stýrt undanfarin fjögur
ár, iðnaðarráðuneyti og mennta-
málaráðuneyti, verði áfram hjá
sjálfstæðisráðherrum. Það muni
reynast mjög erfitt fyrir Sverri að
sætta sig við þessa skipan mála og
niðurlæging hans verði meiri fyrir
þá sök að Matthías verður áfram
ráðherra.
Gæti veikt stöðu
Þorsteins
Þingmenn, sem eru ósáttir við
framgöngu Matthíasar í þessu máli,
segjast óttast það mest, að það að
Matthías hefur knúið í gegn ákvörð-
un um hann sjálfan sem ráðherra,
geti haft þær afleiðingar í för með
sér að staða Þorsteins veikist til
muna. Matthías hafí beygt Þorstein
á þeim tíma, þegar hann þurfti á
öllum sinum styrkleika að halda.
Þetta telja þeir að geti haft ófyrir-
sjáanlegar afleiðingar fyrir for-
manninn og stöðu hans innan
fíokksins, þar sem það sé vitað mál
að staða hans fyrir þennan atburð
hafí verið veik. Matthías hafí
beinlínis notfært sér veika stöðu
Þorsteins, og það kunni ekki góðri
lukku að stýra. Ekki eru þó allir
jafnsvartsýnir í þessum efnum, en
telja að það komi ekki í ljós fyrr en
á næstu mánuðum og misserum
hver styrkleikastaða formannsins
verður.
Einn af forystumönnum Sjálf-
stæðisflokksins sagði við mig í
gær, að hann teldi kröfu fyrsta
þingmanns Reykjaness vera skiljan-
lega. Matthías hefði staðið sig með
ágætum i ráðherraembættum
sínum og hafí mikla reynslu að
baki. Vissulega standi Matthías
uppi með mikið tap í sínu kjör-
dæmi, en það geri nú fleiri, eins
og varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, Friðrik Sophusson.
Reyndar hafa menn misjafnar
skoðanir á því hvort varaformaður
flokksins eigi að gegna ráðherra-
embætti, þegar Sjálfstæðisflokkur-
inn á aðild að ríkisstjóm. Þorsteinn
mun hins vegar telja að Lands-
fundur hafi ótvírætt sýnt vilja sinn
í verki, um það að varaformaðurinn
verði ráðherra, þegar Friðrik var
endurkjörinn með glæsilegri kosn-
ingu á Landsfundinum í mars sl.
Þetta mun einnig vera mjög almenn
skoðun meðal sjálfstæðismanna í
Reykjavík, samkvæmt því sem mér
er sagt, en viðhorfin munu vera
önnur meðal ákveðinna þingmanna
Sjálfstæðisflokksins, sem telja að
varaformaðurinn eigi að einbeita
sér að innra flokksstarfi, þegar
formaðurinn leiðir ríkisstjóm. Þeir
Eyjólfur Konráð Jónsson og Guð-
mundur H. Garðarsson era sagðir
fremstir í flokki þingmanna þessar-
ar skoðunar.
Einn sjálfstæðismaður sagði í
gær að Þorsteinn væri með ráð-
herravali sínu að leggja pólitíska
framtíð sína undir. Því hafí ekki
annað komið til greina fyrir hann
en að gera tillögu um þá menn sem
hann treysti best til þess að starfa
vel og heiðarlega með sér. Tillaga
hans um Friðrik Sophusson og Birgi
ísleif Gunnarsson sé byggð á þessu
sjónarmiði, en erfítt geti reynst fyr-
ir þá Þorstein og Matthías að starfa
saman til að byrja með, eftir að
Matthías hefur þröngvað sér inn í
þessa ríkisstjóm. Náinn samstarfs-
maður Þorsteins sagði í gær að
Þorsteinn myndi ekki láta þetta
hafa áhrif á samstarfíð, heldur
reyna að koma á eins góðum sam-
starfsanda og mögulegt sé. Benda
þeir á að Þorsteinn eigi allt undir
því að ráðherralið Sjálfstæðis-
flokksins verði öflugt og samhent
lið og því muni hann ekki láta það
hafa áhrif á sig, með hvaða hætti
Matthías valdist í þessa ríkisstjóm.
Þó kann svo að fara að ríkis-
stjómarþátttaka Matthíasar í
þessari ríkissijóm verði ekkert
sældarbrauð og dettur mörgum
sjálfstæðismönnum í hug að hann
hafí einungis unnið pyrrasar-sigur,
sem muni reynast honum skamm-
góður vermir. Sömu menn benda á
að margir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins og ráðherraefni séu
ósáttir við aðferðina sem Matthías
beitti til þess að tryggja sér setu í
ríkisstjóminni. Hann geti því allt
eins átt von á því að einangrast
bæði í þingflokki og ríkisstjóm,
þannig að hann verði næsta
kjörtímabil ekki sá áhrifamaður í
stjómmálum, sem hann óneitanlega
hefur verið mörg undanfarin ár.
í öðra lagi telja menn að Matt-
hías verði ekki alltof sæll í því
ráðuneyti, sem hann sest nú í —
samgönguráðuneytinu. Það ráðu-
neyti sé tvímælalaust eitt rýrasta
og áhrifaminnsta ráðuneytið, enda
hafí yfírleitt verið hafður sá háttur
á, að sá sem hefur farið með mál-
efni samgönguráðuneytisins, hefur
haft með höndum málefni einhvers
annars ráðuneytis. Það er því ekki
talinn mikil vegtylla fyrir fráfarandi
utanríkisráðherra, fyrrverandi íjár-
málaráðherra og fyrrverandi við-
skiptaráðherra að setjast í
ráðherrastólinn í samgönguráðu-
neytinu.
Menn telja að ef Þorsteinn hefði
verið staðráðinn í því að gera Ólaf
G. Einarsson að ráðherra, í trássi
við Matthías, hefði hann fengið
slíka tillögu samþykkta í þing-
flokknum. En þeir sömu segja,
jafnframt að þó að með hörku hafi
verið mögulegt að skipta Mathiesen
út, þá verði menn að hugleiða afleið-
ingar þess, og ekki sé ólíklegt að
Þorsteinn hafí metið það svo, að
ófriður við jafnþýðingarmikið og
stórt kjördæmi og Reykjanes er
væri einfaldlega of kostnaðarsamt
fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Segja þeir
sömu að flokkurinn hafí djöfullega
reynslu af slíkum innri átökum.
Búast má við því að landsbyggð-
arþingmönnum Sjálfstæðisflokks
þyki sinn hlutur fyrir borð borinn,
nú þegar ráðherrar flokksins hafa
verið valdir. Ráðherrar flokksins
nú era úr sömu kjördæmum og
þeir vora við upphaf Viðreisnar-
stjómarinnar. Þá eins og nú var
fyrsti þingmaður Suðurlands ráð-
herra, fyrsti þingmaður Reykjanes-
Iqordæmis, fyrsti þingmaður
Reykjavíkur og fyrrverandi borgar-
stjóri Reykjavíkur. Þegar horft er
til þess að allir ráðherrar Alþýðu-
flokksins era úr Reykjavík, og einn
ráðherra Framsóknar úr Reykja-
neskjördæmi, verður það að segjast
eins og er að ríkisstjómin hefur á
sér æði mikið þéttbýlisyfirbragð.
Reyndar munu alþýðuflokksmenn
vera sáttari við þá tilhögun að Jón
Baldvin Hannibalsson og Jón Sig-
urðsson höfðu skipti á ráðuneytum
og Jón Baldvin verði fjármálaráð-
herra. Alþýðuflokksmenn utan af
landi töldu það vera mjög mikilvægt
að formaður þeirra stýrði því ráðu-
neyti sem kom í hlut Alþýðuflokks-
ins, og tengist mest byggðamálum,
þ.e. fjármáiaráðuneytinu. Jafn-
framt mun Jón Baldvin sjálfur hafa
verið mjög ósáttur við að taka við
ráðuneytum dóms- og kirkjumála,
með skertu viðskiptaráðuneyti, en
hann var ekki svo afhuga því þegar
til stóð að Alþýðuflokkurinn færi
með samgöngumál í stað dóms- og
kirkjumála. Alþýðuflokksmenn
munu einnig hafa talið eðlilegt að
formaður þeirra stýrði valdamesta
ráðuneyti flokksins, eins og for-
menn Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks gera.
Ekki allt of
gæfulegt útlit
Það er ekki rétt að vera of böl-
sýnn á fyrsta starfsdegi ríkisstjóm-
ar Þorsteins Pálssonar, en í ljósi
þess hvemig aðdragandi að myndun
þessarar ríkisstjómar hefur verið
og með hliðsjón að því hvemig fór
um endumýjun ráðherraliðs Sjálf-
stæðisflokksins, er ekki ástæða til
þess að vera alltof bjartsýnn á að
ríkisstjómin eigi langa lífdaga fyrir
höndum.
kr. 999.-
kr. 699 - 799.-
kr. 1399.-
HÆTTU AÐ SLÍTA
SÓLUNUM
SKÓRNIR FÁST
HJÁ OKKUR!
HAGKAUP
REYKJAVIK AKUREYRI NJARÐVIK
Póstverslun: Sími 91-30980