Morgunblaðið - 06.12.1987, Side 1

Morgunblaðið - 06.12.1987, Side 1
144 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 278. tbl. 75. árg. SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Fiskeldi í Svíþjóð: Um 50% af- urðaaukn- ing 1986 Stokkhólmi. SIP. FRAMLEIÐSLA eldisfisks til sölu á neytendamarkaði komst yfir 4.000 tonn í Svíþjóð á árinu 1986, og var það 51% aukning frá árinu áður, samkvæmt upp- lýsingnm frá stjórnvöldum. Mestur hlutinn var regnbogasil- ung^ur yfir 1,5 kg að þyngd. Fiskeldisstöðvum fjölgaði um 27% á sama tíma, og eru þær nú 249. Kræklingaræktun dróst saman þriðja árið í röð, var 325 tonn 1986, en 415 tonn árið áður. Áætlað er, að heildarframleiðslu- verðmæti fískeldisstöðvanna á árinu 1986 hafi verið um 95 milljón- ir sænskra króna (um 580 millj. ísl. kr.). Svenska Dagbladet: Lesendur fá umboðsmann Stokkhólmi. SIP. STAÐA umboðsmanns lesenda hefur verið sett á fót við Svenska Dagbladet í Stokkhólmi, eitt af stærstu dagblöðunum í Svíþjóð. Mun hann koma fram fyrir hönd lesenda á ritstjórn og vera tals- maður þeirra þar, ef þeim finnst sér misboðið á síðum blaðsins. Þetta mun vera fyrsta embætti sinnar tegundar á norrænu dag- blaði, en fordæmið er fengið frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Kanada. Embætti þinglegs umboðs- manns var fyrst tekið upp í Svíþjóð árið 1809, og var hann talsmaður almennings gagnvart réttarkerfínu og stjómvöldum. Frá Svíþjóð breiddist umboðsmannshefðin út um allan heim. í Svíþjóð er fyrir sameiginlegur umboðsmaður fyrir öll blöð í landinu, og er hann opinber eftirlits- maður með blaðaheiminum í heild sinni. SKAMMDEGISKOSS Morgunblaðið/Arnar Vignis Deilt um væntanlegan afvopnunarsáttála risaveldanna: Flokksbræður Reagans æf- ir vegna ummæla forsetans Washington, frá Ásgeiri Sverrissyni, blaðamanni Morgunblaðsins. REPÚBLIKANAR, flokksmenn Ronalds Reagan Bandaríkjafor- seta, eru margir hveijir æfir af reiði vegna ummæla forsetans í sjónvarpsviðtali á fimmtudag er hann sagði ákveðna flokksbræður sína líta svo á að stríð milli stór- veldanna tveggja væri „óhjá- kvæmilegt" og vændi þá um að hafa ekki kynnt sér væntanlegan afvopnunarsamning þeirra. Sú sérkennilega staða er nú komin upp að flokksbræður Reagans finna viðleitni hans til að ná af- vopnunarsamningum við Sovét.- stjórnina flest til foráttu en demókratar styðja samkomulag risaveldanna um upprætingu meðal- og skammdrægra flauga, sem áformað er að Reagan og Míkhail Gorbatsjov Sovétleiðtogi undirriti á þriðjudag, og hugsan- legan samning um helmings- fækkun langdrægra kjarnorku- vopna. Bandarískir stjómmálaskýrendur segja deilumar í Repúblikanaflokkn- Washington: Fimm fundir áætlaðir njrton MÍKHAIL S. Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, og Raisa eigin- kona hans eru væntanleg hingað til Washington ásamt fylgdarliði um miðjan dag á morgun, mánudag. Það kemur í hlut Georges Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, að taka á móti Sovét- mönnunum á Andrew’s-herflugvellinum í Washington. Mikil leynd hvílir yfir hvaða Ieið bílalest sovésku fulltrúanna ekur að sovéska sendiráðinu. Mikill viðbúnaður verður í borginni vegna komu Gorbatsjovs og verður götum í nágrenni sovéska sendiráðsins og Hvita hússins lokað þá daga sem Gorbatsjov dvelst í Bandaríkjun- um. Áætlað er að leiðtogamir komi fimm sinnum saman til fundar í Hvíta húsinu þann 8. til 10. desem- ber og verður fyrsti fundur þeirra árdegis á þriðjudag. Hæst ber und- irritun samkomulags risaveldanna um upprætingu meðal- og skamm- drægra kjamorkuflauga á landi, sem áformuð er síðdegis á þriðju- dag. Gorbatsjov mun árdegis á mið- vikudag eiga fund með fulltrúum Bandaríkjaþings í þinghúsinu. Bandarísku forsetahjónin munu á miðvikudagskvöld sitja kvöldverð- arboð Sovétleiðtogans í sendiráði Sovétríkjanna en slíkt þykir tíðind- um sæta hér vestra. Síðasti fundur leiðtoga stórveldanna verður á fímmtudag á hádegi og að honum loknum er áætlað að Gorbatsjov haldi fund með fréttamönnum. Sömuleiðis er ráðgert að Reagan forseti ávarpi þjóð sína í beinni sjónvarpsútsendingu á fímmtu- dagskvöld. Viðræður leiðtoganna munu einkum snúast um fjóra mála- flokka; afvopnunarmál, mannrétt- indamál, svaeðisbundin ágreinings- efni ríkjanna og samskipti stórveldanna. Mannréttindamál verða' að öllum líkindum mikið í sviðsljósinu þá daga sem fundimir standa. Gyð- ingar hafa undirbúið mikil mótmæli í miðborg Washington hér í dag til að undirstrika kröfur sinar þess efnis að sovéskir gyðing- ar, sem þess æskja, fái að flytjast brott frá Sovétríkjunum. Hér í Washington er það talin vísbending um vissa tilslökun Sovétmanna á þessu sviði að Sovétstjómin hefur á undanfömum dögum veitt nokkr- um sovéskum gyðingum úr hópi andófsmanna brottfararleyfí. um sérlega óheppilegar fyrir Reagan og stjóm hans og að þær kunni að veikja stöðu hans í væntanlegum viðræðum við Gorbatsjov. Fulltrúar stjómarinnar kveðast á hinn bóginn ekki hafa vemlegar áhyggjur af þessu og segjast þess fullvissir að samningurinn um útrýmingu meðal- drægra og skammdrægra kjam- orkuflauga verði undirritaður á þriðjudag. Þá telja þeir einnig ör- uggt að öldungadeild Bandaríkja- þings leggi blessun sína yfír samninginn. íhaldssamir þingmenn telja að öryggi aðildarríkja Atlantshafs- bandalagsins verði ógnað undirriti forsetinn samning um að fjarlægja bandarískar kjamorkueldflaugar frá meginlandi Evrópu. Segja þeir Sov- étmenn hafa svikið alla sáttmála sem þeir hafa undirritað hingað til og nefna því til stuðnings alþjóðlegar mannréttindayfírlýsingar, ABM- sáttmálann frá árinu 1972 um takmarkanir gagneldflaugakerfa og SALT II-samkomulagið um tak- markanir langdrægra kjamorku- vopna. Demókratar hafa á hinn bóginn lýst sig fylgjandi samningn- um um meðaldrægu flaugamar og kveðast þess fullvissir að hann þjóni hagsmunum bæði Bandaríkjanna og ríkja Vestur-Evrópu enda séu eftir- litsákvæði hans sérlega afdráttar- laus. Sjá grein á bls. 34 og 35C og forystugrein á miðopnu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.