Morgunblaðið - 24.11.1987, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 24.11.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987 29 breytinga og að við getum ekki verið alltof vongóð eða vænst mik- ils. Áður fyrr brutu þeir andstöðuna á bak aftur með hörðum refsingum. Það er þetta, sem mun breytast. Látum á hvemig nú er snúist við mótmælum og kröfugöngum. Það var áður regla, að mótmælendur vom handteknir og dæmdir í fang- elsi, útlegð eða til vistar á geð- veikrahælum. Nú em andófsmenn handteknir og fluttir á lögreglustöð þar sem þeim er oft misþyrmt eftir yfirheyrslur og síðan sendir heim. Menn snúa aftur heim skrámaðir og oft nefbrotnir. Kannski er nef- brot betra en þriggja ára fangelsi í Síberíu. En opinber mótmæli em enn stranglega bönnuð, á því hefír engin breyting orðið. Það sem breyst hefir er hegningin fyrir þess háttar brot.“ Prentfrelsi fyrir 75 eintök af „Glasnost“ Blaðamaður vildi fá að vita hvað liði prentfrelsinu í Sovétríkjunum. Fréttir hefðu borist um að tímaritið „Glasnost" hefði nú verið bannað. „Það sem gerst hefir í Sovétríkj- unum hvað varðar prentfrelsi er að nú er auðveldara en áður að fá birt- ar greinar um það sem nefna má daglegt líf almennings, heinlætis- mál, hirðingu gatna, skort á vissum tegundum matvæla, o.s.frv. Innrás- in í Afganistan er hinsvegar ekki til umræðu á opinberum vettvangi né heldur hemaðarmái almennt eða það sem gerist innan flokksstjóm- arinnar nema það hafi hlotið samþykti æðstu manna. Það sem leyfilegt er að birta varðar raun - vemlega eingöngu það sem getur orðið til þess að sjálft kerfið gangi betur en kerfið sjálft er ekki opin- berlega til umræðu. Útgefandi blaðsins „Glasnost" gekk of langt. Hann fór að skrifa af fullri alvöm og þunga um stefnu- mál. Hvort útgáfa blaðsins hefii verið bönnuð eða ekki er nú aukaat- riði, sem gleymist fljótt. Útgáfa blaðsins hefir þegar þjónað sínum tilgangi. Þýðingarmest fyrir Sovét- stjómina er að nú telja tugir millj- óna manna um víða veröld sig vita, að það er gefið út blað í Moskvu, sem heitir „Glasnost", og getur birt það sem ritstjóm þess vill. Hversu stórt er upplag þessa rits? 75 ein- tök? Kannski 300 eintök. Það er líka aukaatriði því lesendumir em nær eingöngu andófsmenn. Það var einkar kænlegt að leyfa útgáfu „Glasnosts" frá áróðurssjónarmiði. Það skiptir minnsta máli hvort út- gefandi „Glasnosts" fær að halda áfram að gefa út þessi 75 eða 300 eintök. Hann verður kallaður á hvalbeinið fyrr eða síðar, eins og hver annar óþægur krakki, en það væri illa gert að nefbijóta hann fyrir greiðann. Höfundur er fréttaritari Morgun■ blaðsins í Washington. Orkuspárnef nd: Jarðvarmanotkun eykst um 60% til ársins 2015 ORKUSPÁRNEFND lauk nýver- ið við gerð spár um vinnslu og notkun jarðvarma til ársins 2015. Samkvæmt spánni mun notkun jarðvarma aukast frá árinu 1986 um rúmlega 40% til aldamóta en tæplega 60% til ársins 2015. Einnig er spáð fyrir um aukningu vergrar jarðvarmavinnslu, en þá er ónýttum varma í bakrennsli frá notendum og orkutapi i dreifí- og flutningskerfum bætt við nýtta varmann. Gert er ráð fyrir að vinnslan aukist úr 7.800 gígawatt- stundum árið 1986 upp í 10.100 gígawattstundir um aldamótin og aukningin verði því tæplega 30%. Hins vegar verði hún komin upp í 11.800 gígawattstundir árið 2015 og hafi þá aukist um rúmlega 50% frá árinu 1986. Ástæðan fyrir því að spáð er minni aukningu í vergri jarðvarma- vinnslu en nýttum varma er einkum aukin nýting bakrennslis frá ofna- kerfum húsa til snjóbræðslu. Gert er rað fyrir að á tímabilinu verði veruleg breyting á skiptingu milli þessara flokka. Hlutur húshitunar lækki úr 82% árið 1986 í 66% árið 2015, hlutur snjóbræðslu aukist úr 3% upp í 13%, iðnaðar úr 6% upp í 8% og laxeldis úr 0,4% upp í 4%. Sundlaugar verði hins vegar áfram með 5% og ylræktin með 4%, segir í fréttatilkynningu frá Orkuspár- nefnd. Ávöxtun sf. kaupir Hverfisgötu 12 ÁVÖXTUN sf. hefur keypt húsið Hverfisgötu 12 í Reykjavík af erfingjum Hannesar Gunnars- sonar læknis. Kaupverð eignar- innar, sem er um það bil 400 fermetrar að flatarmáli, hefur ekki fengist uppgefið. Ávöxtun hyggst flytja starfsemi sína í húsið í mars- eða aprílmán- uði á næsta ári. Armann Reynisson hjá Ávöxtun segir að fyrirtækið muni ráðast í umfangsmiklar við- gerðir á húsinu og leggja áherslu á að það haldi sem best uppruna- legu útliti. Hverfisgata 12 stendur á homi Hverfísgötu og Ingólfs- strætis. Húsið er, að sögn Ármanns Reynissonar, byggt árið 1910 af Gunnari Hannessyni lækni, föður Hannesar, og teiknaði hann húsið sjálfur. Vinningstölurnar 21. nóvember 1987. Heildarvinningsupphæð: 5.561.113,- 1. vinningur var kr. 2.789.238,- og skiptist hann á milli 3ja vinningshafa, kr. 929.746,- á mann 2. vinningur var kr. 833.433,- og skiptist hann á milli 353 vinningshafa, kr. 2.361,- á mann. 3. vinningur var kr. 1.938.442,- og skiptist á milli 10.366 vinn- ingshafa, sem fá 187 krónur hver. Upplýsinga- sími: 685 111. SILKI HINN SÍGILDI TÓNN Styrkleiki 30 ára þróunar É 'i 'tí ': i HÖRPUSILKI, þessi einstaka inni- og útimálning, vakti ^ veröskuldaöa athygli fyrst þegar hún kom á 1 markaðinn, fyrir slitþol og óvenju mikla þekjueiginleika. HÖRPUSILKI er þó HORPU SILKI GLJÁSTIG S ekki sama málningin nú og húnvar fyrir 30 árum. Hún hefur þróast í takt viö tímann og kröfuharða neytendur. vatnstryrvianWg pusimáatvvi mvð illilliíl riWWT**881 HÖRPUSILKI - láttu reynsluna ráða. HÖRPUSILKI er akrýlbundin, vatnsþynnanleg plastmálning með 5% gljástigi, auðveld í notkun og þrifum og litamöguleikarnir nær óteljandi. HARPA lífinu lit. AUK hf. 111.8/SlA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.