Morgunblaðið - 19.08.1987, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987
12215355
t SBujWSg
ÆIíiHTTm
j TFTlffU Ifc
Trnnttffi
Morgunblaðið/Sverrir
Sundaborg, heildsölumiðstöð við Sundahöfn, fékk viðurkenninga
fyrir fegrun umhverfis í iðnaðar- og hafnarhverfi. Fyrirtækin sem
þar eru til húsa hafa gTÓðursett fjölda trjáa í umhverfi þar sem
gróður er af skornum skammti.
Reykjavíkurborg:
Viðurkenningar til
þeirra sem kappkosta
að fegra umhverfi sitt
„HÉR er i raun um að ræða við-
urkenningu til allra þeirra
borgarbúa sem kappkosta að
fegra umhverfi sitt,“ sagði Davíð
Oddsson borgarstjóri er afhent-
ar voru í gær viðurkenningar
fyrir fallegt umhverfi og snyrti-
legan frágang lóða í Reykjavík.
Hann sagði að vel færi á að veita
viðurkenningarnar á afmælis-
degi Reykjavíkur sem að hluta
til væri helgaður umhverfismál-
um borgarinnar.
Fegursta gata Reykjavíkur 1987
er Ljárskógar í Breiðholti. Viður-
kenning fyrir fegurstu götu
Reykjavíkur hefur verið veitt síðan
1969 og hafa þær götur sem þetta
sæmdarheiti hjóta verið auðkennd-
ar með merki fegrunamefndar og
borið skjöldin í 10 ár. Þær götur
sem viðurkenningu hafa hlotið fram
til þessa em Selvogsgrunn, Safa-
mýri, Sporðagrunn, Brekkugerði,
Einimelur, Hvassaleiti, Sunnuveg-
ur, Gilsárstekkur, Eikjuvogur,
Heiðarbær, Sæviðarsund, Teiga-
gerði, Ægissíða, Fjölnisvegur,
Seljugerði, Fýlshólar, Láland og
Staðarsel. Björk Melax tók við við-
urkenningunni fyrir hönd íbúa við
Ljárskóga, fegurstu götu
Reykjavíkur 1987.
Fjölbýlishúsið Sólheimar 27 fékk
viðurkenningu fyrir fagurt og
snyrtilegt umhverfi en þar er frá-
gangur lóðar til fyrirmyndar,
aðstaða fyrir böm hin besta á
snyrtilegri lóð. Erlendur Sæmunds-
son veitti viðtöku viðurkenningunni.
Þá fengu eftirtalin fyrirtæki og
stofnanir viðurkenningar fyrir
snyrtilegan frágang á lóðum sínum:
Hótel Saga við Hagatorg, Krabba-
meinsfélag Islands Skógarhlíð 8,
Mál og menning Síðumúla 7-9,
Sundaborg heildsölumiðstöð við
Sundahöfn, Minjavernd Banka-
stræti 2, Sveinn Egilsson hf.
Ford-húsið Faxafeni 10 og Útvarps-
húsið Efstaleiti 1.
Morgunblaðið/Sverrir
Þau veittu viðtöku verðlaunum: Erlendur Sæmundsson, Sólheimum 27, Halldóra Thoroddsen, Krabba-
meinsfélag íslands, Þórir Jónsson, Sveinn Egilsson hf, Markús Örn Antonsson, Útvarpshúsið, Jón
Magnússon, Sundaborg, Hjörleifur Stefánsson, Minjavernd, Erla Hallgrímsdóttir, Mál og menning, Konr-
áð Guðmundsson, Hótel Saga, Björk Melax, Ljárskógum, ásamt Davíð Oddssyni borgarstjóra.
Ljárskógar, fegursta gata Reykjavíkur 1987.
Morgunblaðið/BAR
Morgunblaðið/BAR
Krabbameinsfélag íslands, Skógarhlíð 8, fékk viðurkenningu fyrir
snyrtilegan frágang húss og lóðar. Lóð er skemmtilega hæðarsett
með vel staðsettum trjáþyrpingum og stórum aflíðandi grasflötum.
Morgunblaðið/Sverrir
Minjavernd, Bankastræti 2, fékk viðurkenningu fyrir skemmtilega lóð á milli tveggja húsa, Sveins bak-
ara og Lækjarbrekku. Lóðin er í góðu samræmi við umhverfið og sýnir hvað hægt er að gera á lítilli lóð
í gamla bænum þegar vilji er fyrir hendi.
Morgunblaðið/Sverrir
Hótel Saga við Hagatorg fékk viðurkenningu fyrir frágang lóðar. í blóma-
skála og granítkeijum utandyra eru margar skemmtilegar plöntutegundir sem
gefa stofnuninni menningarlegt yfirbragð, segir í umsögn fegruna rnefndar.
Morgunblaðið/BAR
Sveinn Egilsson hf. - Ford-húsið, Faxafeni 10, er nýtt iðnaðarhúsnæði í Skeifunni sem fékk
viðurkenningu fyrir frágang lóðar og húsnæðis. Tijám er smekklega komið fyrir í þar til
gerðum keijum sem hæfa vel byggingunni.
Lóð fjölbýlishússins Sólheimum 27.
Morgunblaðið/Sverrir
Utvarpshúsið, Efstaleiti 1, fékk viðurkenningu
fyrir frágang lóðar. Stígar og tröppur eru
óvenju breið og framan við húsið er torg sem
býður upp á tónleikahald eða aðrar uppákomur
og gefur stofnuninni líflegt yfirbragð.
Mál og menning, Síðumúla 7-9, fékk viður-
kenningu fyrir fallegan frágang á lóð, þar sem
aðkoma fyrir fatlaða er til fyrirmundar. Tré
og plöntur sóma sér vel. Lóða að fullu frágeng-
in þegar hús var tekið i notkun.