Morgunblaðið - 24.11.1987, Qupperneq 37
37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987
Úreltar auglýsingar fjarlægðar
Verkamenn unnu að því hörðum höndum í Tel Aviv höfðu ekki hirt um að fjarlægja gamlar auglýsingar
í ísrael í gær að Qarlægja gamlar auglýsingar af en margar þeirra höfðu verið festar upp fyrir tæpum
tumum, sem notaðir em til að koma hvers kyns 30 ámm og þótti sýnt að þær ættu takmarkað er-
„skilaboðum" á framfæri við vegfarendur. Menn indi við almenning.
Ungveijaland:
Sri Lanka:
Einhliða vopna-
hlé Indverja
árangurslaust
Colombo, Reuter.
EINHLIÐA vopnahléi indverskra friðargæslusveita á Sri Lanka lauk
í gær án þess að skæruliðar tamíla afhentu vopn sín eins og þeir
höfðu verið hvattir til að gera. Talsmaður indversku stjórnarinnar
sagði að áfram yrði unnið að þvi að afvopna skæruliða þar sem
vopnahléið hefði engan árangur borið.
Andófsmenn vilja
útlenda heri burt
Búdapest, Reuter.
ANDOFSMENN, friðarsinnar og menntamenn frá 17 rikjum Austur-
og Vestur-Evrópu komu saman til fundar í Búdapest í Ungveijalandi
um helgina og hvöttu til þess að útlendar hersveitir yrðu fjarlægðar
úr Iöndurn þeirra.
Federico Argentieri, fulltrúi
ítaiska kommúnistaflokksins, sagði
að fundurinn hefði verið sögulegur
því þetta hefði verið í fyrsta sinn
sem hægt hefði verið að halda
„óháðan" fund í Austur-Evrópu, þar
sem málfrelsi hefði verið óskorað
og íhlutun hins opinbera engin.
Sameiginleg yfirlýsing var ekki
gefin út vegna andstöðu hins opin-
bera ungverska friðarráðs. Lang-
mestur meirihluti þeirra 140
fulltrúa, sem fundinn sátu, undirrit-
uðu þó skjal þar sem hvatt var til
brottflutnings útlendra herja frá
er á um 23 milljarða dollara niður-
skurð á þessu fjárlagaári.
Hvatt til iðnríkjafundar
Bandarískir sérfræðingar hafa
hvatt til þess að boðað verði til fund-
ar embættismanna sjö helstu iðnríkja
heims til að treysta samvinnu rfkjanna
á sviði efnahagsmála. Nigel Lawson,
flármálaráðherra Bretlands, sagði á
sunnudag að hann teldi líklegt að
boðað yrði til slíks fundar í næsta
mánuði og kvaðst telja það eðlilegt
skref í Ijósi þess að samkomulag hefði
náðst um að minka fjárlagahallann í
Bandaríkjunum. Lawson kvaðst telja
að samkomulagið væri „fullnægjandi"
og sagðist einnig sannfærður um að
Japanir og Vestur-Þjóðveijar væru
reiðubúnir til að grípa til nauðsyn-
legra aðgerða heima fyrir og auka
innflutning frá Bandaríkjunum til að
draga úr viðskiptahalla Banda-
ríkjanna.
Gengi Bandaríkjadollars Iækkaði
litillega á Qármálamörkuðum í Evrópu
í gær og sögðust sérfræðingar hafa
búist við því að menn auðsýndu var-
fæmi. Beðið væri eftir viðbrögðum
annarra helstu iðnríkja heims einkum
Japana og Vestur-Þjóðveija. Pjár-
málamarkaðir í Japan voru lokaðir i
gær en gengi dollars lækkaði á mark-
aðinunm i Hong Kong og var hann
skráður á 135,05 japönsk jen. Hluta-
bréf féllu hins vegar i verði bæði í
Hong Kong og Sydney I Ástralíu og
töldu sérfræðingar sýnt að fjárfest-
endur biðu viðbragða á fiármálamark-
aðinum í New York.
rífejum Austur- og Vestur-Evrópu,
upprætingu erlendra herstöðva og
afvopnunarsamninga, að skoðana-
frelsi yrði virt og að stofnuð yrðu
flölþjóðleg lýðræðis- og umhverfis-
vemdarsamtök, sem ríki Austur- og
Vestur-Evrópu ættu aðild að.
Ungversk yfirvöld reyndu að
hindra fundarhaldið en árla á laug-
ardag, rétt fyrir fundarsetningu,
gáfu þau eftir og leyfðu fundinn,
sem fimm lögfræðistúdentar skipu-
lögðu. Um helmingur fundarmanna
var ungverskur en aðrir fulltrúar
vom frá Póllandi, Austur-Þýzkal-
andi. Tékkóslóvakíu og Júgóslavíu.
Fundarmenn fordæmdu bæði
vestræn ríki og kommúnistaríki fyr-
ir að senda fólk í fangelsi fyrir
skoðanir sínar. Ungverski rithöf-
undurinn Miklos Haraszti sagði að
þar í landi sætu nær 200 menn í
fangelsi fyrir að neita að gegna
herþjónustu. Þeir hefðu sagt her-
mennsku stríða gegn samvizku sinni
og verið dæmdir í eins til þriggja
ára fangelsi fyrir vikið. Annar ung-
verskur rithöfundur, Gyoergy
Konrad, sem er félagi í hinum óleyfi-
legu samtökum „Lýðræðislega
andstaðan" sagði að Ungveijum
bæri að segja Ungverja úr Varsjár-
bandalaginu og öðlast hlutleysi á
borð við Austurríki.
48 stunda einhliða vopnahléi Ind-
veija lauk á aðfaranótt mánudags
og tilkynnti talsmaður indverskra
stjómvalda að það yrði ekki fram-
lengt. Sagði hann að þess yrði áfram
freistað að afvopna skæmliða, sem
Persaflói:
Iranir ráðast
á rúmenskt
flutningaskip
Dubai, Reuter.
ÍRANSKT herskip skaut í gær á
rúmenskt kaupskip er það var á
siglingu á Hormuz-sundi. Eldur
kviknaði um borð í skipinu og
þrir skipverja særðust.
Að sögn heimildarmanna Reut-
ers-fréttastofunnar í Dubai hóf
íranska herskipið skothríð eftir að
skipstjóri þess rúmenska hafði neit-
að að láta uppi hvaða vamingur
væri um borð eða hvert förinni
væri heitið. Tveir menn særðust
alvarlega og vom þeir fluttir með
þyrlu til Sameinuðu arabísku fur-
stadæmanna. Áhöfnin yfirgaf
brennandi skipið og tók tólf klukku-
stundir að ráða niðurlögum eldsins.
Þá réðust íranir einnig á flutn-
ingaskip sem siglir undir fána
Panama og var á leið til Dubai.
Eldur kviknaði um borð en áhöfn-
inni tókst að slökkva hann og hélt
skipið áfram siglingunni.
Iranir krefjast þess oftlega að
áhafnir þeirra skipa sem sigla um
Hormuz-sund skýri frá ákvörðunar-
stað skipsins og hvaða vamingur
er um borð. Venjulegast hundsa
áhafnimar þetta þar til franir hóta
að beita valdi. Skip frá Sovétríkjun-
um og Frakklandi sigla undir
herskipavemd og stöðva Iranir þau
því ekki. írakar fá hins vegar flest
sín vopn frá ríkjum þessum.
undanfarin Qögur ár hafa barist
fyrir stofnun sjálfstæðs ríkis á norð-
ur- og austurhluta eyjarinnar.
Einn leiðtoga „Tígrana", stærstu
skæmliðahreyfíngar tamíla, sagði í
gær að ekki yrðist ráðist á ind-
versku friðargæslusveitimar að
fyrra bragði en bætti við að sér-
hverri árás Indveija yrði svarað. „Ef
kröfur okkar em virtar að vettugi
getum við ekki lagt niður vopn,"
sagði skæmliðaforinginn.
Skæmliðar tamíla hafa neitað að
virða friðaráætlun stjóma Sri Lanka
og Indlands og var indversku friðar-
gæslusveitunum fengið það verkefni
að afvopna skæmliða. Hefur verið
barist af hörku einkum í og við
borgina Jaffna á norðurhluta eyjar-
innar þar sem „Tígramir" hafa
höfuðstöðvar sínar.
Stjómvöld á Indlandi höfðu von-
ast til að skæmliðar legðu niður
vopn er lýst var yfír einhliða 48
klukkustunda vopnahléi. Skæmliðar
sögðu það vera skilyrði fyrir vopna-
hléi að indversku sveitimar væm
kallaðar frá þeim stöðum sem þær
höfðu náð á sitt vald fyrir 10. októ-
ber er blásið var til stórsóknar gegn
skæmliðum tamíla eftir að þeir
höfðu myrt 200 shinghala, sem em
í meirihluta á eyjunni. Þessari og
örðum kröfum skæmliða visuðu ind-
versk stjómvöld á bug.
Stjómarerindrekar í Colombo,
höfuðborg Sri Lanka, sögðu í gær
að líkast til myndu báðar fylking-
amar ekki heija átök að fyrra bragði
til að spilla eldci fyrir frekari vopna-
hlésviðræðum.
Rúmlega 20.000 indverskir her-
menn em nú á Sri Lanka og hefur
þeim stöðugt farið fjölgandi frá því
Junius Jayewardene, forseti Sri
Lanka og Rajiv Gandhi, forsætisráð-
herra Indlands, gerðu með sér
samkomulag í júlímánuði um leiðir
til að binda enda á borgarastyijöld-
ina á Sri Lanka, sem talið er að
hafi kostað um 7.000 manns lífið.
0»6b«6B«®^ í
Hjá okkur sitja gæðin í fyrirrúmi
FAE Kúlu- og rúllulegur.
TIMKEN Keilulegur.
Ásþétti.
(gntinenlal Viftu- og tímareimar.
precision Hjöruliðir.
SACHS Höggdeifar-
og kúplingar.
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8. SIMI 84670