Morgunblaðið - 24.11.1987, Qupperneq 69
69
Solveigu Björling, söngkonu, og
Ingibjörgu Jónu, bankaritara í
Seðlabanka íslands, gift Sveini
Jónssyni, endurskoðanda.
Heimilið á Eiríksgötu var annál-
að fyrir rausnar- og myndarskap.
Það stóð ávallt opið vinum og
vandamönnum. Mátti með sanni
segja að það hafi verið samkomu-
staður ijölmenns systkina- og
vinahóps árum saman. Nutu þar
margir góðs af, þar á meðal undir-
ritaður, sem kynntist Önnu og
heimili hennar á árunum eftir 1940,
þegar ég kynntist konuefni mínu,
sem er áðumefnd systurdóttir henn-
ar. Þá hófust kynni og vinátta, sem
varað hefur síðan og aldrei hefur
fallið skuggi á. Um sama leyti, þ.e.
á árunum eftir 1940, þegar harka
var farin að færast í heimsstyijöld-
ina síðari, keyptu Anna og Jóhannes
sumarbústaðaland við Alftavatn í
Grímsnesi. Byggðu þau sér þar stór-
an og reisulegan sumarbústað með
það fyrir augum að eiga þar at-
hvarf á þeim róstursömu tímum,
sem í hönd fóru. Sýndu þau með
þessu bæði framsýni og umhyggju
fyrir bömum sínum. Þetta var sann-
kallaður friðarreitur, ekki eingöngu
þeim og bömunum þeirra heldur
einnig mörgum öðrum, sem nutu
góðsemi þeirra og gestrisni. Sumar-
bústaðnum var valinn stórkostlegur
staður og nefndur „Svanahvamm-
ur“. Hann stóð í kjarrivöxnum
hvammi nærri veginum að Sogs-
fossum og hagaði svo til að bústað-
urinn sést ekki frá veginum vegna
hæðarhryggjar er byrgir sýn. Um
30 metra frá bústaðnum við enda
flatar, framan við anddyrið, er lítil
tjöm með hólma í. Þar var eina
vatnsuppsprettan frá náttúrunnar
hendi, sem mér er kunnugt um á
þessu svæði öllu. Þama dvaldi Anna
mörg sumur ásamt manni sínum
og bömum. Nutu mörg böm frænda
og vina dvalar þar ásamt mæðmm
sínum, sumar eftir sumar, en fjöl-
mennast var þó um helgar og á
tyllidögum. Það má því með sanni
segja að heimili Önnu og Jóhannes-
ar hafi ekki eingöngu verið opið
vinum og vandamönnum, sem heim-
sóttu þau sér til ánægju vegna
mannkosta þeirra, heldur einnig
sjúkum og sámm, sem dvöldu hjá
þeim, stundum vikum saman. Það
gefur augaleið að mikið hefur reynt
á húsmóðurina á heimili sem þessu.
Vinnudagurinn var oft á tíðum
langur, en henni hlotnaðist góð
heilsa og allt lék bókstaflega í hönd-
um hennar. LSfskrafturinn ásamt
meðfæddum hæfileikum til að um-
gangast fólk var svo áberandi í öllu
fari hennar. Úr augum hennar skein
Blóma- og gjafavöruverslun
Kransar, kistuskreytingar, hvers
konar skreytingar og gjafir.
Gæfan fylgir blómum og gjöfum
úr Stráinu. Opið um helgar.
Simi 16650.
Blómastofa
Friöfmtts
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- éínnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987
lífsgleði og í þeim var blik, sem
ekki fölnaði þrátt fyrir háan aldur.
Maður spyr oft sjálfan sig hvaðan
sá eiginleiki komi er sumt fólk öðl-
ast, að gera gott úr öllu og fá að
standa með pálmann í höndunum,
hvað sem á bjátar, alveg til síðasta
dags.
Anna var sannarlega vel af Guði
gerð og hefur búið að því vega-
nesti er hún fékk í föðurhúsum.
Foreldrar hennar voru mikið mann-
kosta fólk. Föður hennar kynntist
ég ekki, en hann var orðlagður
dugnaðar- og sómamaður. Móður
hennar kynntist ég aftur á móti
mjög vel, er hún dvaldi um eins árs
skeið á heimili okkar hjóna. Af
kynnum mínum við hana var mér
ljóst hversu góð móðir er fær um
að gefa bömum sínum gott vega-
nesti út í lífið. Það gera þær með
því að láta þeim í té blíðu og inn-
ræta þeim kristilegt hugarfar í lífi
og starfi. Alla tíð var mjög náið
samband milli Önnu og móður
hennar, enda sá hún alltaf vel um
hana og hlúði að henni.
Við hjónin höfðum alltaf náið
samband við heimili Önnu og Jó-
hannesar bæði er þau bjuggu á
Eiríksgötunni og á Hjarðarhaga 44,
en þar keyptu þau íbúð er fór að
hægjast um hjá þeim. Eftir að Jó-
hannes lézt hafði hún ávallt góðan
stuðning af bömum sínum og
bamabömum er ýmist bjuggu hjá
henni eða heimsóttu hana reglu-
lega. Hún var þeim öllum, ekki
eingöngu góð móðir og amma, held-
ur einnig góður félagi og vinur.
Bamaböm Önnu em orðin fimm
og bamabamabömin eru þijú. Böm
Gústafs eru: Guðjón Sölvi, Jóhanna
og Anna Rún og Sigrún Margrét.
Ingibjörg Jóna á eina dóttur, Önnu
Björk, en hún hefur umgengist
ömmu sína mest allra bamabama
hennar og var innilegt samband
milli þeirra alla tíð.
Þessi skrif ætla ég ekki að hafa
öllu lengri, þó lengi megi halda
áfram að skrifa um góða og kæra
vinkonu, sem ellin vann ekki á.
Anna lagðist aðeins til svefns að
kveldi dags og vaknaði ekki aftur
til þessa lífs. Okkur er öllum mikil
eftirsjá af henni og öll emm við
harmi slegin. En minnumst orða
frelsarans: „Sælir em hjartahreinir
því þeir munu Guðsríki erfa.“ Þau
em okkur huggun harmi gegn. Ég
og kona mín ásamt börnum okkar
þökkum Önnu Kristmundsdóttur
gestrisni, hjálp og vináttu hennar í
okkar garð alla tíð og biðjum henni
Guðs blessunar. Henni hæfa vel orð
úr 1. Pétursbréfi, 4,9—10: „Verið
gestrisnir hver við annan án mögl-
unar. Þjónið hver öðmm með þeirri
náðargáfu, sem yður hefur verið
gefin, sem góðir ráðsmenn margvís-
legrar náðar Guðs.“
Aðstandendum hennar votta ég
mína dýpstu samúð.
Útför Önnu verður gerð frá
Laugameskirkju í dag kl. 3.
Guðmundur Arason
Kveðjuorð:
Aðalheiður Árnadóttir
frá Burstafelli
Þrátt fyrir harminn vom þær
margar og hugljúfar minningamar
sem flugu gegnum huga minn er
mér barst fregnin um andlát hennar
Öllu frænku. Hún var einhvem veg-
inn þannig að allir urðu betri
manneskjur í návist hennar. Um-
hyggja Öllu fyrir velferð okkar, sem
hún kallaði sína, var takmarkalaus
og hlý. Innilegt samband okkar
rofnaði aldrei. Ast hennar og um-
hyggja fyrir mér allt frá þeim degi
sem ég fæddist heima hjá henni og
ömmu á Burstafelli. Eftir að ég
fluttist með fjölskyldu mína búferl-
um til Noregs áttum við þeirra
ánægju að njóta að fá Öllu og Gústa
í heimsókn. Þeir dagar gleymast
aldrei og oft er þeirra minnst. Nú
er Alla horfin yfir móðuna miklu.
Þessi góða frænka mín, sem þrátt
fyrir þjáningar sjúkdómsins var
æðrulaus, stolt og glæsileg allt þar
til yfir lauk.
Blessuð veri minning hennar.
Gústa mínum og öðrum ástvinum
eru sendar hugheilar kveðjur frá
okkur öllum fimm.
Óli Arni
+
Móðir okkar,
JÓNÍNA JÓELSDÓTTIR,
lést í sjúkrahúsi Bolungarvíkur 20. nóv.
GuArún, Gestur, Karvel
og Kristný Pálmabörn.
+ MAGNÚS GUÐJÓNSSON fyrrverandi bflstjóri, andaðist á Elliheimilinu Grund 22. nóvember. Hjördfs Benónýsdóttir, Hörður Lorange, Ólöf Benónýsdóttir.
V
+ Eiginkona mín, KRISTBJÖRG TRYGGVADÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Grænuhlíð 13, Reykjavfk, lést 22. nóvember. Sæmundur Jónsson.
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
ESTER SIGHVATSDÓTTIR,
Blöndubakka 3,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 25. nóvem-
ber kl. 13.30.
Kristján Jónsson,
Marfa Kristjánsdóttir,
Jón Kristjánsson, Ingibjörg Hjaltadóttir,
Sighvatur Kristjánsson, Ingigerður Sigmundsdóttir,
Helgi Kristjánsson, Edda Guðmundsdóttir
og barnabörn.
+
Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
HAUKS MAGNÚSSONAR,
Tunguvegi 3,
Hafnarfirði,
fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 26. nóvember
kl. 13.30.
Kristfn Þorieifsdóttir,
Bjarni Hauksson, Gyða Hauksdóttir,
Auður Hauksdóttir, Þráinn Hauksson,
Hulda Hauksdóttir
og fjölskyldur.
+
Sonur okkar og bróðir,
JÓNBJÖRN MAGNÚSSON,
Gljúfraseli 2,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju miðvikudaginn 25. nóvember
kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á minningar-
kort Seljakirkju.
Magnús Þ. Hilmarsson, Anna Þ. Ingólfsdóttir,
Hilmar Magnússon,
Ingólfur Magnússon.
+
Útför dóttur minnar, móður okkar og tengdamóður,
SÍSÍAR TRYGGVADÓTTUR
ráðgjafa á Sogni,
fer fram í Langholtskirkju miðvikudaginn 25. nóvember kl. 10.30.
Blóm vinsamlega afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hennar
er bent á SÁÁ.
Magnfrföur Sigurbjarnardóttir,
Lára Stefánsdóttir, Gísli Gíslason,
Frfður Birna Stefánsdóttir, Óskar Jónsson,
Jóhann Gunnar Stefánsson.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ANNA KRISTMUNDSDÓTTIR,
Hjarðarhaga 44,
verður jarðsungin frá Laugarneskirkju þriðjudaginn 24. nóvember
kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á líknarstofnanir.
Gústaf Jóhannesson, Sólveig M. Björling,
Ingibjörg Jóhannesdóttir, Sveinn Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Útför eiginkonu minnar,
LAUFEYJAR GUÐNADÓTTUR,
Hraunstfg 7,
Hafnarfirði,
fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 25. nóvember
kl. 13.30.
Þorsteinn Eyjólfsson.
+
Maðurinn minn og faöir okkar,
ÁGÚST KRISTJÁNSSON
prentari,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 25. nóvember
kl. 10.30.
Sigurlaug Jónsdóttir og börn.
Legsteinar
MARGAR GERÐIR
Mormrex/Gmít
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 HafnarQörður