Morgunblaðið - 19.08.1987, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987
Verðlagsráð sjávarútvegsins:
Ekkert samkomu-
lag um loðnuverð
Sjávarútvegsráðherra gerð grein fyrir stöðu máia
EKKI náðist samkomulag um loðnuverð á fundi Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins, sem haldinn var í gær. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
ber mikið á milli kaupenda og seljenda i þeim efnum og munu fulltrú-
ar Verðlagsráðsins væntanlega ganga á fund sjávarútvegsráðherra í
dag og gera honum grein fyrir stöðu mála.
Loðnuvertíð stendur nú fyrir dyr-
um en afkoma í veiðum og vinnslu
virðist það slæm að afar erfítt er
að fínna viðunandi lausn, sem báðir
aðilar geta sætt sig við. Samkvæmt
nýrri úttekt Þjóðhagsstofnunar um
afkomu loðnubræðslu við rekstrar-
skilyrði í ágústbyijun má hráefnis-
verðið á loðnutonninu ekki vera
hærra en 1.277 krónur til að rekstur-
inn standi á sléttu. Það verð er langt
fyrir neðan það sem útgerð og sjó-
menn geta sætt sig við, en til
Alþjóðlega skák-
mótið í Gausdal:
Margeir hef-
ur tryggt
sér sigur
MARGEIR Pétursson hefur
tryggt sér sigur á alþjóðlega
skákmótinu f Gausdal f Nor-
egi. Hann hefur hlotið sjö og
hálfan vinning eftir átta um-
ferðir. Næstir eru Ernst frá
Svíþjóð og Sehner frá Vestur-
Þýskalandi með sex vinninga.
Þröstur Þórhallsson hefur
hlotið fjóra og hálfan vinning
og Hannes Hlífar Stefánsson
fjóra vinninga.
Margeir vann finnska alþjóða-
meistarann Yijola í áttundu
umferð. Þröstur gerði jafntefli
við norska alþjóðameistarann
Tisdall og Hannes Hlífar vann
Norðmanninn Bjerke.
Síðasta umferð mótsins verður
tefld í dag og þarf Þröstur Þór-
hallsson að vinna til að ná sínum
fyrsta áfanga að alþjóðlegum
meistaratitli. Hann hefur hvítt
gegn Finnanum Lindstedt sem
er lægri að stigum en Þröstur.
samanburðar má geta þess, að verð-
ið á hráefnistonninu á seinni hluta
síðustu vertíðar var um 2.000 krón-
ur.
í hópi útgerðarmanna og sjó-
manna eru þau viðhorf ráðandi að
verðið megi ekki fara niður fyrir það
sem var í fyrra ef nokkur von á að
verða til að menn geri út á loðnuveið-
ar í ár. Á fundi Verðlagsráðs
sjávarútvegsins í gær voru menn
almennt sammála um að svo mikið
bæri á milli að lítil von væri til að
samkomulag næðist. Var því gert
ráð fyrir að reynt yrði að fá fund
með sjávarútvegsráðherra í dag til
að gera honum grein fyrir þeim erf-
iðleikum sem eru á því að ná saman
rekstrargrundvelli í loðnuvinnslu og
afkomutekjum fyrir sjómenn og út-
gerð.
si
Nýstárlegt fiskflutningaskip
Fyrirtækið ísfang á ísafirði hefur tekið á leigu
svokallaða tvíbytnu, eða tveggja skrokka skip,
á leigu til fiskflutninga til Hollands. Skipið kom
til ísafjarðar á mánudagskvöld úr jómfrúrsigl-
ingu frá Noregi þar sem það var byggt, en þetta
mun vera stærsta skip sinnar tegundar í heimi.
Þyrluslysið í Jökulfjörðum:
Ráðherrar þurfa ekki
að gefa vitnisburð ytra
Frá Jóni Ásgeiri Sigurðssyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Bandaríkjunum.
DÓMARI í New Haven í
Connecticut-fylki í Bandaríkjun-
um úrskurðaði í fyrradag, að Jón
Helgason landbúnaðarráðherra,
fyrrverandi dómsmálaráðherra,
og Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
herra þurfi ekki að mæta til að
bera vitni vegna þyrluslyssins í
Jökulfjörðum. Lögfræðingar
Landhelgisgæslunnar hafa mót-
mælt tilraunum varnaraðilans,
Sikorsky, til að hafa óeðlileg áhrif
á gang málaferlanna vegna slyss-
ins í Jökulfjörðum árið 1983.
José A. Cabranes, dómari við
umdæmisdómstól Connecticut-fylk-
is, úrskurðaði í fyrradag, 17. ágúst,
að Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
herra og Jón Helgason landbúnaðar-
ráðherra þurfi ekki að gefa
eiðsvarinn vitnisburð í Hartford í
Connecticut-fylki í skaðabótamálinu
vegna þyrluslyssins í Jökulfjörðum
í nóvember 1983. Lögfræðingar Si-
korsky-verksmiðjanna óskuðu í
júlílok eftir því að vitnisburður þeirra
Þorsteins og Jóns yrði tekinn í Hart-
ford 18. ágúst, það er að segja í gær.
Lögfræðingar Landhelgisgæsl-
unnar og aðstandenda þeirra sem
fórust töldu að þeir Þorsteinn og Jón
væru slysinu sjálfu á allan hátt óvið-
komandi og gætu ekkert um það
upplýst. Ennfremur hefðu lögfræð-
ingar Sikorsky-verksmiðjanna látið
ógert að óska eftir þessum vitnis-
burði þegar þeir voru á íslandi í
september 1986 til að afla eiðsvarins
vitnisburðar ýmissa einstaklinga hjá
Landhelgisgæslunni, Flugmála-
stjóm og öðrum.
Lögfræðingar Landhelgisgæsl-
unnar og aðstandenda sögðu enn-
fremur að þessar óskir eftir
vitnisburði ráðherranna væru ein-
ungis ætlaðar til að hrella og kúga
sóknaraðila málsins. Þetta væri til-
raun til að valda þeim óþarfa
kostnaði, auk þess^ að tefja fyrir
rannsókn málsins. í gær var lögð
fyrir Cabranes dómara ósk lögfræð-
inga Landhelgisgæslunnar um að
vamaraðila verði fyrirlagt að hætta
„einhliða tilraunum til að hafa áhrif
á lögsókn þessa máls í gegnum fjöl-
miðla“. Tilgreind er forsíðufrétt í
Tímanum frá 7. ágúst síðastliðnum,
þar sem sagt er frá kröfu Sikorsky
um að Þorsteinn Pálsson og Jón
Helgason mæti til vitnaleiðslu í
Hartford.
Mál Landhelgisgæslunnar gegn
United Technologies, United
Technologies Intemational og Sik-
orsky Aircraft var höfðað í október
árið 1985, en mál aðstandenda
þeirra sem fórust voru höfðuð
snemma á árinu 1986. Landhelgis-
gæslan krefst 3 milljóna dollara
skaðabóta. Fyrr á þessu ári voru
skaðabótamál Landhelgisgæslunnar
og aðstandendanna, sem er rekið
fyrir umdæmisdómstól Connecticut,
öll færð í hendur José A. Cabranes
dómara _sem hefur aðsetur í New
Haven. Ákveðið hefur verið að öflun
vitnisburða skuli lokið 15. september
næstkomandi.
Morgunblaðið/Sverrir
Sigurður Pálsson rithöfundur hlaut í gær starfslaun listamanns
Reykjavíkurborgar til þriggja ára.
Reykjavíkurborg:
Starfslaun listamanns
veitt til þriggja ára
SIGURÐI Pálssyni rithöfundi
voru í gær veitt starfslaun lista-
manns Reykjavíkurborgar.
Starfslaunin eru veitt til þriggja
ára og eru viðamestu starfslaun
sem veitt eru hér á landi með
þessu móti.
Það var Davíð Oddsson borgar-
stjóri sem afhenti Sigurði starfs-
launin í gær á afmælisdegi
Reykjavíkurborgar en fyrir réttu
ári síðan var stofnaður starfslauna-
sjóður listamanns í tilefni af 200
ára afmæli Reykjavíkur. Er Sigurð-
ur fyrsti listamaðurinn sem hlýtur
þessi starfslaunin. 48 umsóknir
bárust um starfslaunin.
Sigurður Pálsson sagði við þetta
tækifæri að starfslaunin yrðu sér
mikil hvatning til að sækja á bratt-
ann og hafa bæri í huga að afkoma
iistamanna væri mjög ótiygg.
Starfslaun til þriggja ára væru
listamanni mikil lyftistöng og fram-
tak borgarstjómar lofsvert og
mikilvægt fyrir alla listamenn.
„Listamenn koma öllum við og lista-
verk eru þess eðlis að þau eru eign
allrar þjóðarinnar," sagði Sigurður
Pálsson.
Málefni Borgarbókasafnsins:
Fráleit fullyrðing að fram-
lag borgarinnar hafi minnkað
- segir Davíð Oddsson borgarsljóri
Morgunblaðinu barst í gær eftir-
farandi frá Davíð Oddssyni
borgarstjóra:
„Morgunblaðið hefur spurt mig
um ummæli Önnu Torfadóttur,
safnvarðar, um rekstur Borgar-
bókasafnsins í Reykjavík. Þess
vegna skal tekið fram:
Það er vissulega afar óheppilegt
að einn af starfsmönnum Borgar-
bókasafnsins taki sér fyrir hendur
að fjalla með pólitískum hætti um
starfsemi þess án þess að vera tals-
maður þess á einn eða annan veg
og því bagalegra er þetta þegar þær
upplýsingar sem viðkomandi gefur
eru í veigamiklum atriðum rangar.
Haft er eftir starfsmanninum
innan tilvitnunarmerkja: „Eftir að
nýr meirihluti tók við stjóm borgar-
innar minnkaði fjárframlag til
bókasafna um helming. Reyndar
hefur það skánað núna með opnun
útibúsins í Gerðubergi. Við höfum
reynt að mæta þessum niðurskurði
með því að kaupa færri eintök af
hvetjum bókatitli og leyfa aðeins
svokölluð skammtímalán á nýjum
bókum, þannig gefst fleirum kostur
á að fá nýjar bækur lánaðar í
skemmri tíma en áður."
Það gefur augaleið, að fullyrðing
um að framlög borgarinnar til bóka-
safna hafi minnkað um helming er
náttúrulega fjarri öllu lagi og óskilj-
anlegt að ábyrgur starfsmaður taki
þannig til orða. Það er reyndar
ekki keppikefli hjá opinberum aðil-
um, hvorki borg né öðrum, að
rekstrarkostnaður vaxi jafnt og
þétt og því ber auðvitað að fagna
ef úr honum er dregið án þess að
það komi með alvarlegum hætti
niður á þjónustunni.
Ef kjörtímabilin frá 1979-82
annars vegar og frá 1983-86 hins
vegar eru borin saman á föstu verð-
lagi, kemur í ljós að til bókasafna
var varið á því fyrra 238.792.226
krónum, en á hinu síðara
192.302.372 krónur. Þannig að
þama hefur orðið nokkur spamaður
í rekstri, en þó ekki sem nemur
neinu því sem þessi starfsmaður
lætur hafa eftir sér. Ef hins vegar
bókakaupin ein og sér eru skoðuð,
þá var varið til bókakaupa á hinu
fyrra kjörtímabilinu 46.530.159
krónur, en á hinu síðara 49.518.769
krónur, þannig að við blasir að
framlög til bókakaupa á föstu verð-
lagi hafa ekki minnkað heldur þvert
á móti aukist. Hins vegar hefur
verið haldið fram af hálfu bókasafn-
ins, að kostnaður við bókakaup
hafi aukist meira en almennum
verðlagsbreytingum nemur. Þetta
kemur reyndar ekki heim og saman
við fullyrðingar bókaútgefenda um
breytingar á raunvirði á bókum.
Reykjavíkurborg hefur verið í
fararbroddi í rekstri bókasafna um
langt árabil og mun auðvitað verða
það hér eftir sem hingað til, og
ekki er vafi á að Borgarbókasafnið
hefur verið borginni og borgarbúum
til sóma."