Morgunblaðið - 04.12.1987, Blaðsíða 16
16
MORGÚNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1987
Kókaínneysla æ al-
gengari hér á landi
„ÞAÐ ER greinilegt að notkun
Islendinga á kókaíni hefur aukist
á síðustu mánuðum, en hér á
landi tekur þetta fíkniefni auð-
vitað ekki við af heróíninu, því
það hefur aldrei náð útbreiðslu
hér,“ sagði Guðjón Marteinsson,
deildarlögfræðingur hjá lögregl-
unni í Reykjavík. í síðustu viku
birti Morgunblaðið frétt, þar sem
haft var eftir háttsettum starfs-
manni Interpol að kókaínið
virtist ætla að taka við af heróíni
sem algengasta eiturlyf í Vest-
ur-Evrópu.
Guðjón sagði að þessar fregnir
kæmu ekki á óvart, því starfsmenn
fíkniefnalögreglunnar hefðu orðið
varir við aukið magn af kókaíni í
umferð hérlendis. Hann sagði að
begar markaður í Ameríku væri
mettur kæmu efnin til Evrópu.
„Efnin lækka þá í verði í Evrópu
og þá sjá menn sér leik á borði,
kaupa þessi efni og flytja þau hing-
að til lands," sagði Guðjón. „Eg
held að lögreglan hér á landi sé
viðbúin þeim möguleika að innflutn-
ingur á kókaíni aukist, enda höfum
við orðið varir við það undanfama
mánuði að æ fleiri hafa notað kók-
aín eða eru teknir með nokkur
grömm í fórum sínum.“
Því hefur verið haldið fram að
lögreglan nái aldrei nema hluta af
þeim fíkniefnum sem flutt eru til
landsins. í október voru hjón frá
Brasilíu handtekin í Hveragerði og
í fórum mannsins fundust 450
grömm af kókaíni. Þýðir þetta að
innflutningur hingað til lands er
þegar orðinn mjög mikill?
„Nei, þetta mál er alls ekki dæmi-
gert fyrir innflutning og neyslu á
kókaíni hérlendis," svaraði Guðjón.
„Það kom enda í ljós við rannsókn
málsins að maðurinn hafði ætlað
sér að flytja kókaínið til Banda-
ríkjanna og selja það þar. Hérlendis
kemur aukningin fram í því, að það
verður æ algengara að menn séu
teknir með lítilræði af kókaíni í
fórum sínum og viðurkenni að hafa
notað efnið. Hérna hefur heróínið
aldrei náð útbreiðslu og aðeins einu
sinni fundist lítilræði af efninu hér.
Það virðist því sem betur fer ekki
vera markaður hér fyrir heróín,
enda eru fíkniefnavandamál okkar
alls ekki sambærileg við mörg önn-
ur lönd, þrátt fyrir að mörgum
fínnist nú nóg um samt," sagði
Guðfjón Marteinsson, deildarlög-
fræðingur.
Hvernig væri að heimsækja ættingja og vini
erlendis um hátíðina, kynnast jólahaldi annarra þjóða
og sleppa þessu hefðbundna jólaamstri heima
- svona einu sinni?
Flugleiðir bjóða sérstök
jólafargjöld til eftirtalinna staða:
Kaupmannahafnar
Gautaborgar
Óslóar
Stokkhólms
Glasgow
Lundúna
kr. 18.790 (jólapex)
kr. 18.630 (jólapex)
kr. 18.490 (jólapex)
kr. 21.440 (jólapex)
kr. 14.040 (jólapex)
kr. 16.150 (jólapex)
Ennfremur:
Luxemborgar
New York
Boston
Chicago
Baltimore
Orlando
kr. 17.090 (pex)
kr. 23.740 (super-apex)
kr. 23.740 (super-apex)
kr. 26.770 (super-apex)
kr. 25.140 (super-apex)
kr. 30.750 (super-apex)
Jólapex gildir frá 1. til 31. desember 1987
Nánari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða,
Lækjargötu, Hótel Esju og Kringlunni; umboðsmenn
um land allt og ferðaskrifstofurnar.
Upplýsingasími: 25 100.
FLUGLEIDIR
-fyrír þíg-
Ragnar Borg ræðismaður Ítalíu á íslandi og Kristján Jóhannsson
óperusöngvari takast í hendur eftir undirritun samningsins.
Krístján á samning
hjá frú Pavarotti
KRISTJÁN Jóhannsson óperu-
söngvari hefur undirritað
samning við umboðsskrifstof-
una „Stagedoor Management",
sem frú Adua Pavarotti, eigin-
kona stórsöngvarans Luciano
Pavarotti, veitir forstöðu. Að
sögn Kristjáns felur samning-
nrinn í sér að frú Pavarotti
verður umboðsmaður hans á
Ítalíu, en i öðrum löndum hefur
Kristján fijálsar hendur með
samninga.
Kristján sagði að umboðsskrif-
stofa þeirra hjóna hefði verið
stofnuð fyrir um það bil ári og
væri tilgangurinn að koma yngri
söngvurum á framfæri. Skrifstof-
an hefði tiltölulega fáa söngvara
á sínum snærum, en gerði þeim
mun betur við þá og má nefna
að Kristján er annar af tveimur
tenórum, sem frú Pavarotti hefur
umboð fyrir. Það var frú Pavar-
otti sem hafði samband við
Kristján að fyrra bragði, og
kvaðst. hann líta á það sem mikla
viðurkenningu fyrir sig persónu-
lega.
„Ég tel það mikinn kost fyrir
mig að vera kominn á samning
hjá þessu fyrirtæki enda hefði ég
aldrei skrifað undir samninginn
nema að ég teldi að það gæti orð-
ið mér til framdráttar," sagði
Kristján. „Þótt frúin veiti skrif-
stofunni forstöðu er auðvitað ljóst
að Pavarotti sjálfur hefur þar
hönd í bagga og það er hann sem
velur í kringum sig fólk. Og þar
sem litið er á hann sem eins kon-
ar goð í óperuheiminum á Ítalíu
hlýtur slíkur samningur að opna
ýmsar dyr. Það liggur líka fyrir
að sjálfur getur hann ekki tekið
öll þau hlutverk sem honum bjóð-
ast og þá liggur beinast við að
umboðsskrifstofa þeirra hjóna
hlaupi undir bagga og beini sínum
umbjóðendum í þau störf."
Undirskriftir til stuðnings
héraðsskólanum í Reykjanesi
Á ÞRIÐJA hundrað manns, sem
flust hafa úr inn-hreppum ísa-
fjarðardjúps suður á Stór-
Reykjavíkursvæðið hafa sent
ráðherrum og þingmönnum eftir-
farandi:
„í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið
1988, sem nú liggur fyrir alþingi,
er við það miðað, að héraðsskólinn
í Reykjanesi verði lagður niður.
Sveitarstjómir í fjórum inn-hrepp-
um ísaflarðardjúps hafa sent
samhljóða áskomn til fjármálaráð-
herra, fjárveitinganefndar og
þingmanna Vestfjarða um að þess-
ari ákvörðun verði breytt og skólinn
tekinn inn á fjárlög 1988.
Vegna þessa viljum við undirritað-
ir, brottfluttir Djúpmenn, velunnarar
skólans og byggðarlagsins eindregið
styðja þessa ósk heimamanna og
með undirskriftum okkar beina
þeirri áskorun til fjármála- og
menntamálaráðherra og til þing-
manna Vestfjarðakjördæmis, að þeir
beiti sér fyrir því, að skólinn starfí
áfram.
Ollum þeim, er til þekkja, er ljóst,
að byggð við Djúp stendur það tæpt
nú, að ef til þess kæmi, að Reykja-
nesskólinn, eini skólinn í byggðar-
laginu, yrði lagður niður þá þýddi
það rothögg fyrir byggð á þessum
slóðum. Við treystum því, að til þess
komi ekki.“
'RÖNNING
SUNDABORG 15/104 REYKJAVÍK/SÍMI (91)84000