Morgunblaðið - 08.07.1987, Side 45

Morgunblaðið - 08.07.1987, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1987 45 Minning: Þórleifur Sigur- björnsson sjómaður Fæddur 18. júlí 1914 Dáinn 7. maí 1987 Þórleifur Sigurbjömsson, sjó- maður í Olafsfirði, andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 7. maí sl. eftir skamma sjúkdóms- legu. Þórleifur fæddist á Sveinsstöðum í Grímsey 18. júlí 1914 og voru foreldrar hans hjónin Sigrún Ind- riðadóttir og Sigurbjörn Sæmunds- son útvegsbóndi. Þórleifur ólst upp í stórum systkinahópi, en hann átti 7 systur, sem allar komust til full- orðinsára. Einnig eignuðust foreldr- ar hans yngri son, sem andaðist nýfæddur. Þórleifur hóf snemma að leggja heimili sínu lið eins og þá var siður og nauðsyn. Byijaði hann sjóróðra með föður sínum sjö ára gamall, en auk þess þurfti að sinna skepnu- haidi og heyöflun og nýta þau hlunnindi eggjatöku og fuglaveiði, sem afkoma heimila í Grímsey byggðist á. Þórleifur gekk í barnaskóla í Grímsey og naut þar kennslu Stein- ólfs Geirdal, sem var merkilegur maður, er um margt var á undan sinni samtíð. Auk þess dvaldist Þórleifur um stuttan tíma á Húsavík og nam þá m.a. sund í sundlaug, sem byggð var í Reykja- hverfi. Þótti Þórleifur á þeim árum liðtækur knattspyrnumaður og ent- ist honum knattspyrnuáhuginn ævilangt. Árið 1937 kvæntist Þórleifur Aðalheiði Karlsdóttur frá Garði í Ólafsfirði, mikilhæfri konu, sem á síðari árum hefur orðið þekkt fyrir ritstörf sín. Þau hófu búskap í Grímsey og eignuðust þar 3 börn. Heita þau Sólveig Anna, húsmóðir í Ólafsfirði, gift Einari Þórarins- Fædd 16. desember 1897 Dáin 29. mars 1987 Þó að nú sé nokkuð um liðið síðan amma dó langar mig að minnast hennar með nokkrum orðum. Amma, Oddný Þ. Erlendsdóttir, fæddist í Felli í Breiðdal og var einkabam foreldra sinna. Þau fluttu síðan frá Felli til Breiðdalsvíkur og byggðu þar eitt af fyrstu húsunum sem þar risu. í þessu húsi bjó amma síðan með sína fjölskyldu eftir að hún giftist. Amma giftist 1917 Þorgrími Guðmundssyni, en hann var lærður smiður eða snikkari eins og þá var kallað. Afi var dáinn áður en ég fæddist og minnist ég hans einungis af stórri mynd sem amma hafði alltaf í herbergi sínu. Þó held ég að ég geti fullyrt að hjónaband þeirra hafi verið mjög farsælt enda þurfti samhentar hendur til að sjá heimilinu far- borða, en amma og afi eignuðust 15 börn og eru 9 þeirra nú á lífi. Eins og að líkum lætur eru því af- komendur ömmu orðnir margir, en ekki veit ég nákvæmlega töluna á þeim. Amma hafði hinsvegar slíka hluti á hreinu og fylgdist af áhuga með velferð þeirra og tók ávallt málstað þeirra fyndist henni á ein- hvern hallað. Það sýnir líka hug ömmu að um hver jól fengu allir i syni; Karl Garðar, tæknifræðingur á Akureyri, kvæntur Freyju Eð- varðsdóttur og Sigrún, húsmóðir í Ólafsfirði, gift Gesti Sæmundssyni. Þau Þórleifur og Aðalheiður bjuggu í fyrstu á prestssetrinu í Miðgörðum, en þá var prestslaust í Grímsey. Síðan byggði Þórleifur nýbýli í landi Sveinsstaða og kallast það Sveintún. Þórleifur gerði sjómennsku að ævistarfi sínu. í Grímsey reri hann í fyrstu á opnum bátum, en síðan eignaðist hann í félagi við mág sinn, Óla Bjarnason, lítinn mótorbát, „Hafölduna", og gekk sú útgerð vel, þar til bátinn rak upp í ofviðri og eyðilagðist, en hafnaraðstaða var þá bágborin í Grímsey. Eftir 10 ára búskap í Grímsey hennar afkomendur pakka frá henni. Augljóslega þurti mikla út- sjónarsemi til að sjá fyrir svo stórri fjölskyldu sem amma og afí höfðu fyrir að sjá og sótti afi sjó og stund- aði búskap samhliða smíðum. Eftir fluttu þau Þórleifur og Aðalheiður búferlum til Ólafsfjarðar, þar sem þau bjuggu síðan. Þórleifur stund- aði sjómennsku bæði frá Ólafsfirði og eins fór hann á vertíðir sunnan- lands á vetrum eins og algengt var meðan fiskiskipafloti og hafnir Norðlendinga voru ófullkomnari en síðar varð. Fyrir allmörgum árum keypti hannn ásamt tveimur félög- um sínum lítinn vélbát er „Anna“ nefndist og stunduðu þeir eftir það dagróðra frá Ólafsfirði. Urðu þá þáttaskil í lífi Þórleifs að því leyti, að hann gat nú verið daglega sam- vistum við fjölskyldu sína. Þórleifur starfaði við útgerð Önnu fram til ársins 1983. Þórleifur hlaut viður- kenningu sjómannasamtakanna á Ólafsfirði á sjómannadaginn 1985 fyrir 60 ára sjósókn. Hann var vinnusamur maður sem ekki fé-I! verk úr hendi. Þegar heilsa hans var farin að bila síðustu árin sneri hann sér að því að dytta að ýmsu við heimili sitt og aðstoða fjöl- skyldu sína á ýmsan hátt. Hann ákvað að koma sér upp sumarhúsi í nágrenni Ólafsfjarðarbæjar og hafði nýlokið við það, þegar kallið kom. Þórleifur var móðurbróðir þess, sem þessar línur ritar, en hann var elskaður af systrum sínum og okk- ur systrabörnunum og fjölskyldum okkar var hann afar kær frændi. Hann var glaðlyndur og fjörugur og kætti jafnan huga okkar í æsku jafnframt því sem hann sýndi vel- ferð okkar ætíð áhuga. í starfi var hann kappsfullur, en jafnframt ró- lyndur og æðrulaus og frá honum geislaði hlýju til samstarfsmanna og samferðafólks. Þau Þórleifur og Aðalheiður áttu tæplega 50 ára hjúskap að baki er hann lést. Heimili þeirra hefuur jafnan staðið opið vinum og vanda- mönnum og hefur það borið húsráðendum góðan vitnisburð. Þótt söknuður ríki í hjörtum fjöl- skyldunnar og annars samferða- fólks Þórleifs ríkir einnig þakklæti í hugum þeirra, sem nutu samvista við Þórleif Sigurbjörnsson. Guð blessi minningu hans. Björn Friðfinnsson að afi dó, árið 1956, stundaði amma smábúskap í mörg ár og held ég að það hafi veitt henni mikla ánægju, enda var hún í eðli sínu náttúrubam. Eftir fráfall afa flutti amma til Þórðar, sonar síns, og Mareyjar, konu hans, og naut síðan umönnunar þeirra fram á síðasta dag. Amma hafði í gegnum árin pijón- að ófáa sokka og vettlinga á bamabömin, en þau nutu hennar í ýmsu öðru, því t.d. á undirrituð henni leskunnáttu sína að þakka. Hún kenndi okkur þremur í einu og enda þótt við hefðum sjálfsagt stundum frekar viljað fara út að leika okkur datt okkur ekki í hug að skrópa úr þessum lestímum hjá ömmu. Hún var hæglát ogþolinmóð og það fór líka svo að öll lærðum við þessa list að lokum. Amma flíkaði aldrei tilfinningum sínum né skoðunum, en þó held ég að hún hafi verið trúuð kona. Alltaf síðan ég man eftir hlustaði hún á sunnu- dagsmessuna í útvarpinu og lestur Passíusálmanna. Þegar ég heyri messu í útvarpi á sunnudögum koma upp í hugann þægilegar minningar um ilminn af sunnudags- matnum og ömmu þar sem situr og hlustar á messuna. Það er einkennileg og tómleg til- finning að vera búin að missa ömmu, en eftir standa ljúfar minn- ingar sem munu lifa áfram með okkur afkomendum hennar. Barnabarn Hótel Saga Simi 12013 Blóm og skreytingar við öll tœkifœri Lokað frá kl. 12.00 í dag, nniðvikudag, vegna jarðarfarar frú JÚLÍU MAGNÚSDÓTTUR. Nýform, Hafnarfirði. OddnýÞ. Erlends- dóttir - Minning Júlía Magnús- dóttir - Minning „Ó amma, ó amma, æ ansaðu mér, því ég er að gráta og leita að þér. Fórstu út úr bænum, fórstu út á hlað, fórstu til Jesú á sælunnar stað.“ (Gamall húsgangur úr Flóa.) I dag, miðvikudagin 8. júlí, verð- ur amma okkar Júlía Magnúsdóttir til moldar borin frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði. Amma Júlía var fædd á Kolholtshelli, Villingaholtshreppi í Flóa, 9. ágúst 1903. Ung fluttist hún til Hafnarfjarðar og bjó þar æ síðan. Oft sagði hún okkur krökk- unum sögur frá heimaslóðum sínum, sem var mjög gaman að hlusta á, því þær voru henni svo kærar. Alltaf gátum við leitað til ömmu og afa ef eitthvað bjátaði á, þau stóðu alltaf með opna arma tilbúin til að hjálpa, og aldrei kom fyrir að við færum svöng þaðan. Afi hét Bjarni Erlendsson og var húsa- smíðameistari, hann lést 9. desem- ber 1984. Amma og afi giftu sig 24. nóvember 1923 og bjuggu á Suðurgötu 49 í Hafnarfirði nær allan sinn búskap. Þau eignuðust 7 börn sem öll eru búsett í Hafnar- firði. Margar góðar minningar koma upp í huga okkar á sorgarstundu, til dæmis þessi vísa hér að ofan sem amma söng oft fyrir okkur þegar við vorum lítil. Það er alltaf sárt að missa þann sem manni þykir vænt um. En við getum huggað okkur við, og verið stolt af að eiga góðar minningar um elskulega og góða ömmu. Amma lést að kveldi 26. júní á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði eftir erfíða sjúkralegu. Við viljum þakka öllu starfsfólki St. Jósefsspítala í Hafnarfirði fyrir góða umönnun í hennar veikindum. Öllum aðstand- endum hennar sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Ragnheiður, Ingi, Hulda Sólveig, Guðrún og Sverrir. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, KRISTINN SIGURJÓNSSON fyrrum bóndi, Brautarhóli, Biskupstungum, verður jarðsunginn frá Skálholtskirkju fimmtudaginn 9. júlí kl. 14.00. Jarðsett verður að Torfastöðum. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Sjúkrahús Suðurlands og Biskupstungnasjóö. Kristrún Sæmundsdóttir, Sigriður G. Kristinsdóttir, Alfreð R. Jónsson, Arnleif M. Kristinsdóttir, Kjartan Runólfsson, Hrefna Kristinsdóttir, Eirfkur Þ. Sigurjónsson, Bjarni Kristinsson, Oddný K. Jósefsdóttir, Sigurjón Kristinsson, Jón S. Kristinsson, Ragnar Ragnarsson, Steinunn Jóhannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður og afa, VILBERGS GUÐMUNDSSONAR rafvirkjameistara, Sörlaskjóli 22, Reykjavík, fer fram frá Neskirkju föstudaginn 10. júlí kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent Slysavarnafélag íslands. Ingibjörg Guðmundsdóttir, Jóhannes Vilbergsson, Guðrún Andrésdóttir, Guðmundur Vilbergsson, Helga Guðmundsdóttir, Vilberg Vilbergsson, Anna Kristfn Kristinsdóttir, Sigurður Vilbergsson, Lilja Benediktsdóttir og barnabörn. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritsljórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. Í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar af- mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.