Morgunblaðið - 19.08.1987, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 19.08.1987, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987 39 Minning: Magnús Brynjólfsson bókbandsmeistari Fæddur 24. september 1916 Dáinn 4. ágúst 1987 Lífsbraut Magnúsar Brynjólfs- sonar bókbandsmeistara og bókaút- gefanda er nú á enda gengin. Hann var Reykvíkingur í húð og hár, fæddur í Reykjavík 24. september 1916. Foreldrar hans voru þau heið- urshjón Brynjólfur Magnússon eigandi og stofnandi Nýja bók- bandsins og kona hans Katrín Jónsdóttir. Við gamla góða Skóla- vörðuholtið stóð æskuheimili Magnúsar. Heilmikið athafnasvæði var því þarna fyrir ofan, tilvalið fyrir unga Reykjavíkurstráka að svala athafnaþrá sinni og starfs- löngun. Þá var öldin önnur. Holtið að mestu óbyggt. Þama vom lagð- ir vegir og brýr byggðar. Bílar smíðaðir af miklli hugvitssemi. Þá varð þama til fótboltavöllur gerður af drengjahöndum. Auðvitað höfðu strákamir stofnað fótboltafélag og skírt Fálkinn, sennilega vegna þess að flestir meðlimanna héldu með Val. Mun Magnús hafa verið vel liðtækur í þessu undirfélagi Knatt- spymufélagsins Vals, en Valur hefur þá sérstöðu að vera félag Séra Friðriks. I framhaldi af þessu var Magnús valinn til að leika í 3. aldursflokki Vals. Þótti það mikill heiður þá og er raunar enn. Þannig liðu bemskudagamir í stómm og glæsilegum systkinahópi. Eldri bróðir Magnúsar var hinn kunni bóksali Bragi Brynjólfsson (Bóka- búð Braga) hann lést langt um aldur fram. Elsta systirin Hulda er einnig látin. Yngri systumar sem lifa bróð- ur sinn em Hrefna, Jóhanna, Svava og Bima. Að því kom að Magnús valdi sér það lífsstarf að verða bókbindari og feta þar með í fótspor föður síns. Mun hann snemma hafa byijað að hjálpa til á bókbandsvinnustofunni, verið þar ötull og áhugasamur og spáð góðu. Var Magnús alla æfi vinnuglaður maður. Er það sannar- lega guðs gjöf. Lauk hann sínu iðnnámi með sóma og fór svo til Kaupmannahafnar til framhalds- náms. Mun hann fljótt hafa orðið hægri hönd föður síns. Launaði hann foreldrum sínum uppeldið vel og dyggilega, var þeim góður sonur frá byijun til enda. Til þess var tekið af öllum sem til þekktu. Naut Magnús þar aðstoðar góðrar eigin- konu, sem ekki lét sitt eftir liggja. Eftir lát foreldra sinna, sem bjuggu við hnignandi heilsu síðustu áiin, eignaðist Magnús Nýja bók- bandið einn, þá til húsa á Laugav. 1. Umsvifin höfðu aukist með ámn- um og í tengslum við bókbands- vinnustofuna stofnaði Magnús til talsverðrar bókaútgáfu. Allt þetta blessaðist eins og efni stóðu til undir farsælli stjóm Magnúsar. Svana og Magnús eignuðust einn son Brynjólf, heitinn í höfuðið á afa sínum. Aðsetur þeirra er á fallegum stað og fagurt er þeirra heimili, þar sem góður andi og heimilisbragur hefur setið í fyrirrúmi. Ýmsir aðrir gleðigjafar komu til sögunnar. Skemmtileg ferðalög utan lands og innan en Magnús mun hafa notið ferðalaga í ríkum mæli. Ég man eftir því að Magnús hafði orð á, að hann hefði alltaf haft áhuga á að skoða söfn og koma í kirkjur. Þama væri hægt að sjá talsvert af menningu viðkomandi þjóða. Þau hjón Magnús og Svana voru höfð- ingjar heim að sækja. Á Lyng- hagann var gott að koma og góðar vom þeirra gjafir og sá hugur sem þeim fylgdi. Mér er í minni eins og áður segir hve Magnús var góður foreldmm sínum, er þau gerðust vegamóð og degi var farið að halla. Aldraður móðurafi átti góðan að þar sem Magnús var. Magnús var ákaflega bamgóður maður. Það reyndu mín böm oft og mörgum sinnum. Sá þáttur í fari manna er vissulega af hinu góða. Börnin vom jafningjar hans og til þeirra talaði hann aldrei niður. Í hans návist leið öllum vel. Það var meðfætt. Það vom fagnaðarstundir og hátíð í bæ, þegar þau hjón Magnús og Svana komu til Keflavíkur í heimsókn. Þá var elsta fólkið og yngsta fólkið auðvitað með í för. Mér verður það alltaf í minni, þegar ég hafði orð á því við Magnús, að ég hefði í hyggju að flytja burt úr Reykjavík. Þá var eins og Magnús hefði gleymt minni nærvem, þegar hann sagði: Ég er Reykvíkingur og mér þykir vænt um Reykjavík og þar vil ég eiga heima. Hér um bil alla ævi bjó Magnús við góða heilsu. En svo skipti sköpum. Heilsunni hrakaði vemlega og að því kom að selja varð Nýja bókbandið. Það getur ekki hafa verið sársaukalaust. Þetta hafði verið vinnustaður hans um rúmlega hálfrar aldar skeið og þar staðið meðan stætt var. Magnúsi þótti gaman að útivist og kunni vej að meta fegurð lands- ins okkar. Ég hygg að Tindafjalla- svæðið hafí verið í mestu uppáhaldið hjá honum. Var hann þar í flokki mikilla fjallamanna. Létu þeir ekkert hamla ferðum. Eitt sinn er þeir höfðu lent í miklu illviðri, sem vissulega náði til byggða og jafnvel þar þótti manni nóg um, hefði verið hluti af ánægju ferðalagsins og góðlátlegt smá bros fylgdi með. Líka veiddi hann sér til ánægju og minntist þeirrar ánægju að vakna að morgni dags við lækj- arnið og fuglasöng, með ákaflega fallegum hætti. Þegar þessi starfs- sami maður var dæmdur til að sitja heima og geta lítið sem ekkert gert, þá brást honum ekki hans góða lund. Æðruleysi og rósemd hugans einkenndi þá allt hans fas. Var það okkur hans nánustu oft undrunar- efni. Þá sá ég enn einu sinni, hversu Magnús var vel gerður maður og skynsamur. Þetta allt átti hann og brást honum ekki þegar þessi miklu veikindi höfðu dunið yfir. Þvíh'kar náðargjafir og Guðsblessun. Ég sá Magnús aldrei leiðan. Ég held að honum hafi aldrei leiðst. Ég held, að þarna á Lynghaganum á sein- ustu æviárum Magnúsar, hafi ég lært lexíu ef svipuð veikindi ættu eftir að sækja mig heim. Ég efast þó um að ég standist prófíð. Einhver fegursta íslenska mann- lýsingin sem um getur er þessi: „Hann var drengur góður". Nú að leiðarlokum er ég lít til baka yfir samleið mína með Magnúsi Brynj- ólfssyni, fínnst mér þessi fallegu orð lýsa honum mæta vel og eiga vel við á skilnaðarstundu. Magnús varð þeirrar hamingju aðnjótandi að eignast mikilhæfa og góða konu Svanfríði Jóhannsdóttur. Studdi hún hann með ráðum og dáð alla tíð og ekki hvað síst í hans veikinda- stríði. Ég kveð nú Magnús Brynjólfs- son, þennan góða dreng, vin minn og svila. Hann er nú staddur á þeim vegi þar sem sólskinið ljómar. Hans heimkoma verður góð. Svönu og Brynjólfi eru sendar samúðarkveðjur á sorgarstundu. En mikil huggun verður þeim í harmi, að góðar minningar um Magnús Brynjólfsson munu lifa og aldrei gleymast. Björgólfur Stefánsson Magnús Brynjólfsson bókbands- meistari fæddist í Reykjavík 24. september 1916. Hann var því sjö- tugur er hann lést 4. ágúst sl. Magnús var sonur hjónanna Katrín- ar Jónsdóttur og Brynjólfs Magnús- sonar, sem einnig var bókbands- meistari, og ráku þeir feðgar bókbandsverkstæði og bókaútgáfu, þangað til fyrir nokkrum árum, Nýja bókbandið á Laugavegi 1 í Reykjavík þangað til fyrir nokkrum árum. Má því segja að Magnús hafi verið ekta Reykvíkingur og miðbæingur. Systkini Magnúsar eru þau Bragi Brynjólfsson, er rak bókabúð Braga við Lækjartorg, en hann er látinn fyrir allmörgum árum. Hulda, sem er látin, Hrefna, Jóhanna, Svava og Birna. Kynni okkar Magnúsar hófust þegar ég fæddist því hann kvæntist Svanfríði móðursystur minni það sama ár. Ég tók því þessum góða manni sem sjálfsögðum hlut í lífí mínu og gerði mér ekki grein fyrir því fyrr en ég var orðin eldri hve rík ég hafði verið að eiga hann að. Móðursystir mín og Magnús voru bamlaus fyrstu fáein árin sem þau voru gift og naut ég mjög góðs af. Magnús minnti mig oft á það þegar ég var að byija að tala og við geng- um frá Hringbrautinni, þar sem hann bjó, niður á Tjamarbrú til að sjá „klíuna ljúa“. Brynjólfur, frændi minn, fæddist svo þegar ég var 4 ára og þá var mér ekki gleymt. Alltaf fékk ég að fara með í sumarbústað sem þau áttu og byggðu uppi í Mosfellssveit í landi Skeljabrekku. Magnús var svo bamgóður og hann fékk lánaða ketti og hvolpa á bóndabænum í grenndinni handa okkur að skemmta með, og einu sinni bauð hann öllum krökkunum úr húsinu Hringbraut 45 með okkur í sveit- ina. Þegar ég las bók Þórbergs Þórðarsonar, Sálminn um blómið, löngu seinna, kannaðist ég vel við nöfnin, því sú bók var einmitt skrif- uð um þessa krakka. Aldrei man ég eftir að Magnús skipti skapi eða hastaði á okkur, en ég man ýmis- legt enn, sem hann kom okkur í skilning um á sinn ljúfmannlega hátt, eins og til dæmis þetta: Mað- ur á alltaf að æfa sig í að borða fallega og haga sér fallega, því hver veit nema manni verði boðið í veislu hjá kónginum, þegar maður verður stór. Kvikmynd Guðnýjar Halldórs- dóttur, gerð eftir sögu Jökuls Jakobssonar, Skilaboð til Söndru, var tekin að hluta til í bústaðnum, sem Magnús byggði við litla vatnið, Seltjöm, efst í Mosfellssveitinni, alveg upp í heiðarbrún. Þegar ég sá þá mynd, rifjuðust upp fyrir mér mínar ljúfustu bemskuminningar. Magnús að lesa fyrir okkur Binna, um Bláskjá og Nonna og Manna, álftimar á vatninu, göngur að Tröllafossi, aðalbláberin í brekkun- um og rollumar sem átu grænmetið okkar og vildu aldrei vera fyrir utan girðingu. Ég þakka fyrir að hafa átt hann að. Magnús hafði verið heilsulítili um nokkurt skeið og því alltaf heima við. Ég veit að nú hlýtur að vera tómlegt á Lynghaga 2. Ég sendi Svövu frænku minni, Brynjólfí frænda mínum og Hrafnhildi afa- stelpu einlægar samúðarkveðjur. Oddný Björgólfsdóttir Við andlát Magnúsar reikar hug- ur minn tugi ára aftur í tímann þegar æsku^örið naut sín í leik og starfí. Við áttum skemmtilega æsku drengimir í Skólavörðuholtinu á ámnum fyrir og um Alþingishátíð- arárið 1930. Einn þeirra var Maggi, eins og hann var ætíð kallaður, röskur og líflegur. Á þeim ámm var Skólavörðuholt- ið nánast útjaðar bæjarins, holtið óbyggt frá Hnitbjörgum suður að Kennaraskóla og Skólavarðan og umhverfi álqosanlegt útivistar- svæði, meira að segja var þar ágætur fótboltavöllur. Að sjálf- sögðu fóm flestir strákar þá í sveit á sumrin en það þótti ómissandi uppeldis aðferð. Slitnaði þá sam- veran um tíma en allir komu þroskaðri heim að hausti. Fastur liður á vetmm var sunnu- dagaferð niður á Amtmannsstíg á KFUM fundi þar sem séra Friðrik tók hópnum opnum örmum, fræddi um undur heimsins og sagði falleg- ar spennandi sögur. Þær hollu lífsreglur sem hann innrætti hveij- um og einum gleymdust engum okkar. Maggi var knár, djarfur og dugmikill í hvetjum leik og fengur að hafa hann í sínu liði hvort held- ur var fótbolti, eltingaleikir eða annað. Þannig liðu æskuárin hratt en síðar tók alvaran við. Faðir Magnúsar, Brynjólfur Magnússon, rak Nýja bókbandið á Laugavegi 3 í tugi ára svo það lá beint við að Magnús lærði bókiðn, sem hann gerði bæði af föður sínum svo og erlendis. Aðrir félagamir áttu ekki um mörg störf að velja á kreppuárum þeim sem gengu yfír þjóðina allt fram að seinni heim- styrjöldinni. Magnús var ávallt sami notalegi vinurinn, traustur og æðmlaus á hveiju sem gekk. Kom það sér oft vel þegar eitthvað óvænt bar að höndum á ferðalögum, en þau stunduðum við eftir því sem mögu- leikar leyfðu. í stétt sinni var Magnús vel virt- ur enda öndvegisfagmaður. Vom honum falin ýmisleg störf innan bókgreinarinnar sem hann rækti af stakri alúð. Bókaútgefendur kunnu vel að meta kuunáttu hans svo og margir einstaklingar sem vildu gott band á bækur sínar. Umgengni við helstu skáld og lista- menn þjóðarinnar um áratugi urðu Magnúsi efni í skemmtilegar frá- sagnir á góðum stundum. Þá rak Magnús smáútgáfu, Stafafell, og gaf út mörg öndvegisrit sem þjóðin kunni að meta, má til nefha Lilju Eysteins, Bókina um veginn eftir Lao Tse með formála Halldórs Lax- ness, Passíusálma Hallgríms, auk margra ljóðabóka. Magnús átti við erfíð veikindi að stríða undanfarin ár en mætti því mótlæti með miklu jafnaðargeði. Eftirlifandi kona Magnúsar er Svanfríður Jóhannsdóttir, en hún hefur staðið við hlið hans í ástríku hjónabandi hátt í fimm áratugi. Einkasonur þeirra, Brynjólfur, býr nú með móður sinni og sendir Qöl- skylda mín þeim innilegar samúðar- kveðjur. Runólfur Sæmundsson sem ekki gengu út síðasta laugardag, leggjast við fyrsta vinning næst. Spáðu íþað! Lottó 5/32 Upplýsingasími: 685111 KYNNINGARWONUSTAN f.lA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.