Morgunblaðið - 24.11.1987, Blaðsíða 79

Morgunblaðið - 24.11.1987, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987 79 Karpov sýndi sínar beztu hliðar Skák Margeir Pétursson Þrátt fyrir mikið mótlæti upp á síðkastið í heimsmeistara- einvíginu er Anatoly Karpov greinilega ekki af baki dottinn. Eftir frábæra taflmennsku i sextándu einvígisská- kinni í gærkvöldi eru allar líkur á því að Karpov jafni metin í einvíginu þegar biðskákin verður tefld áfram í dag. Fyrir skákina hafði Kasparov átta vinninga, en Karpov sjö, þannig að það er Ijóst að lokabaráttan í ein- víginu verður gífurlega spennandi. Síðan Kasparov vann elleftu skákina hafði baráttan verið með daufara móti þar til á föstudag- inn að Karpov sótti fast með hvítu í þeirri fímmtándu. Þegar skákin fór í bið var staðan dautt jafntefli, en keppendum gekk illa að ná friðarsamkomulagi. Karpov bauð jafntefli, en Ka- sparov var svo seinn til svars að hann dró boðið til baka. Það þurfti því úrskurð skákstjórans til að fá Karpov til að standa við boðið. Þessi ólíkindalæti virðast hafa haft góð áhrif á Karpov sem er vanur skæruhemaði á milli skáka frá tveimur einvígjum við Viktor Korchnoi. Áskorandinn leyfði Kasparov aftur að tefla hefðbundinn enskan leik og virt- ist nú mun betur undirbúinn en fýrr í einvíginu. í miðtaflinu komu stíleinkenni þessara tveggja geysisterku skákmanna vel í ljós. Kasparov lék peðum sínum fram, fékk meira rými og var að þreifa fyr- ir sér um sóknarfæri. Karpov lét peð sín hins vegar nærri óhreyfð, en notaði fyrsta tækifæri til að njörva niður peðaveikleika and- stæðingsins. Áskorandinn var greinilega ákveðinn í að láta sverfa til stáls, hann skildi kóngsvænginn eftir lítt varinn og fór með báða riddara sína í skæruhemað á drottningar- væng. Eftir 23 leiki var sýnt að góð staðsetning á mönnum Karpovs væri mikilvægari en peðafleygur Kasparovs á miðborðinu. Heims- meistarinn reyndi þá að þyrla ryki í augu andstæðingsins með peðsfóm, en Karpov tókst að sjá við öllum gildmm og halda peð- inu, án þess að verða fyrir áföllum. í miklu tímahraki fýrir bið fann Kasparov enga áætlun, lék mönnum sínum fram og til baka og við það versnaði staða hans til muna. Hvítt: Gary Kasparov Svart: Anatoly Karpov Enski leikurinn 1. c4 - e5 2. Rc3 - Rf6 3. Rf3 - Rc6 4. g3 - Bb4 5. Bg2 - 0-0 6. 0-0 - He8 I annarri og fjórðu skákun- um lék Karpov hér 6. — e4, sem er hvassara. Nú er 7. Rd5 algengast, en heimsmeistarinn beinir skákinni út á litt troðn- ar slóðir. 7. d3 — Bxc3 8. bxc3 — e4 9. Rd4 — h6 10. dxe4 — Rxel 11. Dc2 - d5!? Djarfur leikur, því nú lendir svarta drottningin í skálínu bisk- upsins á g2. Karpov hefur þó sýnilega reiknað dæmið mjög nákvæmlega. 12. cxd5 - Dxd5 13. e3 Karpov hefur vafalaust ætlað að svara hinum eðlilega leik 13. Hdl með 13. — Bf5! og eftir 14. Rxf5 — Dxf5 hótar hann bæði 15. — Dxf2+ og 15. — Rxg3. 13. - Ra5 14. f3 Eftir 14. Hdl virðist svartur ieysa vandamál sín með því að leika 14. — Dh5! 14. - Rd6 15. e4 - Dc5+ 16. Be3 - Rdc4 17. Bf2 - De7 18. Hadl?! Hvítur hefði átt að leika strax 18. f4. Karpov sýnir með 20. leik sínum að þessi hróksstað- setning er óheppileg. 18. - Bd7 19. f4 - Had8 20. e5 - Bg4! 21. Rf5 - De6 22. Hxd8 - Hxd8 23. Rd4 - Dc8 Staða svarts er nú greinilega betri. Kasparov vill ekki sætta sig við hið rólega framhald 24. Hel — c5 25. Rb3 — b6 og svart- ur stendur áfram betur, en reynir að slá ryki í augu andstæðings- ins með peðsfóm: 24. f5!? - c5 Ekki 24. - Rxe5? 25. h3 - c5 26. De4! — He8 27. hxg4 — cxd4 28. cxd4 og hvítur hefur unnið peðið til baka með betri stöðu. 25. De4 - cxd4 26. Dxg4 - Rxe5 Vafalaust hefur Kasparov ver- ið að vonast eftir 26. — dxc3, því þá nær hann að hleypa tafl- inu upp með 27. e6! Þar sem 26. De4 gengur nú ekki vegna 26. - Rec4 verður Kasparov að sætta sig við að tapa peði. 27. De2 - Rec6 28. cxd4 - Rxd4 29. Bxd4 - Hxd4 30. f6 Síðasta tromp heimsmeistar- ans nægir til að veikja svörtu kóngsstöðuna, en Karpov teflir áframhaldið mjög vel og gefur engin færi á sér. — De6 31. Db2 - De3+ 32. Khl - b6 33. fxg7 - Rc4 34. Dc2 - Kxg7 35. Bd5 - Rd6! 36. Db2 - De5 37. Bb3 - a5 38. Df2 - f5 39. Db2 - b5 40. a3 - Kg6 í þessari stöðu fór skákin í bið. Taflmennska Kasparovs í síðustu leikjunum fyrir bið hefur verið ráðleysisleg og Karpov er nú kominn með yfírburðastöðu í ofanálag við peðið sem hann hefur yfír. Það verða því að telj- ast hverfandi líkur á að Kasparov nái jafntefli. Eggjabændur falla frá ákvörðun um samráð FORYSTUMENN eggjabænda hafa sent verðlagsstofnun yfir- lýsingu um að eggjabændur hafi samþykkt á fundi að falla frá samráði því um verðlagningu á eggjum sem þeir hafa viðhaft í viku. Verðlagsstofnun taldi samráðið stangast á við ákvæði verðlagslaga og gerði athuga- semdir við það. Vegna þessara viðbragða ákváðu eggjabændur að draga ákvörðun sína til baka en óskuðu jafnframt eftir undan- þágu frá þeim ákvæðum laganna sem banna samráð. Einar Eiríksson formaður Félags alifuglabænda sagðist í gær ekki eiga von á því að eggjaverðið breyttist mikið. Því hefði verið svo í hóf stillt. Vonaðist hann til að fá sem fyrst leyfi verðlagsráðs til að bændur geti verðlagt eggin sameig- inlega, eins og lengst af hefði verið gert. Framboð og eftirspum réði eftir sem áður mestu um verðið. Gísli ísleifsson lögfræðingur Verðlagsstofnunar sagðist f gær vera ánægður með þessi viðbrögð eggjabænda. Næsta skref í málinu væri það að verðlagsráð myndi flalla um undanþágubeiðni bænd- anna en ákvörðunarvald í því efni væri ekki hjá stofnuninni. Taldi hann að Verðlagsstofnun myndi fylgjast sérstaklega með eggjaverð- inu á næstunni. Ef bændur héldu verðinu óbreyttu yrði að grípa til ráðstafana, en þeir hefðu þó sinn aðlögunartíma. Slysavarnaskóli sjómanna: Leiðaleitað til að afla fjár Fjármálaráðherra, Jón Bald- vin Hannibalsson, hefur sent skeyti til sjómanna þar sem hann getur þess, að hann hafi falið formanni fjárveitinga- nefndar að leita leiða til að afla fjár til slysavarnaskóla sjó- manna. Skeytið er svar við skeyti áhafna 101 skips, þar sem farið var fram á fé til skólans. Ekkert fé var ætlað til öryggis- mála af þessu tagi í fjárlagafrum- varpinu. Skýringin er sú að beiðni þess efnis barst ekki frá viðkom- andi ráðuneyti, þar sem á þeim tíma var ekki fyllilega ljóst hver ætti að óska fjárveitingarinnar. Líklegt er talið að samstaða náist innan fjárveitinganefndar um fé til uppbyggingar skólans og ann- arra öryggismála sjómanna. Pétur Einarsson skreiðarsali: Krefst 10 milljóna í miskabætur af Vikimni LÖGFRÆÐINGUR Péturs Ein- arssonar, skreiðarsala, hefur fyrir hans hönd stefnt ritstjórum Vikunnar fyrir ærumeiðingar á hendur Pétri. Krafizt er 10 millj- óna króna miskabóta, 100.000 króna til að standa straum af kostnaði við birtingu stefnu og að ýmis ummæli um Pétur í Vik- unni verði dæmd ómerk. Tilefni stefnunnar er grein í Vik- unni frá 5. nóvember síðastliðnum. Greinin er ekki merkt höfundi og er Þórami Jóni Magnússyni, rit- stjóra og eiganda blaðsins, og Magnúsi Guðmundssyni ritstjóra stefnt, en þeir eru jafnframt ábyrgðaimenn Vikunnar. ♦♦♦ WILKEIMS BSF SMmM . , SILFURBUÐIN KRINGLUNNI—REYKJAVÍK SÍMI 689066
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.