Morgunblaðið - 27.10.1987, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987
\
Grautur með
Ein af myndum bókarinnar, Harðbakur.
Myndabók um Island
á tólf tungumálum
ICELAND Review hefur gefið lenska, spænska og ftaJska. Bókin
út myndabók um ísland og er er í handhægu broti og með 32
texti bókarinnar á tólf tungu- völdum litmyndum eftir Pál Stef-
málum, þar á meðal á japönsku ánsson ljósmyndara Iceland
og arabfsku. Review.
í textanum um ísland, sem er
Önnur tungumál í bókinni eru: á öllum fyrrgreindu tungumálum,
enska, franska, þýska, danska, er dreginn saman helsti fróðleikur
sænska, norska, finnska, hol- og staðreyndir um land og þjóð.
Myndatextamir eru einnig á öllum
tungumálunum.
í bókinni er ísiandskort og inn
á það merkt hvar myndimar eru
teknar. Auk þess er kort sem sýn-
ir afstöðu Islands til landanna
beggja vegna Atlantshafs.
Bókin er unnin til prentunar
af starfsfólki Iceland Review.
Morgunblaðið Ámi Sæberg
Salóme Þorkelsdóttir á fundi í Lyngási f Garðabæ miðvikudaginn 21. október.
Fundaheiferð sjálfstæð-
ismanna á Reykjanesi
KJÖRDÆMISRÁÐ Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjaneskjördæmi
og fulltrúaráð Sjálfstæðisflokks-
ins hafa staðið fyrir níu fundum
með fulltrúaráðsmönnum og öðr-
um trúnaðarmönnum flokksins í
kjördæminu. Þar hefur meðal
annars verið rætt um hvernig
efla megi flokksstarfið og snúa
vörn í sókn.
Fyrsti fundurinn var haldinn
mánudaginn 12. október og níundi
og síðasti fundurinn verður haldinn
á Seltjamamesi miðvikudaginn 28.
október. Alþingismenn kjördæmis-
ins, þau Salóme Þorkelsdóttir,
ólafur G. Einarsson og Ellert
Eiríksson hafa komið á fundina
ásamt Braga Michaelssyni, vara-
formanni kjördæmisráðs.
Á fundunum hefur verið rætt um
helstu málin sem ríkisstjómin hefur
verið að vinna að, svo sem íjárlaga-
frumvarpið. Þá hefur yerið fjallað
um skýrslu þá sem kynnt var i
miðstjóm eftir síðustu kosningar.
Að sögn Braga Michaelssonar hafa
miklar umræður veriö og margar
fyrirspumir komið fram um hvemig
efla megi flokksstarfíð á komandi
vetri.