Morgunblaðið - 24.11.1987, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 24.11.1987, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987 5 Morgunblaðið/Sigurður Steinar Ketilsson Núpur ÞH á siglingu 12 sjómílur austur af Horni. Myndin var tekin úr þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, á meðan þyrlan beið eftir að Friðrik Sigurbergsson læknir bjó slasaða sjómanninn til flutnings um borð í þyrluna. er staðsett á þessu skipi. Þá var gálgi aftur á bátnum og erfitt að athafna sig þar. En það var eini mögulegi staðurinn þannig að við urðum að láta lækninn síga niður fyrir aftan gálgann. Á meðan létum við skipið sigla á hægustu ferð með vindinn 30 gráður á bakborða. Við byrjuðum á að koma tengi- línu til þeirra og settum síðan lækninn niður og sjúkrabörurnar með áhöldum hans á eftir. Síðan flugum við um á meðan læknirinn var að hlúa að sjómanninum. Klukkan 14.55 vorum við búnir að ná lækninum og sjúklingnum um borð aftur og flugum beint til Reykjavíkur, þar sem við lentum við Borgarspítalann klukkan 15.45. Þegar við komum að skipinu voru um 7 vindstig en'heldur dró úr vindi á meðan við vorum þar og voru 5—6 stig þegar við hífðum þá upp í þyrl- una. Annars er vindurinn ekki stórmál við svona björgun, heldur sjólagið og það var slæmt. Þetta er ekki stór bátur, um 180 tonna, og lét hann illa í sjó. En við gátum sætt lagi og verið á rétta rólinu með að koma lækninum niður og hífa þá báða upp. Og allt gekk þetta vel þó langan tíma tæki. Eg vil sérstaklega geta um fram- lag skipveijanna um borð. Svona tekst ekki nema með góðri aðstoð þeirra og þeir unnu sitt verk óað- finnanlega.“ Friðrik Sigurbergsson læknir sagði að þó ógnvekjandi hafi verið að síga niður í skipið, sem veltist eins og korktappi, hafi allt gengið vel. Honum hafi liðið vel og ekki fengið skrámu. Þyrluáhöfninni hafi tekist að sæta lagi við að koma honum niður og ná þeim báðum upp. Sagðist hann þekkja vel til áhafnarmeðlima og vinnubragða þeirra og treysta þeim fullkomlega. „Það er gaman að geta komið svona til aðstoðar,“ sagði Friðrik og sagði að þyrlan hefði stytt verulega þann tíma sem slasaði sjómaðurinn þurfti að bíða eftir að komast undir lækn- ishendi. Friðrik er einn af 5 læknum á Borgarspítalanum sem kallaðir eru út þegar þyrla Landhelgisgæslunn- ar fer í sjúkraflug. Hann sagðist hafa sigið yfir 40 sinnum á æfing- um en þetta væri í fyrsta skipti sem hann hefði sigið við raunverulegar aðstæður. „Eg hefði aldrei farið þama niður nema með þessa æfingu að baki,“ sagði Friðrik. Þingflokkur Al- þýðubandalagsins: Steingrímur J. Sigfússon val- inn formaður STEINGRÍMUR J. Sigfússon var á þingflokksfundi Alþýðubanda- lagsins í gær valinn formaður þingflokksins. Svavar Gestsson var kjörinn varaformaður og Guðrún Helgadóttir ritari. Ragnar Amalds, fráfarandi þing- flokksformaður, lagði fram þessa tillögu um stjóm þingflokksins og var hún samþykkt umræðulaust. Steingrímur J. Sigfússon situr á Alþingi fyrir Alþýðubandalagið í Norðurlandskjördæmi eystra. Hann var fyrst kjörinn á þing árið 1983. VSI kynnti hugmyndir á fundi um af- greiðslutíma FULLTRÚAR Yerslunarmanna- félags Reykjavíkur og Vinnuveit- endasambands íslands funduðu í gær um afgreiðslutíma verslana og hefur annar fundur verið boðaður á morgun, miðvikudag. Á fundinum kynntu fulltrúar VSÍ hugmyndir sínar um breytingar á afgreiðslutíma verslana, en VR hef- ur gert kröfu um að tekið verði upp vaktafyrirkomulag hjá afgreiðslu- fólki vegna þess að sífellt færist í vöxt að verslanir séu opnar á laug- ardögum. P. S. Gott ráð: Að gefnu tilefni mcelum við með að þú takir tvo poka, einn er svo lygilega fljótur að klárast. BRAUÐ HF. - SÍMI 83277 FkÖNSKUSMÁBRAUÐ Hin einu sönnu Frönsku smábrauð fást með 20%kynningarafslætti þennan mánuð.Hafir þú ekki bragðað þau áður er þess vegna upplagt að gera það nú. Ljúffengu Frönsku smábrauðin frá Myllunni eru í bláum, hvítum og rauðum pokum í frystiborðum verslananna. Frönsk smábrauð setja skemmtilegan svip á hvaða máltíð sem er. Þau fást bæði gróf og fín og eru auðvitað sykurlaus.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.