Morgunblaðið - 19.08.1987, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987
t
Dóttir mín og móðir okkar,
HÓLMFRÍÐUR GUNNLAUGSDÓTTIR,
Þinghólsbraut 53,
andaðist á Landspítalanum 17. ágúst 1987.
Hólmfríður Sigurjónsdóttir,
Gunnlaugur Jón Ólafur Magnússon,
Hólmfríður Magnúsdóttir,
Jóhann Magnússon.
t
Móðir okkar,
ILSE BLÖNDAL,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði, mánudaginn 17. ágúst.
Valdis Blöndal,
Hanna Soffia Blöndal,
Kjartan Blöndal.
t AÐALBJÖRG ÞÓRÐARDÓTTIR,
Norðurbrún 1,
Reykjavík,
er lést 17. ágúst sl., verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
21. ágúst nk. kl. 10.30. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu er bent á líknarstofnanir. minnast hennar
Vandamenn.
t
LOVÍSA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Háagerði 11,
Reykjavfk,
andaðist í Landspítalanum aðfaranótt 18. ágúst.
Hjálmar Guðjónsson
og börn hinnar látnu.
Þórður Steindórs-
son — Minning
Fæddur 27. júní 1919
Dáinn 8. ágúst 1987
Hann situr í rökkrinu við eldhús-
borðið heima og það er notaleg
værð yfir fólkinu. Glettinn á svip
þylur hann sögu sína þar sem hvert
smátt atriði verður skemmtun og
magnar þrep fyrir þrep spennuna
og óvissuna um framhaldið. Með
þýðri baritónrödd og skemmtilega
blöndnum svip af góðmennsku og
kímni heldur hann öllum föngnum
þar til að allt í einu hann lýkur
sögunni með bráðsmellnum lýsing-
um á hinum hversdagslegustu
atvikum og herbergið ómar af hvell-
um, glaðværum hlátrasköllum. Þá
tekur hann af sér gleraugun, pússar
þau svolítið og týnir í glerið og
segir: ja, svona er það nú, krakkar
mínir. Rís upp úr sætinu, segir:
jæja, eigum við ekki að fara að
koma okkur, Ester mín? í beinu
framhaldi segir hann: en hafið þið
heyrt? Enn ein græskulaus saga
úr daglega lífinu sem gædd er geisl-
andi húmor og lífí líkt og einhver
hafi lostið með töfrasprota. Nú
leiftrar þessi nær þrjátíu ára gamla
minning. Þeir voru Þórður og faðir
minn í spilaklúbb saman ásamt
þrem öðrum félögum og mikið gátu
þeir hlegið og hermt eftir hver öðr-
um. Þegar ég óx úr grasi lærði ég
að meta Þórð, ekki aðeins þennan
þýða, seiðandi sagnaþul og góð-
menni, heldur sem þrælpólitískan
og bráðgreindan hugsuð og hug-
sjónamann. Hann gat lyft sér á flug
í skemmtisögunum en flugið varð
enn hærra í pólitísku spjalli. Þar
fékk ég marga lexíuna og hann
hafði gaman af að fræða aðra um
þá niðurstöðu sem hann hafði kom-
ist að í hveiju máli og þá skipti
engu máli hvað tímanum leið.
Þórður sýndi minni ijölskyldu
allri djúpa og fölskvalausa vináttu
allt sitt æviskeið. Hann var alltaf
tilbúinn til þess að rétta hjálpar-
hönd, leggja á ráð eða hvetja til
dáða. Nú þegar hann er farinn frá
okkur, blessaður, þá er líkt og dyr
standi opnar á eftir honum. Hann
kemur ekki aftur inn, en bíður þess
að eiga glettnisstundir með vinum
sínum. Þannig var hann, aðeins
hlýja í sporum hans. Fjölskylda mín
tekur einlægan þátt í sorg aðstand-
enda og eiginkonu hans og vottar
þeim dýpstu samúð og vináttu.
Þórður var fæddur á Lónseyri á
Snæfjallaströnd, sonur þeirra
Steindórs Stefáns Guðmundssonar
og Valgerðar Guðbjargar Friðriks-
dóttur. Hann lærði til feldskurðar,
einn örfárra hérlendra manna, og
stundaði þá iðn um skeið. Lengstan
feril átti hann þó hjá Sjúkrasamlagi
Reykjavíkur og síðar hjá Gjald-
heimtunni. Hann tók þátt í starfi
Góðtemplarareglunnar um langt
árabil og eignaðist þar fjölmarga
vini og kunningja.
Þórður var kvæntur Ester Sæ-
mundsdóttur. Hann sagði sjálfur:
við eigum sex böm, þar af fjögur
saman. Þórður átti séra Pál Þórðar-
son heitinn fyrir son með fyrri konu
sinni, Kristínu Pálsdóttur. Séra
Páll lést löngu fyrir aldur fram, sem
var mikil raun föður hans. Ester
átti Eðvarð Olsen lögregluvarð-
stjóra áður en Þórður og hún gengu
í hjúskap. Saman áttu þau Magnús
Frikrik, Valgerði Guðbjörgu, Ríkey
og Sæmund.
Með þessum fáu orðum hefi ég
viljað halda uppi minningunni um
góðan og hlýjan mann, sem hafði
mikið að gefa samborgurum sínum.
Blessuð sé minning Þórðar
Steindórssonar.
Pétur Einarsson
Minning:
t
Eiginmaöur minn, faðir og tengdafaðir,
EIRÍKUR ÞÓRÐARSON,
Hátúni 4,
Reykjavtk,
lést í Borgarspítalanum 15. ágúst sl.
Heiða Jensdóttir,
Guðrún Eiríksdóttir, Viðar Janusson,
Þórður Eiríksson, Guðrún G. Björnsdóttir.
t
Sonur minn, faðir, bróðir og dóttursonur,
HILMAR S. KARLSSON,
andaöist þriðjudaginn 11. ágúst. Útförin hefur farið fram.
Þórdis Hilmarsdóttir, Atli Benedikt Hilmarsson,
Margrét Gunnarsdóttir, Margrét Jónsdóttir.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
MATTHILDUR BJÖRG MATTHÍASDÓTTIR,
Vesturbergi 142,
verður jarðsungin fimmtudaginn 20. ágúst frá Bústaöakirkju. kl.
15.00
Guðmundur Eyjólfsson,
Guðfríður Guðmundsdóttir, Björn Möller,
Elín V. Guðmundsdóttir, Sigurgeir V. Sigurgeirsson,
Bjarni Guðmundsson, Sigrún Halldórsdóttir,
Ragnar Á. Guðmundsson, Sigríður Brynjólfsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Lárus Jóhann
Guðmundsson
Fæddur 11. september 1913
Dáinn 9. ágúst 1987
15 ára kynni mín af Lárusi í
Ögri eru eftirminnileg. Hann var
einn af þeim sérstöku mönnum sem
seint gleymast og hafði í sér svo
margt sem mætti vera öðrum til
eftirbreytni. Árið 1971 eignaðist
fjölskylda mín jörðina Jónsnes í
Helgafellssveit við Breiðafjörð. Lár-
us og fjölskylda hans í Ögri voru
okkar næstu nágrannar og því óhjá-
kvæmilegt að samskipti yrðu á milli
bæjanna. Við urðum þess fljótt
áskynja að okkur var tekið af hlýju.
Við borgarbúarnir gátum ávallt leit-
að til Lárusar ef við þurftum á hjáip
eða aðstoð að halda. Hann var ætíð
boðinn og búinn til hjálpar.
Ég þekkti Lárus sem vinnuglað-
ann og duglegan bónda sem unni
sér sjaldan hvíldar og naut þess að
stunda bú sitt sem best. Oft undr-
aði mann þann kraft og það þrek
sem í honum bjó núna á seinni árum
þegar heilsan var ekki sem best.
Þá hefur hann unnið meira af vilja
en mætti.
Kímnin og hressileikinn var
.skammt undan hjá Lárusi. Hlátur-
inn var smitandi og bjartsýnin var
í fyrirrúmi. Alltaf leist honum vel
á komandi sumar þegar hann var
spurður að vori um horfur fyrir
sumarið. Fast og þétt handtak hans
sagði meira um það traust og þann
áreiðanleika sem hann bjó yfír.
I dag er kyrrt og fallegt við
Breiðaíjörð og ládauður sjór. Það
er eins og veðurguðimir hafi tekið
sig saman og ákveðið að skarta
sínu fegursta Lárusi til heiðurs,
þegar hann er jarðsettur. Yfir mér
sveimar kría með síðbúinn unga og
minnir okkur á að brátt fer að
hausta og dimma. En fyrr en varir
kemur vorið aftur á kreik með birtu
og yl. Minningin um Lárus í Ögri
er eins og fallegur vordagur við
Breiðafjörð. Minningin um þennan
góða mann er björt og hlý.
Eiginkonu Lárusar, ættingjum
og tengdafólki votta ég mína inni-
legustu samúð.
Jónsnesi 15. ágúst 1987.
Jóhann Kjartansson
Laugardaginn 8. ágúst bárust
okkur bræðrunum þau tíðindi að
afi okkar, Þórður Steindórsson,
væri látinn eftir langvarandi veik-
indi. Þegar náinn ættingi, sem
ævinlega hefur verið til staðar,
hverfur á brott hljóta viðbrögðin
ætíð að vera beggja blands. Auðvit-
að er okkur eftirsjá að afa, en
einnig gleðjust við fyrir hans hönd,
því hann hafði lokið löngu dags-
verki og var sæll að fá að fara.
Við heimsóttum afa oft í Kópa-
voginn. Þá var oft setið löngum
stundum og málin rædd — afi var
ávallt allur af vilja gerður að veita
svör við flóknum spumingum, sem
leituðu á hugann og í sameiningu
gerðum við okkar besta til að kom-
ast til botns í lífsgátunni. Hann var
ævinlega glaður og hress og bar
sig vel þrátt fyrir veikindi sín, sem
ágerðust með ámnum. Heimsókn-
irnar vom því ævinlega tilhlökkun-
arefni og geðmst tíðari eftir því sem
á leið.
Afi var einn þeirra, sem mótuðu
viðhorf okkar gagnvart umheimin-
um og öðm fólki, og það er
ómetanlegt ungum mögnnum að
eiga slíka að, sem láta sig ein-
hveiju skipta velferð þeirra og
framtíð og geta miðlað af langri
lífsreynslu. Þess vegna stöndum við
í þakkarskuld við afa og með þess-
um fáu línum viljum við þakka
samvemna og senda honum kveðju
okakr. Við vitum af honum í góðum
félagsskap Páls sonar síns, föður
okkar, og þurfum engu að kvíða
sjálfir þar sem við vitum að þeir
biða okkar.
Hér við skiljumst
og hittast munum
á feginsdegi fira
Drottinn minn
gefi dauðum ró,
en hinum líkn, er lifa.
(Úr Sólarljóðum)
Gísli,
Þórður
Halldór.
Birting af-
mælis og
minningar-
greina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í
Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Hótei Saga Simi 1 2013
Blóm og
skreytingar
við öll tœkifœri