Morgunblaðið - 19.08.1987, Page 4

Morgunblaðið - 19.08.1987, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987 # # Morgunblaðið/Einar Falur Byggingarnefnd Flugstöðvar Leifs Eirikssonar: Byggingarnefndin á blaða- mannaf undinum í gœr. Talið frá vinstri eru á myndinni: Kjartan Gunnarsson, framkvæmdasfjóri, Pétur Guðmundsson, flugvallar- stjóri, varaformaður, Jón E. Böðvarsson, framkvæmdastjóri byggingarnefndar, Þorsteinn Ingólfsson, skrifstofustjóri, formaður, Steindór Guðmunds- son, staðarverkfræðingur, Leifur Magnússon, fram- kvæmdastjóri, og Garðar Hall- dórsson, húsameistari ríkisins. Á myndina vantar Guðmund Eiríksson, þjóðréttarfræðing. Byggiiigarkostnaður í sam- ræmi við kostnaðaráætlun Undir upphaflegri kostnaðaráætlun hefði ekki orðið fjögurra milljóna dala gengistap Byggingarkostnaður við Flug- stöð Leifs Eiríkssonar,_eins og hönnun á henni lá fyrir á árinu 1983, er í samræmi við kostnað- aráætlun þegar hún hefur verið framreiknuð með verðbótum. Hefði ekki verið um fjögurra milljóna dala gengistap að ræða væri byggingarkostnaður fjórar I DAG kl. 12.00: Heimild: Veíurstofa l’slands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 I gær) VEÐURHORFUR I DAG, 19.08.87 YFIRLIT á hádegi í gær: Aögeröarlítil lægð suöur- og suðvestur I hafi en hæöarsvæöi yfir Grænlandi. SPÁ: I dag verður fremur hæg austanátt, lítilsháttar súld eða rign- ing við suður- og austurströndina en að mestu þurrt annars staðar. Hiti 10—14 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA FIMMTUDAGUR OG FÖSTUDAGUR: Hæg breytileg eða austlæg átt á landinu og smá skúrir á víð og dreif. Hiti verður 8—15 stig. s, Norðan, 4 vindstig: r Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * # * * * * * Snjókoma * * * -| 0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —|- Skafrenningur Þrumuveður "Jfr *:i mr C m V w T 1 V' VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma hhi v»Aur Akureyri 10 alskýjað Reykjavfk 11 rigning Bergen 14 alskýjað Helsinki 17 léttskýjað ian Mayen 3 skýjað Kaupmannah. 19 skýjað Narssarssuaq 10 lóttskýjað Nuuk 4 þoka Osló 19 skýjað Stokkhólmur 18 skýjað Þórshöfn 13 súld Algarve 31 helðskfrt Amsterdam 23 mistur Aþena 29 léttskýjað Barcelona 28 léttskýjað Bertin 23 rigning Chicago 17 skýjað Feneyjar 27 lóttskýjað Frankfurt 23 skúr Qlasgow 18 léttskýjað Hamborg 18 skýjað Las Palmas 27 þokumóða London 22 mistur Los Angeles 17 alskýjað Lúxemborg 20 þoka Madrfd 31 léttskýjað Malaga 30 heiðskirt Mallorca 29 léttskýjað Montreal 22 léttskýjað NewYork 27 léttskýjað Parfs 25 skýjað Róm 29 skýjað Vfn 24 skýjað Washington 27 reykur Winnipeg 12 hálfskýjað milljónir dala undir kostnaðará- ætlun, miðað við þá hönnun og áætlun er fyrir lá árið 1983. Þær 250 milljónir sem kostnaðurinn fer fram úr upphaflegri áætlun eru tilkomnar vegna breytinga á fyrri kostnaðaráætlunum, meðal annars vegna ákvarðana um fjölgun landgöngubrúa og að setja snjóbræðslu í flughlöð. Kom þetta fram á fundi sem bygging- arnefnd flugstöðvarinnar hélt með fréttamönnum í gær vegna fullyrðinga um að kostnaður hefði farið einn milljarð króna fram úr áætlun. Kostnaðaráætlun sem gengið var út frá þegar ákveðið var að ráðast í byggingu nýrrar flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli í maí 1983 hljóðaði upp á 42 milljónir Banda- ríkjadala eða um 970 milljónir íslenskra króna á þáverandi gengi. Hækkun kostnaðaráætlunarinn- ar vegna innlendrar verðbólgu frá maí 1983 til júlímánaðar 1987 er rúmar 1.600 milljónir króna. Vísi- tala í maí 1983 var 120 stig, en var í júlí 1987 orðin 320 stig. Þetta þýðir að upphafleg kostn- aðaráætlun, á verðlagi í júlí 1987, var um 2.600 milljónir króna, eða 66 milljónir Bandaríkjadala. Heildarbyggingarkostnaður er áætlaður 2.850 milljónir króna þeg- ar allar greiðslur hafa verið fram- reiknaðar til verðlags júlímánaðar 1987 og kostar flugstöðin því um 250 milljónum króna meira heldur en upphaflega var áætlað, eða um 6 milljón Bandaríkjadala. Byggingamefnd segir tvær meg- inástæður fyrir því að byggingar- kostnaður hafí hækkað um 6 milljónum Bandaríkjadala á rúmum §órum árum. Annarsvegar gengis- þróun og hinsvegar óhjákvæmilegar breytingar á upphaflegri kostnaðar- áætlun. Við upphaf framkvæmda var um það samið að framlag Bandaríkja- manna yrði 20 milljónir Banda- ríkjadala og hefur gengisþróun Bandaríkjadals orðið byggingar- framkvæmdinni mjög óhagstæð. Byggingarvísitala hækkaði frá því í maí 1983 og þangað til í júlí 1987 um 167% en gengi Banda- ríkjadals gagnvart íslensku krón- unni hækkaði hinsvegar um 70% á sama tíma. Framlag Bandaríkja- manna hefur því nýst mun verr en áætlað var. í upphafí. Gengistapið á framlagi Bandaríkjamanna nemur, samkvæmt bráðabirgðauppgjöri, um það bil 150 milljónum króna eða tæplega fjórum milljónum Banda- ríkjadala. Þar að auki voru á byggingartím- anum teknar ákvarðanir um að ráðast í framkvæmdir sem hafði verið slegið á frest í áætluninni frá því í maí 1983. Landgöngubrúm var fjölgað úr þremur í sex og landgangur lengd- ur í samræmi við það. Snjóbræðsla var sett í flughlöð af hagkvæmnis- og öryggisástæðum. Kjallari var stækkaður, slík breyting reyndist vera tiltölulega ódýr og seinkaði óhjákvæmilegri fjárfestingu í stækkun flugstöðvarinnar um nokkur ár. Jafnframt þessu stækk- ar leigurými og farþegasvæði við þessa ráðstöfun. Þá var ákveðið að reisa tvö útilistaverk eftir íslenska listamenn að undangenginni sam- keppni. Allar þessar breytingar voru gerðar með samþykkt stjómvalda. Olafur Jónsson læknirlátinn ÓLAFUR Jónsson læknir lést á Landspítalanum síðastliðinn mánudag. Hann fæddist ( Skálavík í Vatnsfjarðarsveit 4. september 1924. Foreldrar hans voru Jón Benediktsson læknir og Kristín Ólafsdóttir. Ólafur Jónsson varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1947. Ári síðar lauk hann cand. phil. prófí og árið 1955 lauk hann cand. med. prófí frá Háskóla ís- lands. Að því loknu starfaði hann sem aðstoðarlæknir um skeið áður en hann hélt utan til náms. Hann stundaði nám í lyflæknis- fræði, sérstaklega meltingasjúk- dómum, við University of Pennsylvania veturinn 1957 til 1958. Árið 1958 varð hann aðstoð- arlæknir við McLaren General Hospital í Flint í Michigan og starf- aði þar í eitt ár en fór síðan til University Medical Center í Norð- ur-Karólína sem styrkþegi og aðstoðarkennari. Ólafur starfaði sem læknir í Reykjavík frá byrjun árs 1960. Hann var aðstoðarlæknir við lyf- læknisdeild Landspítalans um Ólafur Jónsson tæplega tveggja ára skeið og einnig var hann kennari í lyflæknis- og lyfjafræði við Hjúkrunarskóla fs- lands. Eftirlifandi eiginkona Ólafs er Drífa Garðarsdóttir. Þau eignuðust fjögur böm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.