Morgunblaðið - 04.12.1987, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1987
FRUMVARP TIL LAGA UM STJORNUN FISKVEIÐA:
Mikil andstaða við „Siglingaskattínn“
FYRIRKOMULAG á svokölluðum sigl-
ingaskatti samkvæmt frumvarpi ríkis-
stjórnarinnar til laga um stjórnun
fiskveiða, hefur mætt mikilli mótspyrnu
meðal fulltrúa útgerðar og sjómanna,
en fulltrúar fiskvinnslunni eru í flestum
tilfellum sáttir við það. Samkvæmt þessu
skerðist aflakvóti um 15 til 25% þess
magns, sem flutt er utan ferskt. Afli
skipa, sem sigla með aflann skerðist um
15% miðað við vigt upp úr þeim. A sama
hátt skerðist aflakvóti vegna útflutnings
í gámum sé fiskurinn veginn fyrst hér
heima, en um 25% sé hann fluttur óveg-
inn utan. Hér fer á eftir álit fimm
fulltrúa hagsmunaaðila í sjávarútvegi
og sjávarútvegsráðherra.
HALLDOR
ÁSGRÍMSSON:
Bil beggja
farið í
kvótaálaginu
„ÞAÐ er undarlegt að menn
skuli vera hissa á þvi að þetta
komi inn. Umræðan undanfar-
ið hefur þá farið framhjá
viðkomandi aðilum. Þetta
hófst meðal annars með því
að vinnslan og fleiri kröfðust
þess að fiskvinnslan fengi
hluta kvótans. Síðan hefur all
mikið verið talað um þetta og
það var krafa fiskvinnslunnar
að álagið hækkaði aftur i 25%
eins og var við upphaf kvót-
ans,“ sagði Halldór Ásgrims-
son, sjávarútvegsráðherra.
15% álag er aðareglan og gert
ráð fyrir sambærilegum vigtunar-
aðferðum, en sé ekki vigtað hér
innan lands, komi 10% álag vegna
þess til viðbótar. í fyrstu frum-
varpsdrögum var álagið sett í 20%
og jafnframt tekið fram í athuga-
semd sagt að gengið væri út frá
sambærilegri vigtum. Niðurstað-
an varð svo 15% og skýrari ákvæði
um vigtum, það er að segja 10%
álagið til viðbótar, en álag er ein-
göngu á karfa og þorsk.
Það hefur ýmsum þótt það eðli-
legt þegar draga á saman afla,
að þaið komi fremur niður á fersk-
fískútflutningi, en því sem unnið
er innan lands. Stefnt er að því
að þorsk- og karfaafli verði lítil-
lega minnkaður á næsta ári og
það má ekki koma niður á vinnslu
innan lands. Það er farið bil
beggja í þessari tillögu og við vilj-
um að í vigtun sé eitthvert
samræmi," sagði Halidór.
ÁRNIBENEDIKTSSON;
Vonbrigði að
samstaða
náðist ekki
„ÞAÐ urðu mér mikil vonbrigði
að á síðasta stigi vinnu ráðgjafar-
nefndarinnar voru settir fram
fyrirvarar, sem voru í andstöðu
við allt, sem áður haf i verið reynt
að stefna að. Þess vegna gátu
menn ekki lokið við málið með
samstöðu," sagði Arni Benedikts-
son, formaður Félags Sambands-
fiskframleiðenda.
„Ég er sátttur við frumvarpið
eins og það er, það er búin að vera
starfandi með sjávarútvegsráðu-
neytinu frá í september sérstök
ráðgjafamefnd sem fjallað hefur
um fiskveiðistefnuna. I þeirri nefnd
komu fram mörg og mismunandi
sjónarmið um hvemig fiskveiði-
stjómun skuli haga og hvetju þyrfti
að brejda. Undanfamar vikur hafa
fulltrúar samtaka i sjávarútvegi,
sem sæti eiga í nefndinni, reynt að
ná saman heilstæðu áliti. Það var
svo komið að búið var að ná saman
frumvarpi, sem flestir gátu sætt sig
við að lagt væri fram. Þó flestir
hefðu sjálfsagt viljað hafa eitthvað
öðm vísi, en það er jafnan svo,
þegar þarf að semja, að það ná
Á fiskmarkaði í Grímsby.
ekki allir fram öllu, sem þeir helzt
hefðu viljað. Því urðu mér það von-
brigði að samstaða náðist ekki,“
sagði Ámi Benediktsson.
ÓSKAR
VIGFÚSSON:
Bein aðf ör að
umbjóðendum
okkar
VIÐ Guðjón A. Kristjánsson vor-
um einfaldlega samrnála um það,
að við gætum ekki sætt okkur
við frumvarpið fyrir hönd um-
bjóðenda okkar. Hér er um ræða,
að okkar mati, kjaraskerðingu
fyrir þá menn, sem vilja selja
afla sinn hæstbjóðenda. Við telj-
um þau rök, sem fram hafa
komið hjá þeim, sem þetta vilja
hafa svona, ekki nægilega hald-
góð. Þetta munar því að af
hveijum 100 tonnum, sem menn
selja á erlendum markaði, lækk-
ar kvótinn um 25% af því, sem
selt er úr gámum, en 15% sé selt
úr skipum. Þessi munur er meiri
en við getum sætt okkar við,“
sagði Óskar Vigfússon, formað-
ur Sjómannasambands íslands.
„Þetta er bein aðför að umbjóð-
endum okkar. Ef leita á skýringa
á því, hvers vegna þetta sé fram
komið, dettur mér í hug að hér sé
verið að bæta samkeppnisaðstöðu
vinnslunnar hér á landi hvað varðar
hráefnisverð. Það er búið að höggva
í þennan sama knérunn í þijú skipti
og við teljum að nóg sé komið. Við
samþykktum, á sínum tíma að kröfu
fískvinnslunar sérstaklega, að taka
þátt í kostnaði útgerðarinnar við
útflutning í gámum. Það þótti ekki
nægjanlegt og því var þvinguð fram
af fískvinnslunni greiðsla í Verð-
jöfnunarsjóð fískiðnaðarins af
ferskum físki. Síðan kemur þetta
þriðja högg og það getum við ekki
sætt okkur við,“ sagði Óskar.
GUÐJÓNA.
KRISTJÁNSSON:
Kvótaálagið er
byggt á alröng-
umforsendum
„ÉG ER alls ekki sáttur við að
þetta verði afgreitt án þess að
tekið sé tillit til samþykkta sam-
taka hagsmunaaðila í sjávarút-
vegi. Það erum við sem eigum
að búa við þetta og fara eftir
því. Því hlýtur að eiga að taka
tillit til okkar. Að auki er álagið
á ferskfiskútflutninginn byggt á
alröngum forsendum,“ sagði
Guðjón A. Kristjánsson, forseti
Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands.
„í fyrsta lagi geri ég athugasemd
við að ekki skuli settar inn heimild-
ir til sóknarmarksskipa til að flytja
til sin afla á óbreyttum sóknardög-
um. Þetta var samþykkt bæði hjá
FFSÍ, LÍÚ og Fiskiþingi og því ein-
kennilegt að ekki skuli hafa verið
telið tillit til þess. í öðru lagi sam-
þykktum við og Fiskiþing að
sóknarmarksskip innan sama út-
gerðarstaðar mættu flytja afla-
heimildir sín á milli á óbreyttum
sóknardögum. Um rækjuna sam-
þykktum við að stjóma veiðunum
með takmörkunum á veiðidögum
og skipafjölda meðan skipin væru
að vinna sér áreiðanlega reynslu.
Loks hafa flestir hagsmunaaðilar
lýst andstöðu við aukið kvótaálag
vegna sölu á ferskum físki erlendis.
Eins og þetta er orðið í frumvarpinu
er ósamræmi milli skerðingar vegna
útflutnings á físki í gámum og með
fiskiskipum. Álagið, sem ráðgert
er að taka upp á ferskfískútflutning
er byggt á alröngum forsendum og
ég hlýt að mótmæla því,“ sagði
Guðrjón A. Kristjánsson.
KRISTJÁN.
RAGNARSSON:
Er í megin
dráttum sáttur
við frumvarpið
„ÉG ER í megin dráttum sáttur
við frumvarpið. Það er mikil-
vægt að það er unnið í samráði
við okkur, hagsmunaaðila f sjáv-
arútvegi. Enda er grundavallar-
atriði að þeir, sem eiga að búa
við fiskveiðistjórnunina, geti
sætt sig við hana, annars verður
engin stjórnun á veiðunum,"
sagði Kristján Ragnarsson, form-
aður Landssambands íslenzkra
útvegsmanna.
„Við treystum því að reglugerð-
um verði beitt skynsamlega svo sem
hvað varðar veiðar á rækju og
svæðaskiptingu. Ég er hins vegar
ósáttur við aflaskerðingu vegna
útflutnings á ferskum físki. Það er
ekki fískveiðistjómun.
Við höfum lagt áherzlu á að ná
friði um þetta innan sjávarútvegsins
í heild. Það tókst því miður ekki,
en við vorum tilbúnir til samkomu-
lags á grundvelli frumvarpsins og
til að sýna að við ættum heldur að
leysa málin sjálfír fremur en að
ætla Alþingi að gera það fyrir okk-
ur,“ sagði Kristján Ragnarsson.
LANDSSAMBAND
SMÁBÁTAEIGENDA:
10. greinin
skerðir mjög
hag fjölmargra
LANDSSAMBAND smábátaeig-
enda mótmælti á síðasta fundi
ráðgjafarnefndar um fiskveiði-
stjómum þeirri grein frumvarps
ríkisstjórnarinnar til laga um
stjórnun fiskveiða, sem fjallar
um veiðar smábáta. í bókuðum
mótmælum þess segir að nokkuð
góður friður hafi verið um nú-
verandi stjórnun veiðanna. Það
sé þvi krafa sambandsins að
henni verði haldið óbreyttri.
Arthur Bogason, formaður sam-
bandsins, segir svo í mótmælunum:
„Aðalástæður þess að Landssam-
band smábátaeigenda er gegn 10.
grein laganna, sem fjallar um veið-
ar smábáta, eru þær að greinin
skerðir mjög hag fjölmargra smá-
bátaeigenda og lítilla sjávarplássa
á landsbyggðinni. Að auki gengur
hún þvert á þá átt, sem fram kem-
ur í starfsáætlun núverandi ríkis-
stjómar, þar sem talað er um
endurskoðun á fískveiðilöggjöfinni
með tilliti til byggðarsjónarmiða og
aukins athafnafrelsis manna í sjáv-
arútvegi."
missa af þessu
EIpH
50-70% afsláttur
Meiriháttar útsala á aóðum fatnaði
Vetrargallar kr-1.900,-
Jogginggallar kr. 800,-
o.fl. o.fl.
Þetta er ekki brandari
Opið frá kl. 10.00-18.30 alla daga nema laugardaga frá kl. 10.00-16.00.
Bylgjubúð,
Arnarbakka 2, sími 75030 (á móti Breiðholtskjöri).