Morgunblaðið - 19.08.1987, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987
47
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
(691100 KL. 13-14
IFRÁ MÁNUDEGI
ÍTIL FÖSTUDAGS
Það var ekki vandræðalaust fyrir bréfritara að komast til og frá íslandi með Flugleiðum.
VERKSMIÐJU
UTSALA
Við rýmum til fyrir nýjum vörum.
Meiriháttar ÚTSALÁ á alls konar vörum úr
keramiki og steinleir.
30-60% afsláttur
Matarílát, drykkjarkönnur, diskar, skálar, krúsir, vas-
arog blómahlífar.
Af flugferð með Flugleiðum
í mars sl. keypti ég flugmiða hjá
Flugleiðum í Kaupmannahöfn. Eg
hlakkaði mikið til að sjá ísland og
fullur eftirvæntingar fór ég til Kast-
rup þann 3. júlí til að fljúga með
FI-203 kl. 14.15 að dönskum tíma.
Ég varð því mjög undrandi að frétta
það, þegar ég ætlaði að bóka mig
í vélina, að það væru yfirbókaðir
34 farþegar í hana og ég ætti að
fara með SAS-vél til Oslóar, með
brottför á sama tíma, og þaðan
með Flugleiðum til Reykjavíkur.
Meiri varð undrun mín þegar ég
frétti hjá SAS að það væru ekki
laus sæti með vélinni til Osló svo
ég færi með aukaflugi kl. 15.15.
þeir lofuðu stuttu stoppi í Osló því
Flugleiðir lofuðu að Oslóarvélin biði
okkar. Það varð samt drjúg bið í
Osló, eða u.þ.b. ein og hálf klukku-
stund, þrátt fyrir að vélin væri þar.
Ekki var það vegna þess að beðið
væri eftir okkur frá Kaupmanna-
höfn því að starfsmenn Flugleiða í
Osló höfðu ekki fengið tilkynningu
um komu okkar en sem betur fer
voru laus sæti í flugvélini, einnig
fyrir Norðmann nokkurn sem átti
að fara með Flugleiða-flugi frá
Osló til íslands um morguninn, en
var sendur með SAS-vél til Kastrup
og síðan endursendur til Oslóar með
okkur Dönunum. Þegar við loksins
lögðum af stað frá Osló hlakkaði
ég mikið til þess er Flugleiðir fram-
reiddu matinn, en eftir að hafa nú
ferðast á vegum Flugleiða í 5 klst.
án matar og drykkjar, fengum við
aðeins kaffí og eitt rúnstykki. Eftir
6 tíma ferðalag lentum vð á íslandi
og þegar ég ætlaði að ná í farang-
ur minn þá var bakpokinn, sem ég
ætlaði að nota á ferð minni um ís-
land, í pörtum á færibandinu en
innihaldið kom svo síðar í stykkja-
tali. Þegar ég snéri mér til
dömunnar í upplýsingabás Flug-
leiða, þá skildi hún bara íslensku
og ætlaði að hundsa mig þangað
til að ég byrjaði að „tala með stór-
um bókstöfum", þá skildi hún allt
og skrifaði" tilvísun til verslunar í
Reylqavík þar sem ég gat fengið
nýjan bakpoka. íslenskir vinir sóttu
mig út á flugstöð og ég dvaldi í
þijár yndislegar vikur með mörgum
vingjamlegum íslendingum í fal-
legri náttúru og mildu og góðu
veðri.'
Þann 23. júlí kl. 17 að íslenskum
tíma átti ég að fljúga til baka frá
Keflavík (þ.e. kl. 19 að dönskum
tíma sem ég nota hér eftir). Flug
FI-212 lagði af stað eftir aðeins smá
töf, við fengum mjög góðan heitan
rækjurétt, fiskstykki ásamt með-
læti, kaffi og góðan eftirrétt. Það
leit út fyrir að þetta yrði þægileg
heimferð og um kl. 22 byijaði flug-
vélin að lækka flugið. Eg varð var
við að lendingarhjólin voru sett nið-
ur og sá ljósin í Kaupmannahöfn í
gegnum þokuhuluna. En allt í einu
jók vélin ferðina á ný og hækkaði
flugið. Eftir u.þ.b. 20 mínútur til-
kynnti flugstjórinn á íslensku,
ensku og illskiljanlegri skandinav-
ísku, sem var mest samsett af löng-
um e-e-e-hljóðum, að við gætum
ekki lent í Kastrup vegna þoku svo
að við flygjum til Gautaborgar, þar
lentum við svo um kl. 22.45. Við
biðum í vélinni í u.þ.b. eina klukku-
stund en þá voru börnin, sem og
við hin fullorðnu, orðin mjög þreytt
enda hitinn í vélinni óbærilegur.
Síðan, eftir nokkrar stigmagnandi
orðasennur við starfsliðið í leit að
einhverri skynsamlegri lausn á okk-
ar vanda, vorum við beðin um að
fara yfir í flugstöðina í Gautaborg.
Þar var allt lokað svo að hvorki var
unnt að fá mat né drykk, fyrir utan
vatnið í vöskum snyrtiherbergj-
anna. Ég tók eftir því að flugáhöfn
og starfslið Flugleiða á staðnum
var á leið út úr flughöfninni og
spurði þau hvernig þau gætu leyft
sér að fara áður en útséð væri um
afdrif farþeganna og fékk þá svar-
ið: „Við verðum að sofa svo að við
getum flogið á morgun, vélin á að
fara til Grænlands." Böm og full-
orðnir urðu stöðugt háværari svo
að um kl. 24.15 sá flughafnarlög-
reglan um að við fengjum farangur
okkar og strætisvagnar Gautaborg-
ar keyrðu okkur til hótela í Gauta-
borg. Ég lenti á Hotel 3-Kroner en
þar var matsalurinn lokaður og
ekkert í sig að fá nema vatnið úr
krönunum. Nú var kl. orðin 1 en
kl. 6.30 næsta morgun vorum við
vakin. Matsalinn var ekki búið að
opna en það var enn vatn í krönun-
um. Kl. 7.30 vorum við sótt og við
sem áttum sænska eða danská pen-
inga gátum nú keypt okkur
morgunmat í flughöfninni en
íslenska peninga tóku þeir ekki.
Flugáhöfnin svaf aftur á móti vært
því að ekki sást hún og ekkert var
farið að undirbúa véliná. Loks kl.
10.15 var okkur hleypt út á flug-
brautina, þar biðu okkar rútur sem
keyrðu okkur út á enda einnar
brautarinnar þar sem vélin okkar
stóð. Korteri síðar lagði vélin af
stað og við fengum framreiddan
einn bolla af kaffi án meðlætis. Kl.
11 lentum við í Kastrup og í þetta
skiptið var ferðataska mín skemmd.
Vinur minn sem sótti mig hafði
beðið alla nóttina í flugstöðinni af
ótta um afdrif mín og flugvélarinn-
ar því að á skjánum um komutíma
véla var komutíma Flugleiðavélar-
innar seinkað af og til og þegar
hann spurðist fyrir hjá upplýsingum
fékk hann þau svör að engar upp-
lýsingar bærust frá Flugleiðum.
Hann tók líka eftir því að vélar
annarra flugfélaga svo og leigu-
flugvélar lentu alla nóttina, einnig
á þeim tíma sem FI-212 átti að
lenda, svo að hann óttaðist að við
hefðum verið tekin sem gíslar.
Niðurstaða mín er: Flugleiðir
hljóta að vera illa skipulagt fyrir-
tæki, hefur annaðhvort verri
flugmenn en önnur flugfélög eða
þá að vélar þeirra eru verr búnar
tækjum en aðrar farþegavélar fyrst
þeir geta ekki lent í léttri þoku á
meðan vélar annarra flugfélaga
gera það. Ég verð að bæta því við
að ég hef ferðast mikið og áður
lent í ófyrirsjáanlegum vandræðum
en þjónustan var nú mun lakari en
ég hef kynnst hjá öðrum flugfélög-
um.
Ég hef mætt mikilli vinsemd á
íslandi svo að mér þætti ég sýna
lítið þakklæti með því að gera þetta
opinbert hér í Danmörku, en ef
hægt væri að þýða þetta bréf mitt
og koma því á framfæri á íslandi
held ég að fólk skildi gremju mína.
Öll lönd hafa sitthvað sem betur
mætti fara og ég vonast til þess
að heimsækja land ykkar aftur með
flugfélagi sem er jafn vingjamlegt
og þið eruð sjálf.
Carl Henning Petersen
HEILRÆÐI
Til foreldra
Daglega notum við ýmiss konar hreinsiefni sem geta reynst hin
hættulegustu í höndum ungra bama. Því miður hafa orðið alvarleg
slys á bömum vegna inntöku slíkra efna. Geymum því öll hreinsiefni
á ömggum stað þar sem böm ná ekki til.
Einnifl lítiö gallaöarv/nriir meó miklnm afglaptti
•s.
J Höfðabakka 9
Slmi 685411
úr fúru
með færanlegum rimliun
HURÐIR HF
Skeifan 13 ■108 Reykjavík-Sími 681655
^ HÚSASMIÐJAN HF.
■ KmJÍ SÚÐARVOGI 3-5, REYKJAVÍK.SÍMI: 687700
MEÐ EINU SÍMTALI
er hægt aft breyta innheimtuað-
ferðinni. Eftir það verða áskrift-
argjöldin skuldfærð á
viðkomandi greiðslukortareikn-
ing mánaðarlega.
SÍMINNER
691140
691141