Morgunblaðið - 24.11.1987, Side 41

Morgunblaðið - 24.11.1987, Side 41
40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987 41 Útgefandi Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sfmi 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 55 kr. eintakiö. Sjálfstæðisflokkur og Borgaraflokkur orsteinn Pálsson, for- maður Sjálfstæðisflokks- ins, gerði klofning flokksins og samskipti við Borgara- flokkinn að umtalsefni í ræðu sinni á flokksráðsfundi Sjálf- stæðisflokksins sl. laugardag á þann hátt, að athygli hefur vakið. í ræðunni sagði Þor- steinn Pálsson m.a.: „Það var ekki málefnalegur ágreining- ur, sem réð því, að leiðir skildu með sjálfstæðismönnum, en nú hefur afl þeirra verið slitið sundur. Við bentum rækilega á það í kosningabaráttunni, að slíkt gæti einungis leitt til upplausnar í íslenzkum stjóm- málum og veikari stjómar- hátta . . . Hér á landi hafa borgaraöflin verið sameinuð í áratugi meðan þau hafa verið sundruð í mörgum flokkum á hinum Norðurlöndunum. Þetta hefur gefið okkur afl og styrk til þess að hafa meiri áhrif á mótun íslenzks þjóð- félags en skoðanabræður okkar og -systur hafa megnað á hinum Norðurlöndunum. Og með því, að við vitum með fullri vissu, að það var ekki skoðanaágreiningur, sem leiddi til þess, að klofnings- flokkur var stofnaður út úr Sjálfstæðisflokknum, hljótum við að einsetja okkur það sem meginmarkmið og höfuðverk- efni, að það fólk, sem um svo langan tíma hefur átt hug- sjónalega samleið, geti tengzt saman á ný. Við höfum að vísu heyrt, að fyrrum félagar okkar segist skuldbundnir fólki úr öðrum flokkum eftir kosningabardagann og þær skuldbindingar hindri áform af þessu tagi. Um það ætla ég ekki að deila. En sjálfstæð- ismenn geta ekki til lengri tíma veikt sameiginlega krafta sína vegna skuldbind- inga við fólk úr öðrum flokk- um. Við getum ekki og viljum ekki gera flokkinn að verzlun- arvöru til þess að ná þessu markmiði. Sjálfstæðismenn allir, saman og hver fyrir sig, þurfa að bera þetta undir sam- vizku sína og sannfæringu. Á báða bóga hljóta atburðir liðins árs að snerta dýpstu til- fínningar allra þeirra, sem svo lengi hafa starfað sameigin- lega í þágu sjálfstæðisstefn- unnar. En ekkert okkar má þó láta reiði, sárindi eða von- brigði koma í veg fyrir, að við stefnum ótvírætt að því marki að sameina undir einu merki alla þá, sem áfram vilja vinna að þjóðlegri umbótastefnu, atvinnufrelsi og einstaklings- frelsi, svo sem við höfum gert og munum gera.“ Það fer ekki á milli mála, þegar þessi ummæli eru lesin, að formaður Sjálfstæðis- flokksins stefnir að því að sameina sjálfstæðismenn á ný í einum flokki. Það verður erfítt verk. Þegar nýr stjóm- málaflokkur hefur verið stofnaður koma margvíslegir hagsmunir til sögunnar, sem vinna gegn því, að þeir sjálf- stæðismenn, sem höfðu forystu um stofnun Borgara- flokksins verði reiðubúnir til að ganga á ný til baráttu undir merkjum Sjálfstæðis- flokksins. En með ræðu Þorsteins Pálssonar á flokksr- áðsfundi sjálfstæðismanna hefur fyrsta skrefíð verið stig- ið. Það á eftir að koma í ljós til hvers það leiðir eða hvort það leiðir til einhvers. Öllu borgaralega sinnuðu fólki er hins vegar ljóst, að stjómmálaþróunin hefur orðið allt önnur á íslandi en á öðrum Norðurlöndum vegna þess, að það hefur borið gæfu til að starfa saman í einum stjóm- málaflökki. Verði klofningur Sjálfstæðisflokksins varan- legur er hætta á því, að þungamiðjan í íslenzkum stjómmálum færist frá honum yfír á vinstri kantinn. Verði þróunin sú getur það haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir það þjóðfélag, sem við búum í. Stundum er sagt, að enginn munur sé á stjóm- málaflokkum. Sá munur mundi hins vegar koma ber- lega í ljós, ef staða Sjálfstæð- isflokksins yrði til frambúðar mun veikari en hún hefur ver- ið til þessa. Bæði sjálfstæðismenn og meðlimir hins nýja Borgara- flokks þurfa nú að hugsa sitt mál. Formaður Sjálfstæðis- flokksins ’nefur gert lýðum ljóst að hveiju hann stefnir. Þensluhætta í húsnæðiskerfinu eftirÞorvald Gylfason I Enn sem fyrr ber á því í umræð- um um fjárlagafrumvarpið, sem liggur fyrir Alþingi, að fjárhagur ríkissjóðs vekur mesta athygli. Hallalaus rekstur ríkissjóðs dugir þó skammt í baráttu við verðbólgu, ef önnur starfsemi á vegum ríkisins er rekin með miklum halla. Rekstr- arjöfnuður ríkissjóðs getur að vísu verið ágætur mælikvarði á afkomu ríkisins í þrengsta skilningi, en hann er aldeilis ófullnægjandi mæli- kvarði á umsvif ríkisins í heild og áhrif þeirra á efnahagslífið. Rekstr- arjöfnuðurinn nær aðeins yfir Qárreiður ríkissjóðs og ríkisstofn- ana í A-hluta fjárlaga. Hann nær hins vegar ekki til ríkisfyrirtækja og sjóða (t.d. byggingarsjóða) í B-hluta og annarra opinberra eða hálfopinberra fyrirtækja og sjóða (t.d. fjárfestingarsjóða) í C-hluta ríkisfjármálanna, sem ég hef kallað svo. Ahrif fjármálastjómar ríkisins á efnahagslífið fara ekki eftir af- komu A-hlutans eins, heldur eftir umfangi ríkisbúskaparins í heild. Þess vegna verður alltaf að taka öll umsvif ríkisins með í reikninginn í stað þess að einblína á A-hlutann, því að hann er aðeins hluti af miklu stærri heild. í umræðum um fjárlagagerð bæði fyrr og nú hef ég bent á ein- falda aðferð til að meta þensluáhrif fjárlaga. Hún er sú að (a) leggja saman fyrirhugaðar opinberar lán- tökur innan lands og utan tii að finna, hversu langt útgjöldum er ætlað að fara fram úr skattheimtu, og (b) draga síðan frá þeirri upphæð þann hluta opinberra útgjalda, sem engri þenslu veldur í þjóðarbú- skapnum. Með þessu móti má finna þensluhallann, sem ég hef kallað svo. Langstærstu frádráttarliðimir em vaxtagjöld og afborganir af erlendum skuldum, því að þær greiðslur renna í vasa útlendinga og hafa því engin þensluáhrif hér heima. Samkvæmt íjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár mun þensluhallinn nema um 4,8 milljörðum króna eða um 2% af áætlaðri landsframleiðslu eftir mínum reikningj, eins og ég hef greint frá hér í Morgunblaðinu. í ljósi reynslunnar er hins vegar hætt við því, að þensluhallinn verði miklu meiri en 4,8 milljarðar, þegar öll kurl koma til grafar í árslok 1988. Þannig virðist fjármálastjórn ríkisins líkleg til að stuðla að áfram- haldandi þenslu og verðbólgu á næsta ári, ef ekki verður gripið fastar í taumana. II Að vísu er þensluhallinn, eins og ég hef lýst honum, alls ekki ein- hlítur mælikvarði á verðbólguáhrif Qárlaga. Fyrst ber að geta þess, að fleira skiptir máli en hallinn einn. Einkum getur umfang ríkisbúskap- arins verið mikilvægt í þessu viðfangi, hvað sem hallanum líður. Þannig er til dæmis hægt að veita aðhald í ríkisQármálum og þar með viðnám gegn verðbólgu með því að draga jafnmikið úr útgjöldum og sköttum, jafnvel þótt lánsfjárþörf og þensluhalli haldist óbreytt. Eins getur samsetning skatttekna ríkis- sjóðs skipt miklu máli, ekki sízt hlutfall beinna og óbeinna skatta af heildarskattheimtu. Skuldasam- setning ríkisins getur líka verið mikilvæg. Aukin innlend lánsíjár- öflun í stað erlendrar, eins og ríkisstjómin boðar nú, dregur úr þenslu, jafnvel þótt lánsfjárþörf og þensluhalli haggist ekki. Þá er rétt að vekja athygli á því, að ég hef aðeins dregið vexti og afborganir ríkisins af erlendum skuldum frá lánsfjárþorfinni til að finna þensluhallann. Þær greiðsiur hverfa til útlanda og valda því engri þenslu hér heima. Hins vegar hef ég ekki dregið vexti og afborganir ríkisins af innlendum lánum frá með sama hætti, því að þær greiðsl- ur hafna í höndum íslendinga, og okkur er að sjálfsögðu fijálst að eyða fénu eftir vild hér heima. Ef við eyðum endurgreiðslufénu öllu, þá veltur það beint út í efnahagslíf- ið aftur, eins og ef ríkið hefði eytt því sjálft milliliðalaust. En ef við leggjum féð til hliðar, veldur það ekki þenslu. Þannig nota sumir við- skiptavinir ríkissjóðs innleysanleg spariskírteini til að kaupa bfla, hús- gögn og hljómflutningstæki eða fara til útlanda, en aðrir kaupa ný skírteini. Þann hluta innlendra endur- greiðslna, sem er lagður til hliðar, ætti að draga frá, þegar þensluhall- inn er fundinn. Vandinn er sá, að enginn veit með vissu fyrirfram, hvemig almenningur ráðstafar end- urgreiðslum frá ríkissjóði. Til að vera við öllu búinn hef ég gert ráð fyrir því í varúðarskyni, að öllu endurgreiðslufé frá ríkinu sé eytt, enda hlýtur það að vera hyggilegt að reyna að gera sér sem gleggsta grein fyrir því, sem gæti gerzt í versta falli. Þessi fjárhæð nemur 3,1 milljarði króna samkvæmt fjár- lagafmmvarpinu fyrir 1988. Ef viðtakendur leggja upphæðina alla til hliðar, þá minnkar þensluhalli næsta árs úr 4,8 milljörðum í 1,7 milljarða (4,8 + 3,1). Mér þykir líklegt, að sannleikurinn sé einhvers staðar mitt á milli þessara talna. III Fyrir ári varaði ég við fyrirsjáan- legum þensluáhrifum fjárlagafrum- varpsins fyrir þetta ár, m.a. í greinum hér í Morgunblaðinu. Ég benti á, að þensluhallinn ætti trú- lega eftir að vaxa í meðferð þings og ríkisstjómar, þótt hann væri ekki mjög mikill samkvæmt fyrstu gerð frumvarpsins eða um 3,5 millj- arðar króna. Hvað hefur gerzt? Nýjar upplýsingar sýna, að þenslu- hallinn hefur hækkað um meira en 150% á árinu. Hann stefnir í 8,9 milljarða á þessu ári eða rösklega 4% af landsframleiðslu. Svipað gerðist árin næst á undan. Bæði á þessu ári og áður hefur ríkið því að mínum dómi kynt und- ir verðbólgu og viðskiptahalla með óhyggilegri Qármálastjóm, þvert ofan í eigin ásetning. Fmmvörpin tvö fyrir 1988 bera með sér, að ríkisstjómin muni halda áfram á þessari braut næsta ár, óvart að því er virðist. Að vísu er ekki hægt að fullyrða á þessu stigi, að þenslu- halli af þeirri stærð, sem um er að tefla næsta ár, hljóti að herða enn á verðbólgunni. Mér virðist hættan þó auðsæ, einkum ef hallinn á eftir að vaxa eins og vant er og ef hann verður til þess að ýta undir óraun- hæfar kaupkröfur í komandi kjara- samningum og gengisfall í framhaldi af þeim. IV Fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár boðar að vísu meira aðhald en ríkið hefur gætt á þessu ári. Þetta má sjá af því, að þensluhallinn minnkar úr 8,9 milljörðum króna í ár í 4,8 milljarða á næsta ári sam- kvæmt frumvarpinu. Það er fram- för. Hins vegar er fyrirhugað aðhald I ríkisfjármálum næsta ár ekki miklu meira að mínum dómi en boðað var í fyrstu gerð fjárlaga- frumvarpsins í fyrra, jafnvel þótt nú sé stefnt að betra jafnvægi ríkis- sjóðs og minni erlendum lántökum á næsta ári en í ár. Þensluhallinn Dr. Þorvaldur Gylfason „ Að vísu er ekki hægl að fullyrða á þessu stigi, að þensluhalli af þeirri stærð, sem um er að tefla næsta ár, hljóti að herða enn á verðbólgunni. Mér virð ist hættan þó auðsæ.“ Síðari grein er svipað hlutfall af landsfram- leiðslu í frumvarpinu nú og í frumvarpinu í fyrra, þ.e. um eða innan við 2% í bæði skiptin. Þennan vanda má rekja til þenslu í húsnæðiskerfinu, sem birtist í B-hluta ríkisfjármálanna. Hún er svo mikil, að hún yfirskyggir að- haldið í A- og C-hluta. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu í fyrra var lánsfjárþörf B-hlutans 3,5 milljarð- ar króna. í meðförum þings og ríkisstjórnar hækkaði talan upp í 4.6 milljarða. Hún er nú samkvæmt frumvarpinu fyrir næsta ár komin upp í 6,2 milljarða. Þannig hefur lánsfjárþörf B-hiutans hækkað um 2.7 milljarða eða næstum 80% á einu ári. Samdrátturinn í saman- lagðri lánsfjárþörf A- og C-hluta er hins vegar undir 1 milljarði. Af þessu stafar fyrirhuguð aukning heildarlánsfjárþarfar ríkisins á næsta ári miðað við frumvarpið í fyrra. Nú er eðlilegt, að spurt sé: Hvaða máli skiptir þensian í húsnæðiskerf- inu, þegar hún er næstum öll fjármögnuð með innlendu lánsfé lífeyrissjóðanna? Ef lífeyrissjóðimir eyddu þessu fé hér innanlands hvort eð væri, yrðu þensluáhrifin þá ekki hin sömu og ella, án þess að ríkið kæmi við sögu? Jú, það er alveg rétt. En kjami málsins er sá, að það virðist ólík- legt, að lífeyrissjóðimir myndu eyða öllu þessu fé í annað hér heima, ef byggingarsjóðimir tækju það ekki að láni. Ástæðan er sú, að lífeyrissjóðslán eru rándýr um þess- ar mundir. Eftirspum eftir þeim hefur því verið frekar lítil að und- anfömu, eins og eðlilegt er. Hitt virðist því líklegra, að lífeyrissjóð- imir kysu heldur að leggja einhvem hluta fjárins til hliðar með því að kaupa erlend og innlend verðbréf og hlutabréf, ættu þeir kost á því. Að mínum dómi hefði ríkið átt að hefjast handa miklu fyrr um að leyfa lífeyrissjóðum og landsmönn- um öllum að kaupa erlend verðbréf til að draga úr þenslunni hér heima og grynnka þá jafnframt á erlend- um skuldum þjóðarinnar. Svo er eitt enn. Ef það er talið nauðsynlegt að tvöfalda fjárstreymi til húsnæðiskerfisins milli ára eða nálægt því eins og fjárlagafrum- varpið boðar, þá ætti ríkið að afla fjár til þess með því að draga úr öðrum útgjöldum til mótvægis eða þá með því að hækka skatta. Þetta hefur ekki verið gert. Mér sýnist, að hér sé ríkisvaldinu í þann veginn að verða á sama skyssa og stundum áður. Það ákveður mikla þenslu á einu sviði án þess að hyggja nógu vandlega að því að draga saman seglin annars staðar til að halda verðbólgu og skuldasöfnun í skefj- um. V Ríkisstjómin gerir nú alvarlega tilraun til að beita fjárlögum og lánsfjárlögum til að halda aftur af þenslu í A-hluta ríkisbúskaparins. Vinnubrögðin hafa batnað mikið frá fyrri árum að mínum dómi. Athuga- semdir ríkisstjómarinnar við frumvarpið og hráefnið, sem fmm- varpið er unnið úr, em vandaðri en áður. Það er gott. Eigi að síður sýnast mér fmm- vörpin tvö, sem hafa verið lögð fyrir Alþingi, líkleg til að stuðla að áframhaldandi þenslu í þjóðarbú- skapnum á næsta ári að öðru jöfnu, ef ekki verður gripið fastar í taum- ana. Reyndar lauk ég með líkum orðum grein hér í Morgunblaðinu af sama tilefni um svipað leyti í fyrra. í þeirri grein, eins og í þess- ari, lagði ég höfuðáherzlu á nauð- syn þess, að ríkisstjómin leitaði leiða til aðhalds og spamaðar í öll- um hlutum fjárlaga og ekki endi- lega í A-hlutanum einum. Mér sýnast atburðir ársins staðfesta, að þessi skoðun hafi verið skynsamleg. Það er einmitt B-hlutinn, sem veld- ur mestum vanda nú. Höfundur er prófessor i þjóð- hagfræði við Háskóla íslands. Sýslumannafélag Islands: Hug'niyudir um stofnun sér- stakra gjaldheimta fráleitar AÐALFUNDUR Sýslumannafé- lags íslands var haldinn i Reykjavík 10. og 11. nóvember. Að honum loknum samþykkti stjórn félagsins ályktun, þar sem kemur fram að bæjarfógetar og sýslumenn, sem innheimtumenn ríkissjóðs, telji hugmyndir svo- nefndrar gjaldheimtunefndar um stofnun sérstakra gjald- heimta í ölum kjördæmum landsins fráleitar og eingöngu til þess fallnar að skerða þjónstu við almenning og auka á kostnað ríkis og sveitarfélaga við inn- heimtu opinberra gjalda. Stjóm félagsins bendir jafnframt á, að embætti innheimtumanna ríkissjóðs séu vel í stakk búin til að bæta innheimtu ríkissjóðs, án þess að það hafi í för með sér kostn- aðarauka svo nokkru nemi. Þó verði sveitarfélögum tryggt eftirlit með framkvæmd innheimtunnar. Þess- ari samþykkt stjómarinnar var beint til fjármálaráðherra og ann- arra sem málið varðar. Fyrir utan umræður um ofan- greint mál var annað aðalumræðu- efni fundarins fyrirhugaður aðskilnaður framkvæmdavalds og dómsvalds hjá embættum sýslu- manna og bæjarfógeta, með hlið- sjón af nýlegri nefndarskipan dómsmálaráðherra um þetta efni. Fram kom að félagsmenn töldu það verulega röskun á umfangi og þýð- ingu embætta sýslumanna og bæjarfógeta, en dómsmálin yrðu tekin frá þeim og jafnvel stofnaðir nokkrir stórir dómstólar, t.d. í hveiju kjördæmi landsins, til að fara með öll dómsmál. Auk þess myndi slík fækkun dómstóla raska núverandi vamarþingsreglum og lengja leiðir fólks í dreifbýlinu, sem þarf að leita réttar síns eða mæta fyrir dómstólum. Þó töldu fundar- menn rétt og nauðsynlegt, eins og umræða um þessi mál hafi verið að undanfömu, til dæmis með tilliti til þess að naumast geti samrýmst mannréttindasáttmála Evrópu, að sami embættismaður fari með lög- reglustjóm og dómsvald í opin- berum málum, að skoða þessi mál gaumgæfilega og leita leiða til ásættanlegrar lausnar. Fimm manna nefnd var kosin til að skoða málið og gera um það tillögu til stjómar félagsins og skipa hana þeir Jóhannes Ámason, sýslumað- ur, Ásgeir Pétursson, bæjarfógeti, Sigurður Gizurarson, bæjarfógeti, Jón Eysteinsson, bæjarfógeti og Már Pétursson, bæjarfógeti. í stjóm Syslumannafélags ís- lands voru kjömir þeir Rúnar Guðjónsson, sýslumaður, formaður, Halldór Þ. Jónsson, bæjarfógeti, varaformaður, Sigurður Helgason, bæjarfógeti, ritari, Ríkarður Más- son, sýslumaður, gjaldkeri og Elías I. Elíasson, bæjarfógeti, meðstjóm- andi. Bann tónleikahalds í Reiðhöllinni eftir kl. 19: Eins og að banna tog- ara að fara á sjó því vont veður gæti komið - segir Gylfi Geirsson framkvæmdastjóri hallarinnar Úr Reiðhöllinni í Víðidal. Lögreglustjórinn í Reykjavík, Böðvar Bragason, hefur tekið þá ákvörðun að banna dansleikja- og tónleika- hald í Reiðhöllinni í Víðidal eftir klukkan 19 á kvöldin frá októberbyijun til aprílloka á grundvelli skýrslu sem Guð- mundur Guðjónsson, aðstoðar- yfirlögregluþjónn, samdi um ástandið við liöllina eftir tón- leika hljómsveitarinnar Meatlo- af í höllinni 10. október sl. Forráðamenn Reiðhallarnir eru afar óánægir með þessa ákvörðun lögreglustjórans. Þeir telja að hann hafi farið út fyrir valdsvið sitt og að rekstrargrundvöllur fyrirtæk- isins sé brostinn. í skýrslunni segir m.a. að Reið- höllin sé í allnokkurri fjarlægð frá Reykjavík en á milli hallarinnar og borgarinnar sé bersvæði sem geti reynst hættulegt drukknu fólki í náttmyrkri. Um nóttina eftir hljómleika Meat Loaf hafi t.d. fundist stúlka utanvegar skammt frá gatnamótum Vatn- sendavegar og Amamesbrautar og drengur við Vatnsendaveg norðan félagsheimilis Fáks. Mikil brögð hafi verið að því að ungling- ar væru áttavilltir er þeir voru á leið frá Reiðhöllinni eftir hljóm- leikana og hafi lögreglan orðið að vísa þeim leið í bæinn. í vondu veðri og slæmu skyggni geti slfkt reynst óframkvæmanlegt. í bréfi, sem stjóm Reiðhallar- innar sendi Böðvari Bragasyni, lögreglustjóra, 16. nóvember sl. segir m.a. að athafnasvæði hesta- manna í Víðidal sé mjög vel upplýst. Lýsingu í kringum sjálfa Reiðhöllina hafi hins vegar verið ábótavant þegar umræddir tón- leikar fóru fram. Nú sé hins vegar búið að setja upp ljóskastara sem lýsi upp allt svasðið í kringum höllina. Skemmtanahald sé víða í borginni utan alfaraleiðar, t.d. í félagsheimili Fáks sem sé í næsta nágrenni Reiðhallarinnar. Þar séu haldnar skemmtanir reglulega all- an veturinn og ekkert hafi þótt athugavert við það. Einnig megi nefna Rafveituheimilið við Elliða- ámar, Golfskálann á Grafarholti og Skíðaskálann í Hveradölum í þessu sambandi. Lögreglustjóri eitt þvert nei segir Gylf i Gylfi Geirsson, framkvæmda- stjóri Reiðhallarinnar, sagði að stjóm hallarínnar hefði beðið lög- reglustjóra að skipa nefnd í þetta mál sem einn til tveir menn frá Reiðhöllinni ættu sæti í og tiln- efnt þá. „Lögreglustjóri hafnaði því,“ sagði Gylfi, „en sagðist engu að síður ætla að setja nefnd í málið og hafa samband við okkur en því miður gerði hann það ekki, heldur samdi þessa skýrslu og sendi okkur og síðan hefur hann verið eitt þvert nei. Við teljum hann vera að fara út fyrir sitt valdsvið í þessu máli. Við álítum þetta svipað því að hann færi að banna einum togara að fara út á sjó vegna þess að það gæti komið vont veður. Það er fullt af fyrirtækjum sem ekki eru byggð sem skemmtana- hús en fá undanþágur í hvert skipti sem haldnar eru í þeim skemmtanir, t.d. árshátíðir og afmælishátíðir. Það hafa hins veg- ar aldrei verið nein vandræði fyrir þau að fá þessar undanþágur. Þess vegna skiljum við ekki af- stöðu lögreglustjóra í þessu máli og okkur finnast þetta vera for- kastanleg vinnubrögð af hans hálfu. Það eina sem hann getur hankað okkur á er að við erum ekki með byggingaleyfi til dans- leikja- og tónleikahalds en við höfum ekkert frekar bygginga- leyfi til að halda svona uppákomur að sumri til. Lögreglustjóri segir að það sé í lagi að vera með þær að sumri til en það er ekkert bygg- ingaleyfí sem segir að það megi einungis haida skemmtanir að sumri til. Rekstrargrundvöllur Reiðhall- arinnar er brostinn með þessari ákvörðun lögreglustjóra. Aðal- fundur Félags hrossabænda, en félagið er með stærstu hluthöfun- um í Reiðhöllinni, lýsti yfir undrun sinni á þessari málsmeðferð lög- reglustjóra. Það hefur alltaf komið fram í okkar gögnum að við ætluðum að fylla upp í starf- semi Reiðhallarinnar með tón- leikahaldi, þegar hestamenn eru ekki að nota hana, enda er höllin sérstaklega byggð fyrir hljóm- leikahald og það er frábær hljómburður í henni og mun betri heldur en í t.d. Laugardalshöll- inni,“ sagði Gylfi. Málið er í athugun segir lögreglustjóri Lögreglustjórinn í Reykjavík, Böðvar Bragason, sagði að það stæði sem segði í bréfi hans til stjómar Reiðhallarinnar að ekki verði heimilað dansleikja- eða hljómleikahald í höliinni eftir klukkan 19 frá októberbyijun til nóvemberloka en málið væri hins vegar í athugun. „Þetta var erfið ákvörðun," ságði Böðvar „en ég mun í næstu viku ræða við full- trúa borgarinnar um þetta mál. Ég vil kynna borginni þessa ákvörðun en ég hef fulla heimild til þess að taka hana. Stjóm hall- arinnar hefur fengið rökstuðning minn fyrir henni. Staðsetning hallarinnar er afar óheppileg, síðan er það samgöngu- og veður- farsspursmálið. Þama er um að ræða töluvert aðra hluti heldur en snúa að Laug- ardalshöllinni. Ég bendi mönnum á að fara upp að Reiðhöllinnni og skoða aðstæður þar. Þá held ég að menn hljóti að sjá hvað þetta mál er óhemju erfitt. Ég skil vel áhyggjur þeirra sem standa að Reiðhöllinni, því þeir hafa lagt þama í mikinn kostnað. Ég hef sjálfur skoðað hana og mér fínnst hún stórglæsileg. En mitt hlut- verk er að gæta hagsmuna þeirra sem sækja samkomur í höllinni. Reiðhöllin er þeim annmörkum háð að hún er á ákaflega slæmum stað fyrir dansleikja- og hljóm- leikahald og ég verð að taka tillit til þess. Ég er hins vegar reiðubúinn að ræða við stjóm hallarinnar. Það er nýbúið að ganga frá því að lögreglan hafi aðgang að mönnum innan borgarkerfisins til þess að ræða svona vandamál sem kunna að koma upp í borginni og ég er ákveðinn í því að kynna þeim þetta mál á næstu dögum. Það er ekki auðvelt fyrir mig að taka þessa ákvörðun, því að ég sé í hvaða erfíðleikum stjóm hallar- innar á en auðvitað reyni ég að viða að mér upplýsingum um þetta mál eftir því sem ég get. Ég ráðg- ast ekki síður við stjóm hallarinn- ar en aðra, þannig að ég sé ekki ástæðu til að ég skipi formlega nefnd til að fjalla um þetta mál. Lögreglunni er ætlað það hlutverk að segja til um þessi mál og ég reyni að sinna því eins og starfs- skyldur leggja mér á herðar," sagði Böðvar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.