Morgunblaðið - 04.12.1987, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1987
69
Greinargerð Asmundar Stefánssonar forseta ASI
um virðisaukaskattkerfin í Evrópubandalaginu:
Nauðsynjar minna skatt-
lagðar en aðrar vörur
Hér birtist í heild greinargerð
Ásmundar Stefánssonar, forseta
Alþýðusambands íslands, um
virðisaukaskatt i Evrópu-banda-
laginu, en hún var lögð fram á
sambandsstjórnarfundi ASÍ, sem
haldinn var mánudag og þriðju-
dag.
Virðisaukaskattur
Virðisaukaskatturinn mun vera
frönsk uppfínning og í dag búa öll
ríki Efnahagsbandalagsins og ýmis
fleiri lönd við það kerfí. í umræð-
unni um virðisaukaskattinn hér á
landi er því haldið fram að útilokað
sé að hafa fleiri en eitt skattstig í
slíku kerfi. Matarskatturinn og
samræming í eina skattprósentu sé
því óhjákvæmileg aðgerð.
Það merkilega er að ríki Efna-
hagsbandalagsins virðast ekkert
vita um þessa nauðsyn á einni pró-
sentu. Danir búa einir allra landa
Efnahagsbandalagsins við eina pró-
sentu. Allir aðrir eru með minnst
tvö skattstig, flestir fleiri og í þeim
tillögum sem framkvæmdastjórn
Efnahagsbandalagsins lagði fram
nú í haust um samræmdan virðis-
aukaskatt, er aldeilis ekki miðað
við eina skattprósentu. Þar er þvert
á móti stefnt að tveimur skatt-
prósentum: virðisaukaskattur á
nauðsynjum verði á bilinu 4—9%
og virðisaukaskattur á öðrum vör-
um og þjónustu á bilinu 14—19%
samkvæmt nánari ákvörðun við-
komandi lands, sjá skýrslu KOM
(87) 32 og KOM (87) 324. Tillögur
framkvæmdastjómarinnar eru nú
til umræðu í aðildarlöndum Efna-
hagsbandalagsins.
Virðisaukaskattur í
Efnahagsbandalaginu
Samkvæmt skýrslu fram-
kvæmdastjómarinnar sem lögð var
fram innan Efnahagsbandalagsins
nú í haust eru skattprósentumar
eftirfarandi, sjá KOM (87) 320.
Skattþrep — prósentur
virðisaukaskatts í Efna-
hagsbandalagsríkjun-
um 1. apríl 1987
Lág- alm. há-
þrep x þrep þrep
Belgfa (1)(2) 1&6 19 26 & 25+28
Danmörk (1) — 22 —
FVakkland 2,1 & 4 5,5, 7 18,6 33,33
V-Þýskaland 1 7 14
Grikkland 6 18 36
írland (1) 2,4 & 10 25 —
Ítalía(l) 2&9 18 38
Lúxemborg 3 & 6 12 —
Holland 6 20 —
Portúgál (1) 8 16 30
Spánn 6 12 33
Bretland^l) — 15 —
(1) Ákveðnar vörur og þjónusta
er undanþegin virðisaujcaskatti. Á
írlandi og Bretlandi em flestar
nauðsynjar undanþegnar.
(2) Auk þessa er notað 17%
skattþrep.
Rétt er að vekja sérstaka at-
hygli á því að tvö lönd, írland og
Bretland, em með stóran hluta
nauðsynja alveg undanþeginn virð-
isaukaskatti. Hin löndin öll nema
Danmörk leggja hins vegar aðeins
lágan skatt á nauðsynjar eins og
taflan sýnir, almennt innan við
helming af þeim skatti sem leggst
á aðrar vömr og þjónustu.
Efnahagsbandalagslöndin hafa
þannig öll nema Danmörk valið að
hafa mismunandi skattprósentu.
Skattkerfinu er ætlað að taka mið
af aðstöðu fólks þannig að lágtekju-
fólk sem notar stóran hluta tekna
sinna í kaup á nauðsynjum borgi
minna í skatt en hátekjufólk. Efha-
hagsbandalagið stefnir nú að
samræmdu kerfí og lágum skatt-
stiga 4—9% fyrir nauðsynjar og
almennum skattstiga 14—19% fyrir
aðrar vömr og þjónustu.
Þær tillögur sem nú em í með-
ferð í Efnahagsbandalaginu gera
ráð fyrir því að eftirtaldir liðir verði
með lægri skattprósentuna:
* matvömr
* drykkjarvömr, þó ekki áfengir
drykkir
* orka til upphitunar og lýsingar
* vatn
* lyf
* bækur, blöð og tímarit
* farþegaflutningar
Það er áætlað að lægri skatt-
prósentan muni falla á einn þriðja
af heildarstofni virðisaukaskattsins
og almenna skattprósentan komi á
tvo þriðju skattstofnsins.
Rétt er að benda á að fram-
kvæmdastjóm Efnahagsbandalags-
ins mælir eindregið með því að
lægra þrepið verði frekar sett nær
4% en 9%.
Allmörg Efnahagsbandalagslönd
em með sérstaka háa virðisauka-
skattprósentu á útvöldum vömm,
lúxusvömm. Einnig þannig er virð-
isaukaskattkerfið notað til að jafna
afkomu fólks. Háa skattstigið nær
til innan við 10% skattstofnsins og
er það rökstuðningur framkvæmda-
stjómarinnar fyrir því að þær tillög-
ur sem hún hefur lagt fram gera
ekki ráð fyrir þremur þrepum, að-
eins tveimur, lágþrepi og almennu
þrepi.
Kaþólskari en páfinn
Það er einföld staðreynd að sam-
ræmingin innan Efnahagsbanda-
lagsins stefnir ekki að einni
virðisaukaskattprósentu. Danir
mótmæla þeim áformum í dag en
ef til vill ekki fyrst og fremst vegna
þess að skattprósentumar eiga að
vera tvær heldur meira vegna þess
að tillögumar gera ráð fyrir því að
einn þriðji skattstofnsins skattlegg-
ist með 4—9% og tveir þriðju með
14—19%. Danir skattleggja allt í
dag með 22% og sjá því ekki hvem-
ig ríkissjóðurinn danski muni
komast af ef af samræmingu verð-
ur, því samræmingin myndi leiða
til um þriðjungslækkunar tekna
danska ríkissjóðsins af virðisauka-
skatti. Sá vandi yfírskyggir
væntanlega andstöðu þeirra við tvö
þrep í skattinum.
Tvö þrep er því nánast gefín nið-
urstaða í samræmingu Efnahags-
bandalagsins. Á sama tíma ætlum
við á íslandi að halda því fram að
virðisaukaskattur verði að vera í
einu þrepi, ein prósenta á allt. Þeir
sem reynslu hafa af virðisauka-
skattinum vilja ekki fara þá leið
nema ef til vill Danir. Við, sem emm
að taka trúna, skulum vera kaþólsk-
ari en páfinn.
Matarskattur
Það er talið að verði rúmlega 20%
söluskattur lagður á allar matvömr
eins og ríkisstjómin áformar, muni
það hækka framfærsluvfsitölu um
3V2% að meðaltali og um 5% hjá
lágtekjufólki. Gagnráðstafanir
mundu draga úr þessari hækkun
en enn liggur ekki fyrir hvetjar þær
yrðu.
Ljóst er að matarskatturinn
kæmi þyngst niður á lágtekjufólki
og ólíklegt er að niðurgreiðslum
yrði haldið áfram til lengdar. Aðrar
gagnaðgerðir em einnig ótryggar.
Matarskatturinn kann að verða
til einföldunar en er augljóslega
óréttlátur. Eins og hér hefur verið
dregið fram er það undantekning í
Efnahagsbandalagslöndunum að
sama skattprósenta sé lögð á allt.
Enda fleBtir sammála um að sölu-
skattssvindlið sé einkum á þjón-
ustugreinum ýmsum en ekki í
matvörunni.
Morgunblaiið/Emilía
Gunnar Gunnarsson hjá Japis og Gunnar Biering yfirlæknir
standa við örbylgjuofninn. í bakgrunni sést Rannveig Fannberg
hjúkrunarfræðingur sinna tveggja daga gömlum sjúklingi ú vöku-
deildinni.
Örbylgjuofn fyrir pelann
VÖKUDEILD 2 við Landsspital-
ann barst á dögunum örbylgju-
ofn að gjöf frá Japis h/f. Ofninn
er notaður við að hita upp og
halda heitri mjólk fyrir nýbura
á vökudeildinni. Að sögn Gunn-
ars Biering yfirlæknis er starfs-
fólki mikið hagræði og
vinnuspamaður að ofninum þar
sem hann er margfalt fljótvirk-
ari og öruggari en sá búnaður
sem áður var til á deildinni til
þessara nota.
Hljómplata með nýjum
verkum fyrir klarínettu
KOMIN er út hljómplata með
nýjum verkum fyrir klarinettu.
Flytjendur eru Sigurður I.
Snorrason klarinettuleikari,
Anna Guðný Guðmundsdóttir
pfanóleikari og Sinfóníuhljóm-
sveit íslands undir stjórn Páls
P. Pálssonar.
Á plötunni eru verkin „Ristur“
fyrir klarínettu og píanó eftir Jón
Nordal sem hann samdi fyrir Sig-
urð og Önnu Guðnýju árið 1985,
Klarínettukonsert Páls P. Pálsson-
ar, en hann var saminn fyrir Sigurð
haustið 1982 og frumfluttur á tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar íslands
í ársbyijun 1983. Loks eru á plöt-
unni „Steflaus 'tilbrigði“ fyrir
klarfnettu og píanó eftir Austurrík-
ismanninn Wemer Schulze.
Platan var hljóðrituð í Há-
skólabíói af Bjama Rúnari Bjama-
syni en umslag hannaði Loftur
Ólafur Leifsson, Teldec, samsteypa
hljómplötuframleiðendanna Tele-
funken og Decca í Hamborg, sá um
pressun plötunnar svo og prentun
umslags. Dreifíngu annast íslensk
tónverkamiðstöð.
Tíu kokkar með 8 rétti
TÍU matreiðslumeistarar á veit-
ingahúsum í Reykjavík hafa
tekið saman höndum um kvöld-
verð með átta réttum á Hótel
Holiday Inn i Sigtúni fimmtu-
daginn 10. desember.
Matreiðslumennimir starfa á
veitingahúsunum Hótel Holt, Hótel
Sögu, í Kvosinni, Lækjarbrekku,
Hard Rock Café, Hótel Holiday Inn
og Hótel Örk.
Saga í sveit
Bókaútgáfan Skjaldborg hef-
ur gefið út söguna Halli og Rúna
eftir Marinó L. Stefánsson.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„Sagan segir frá systkinunum Rúnu
og Halla, sem í upphafi sögunnar
eru kaupstaðarböm. En fljótlega
flytjast þau í sveitina, þar sem for-
eldrar þeirra kaupa jörð og fara að
búa. Allt leikur í lyndi í fyrstu og
ævintýrin em mörg í félagsskap við
húsdýrin, silungsveiðar í læknum
og ótalmargt annað, sem áður hef-
ur verið þeim óþekkt veröld. En
hættur eru líka í sveitinni. Poreldr-
amir farast í snjóflóði. Eftir það
em Rúna og Halli um skeið í góðu
yfirlæti á næsta bæ og una sér þar
vel hjá góðu fólki. En undir sögulok-
in liggur leiðin aftur í kaupstaðinn
og á ný taka við leikir og ævintýri
með þeim, sem þar búa. Margt er
þar gott og ánægjulegt, en einnig
og bæ
Marinó L. Stefánsson
ber ýmislegt af lakara tagi fyrir
augu og eym.“
SPÁÐU I LIÐIN
SPILAÐU MEÐ
Hægt er að spá í leikina símleiðis og
greiða fyrirmeð kreditkorii.
Þessi þjónusta er veitt alla föstudaga frá kl. 9:00
til 17:00 og laugardaga frá kl. 9:00 til 13:30.
Síminn er 688 322
&
ÍSLENSKAR GETRAUNIR
- eini lukkupotturínn þar sem þekking
margfaldar vinningslíkur.
LEIKVIKA 15
Leikir 5. desember 1987
1 Arsenal - Sheffield Wed.
2 Charlton - Everton
3 Derby - Watford
4 Luton - Norwich
5 Oxford - Newoastle
6 Portsmouth - Coventry
7 Q.P.R. - Man. United
8 West Ham - Southampton
9 Wimbledon - Nott’m Foresf
10 Ipswich - Bradford
11 Leeds - Birmingham
12 Lelcester - Middlesbro
K
1 X 2