Morgunblaðið - 04.12.1987, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1987
„GAUKURAKUREYRAR“
1. flokks matur
á teríuverði
EKTA PIZZUR
OpiÓ um helgar
frákl. 11.30-03.00
Virka daga
Jrákl. 11.30-01.00
v/Ráðhústorg
Piltur og stúlka
Leikstjóri: Borgar Garðarson
Leikmynd: Öm Ingi Gíslason
Lýsing: Ingvar Bjömsson
Tónlút: Jón Hlöðver Áskelsson
Pmnmýning annan rlag
jólakL 17.00
2. sýningsunudaginn
27. des.kl. 20.30
3. sýningþriðjudaginn
29. des.kl. 20.30
4. sýning miðvikudaginn
30. des. kl. 20.30
5. sýningfimmtudaginn
7. janúarkl. 20.30
6. sýning föstudaginn
8. janúarkl. 20.30
7. sýning laugardaginú
9. janúarld. 18.00
8. sýningsunnudaginn
10. janúarkl. 15.00
Ath. breyttan sýningartíma.
Forsala aðgöngumiða hafin.
Gjafakortið gleður - tilvalin jólagjöf.
MIÐASALA
Gjafakortið gleði
iÁ
SfMI
96-24073
iGKFéLAG AKURGYRAR
'jí
■HOTEL
KEA-
Dansleikur
Hljómsveit
Finns Eydal
leikurfyrirdansi
tilkl. 03.00.
Ath! Síðasti dansleikur
fyrirjól.
Tilboð Bautans
ídesember
í hádeginu
Innkaupadiskurinn
Kkaldir kjötróttir og fiskróttur)
ásamt súpu og salatbar.
Kr.450,-
í kaffinu
Búöarápsdiskurinn
(snitta, kökusneíö og kaffi)
Kr. 180,-
JÓLAGLÖGG
Hafnarstræti 92 - Sími 21818.
TÍSKUSÝNING
frá versluninni
PERFECT
föstudag
BJARTMAR
verður með Týndu kyn-
slóðina og Árná járnkall
á laugardagskvöld.
Ath! 18 ára aldurstakmark.
Veltlnflastaöur. Hafnarstrætt 100. siml 25500
Morgunblaðið/GSV
Jón Erlendsson með fyrstu bók
sína, Kvæðabók.
Kvæðabók
eftir Jón
Erlendsson
Út er komin Kvæðabók eftir
Jón Erlendsson. Þetta er
fyrsta bók höfundar, sem er
35 ára gamall Akureyringur.
Áður hefur skáldskapur eftir
Jón verið fluttur í útvarp, en
hann hlaut önnur verðlaun í
ljóðasamkeppni MENOR og
svæðisútvarpsins á Akureyri
í desember í fyrra. Þá hlaut
hann einnig fyrstu verðlaun
í smásagnasamkeppni sömu
aðila.
Kvæðabók inniheldur 46 Ijóð.
Yrkisefnið er fjölbreytiiegt og
höfundur notar ýmist foma eða
nýja bragarhætti. Bókin er 52
blaðsiður að stærð og er prentuð
hjá Ásprenti á Akureyri.
„Mikill uppgangur
í tölvuvæðingu“
— segir Páll Pétursson stjórnar-
formaður Allt-hugbúnaðar
„MJÖG mikill uppgangur hefur átt sér stað á Akureyri síðasta
árið og til marks um það höfðum við aðeins tvo viðskiptavini á
Akureyri fyrir ári síðan, en höfum nú á þriðja tug viðskiptavina.
Fyrir árslok stefna þeir í að verða 50 talsins í bænum og í ná-
grenni,“ sagði Páll Pétursson, stjórnarformaður Allt hugbúnaðar
hf., i samtali við Morgunblaðið.
Nú standa yfir kynningar á veg-
um fyrirtækisins og umboðsaðila
þess á Norðurlandi, Fells hf. og
Bókvals hf., og hefur aðsókn farið
fram úr björtustu vonum manna,
að sögn Páls. Hann sagðist hafa
fylgst vel með tölvuþróun fyrir
norðan síðustu fimm árin, en Heild-
verslun Valgarðs Stefánssonar var
fyrsti viðskiptavinur fyrirtækisins á
Ákureyri. Svo virðist sem upp-
gangurinn hafí hafist fyrir ári síðan
og hafa fyrirtæki síðan tölvuvæðst
í auknum mæli. Umboðsaðilar sjá
alfarið um þjónustu, uppsetningu
og kennslu sem er jrfirleitt mjög
mikilvægt atriði þegar fyrirtæki
tölvuvæðast. Þau þurfa því ekki að
sækja þá þjónustu sífellt suður,"
sagði Páll.
Kynning hafa staðið yfir á
Dalvík, Ólafsfírði og Húsavík og
eftir helgina er áformað að fara
þjónustuferð til Þórshafnar, Rauf-
arhafnar og austur á Hérað að því
búnu.
Páll Pétursson kynnir AJlt-hugbúnað á Hótel KEA.
Morgunblaðið/GSV
Leikklúbburinn Saga:
Hinn eini sanni Seppi
Frumsýning í Dynheimum laugardagskvöld
LEIKKLÚBBURINN Saga frum-
sýnir einþáttunginn Hinn eini
sanni Seppi eftir Tom Stoppard
í Dynheimum laugardagskvöldið
5. desember. Leikstjóri er Skúli
Gautason. Þetta er þriðja við-
fangsefni leikklúbbsins á þvi ári
sem nú er að líða.
Þessi einþáttungur tekur um
klukkustund í flutningi. Þetta er
morðsaga sem gerist á óðali, sem
einangrað er frá umhverfinu og
þegar eitthvað gerist er erfítt að
ná sambandi við umheiminn. Inn í
söguna blandast ástamál lafðinnar,
sem býr á óðalinu, og úr öllu verð-
ur spennandi og óvenjulegt leik-
verk.
Höfundurinn, Tom Stoppard, er
kunnur breskur leikritahöfundur,
að vísu hálfur Breti og hálfur
Tékki, fæddur á Indlandi og uppal-
inn víða um lönd. Hann var orðinn
10 eða 12 ára þegar hann fluttist
heim til Bretlands og það er ekki
síst vegna þessa uppeídis síns að
hann hefur skrifað öðruvísi verk en
gengur og gerist þar í landi. Hann
leikur sér oft með tungumálið í
verkum sínum og af þeim sökum
er iðulega ógerlegt að þýða þau á
aðrar tungur.
Meðal verka Toms Stoppard sem
flutt hafa verið hér á landi má nefna
að haustið 1980 sýndi Þjóðleikhúsið
leikritið Nótt og dagur, en nokkru
áður hafði Herranótt MR fært upp
/ Morgunblaðið/Guðmundur Svansson
Leikklúbburínn Saga á æfingu í Dynheimum.
Albert á Brúnni. Að minnsta kosti
þrjú leikrit Stoppards hafa verið
flutt í Ríkisútvarpínu og eínþátt-
ungurinn um Seppa var settur á
svið á Isafírði síðastliðinn vetur í
þýðingu Guðjóns Ólafssonar.
Sem fyrr segir er leikstjóri hjá
Leikklúbbnum Sögu Skúli Gauta-
son. Leikarar eru alls níu, en með
meginhlutverk fara Magnús Sigur-
ólason, Friðþjófur ísfeld Sigurðsson
og Inga Vala Jónsdóttir. Alls starfa
um 20 manns að þessari sýningu.
Hinn eini sanni Seppi er'þriðja
verkefni Leikklúbbsins Sögu á
þessu ári. í tilefni 10 ára afmælis
klúbbsins var á vordögum sett upp
nýtt íslenskt leikrit, Smámyndir
eftir Helga Má Barðasen, sem var
einn helsti hvatamaður að stofnun
Sögu. í tengslum við afmæli Akur-
eyrarbæjar í sumar starfaði götu-
leikhópur á vegum klúbbsins,
skemmti í göngugötunni á afmælis-
hátíðinni og sýndi ævintýrið um Jóa
og baunagrasið í kirkjutröppunum.
Frumsýning Hins eina sanna
Seppa verður sem fyrr segir í Dyn-
heimum laugardagskvöldið 5.
desember og hefst klukkan 20.30.
Önnur sýning verður á mánudags-
kvöld á sama tíma.
Laufabrauðsgerð hjá Brauðgerð KEA.
Fyrstu
laufabrauðs-
kökurnar
FYRSTA laufabrauðshelgin er
nú liðin hjá og að sögn Páls Stef-
ánssonar bakara i Brauðgerð
KEA á Akureyri voru yfir 3.000
laufabrauðskökur útbúnar þar á
föstudag enda mikið búið að
panta. Hinsvegar sagðist Páll
ætla, að þegar laufabrauðsver-
tíðinni lyki yrði búið að framleiða
hátt í 150.000 kökur hjá þeim
þremur bakaríum, sem í bænum
eru.
Páll sagðist halda, að hápunktur
laufabrauðsbakstursins hér norðan
heiða yrði um næstu helgi. „Ég
held að það megi fullyrða að hvert
einasta heimili hér sé með laufa-
brauð á jólaborðum og talsvert er
um það að við fáum pantanir að
sunnan frá brottfluttum Akur-
Morgunblaðið/GSV eyringum," sagði Páll.