Morgunblaðið - 06.12.1987, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987
Fanginn
fundinn
FANGINN sem stra.uk frá saka-
dómi Reykjavíkur á föstudaginn
fannst á veitingahúsi í Reykjavík
aðfararnótt laugardagsins.
Maðurinn er 26 ára gamall refsi-
fangi á Litla-Hrauni. Hann átti að
mæta fyrir dóm á föstudagsmorg-
uninn en hljóp þá á brott.
Deilatækni-
skólakenn-
ara leyst
DEILA kennara í frumgreina-
deild Tækniskóla íslands við
fjármálaráðuneytið um túlkun á
samkomulagi um greiðslu fyrir
kennslu og önnur störf leystist
um hádegisbilið í gær, laugar-
dag. Kennsla verður með eðlileg-
um hætti samkvæmt stundaskrá
á mánudag, en kennarar lögðu
niður vinnu á föstudag í mót-
mælaskyni.
Launadeild fjármálaráðuneytis-
ins taldi að mat á kennslu og öðrum
störfum kennara, sem kennslu-
matsnefnd gerði í sumar, væri of
hátt og vildi skerða það um 10%.
Kennarar mótmæltu skerðingu
vegna stjómunarstarfa og sam-
kvæmt því samkomulagi sem nú
hefur náðst nær skerðingin til
kennslunar og aðalprófa í desem-
ber, en ekki til stjómunarstarfa og
endunektarprófa í desember og
janúar.
í frétt Morgunblaðsins í gær var
ranglega farið með nafn formanns
Félags tækniskólakennara. Hann
heitir Guðbrandur Steinþórsson.
Em hlutaðeigandi beðnir velvirð-
ingar á mistökunum.
Þrír teknir
með fíkniefni
LÖGREGLAN átti annrikt að-
fararnótt laugardagsins vegna
mikillar ölvunar og óspekta í
miðborg Reykjavíkur.
Rúður voru brotnar á nokkrum
stöðum í borginni og fengu margir
að gista í fangageymslum lögregl-
unnar um nóttina.
Þá voru þrír ungir menn hand-
teknir með fíkniefni í húsi í vestur-
bænum.
í dag
jflargnnblafrii)
I 1 l C C I i C 1 L L
Heim úr útlegð
BLAO B
Samningar hjá
SR á Raufarhöfn
SAMNINGAR tókust í fyrra-
kvöld i Iaunadeilu starfsmanna
síldarverksmiðjunnar á Raufar-
höfn og Síldarverksmiðja ríkis-
ins en verkfall átti að öðrum
kosti að hefjast í verksmiðjunni
á hádegi í gær, laugardag.
Samkomulagið, sem var einróma
samþykkt af starfsmönnunum, fólst
í því að starfsmennimir fá greiddar
20 mínútur aukalega fyrir hverja
vakt en þeir höfðu farið fram á að
halda þeim launum, 212 krónur á
tímann, sem þeir höfðu fengið sam-
kvæmt samningum sem gilda áttu
til 1. september sl. en vora fram-
lengdir til 27. nóvember sl. Starfs-
mennimir fá nú 199,10 krónur á
tímann en SR treysti sér ekki til
að greiða starfsmönnunum áfram
sömu laun, sem þeir höfðu krafíst,
vegna samninga sem eru í vinnslu,
að sögn Stefáns Óskarssonar trún-
aðarmanns starfsmannanna.
Vegna déilunnar var lokað fyrir
móttöku á loðnu í verksmiðjunni frá
miðnætti aðfaranætur sl. miðviku-
dags.
Kaupfélag Skaftfellinga:
Fjórtán manns
sagt upp í Vík
ÖLLUM starfsmönnum trésmiðju
og bifreiðaverkstæðis Kaupfélags
Skaftfellinga í Vík í Mýrdal, 14
talsins, hefur verið sagt upp störf-
um. Smiðjan og verkstæðið hafa
haft „nokkuð sæmileg verkefni"
en þær eru fjárfrekustu deildir
kaupfélagsins. í athugun er að
stofna hlutafélag kaupfélagsins,
starfsmanna þess og jafnvel ann-
arra fyrirtækja í Vík og opinberra
aðila um rekstur þeirra. Meira
eigið fé vantar í rekstur kaup-
félagsins og hann hefur verið
mjög þungur á þessu ári, að sögn
Friðbjamar Níelssonar kaupfé-
lagsstjóra.
„Þeim sem vinna í trésmiðju og
bifreiðaverkstæði kaupfélagsins, 14
manns, var sagt upp um sl. mánaða-
mót,“ sagði Friðbjöm. „Alls vinna
um 40 til 50 manns hjá kaupfélaginu
hér í Vík, þar af um 30 við verslun-
ar- og skrifstofustörf. Það verður
fundur kaupfélagsmanna, fulltrúa
sveitarfélaga, fyrirtælq'a og starfs-
manna þeirra á Hellu, Hvolsvelli og
Vík með mönnum frá Byggðastofnun
nk. þriðjudagskvöld, þar sem tekin
verða fyrir hliðstæð fyrirbæri. Við
erum að bíða eftir því hvað komi út
úr þeim viðræðum.
Það er næsta víst að tiltölulega
fáir þeirra, sém við sögðum upp,
fengju aðra vinnu hér í Vík, a.m.k.
fyrst í stað. En við eram að vinna
að stofnun hlutafélags kaupfélagsins
um reksturinn á trésmiðjunni og bif-
vélaverkstæðinu með starfsmönnum
þeirra og jafnvel öðrum fyrirtækjum
í Vík og opinberum aðilum. .
Kristmundur Gunnarsson er trún-
aðarmaður starfsmanna trésmiðju
kaupfélagsins. Hann sagði að öllum
hefði verið sagt upp með þriggja
mánaða fyrirvara. „Það era engir
aðrir atvinnumöguleikar fyrir þessa
menn, hvorki í Vík né í nágrenni
hennar. Hins vegar höfum við haft
nóg verkefni, einkum í trésmiðjunni,
því við fengum verkefni í flugstöð-
inni. Við smíðuðum innihurðir í hana
og erum búnir með þær, en eram
búnir að fá ný verkefni. Við starfs-
mennimir ráðum ekki við að kaupa
trésmiéjuna og bifreiðaverkstæðið
með öllum þeim skuldum sem á þeim
hvíla,“ sagði Kristmundur.
Breytingar
HÉR FER á eftir listi sem fjármálaráðuneytið
lét frá sér fara í gærmorgun um breytingar á
vöruverði samkvæmt samkomulagi ríkisstjórn-
arinnar um breytingar á óbeinum sköttum.
Áætlað hlutfall tolla,
Mjólk, skyr, smjör og dilkakjöt vörugjalda og
hækka ekkiíverði söluskatts af söluverði
Önnur matvara ýmist lækkar, hækkar Er Verður
eða stendur í stað
— Alifugla- og svínakjöt hækkar um 0 20
5-10%
— Nautakjöt hækkar um 10—15% 0 20
— Fiskur hækkar um 25% 0 20
— Nýttgrænmeti hækkarum 15—25% 28 34
— Kaffí hækkar um 2—3% 9/15 20
— Sykur hækkarum 13% 9 20
— Gosdrykkir standa í stað 29 28
— Brauð, ostar og egg hækka um 25% 0 20
— Nýir ávextir hækka um 15—25% 35 34
— Þurrkaðir ávextir lækka um 35% 35 20
— Kryddlækkarum35% 35 20
— Morgunverðarkom (Cheerios) lækkar um 35 34
12%
Hreinlætisvörur lækka verulega
— Sjampó um 25% 34 20
— Tannburstarum45% 45 20
á vöruverði
— Tannkrem um 25% 34 20
— Sápurogþvottaefnistandaístað 20 20
Snyrtivörur lækka
— Ilmvötnum45%
— Rakspírar um 45% 43 20
— Varalitirum47%
Búsáhöld lækka
— Borðbúnaðurum40% 43 20
— Hnífapör um 50% 47 20
Heimilistæki ýmist lækka eða hækka
— Þvottavélar hækkar um 15% 28 34
— Þurrkarar lækka um 5% 37 34
— Sjónvörp og myndbandstæki lækka um 11% 43 38
— Saumavélar hækka um 16% 20 34
— Hljómflutningstæki lækkaum 15% 44 38
— Kæliskápar hækka um 16% 28 34
— Frystikistur lækka um 5% 37 34
íþrótta- og tómstundavörur lækka
Bifreiðavarahlutir lækka um 20% 42 34
Hjólbarðar lækka um 20% 35 26
Byggingavörur lækka
— Hreinlætistæki lækka um 40% 49 28
— Blöndunartæki lækka um 30% 43 28
— Ráflagnavörar lækka um 30% 42 28
— Gólfteppi og dúkar lækka um 20% 32 20
— Steypustyrktaijám lækkar um 5% 32 28
Rekstrarvörur og ýmis hráefni til
atvinnu veganna lækka
— Haframjöl og heilhveiti lækkar um 9% 15 20
— Niðursoðnir ávéxtir lækka um 35% 35 20
— Fryst og niðurs. grænmeti lækkar um 15% 35 34