Morgunblaðið - 24.11.1987, Blaðsíða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987
Tónlistarskólar og Kennarasambandið:
Mótmæla afnámi ríkis-
framlaga til tónlistarskóla
SAMTÖK tónlistarskólastjóra,
Félag tónlstarskólakennara og
Kennarasamband íslands hafa
mótmælt því að ríkið hætti fjár-
stuðningi við tónlistarskóla á
næsta ári, eins og fyrirhugað er
samkvæmt fjárlagafrumvarpi
ríkisstjórnarinnar. I mótmælum
þeirra segir m.a. að sveitarfélög
hafi mörg hver ekki fjárhagslegt
bolmagn til að taka við rekstri
skólanna, og að námsstjórn, sem
nú er í höndum menntamálaráðu-
neytisins, verði mun erfiðari
efdr breytingarnar.
í bréfí sem Samtök tónlistarsóla-
stjóra hafa sent alþingismönnum
er varað við afleiðingum þess að
íjárhagslegur stuðningur við tón-
listarskólana verði færður frá
ríkisvaldinu til sveitafélaga. Þar
segir að afleiðingar þess yrðu að
lítil bæjarfélög myndu hætta rekstri
tónlistarskóla, stærri bæjarfélög
myndu draga úr rekstrinum, náms-
gjöld myndu stórhækka, og tónlist-
arskólamir myndu slitna úr
tengslum við hið almenna mennta-
kerfi. Er sagt að fara þurfi aftur
til ársins 1963 til að finna sambæri-
legt ástand, þar sem engin lög gildi
um tónlistarskóla.
í samþykkt sem gerð var á fundi
Samtaka tónlistarskólakennara fyr-
ir skömmu segir ennfremur að það
sé í ósamræmi við aðra þætti
fræðslukerfisins að sveitarfélögin
hafi ein með höndum rekstur tón-
listarskólanna, og því krefjist
samtökin að það ákvæði verði fellt
úr frumvarpinu.
Almennur félagsfundur Félags
Tónlistarskólakennara, sem haldinn
var 14. nóvember sl., skorar á fjár-
málaráðherra og Alþingi að falla
frá þeirri hugmynd að færa rekstur
tónlistarskólanna alveg yfir á sveit-
arfélögin. í ályktun fundarins segir
m.a. að á ísíandi hafi tónlistarlíf
vaxið og dafnað vegna tilvistar tón-
listarskólanna, sem fjölgað hafi úr
11 árið 1982 í 62 árið 1987. Sam-
kvæmt lögum frá 1985 búi þeir nú
við fjárhagslegt öryggi þar sem ríki
og sveitarfélög greiði kennslulaun
þeirra. Ekki hafi verið sýnt fram á
hvemig rekstur skólanna verði
tryggður hætti ríkið fjárhagslegum
stuðningi við þá.
Lögin um fjárhagslegan stuðning
við tónlistarskóla séu einu reglumar
sem settar hafí verið af hálfu yfir-
valda um þennan þátt fræðslumála
í landinu. Tónlistarskólar séu
fræðslustofnanir og það sé því í
fullu ósamræmi við aðra þætti
fræðslukerfisins að sveitarfélög
hafi ein með höndum rekstur þeirra..
Núgildandi lög hafi reynst tónlistar-
fræðslu í landinu mikil lyftistöng
og almenn ánægja sé með fram-
kvæmd þeirra.
Fundur fulltrúaráðs Kennara-
sambands íslands, sem haldinn var
23. og 24. október sl., skorar á fjár-
málaráðherra og Alþingi að hafna
þeirri hugmynd að færa rekstur
tónlistarskólanna alveg yfir á sveit-
arfélögin. Fulltrúaráðið óttast að í
kjölfar slíkrar lagasetningar fækki
tónlistarskólum verulega og starf-
semi þeirra sem eftir verða skerðist.
Til að mæta kostnaði við skólahald
yrði óhjákvæmilegt að hækka
námsgjöld en slíkt leiði til atvinnu-
leysis tónlistarkennara og að færri
nemendur geti stundað tónlist-
amám.
Menntamálaráðuneytið hafi nú
faglega yfirstjórn skólanna með
höndum, setji námskröfur fyrir
hveija kennslugrein og gefi út sam-
ræmdar námsskrár. Hætti ríkið
fjárhagslegum stuðningi við skól-
ana slitni þeir úr tengslum við hið
almenna menntakerfi. Tónlistar-
skólar víða um land starfi í nánum
tengslum við grunn- og framhalds-
skóla og hafí t.d. tekið- að sér
kennslu í tónlistargreinum nemenda
á tónlistarbraut.
Það er ekkert erfitt að stíga fyrstu
skrefin. . .
SJÓÐSBRÉF VIB
báru 11,9% ávöxtun umfram verðbólgu
fyrstu sex mánuðina. ,
Sjóðsbréf VIB er hægt að kaupa fyrir hvaða fjárhæð sem er og selja aftur á auglýstu kaupgengi hjá
Verðbréfamarkaði Iðnaðarbankans hf.
SJÓÐSBRÉF 1
Sjóðsbréf 1 eru kjörin fyrir þá sem vilja leggja
fyrir og fá háa ávöxtun. Kostir Sjóðsbréfa 1 eru
m.a. að
• þau er hægt að kaupa fyrir hvaða fjárhæð
sem er
• áhætta er minni en þegar keypt eru einstök
skuldabréf með jafnhárri ávöxtun vegna
áhættudreifingar sjóðsins
• ekki þarf að hafa áhyggjur af endurfjárfest-
ingu afborgana vaxta. Starfsfólk VIB sér um
að ávaxta sjóðina og hefur áralanga reynslu
að baki.
SJÓÐSBRÉF 2
Sjóðsbréf 2 eru ætluð þeim sem eiga nokkurn
sparnað og þurfa að lifa af eignunum og láta þær
jafnframt ávaxtast sem best. Kostir Sjóðsbréfa
2 eru m .a. að
• vextir umfram verðbólgu eru greiddir
eigendum á þriggja mánaða fresti
• kostnaður við ávöxtun er hlutfallslega lítill
og fé liggur ekki bundið á lágum vöxtum
• þau er hægt að selja aftur á auglýstu
kaupengi hjá Verðbréfamarkaði Iðnaðar-
bankans.
Heiðdís, Ingibjörg, Sigurður B., Vilborg og Þórólfur munu leitast við að veita nánari upplýsingar
um sparnað og ávöxtun. Verið velkomin í afgreiðslu VIB að Ármúla 7 eða hringið í síma 91-68 15 30.
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Ármúla 7, 108 Reykjavík. Simi68 15 30