Morgunblaðið - 08.07.1987, Side 33

Morgunblaðið - 08.07.1987, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1987 33 Enn genginn dómur í „Oddhólsmálinu“: Sala j arðarinnar Oddhóls dæmd ógild - Kaupsamningurinn talinn málamyndagerningur GENGINN er dómur í svonefndu „Oddhólsmáli“ í aukadómþingi Rangárvallasýslu. í dómnum var kaup- samningur um jörðina Oddhól í Rangárvallasýslu ógiltur sem eignarréttaryfirfærslugerningur. Málavextir þessa máls eru þeir, að Ólafur Jónsson á Oddhóli og eig- inkona hans undirrituðu samning um sölu á jörðinni til Sigurbjöms Eiríkssonar. Þau hjón kváðust ekki hafa hirt um það að lesa samning- inn og kvaðst stefnandi hafa talið vera um einhvers konar mála- myndakaup að ræða. Kaupandinn tók með sér samninginn án þess að afhenda seljanda afrit og undir- ritaði hann ekki sjálfur fyrr en þremur árum síðar, eftir að lögmað- ur seljanda hafði farið fram á að fá afrit af samningnum. Stefndi greiddi einhveijar skuldir vegna jarðarinnar, en stefnandi stóð áfram skil á sköttum og skyldum, og greiddi margar veðskuldir, sem á jörðinni hvíldu. Einnig annaðist hann kostnað vegna viðhalds jarð- arinnar. Á ofanverðu ári 1978 stóð til að dýpka skurð á milli jarðanna Odd- hóls og Odda, en Olafur synjaði leyfís. Var þá farið til Sigurbjamar Vinnuskóli Kópavogs: Vinnudagur fjölskyldunnar VTNNUSKÓLI Kópavogs verður með „vinnuskóla fjölskyldunnar" fimmtudaginn 9. júní. Undanfarin tvö ár hefur Vinnu- skólinn í Kópavogi staðið fyrir vinnudegi fjölskyldunnar. Tilgang- urinn er að fá bæjarbúa til að taka höndum saman við unglingana í vinnuskólanum um að fegra, snyrta og vinna við útivistarsvæðin í bæn- og fengið leyfi hans og dýpkun framkvæmd. Virtist Ólafí þá Sigur- bjöm ætla að halda fram eignarrétti sínum og leitaði hann þá lögmanns- aðstoðar. Lögmaður Ólafs sendi Sigurbimi bréf, dags. 5. des. 1978, þar sem tilkynnt er að kaupsamningi og afsali varðandi Oddhól sé rift. Þess- ari yfirlýsingu var mótmælt. Riftun- aryfírlýsingin var síðan ítrekuð og þinglýst. 24. febrúar 1981 gerist það síðan, að Sigurbjöm sendir hrepps- nefnd Rangárvallahrepps bréf, þar sem þess er beiðst, að hreppsnefnd- in falli frá forkaupsrétti sínum vegna kaupa hans á jörðinni Odd- hóli. Hreppsnefndin vísaði málinu frá, þar eð ágreiningur væri um gildi samningsins. Mál milli aðil- anna var síðan þingfest 10. apríl 1981. Aukadómþing Rangárvallasýslu, haldið 27. júlí 1982 komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt að fallast á þá kröfu Ólafs að um málamyndageming væri að ræða, þar eð engar fullnægjandi líkur hefðu verið færðar fyrir því né svo verulegar líkur að hægt væri að fallast á það gegn mótmælum stefnda. Ekki var heldur talið að stefnandi gæti byggt á því að stefndi hafí ekki undirritað samn- inginn fyrr en eftir að riftunarkrafa kom fram. Ekki var fallist á það að 30. og 32. gr. samningalaga eða 7. gr. okurlaga ættu við, þar eð stefnanda hefði ekki tekist að sýna fram á slíka fákænsku eða bágindi að réttlætti beitingu þeirra greina. Stefnandi vísaði til þess að fjár- hæðir í samningnum væru út í bláinn og tilbúningur einn. Hann var ekki talinn sýna fram á það með nægjanlegum rökum. Þeirri varakröfu stefnanda að samningn- um væri rift vegna vanefnda stefnda á því að greiða áhvflandi gjöld og skuldir og sinna viðhaldi var hafnað, þar eð ekki þótti um nægilegar vanefndir að ræða. Sig- urbjöm var því sýknaður af kröfum Ólafs. Hæstaréttardómur gekk um þetta mál 5. febrúar 1985 og skipt- ist álit Hæstaréttar í þrennt. í dómi meirihlutans sagði, að sterkar líkur væru leiddar að því að hinn svo- nefndi kaupsamningur_ aðilja og afsal aðaláfrýjanda (Ólafs) hafí ekki verið ætluð til að yfírfæra eign- arrétt aðaláfrýjanda að jörðinni til gagnáfrýjanda, án þess að frekara þyrfti til að koma. „Málflutning aðaláfrýjanda verður á hinn bóginn að skilja sem viðurkenningu hans á því, að enda þótt að margnefndur kaupsamningur og afsal aðaláfrýj- anda hafí verið gerð til málamynda sem eiginlegir málamyndageming- ar, hafí það verið tilætlun aðilja, að gagnáfrýjandi öðlaðist með þeim tryggingarréttindi í jörðinni fyrir kröfum sínum á hendur aðaláfrýj- anda vegna fjárframlaga í hans þágu eftir því sem kaupsamningur- inn greindi, en að undangengnum nánari skuldaskilum." Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur með vísan til forsendna hans. Minnihluti Hæstaréttar komst hins vegar að þeirri niðurstöðu, að líkur væm fyrir því að um mála- myndageming væri að ræða, en skýringar Ólafs á undirritun sinni væm ófullnægjandi. Minnihlutinn taldi hins vegar rétt að ógilda samn- inginn, þar eð aðaláfrýjandi hafí undirritað þau, án þess að fyrir lægi hversu mikið hann skuldaði gagnáfrýjanda. Föstudaginn 3. júlí var dómtekið í aukadómþingi Rangárvallasýslu mál Ólafs Jónssonar og Sigurbjöms Eiríkssonar. Dómkrafa Ólafs í þessu máli var aðallega sú að viður- kennt yrði með dómi, að kaupsamn- ingur og afsal fyrir jörðinni yrði ógilt með dómi sem eignaryfír- færslugemingur og stefnda gert skylt að aflýsa gemingnum. Aðal- krafa stefnda var að málinu yrði vísað frá dómi á gmndvelli „res- judicata" áhrifa dóms Hæstaréttar, en til vara að sýknað væri af öllum kröfum stefnanda. Stefnandi hélt því fram að gerð samningsins og afsalsins hafí stafað af því að hann var skuldugur við stefnda og hafí gemingum þessum verið ætlað að stofna til trygginga- réttinda til handa stefnda í jörðinni fyrir skuldum stefnanda þar til því uppgjöri væri lokið. Hins vegar hafi hann aldrei fengið neitt yfírlit frá stefnda yfir skuldastöðuna og hafí hann þess vegna hafíst handa um málshöfðunina 1981, auk þess sem stefndi hafí farið að haga sér gagnvart stefnanda eins og hann hafí öðlast beinan eignarrétt yfír jörðinni. Stefnandi kvaðst að gengnum dómi Hæstaréttar ítrekað hafa beðið um yfírlit yfír skulda- stöðu sína gagnvart stefnda en stefndi ítrekað neitað að afhenda slíkt yfirlit. Hafí stefndi einn yfírlit yfír skuldaskipti aðilja en neiti jafn- an að afhenda slíkt yfirlit. Vegna þessarar neitunar sé stefnanda nauðugur kostur að höfða mál þetta, enda líti hann svo á að að margnefndir löggemingar hafí ver- ið óskuldbindandi fyrir hann frá öndverðu, skv. ákvæðum 30. og 32. gr. samningalaga og 31. gr. sömu laga. Telur stefnandi, að staðfesting þessa hafí í raun fengist með dómsákvæði meirihluta Hæstarétt- ar frá 5. febrúar 1985. Stefnandi byggir einnig á því að gemingamir séu óskuldbindandi fyrir hann sem eignaryfírfærslugemingar skv. ákvæðum 36. gr. samningalaganna, þar sem skuldaskiptum aðilja sé ekki lokið og það sé bæði ósánn- gjamt og andstætt góðri viðskipta- venju fyrir stefnda að bera þessa geminga fyrir sig. Með úrskurði aukadómþings uppkveðnum 9. febrúar 1987 var hrundið kröfu stefnda um frávísun málsins. Var talið að engar nýjar upplýsingar hefðu komið fram, er réttlættu að dómurinn tæki það til endurskoðunar. „Verður því við það miðað að dómur Hæstaréttar frá 5. febrúar 1985 standi ekki í vegi fyrir því að mál þetta verði að efni til svo sem kröfugerð er nú hátt- að.“ Síðan segir í dómi aukaþings- ins: „Samkvæmt reglum íslensks réttar um bindandi réttaráhrif verð- ur niðurstaða dóms lögð til grund- vallar í öðrum málum milli sömu aðila, þar sem hún skiptir máli. Til að ákvarða, hvað telst bindandi nið- urstaða dóms verður einatt að líta á forsendur hans. Hins vegar er ekki meirihluti um forsendur Hæstaréttar í dóminum frá 5. fe- brúar 1985. Samkvæmt reglum íslensks réttar um bindandi réttar- áhrif dóma, annars vegar, og um atkvæðagreiðslur í flölskipuðum dómi, hins vegar, er röksemda- færsla í forsendum Hæstaréttar ekki bindandi um niðurstöður þessa máls.“ Efnisleg niðurstaða dómsins er þessi: „Hvorki við gerð hinna um- deildu geminga né síðar lét stefndi stefnanda í té samrit þeirra né önn-'- ur skilríki fyrir þeim réttindum, sem stefnanda eru þar áskilin, eftirgjöf skulda eða yfirtökur veðskulda, og ekki ritaði hann undir kaupsamn- inginn eða afsalið fyrr en löngu síðar. Stefndi gerði ekkert til að halda kaupi sínu til laga fyrr en stefnandi hófst handa um að bera brigður á lögmæti geminganna, og eigi taldi hann jörðina fram til eign- ar á skattframtali sínu. Stefnandi hélt áfram búskap á jörðinni eins og ekkert hefði í skorist, og þegar stefnandi höfðaði mál til ógildingar á áhvflandi veðskuldabréfum tók stefndi til vama, svo sem skuldir þessar væm ekki uppgefnar. Þegar allt þetta er virt, svo og hin óvenju- legu ákvæði samningsins um ákvörðun kaupverðs, fjárhæðir yfír- tekinna veðskulda og kvittaðra lausaskulda, þykir verða að leggja til grundvallar í máli þessu að samn- ingi aðila hafi ekki verið ætlað að hafa gildi milli þeirra sem kaup-. samningur og afsalinu hafi ekki verið ætlað að veita stefnda óskil- yrtan eignarrétt að jörðinni, heldur hafí ætlun aðila verið með geming- um þessum að veita stefnda tryggingu fyrir áður ótryggðum' kröfum hans á hendur stefnanda. Þykir þá samkvæmt þeirri reglu, sem fram kemur í 33. gr. laga 7/1936, nú 34. gr. þeirra laga, sbr. 4. gr. laga 11/1986, bera að fallast á aðalkröfu stefnanda um ógild- ingu. Dóm þennan kváðu upp Friðjón Guðröðarson, sýslumaður, Steingrímur Gautur Kristjánsson, borgardómari, og Allan Vagn Magnússon, héraðsdómari. um. Frumraunin var 1985 þegar bæj- arbúar tóku þátt í að hreinsa og sópa gangstéttir víðsvegar um bæ- inn. Tóku götur víða stakkaskiptum þann dag. I fyrra var unnið að einu verkefni, stíga- og brúargerð í Foss- vogsdal. Þannig var lögð þægileg gönguleið allt frá vestari hluta Birkigmndar inn að innsta hluta Furugrundar. Nú á að halda áfram á sömu braut og leggja stigana frá Álfatúni inn í Kjarrhólma. Ef bæj- arbúar taka þátt verður greið gönguleið eftir endilöngum dalnum loks að vemleika. Vinnudagurinn verður fímmtu- daginn 9. júlí og stendur vinnan frá 16.00—20.00. A þessum tíma geta bæjarbúar komið og lagt hönd á plóginn. Mæta skal neðan Álfatúns eða vestast við Kjarrhólma. Verk- færi leggur vinnuskólinn til. í lok vinnudags verður grillað og bæjar- stjóm býður upp á kaffi. (Fréttatilkynning) Reykhólahreppur: Mjög góð grásleppuveiði Reykhólum. GRASLEPPUVEIÐI hefur verið mjög góð hér í hinum nýja Reyk- hólahreppi og sjaldan verið meiri þrátt fyrir mikinn fjölda báta sem stunda hér grásleppuveiðar. Grá- sleppukarlar em nú byijaðir að draga upp netin. PÓSTUR OG SÍMI SÖLUDEILD REYKJAVlK, SÍMI 26000 OG PÓST- OG SlMSTÖÐVAR UM LAND ALLT Þú færð nýja Beocom símann í Söludeildinni í Kirkju- stræti og póst- og símstöðvum um land allt. Beocom síminn er hannaður af hinu heims- þekkta fyrirtæki Bang og Olufsen og uppfyllir því ströngustu kröfur um útlit og gæði. Beocom er léttur og meðfærilegur, hefur 11 númera minni, átta mismunandi hringingar; háar, lágar, hraðar og hægar. Hann hefur einnig sjálfvirkt endurval, hentuga minnisplötu, skrá yfir númer í minni og fjölda annarra góðra kosta. Beocom er sími sem nútíma- kann vel að meta; hönnunin , möguleikarnir ótalmargir og svo kostar hann aðeins kr. 7.946.- Falleg hönnun #g ótal mðgulei fyrir aóeins kr. 7.946- — Sveinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.