Morgunblaðið - 24.11.1987, Side 17
er talið að hátt í þtjár milljónir
manna hafí sótt hana. Á þeim tíma
sem hátíðin stendur yfir, eru öll
hótel og gistiheimili yfirfull og mik-
ill fjöldi fær einnig inni í heimahús-
um, sannkallaður hvalreki fyrir
húseigendur með aukaherbergi, því
leigan tvö- eða jafnvel þrefaldast á
meðan bjórdrykkjuhátíðin stendur.
Já, hann er eftirsóttur þýski bjór-
inn. Eitthvað annað en lútsterkt
brennivínið sem við íslendingar
þurfum að pína ofaní okkur með
tilheyrandi grettum, ef við viljum
gera okkur glaðan dag. Undarleg
þröngsýni þingmanna okkar er fyr-
ir löngu orðin að atlægi manna,
ekki bara hér á íslandi, heldur líka
erlendis. Vonandi verður breyting
hér á til batnaðar, því heill þjóðar
okkar er í veði, heillar þjóðar, sem
er fyrirmunað að neyta þess styrk-
leika af áfengi sem hún kýs. Hér
er aðeins boðið uppá það sterkasta,
enda er áfengisvandamál íslend-
inga alkunn staðreynd. Ég skora á
alla þá sem hafa kosningarétt, að
strika yfír nöfn þeirra þingmanna
sem eru á móti sölu á áfengu öli,
í kosningum til Alþingis um ókomna
framtíð. Aðeins þannig er hægt að
koma þröngsýnum þingmönnum út
af Alþingi, en öðrum réttsýnum inn
í staðinn. Eftir það yrði væntanlega
auðvelt að koma jafn sjálfsögðum
hlut og bjórfrumvarpinu í gegn,
öllum til heilla.
Bensín og blý
í bytjun næsta árs verður hætt
sölu á bensíni sem inniheldur blý.
Hér er um að ræða einn þátt í bar-
áttunni gegn mengun í Þýskalandi.
Að mati sérfræðinga eru nú 70%
af skóglendi Þýskalands deyjandi
eða sjúk vegna mengunar. Vélar
eru nú eingöngu framleiddar fyrir
blýlaust bensín í alla bíla á Þýska-
landsmarkaði. Búist er við að mikill
fjöldi bíleigenda sem eru með vélar
fyrir blýbensín, leggi bílum sínum
fremur en að láta breyta þeim þann-
ig að þeir gangi fyrir blýlausu
bensíni, en slík breyting mun vera
all kostnaðarsöm. Kannske opnast
hér möguleiki fyrir íslenska spekúl-
anta í bílainnflutningi til þess að
gera reyfarakaup. Ohætt er að
segja að Þjóðveijar séu á varðbergi
gagnvart mengun, þótt erfítt sé um
vik, þar sem landið liggur í miðri
Evrópu, en mikið af menguninni fá
þeir yfír sig frá nágrannalöndum,
eins og til dæmis Austur-Þýska-
landi og Tékkóslóvakíu. Þeir reyna
samt að róa á móti straumnum og
nýlega hafa verið tekin í notkun
ný umferðarljós, sem hafa þann
eina tilgang að hamla gagn meng-
uninni. Það er ekki óeðlileg spum-
ing, að spyija, hvemig það geti
gerst. Umferðarljós þessi hafa nú
verið sett upp á nokkmm stöðum
þar sem umferðarþungi er mikill.
Þau em auk þess að vera grænt,
gult og rautt með tveimur viðbótar-
ljósum. Á þeim stendur letrað
„Drepa á vél“ og „vél í gang".
Þannig á að koma í veg fyrir að
menn séu með bifreiðir sínar í gangi
á meðan beðið er eftir grænu ljósi.
Ljósið „vél í gang“ kviknar skömmu
áður en gult og síðan grænt. Ljósið
„drepa á vél“ kviknar svo strax á
eftir rauða ljósinu. Þess ber að geta,
að yfirleitt er lengra á milli skipt-
inga á umferðarljósum í Þýskalandi
en hér heima. Þjóðvetjar fullyrða,
að auk þess að draga vemlega úr
mengun, muni þessi ráðstöfun
spara þýska þjóðarbúinu þúsundir
tonna af bensíni árlega. Þeir sem
em á móti þessari ráðstöfun, hafa
það helst til síns máls, að viðgerðir
og varahlutasala í startara muni
aukast svo mikið, að spamaður
verði enginn þegar upp er staðið.
Já, fátt er svo með öllu illt, að eigi
boðið nokkuð gott.
Nýtið fólk
En Þjóðveijar meta trén sín
meira en viðgerðir og varahluti.
Þeir hugsa um trén eins og unga-
böm, ef svo má að orði komast.
Eins og flestir vita var síðastliðinn
vetur einn hinn harðasti í manna
minnum í Evrópu, utan íslands, og
Þjóðveijar fengu sinn skammt af
snjó og kulda. Vegna mikilla snjó-
þyngsla sliguðust þúsundir tijáa og
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987
17
Gamla vagna er hægt að nýta á skemmtilegan hátt eins og hér hef-
ur verið gert.
í vor sáu tijávinir, að þau vom
ekki upprétt lengur, heldur eins og
spumingarmerki í laginu. Allt
síðastliðið sumar hefur verið unnið
hörðum höndum við að setja spelk-
ur á hin kengbognu tré um gervallt
landið, til að freista þess að rétta
þau við. Þjóðveijar em jú vel þekkt-
ir fyrir uppbyggingu og endurreisn-
arstörf sín. Uppbygging þeirra á
rústum seinni heimsstyijaldar er
lygasögu líkust. Á ótrúlega skömm-
um tíma breyttu þeir rústunum í
fallegar borgir og endurbyggðu
sögufrægar byggingar í sinni upp-
mnalegu mynd. Þjóðin er og hefur
alltaf verið framsýn og getað státað
af góðum vísindamönnum, sem
margir hveijir hafa verið langt á
undan sinni samtíð. Eitt gleggsta
dæmið um þetta er svokallaður
„Schwebebahn" sem staðsettur er
í Wuppertal, sem er þijúhundmð
og fimmtíu þúsund manna borg
skammt frá Diisseldorf.
Die Schwebebahn (svifbrautin)
var tekin í notkun árið 1896. Hér
er um að ræða jámbraut sem tmfl-
ar ekki umferð á jörðu niðri, því
hún hangir í teinum, í stað þess að
aka eftir þeim. Þannig svífur vagn-
inn, eða vagnamir, óháð allri
umferð og kemst því fljótt og ör-
ugglega á milli áfangastaða.
Mannvirki þetta er geysilega mikið,
jafnvel á nútíma mælikvarða. Svif-
brautin liggur að mestu yfír og eftir
á sem rennur í gegnum borgina,
en að hluta einnig yfír strætum
borgarinnar. Svifbrautin í Wupper-
tal mun vera sú eina sinnar
tegundar í heiminum, en minnir
óneitanlega á neðanjarðarlestir
margra borga, nema bara hún er
öðmvísi, því hún gengur öfugu
megin við jarðveginn. Hér er um
frábært tækniafrek að ræða, frá
því á síðustu öld, sem ennþá er í
fullu gildi og ég tel vafasamt að
annar fljótlegri ferðamáti eða hag-
kvæmari komi í stað þessa á
komandi áram eða jafnvel áratug-
um.
Þjóðveijar era nýtið fólk, enda
búnir að ganga í gegnum hörmung-
ar. Sem dæmi, þá kasta þeir ekki
gleijum eða pappír lengur í rasla-
fötuna. Á flestum gatnamótum
íbúðarhverfa hefur nú verið komið
upp tveimur litlum gámum fyrir
þennan úrgang. Á öðmm stendur
„gler“ en á hinum „pappír“. í þessa
gáma ber fólk allar einnota flöskur
og gler og gömul dagblöð og annan
pappír sem til fellur. Gámamir em
síðan losaðir eftir þörfum og inni-
haldið flutt í endurvinnsluverk-
smiðjur. Verksmiðjumar fá þannig
frítt hráefni, sem síðan fer aftur
inná almennan markað sem versl-
unarvara, sem er tiltölulega ódýrari
en ella. Það hvarflaði að mér, hvort
við Islendingar gætum ekki á sama
hátt sparað þjóðarbúinu stórfé og
byggt hér endurvinnslu á bæði gleri
og pappír sem í dag fer á öskuhaug-
ana. Eða emm við kannske of lítil
þjóð eins og fyrir svo marga aðra
hluti, til þess að það borgi sig. Þá
má með sanni segja, að það sé dýrt
að vera lítill, þótt það geti verið
hagkvæmt að mörgu öðm leyti.
Höfundur er á eftirlaunum.
A GOQDYEAR
KEMST ÉG HEIM
Þú átt aðeins eftir
nokkra kílómetra.
Það er næstum engin
umferð og hann er
nýhættur að snjóa.
Þú ekur greitt!
Allt ( einu!
Hindrun framundan,
— vegurinn lokaður!
—- athyglin snarvakin!
— nauðhemlun!
Bíllinn stöðvast,
þú skynjar muninn,
Goodyear Ultra Grip 2
dekkin svíkja ekki.
Nú er að styttast
heim, þú finnur til
öryggiskenndar á
Goodyear Ultra Grip 2.
Það verður gott að
koma heim.
GOODYEAR
ULTRAGRIP2
Á Goodyear Uitra
Grip 2 dekkjunum verður
bíllinn allur annar, hvort
sem er vetur eða sumar.
hiheklahf
■jLaugavegi 170-172 Simi 695500
GOODfYEAR