Morgunblaðið - 06.12.1987, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987
Aukning
slysa og
bruna af
völdum raf-
búnaðar
SLYS á mönnum af völdum raf-
búnaðar voru skráð fimm á árinu
1986, sem er tveimur fleiri en
árið áður, að því er segir í árs-
skýrslu Rafmagnseftirlits ríkis-
ins. Brunar og annað tjón af
völdum rafmagns og rafbúnaðar
voru alls 31, sem er mikil aukn-
ing frá fyrra ári og hefur fjöldi
bruna ekki verið meiri undanfar-
in 10 ár.
Tuttugu og átta bruna á árinu
mátti rekja til lágspennuvirkja, og
urðu flestir vegna bilaðra tækja,
eða tólf, og í ellefu tilvikum var
orsökin bilaðar lagnir. Fimm brunar
urðu vegna óvarlegrar eða rangrar
notkunar raftækja.
Slys á mönnum af völdum raf-
búnaðar voru alls fimm. Tveir menn
slösuðust við rafvirkjun, en þrír í
öðrum starfsgreínum. 011 voru slys-
in minniháttar. Af slysum á dýrum
í fyrra drápust þijú hross vegna
snertingar við háspennulínu, og sex
svín drápust af rafstraum frá lág-
pennu vegna bilunar í neysluveitu.
Leiðrétting
í frétt í Morgunblaðinu í gær um
för forseta íslands til York misritað-
ist nafn breska sendiherrans á
íslandi en hann heitir Mark F.
Chapman. Þá misritaðist nafn for-
stöðumanns British Museum en
hann heitir David Wilson. Biðst
Morgunblaðið velvirðingar á þess-
um mistökum.
Guðrún Kristjánsdóttir við eitt verka sinna.
Myndlistarsýning
í Utvarpshúsinu
MYNDLISTARSÝNING stend-
ur nú yfir í Útvarpshúsinu að
Efstaleiti 1 í Reykjavík. Guð-
rún Kristjánsdóttir myndlistar-
maður sýnir þar olíumálverk
og „collage" myndir, alls 33
verk.
Guðrún er 37 ára Reykvíkingur,
hún var við nám við Myndlista-
skóla Reykjavíkur og listaskóla í
Aix-en-Provence í Frakklandi um
nokkurra ára skeið.
Guðrún hefur tekið þátt í sam-
sýningum og fýrir ári hélt hún
sína fyrstu einkasýningu að Kjarv-
alsstöðum. Þá sýndi hún í Slúnk-
aríki á ísafirði í janúar á þessu ári.
Þetta er önnur málverkasýning-
in sem haldin hefur verið í nýja
Útvarpshúsinu. Haukur Dór var
sá fyrsti er sýndi og stóð sýning
hans fram í nóvember.
Sýning Guðrúnar sem er sölu-
sýning stendur fram á vor.
Opnunartími er alla daga kl. 9-18.
Englar gráta eftir Wilbur Smith
ÍSAFOLD hefur gefið út bókina
Englar gráta eftir Wilbur Smith.
í kynningu útgefanda segir:
„Draumur um heimsveldi, ásókn í
lönd, dýrmæta málma og völd yfir
stoltri stríðsþjóð. Þetta voru þau
öfl sem knúðu Englendinga á
síðustu stjómarárum Viktoríu
drottningar til að seilast inn í
ókannaða og ótamda myrkviði meg-
inlands Afríku. Þar fundu þeir nýtt
land sem þeir juku við nýlenduveldi
Breta. Ralph Ballantyne var einn
þessara landnema. Metnaðargimd
hans og vitund um örlög sín ollu
því að hann varð í senn þarfasti
þjónn og mesti svikari leiðtoga síns.
Frásögnin berst síðan frá lokum
síðustu aldar og fram til okkar tíma
þar sem tvær fjölskyldur, svört og
hvít, standa augliti til auglitis og
endurspegla átök tveggja þjóða.“
Þýðandi bókarinnar er Asgeir
Ingólfsson. Bókin er innbundin og
451 bls.
„í aðalhlutverki
Inga Laxnessu
BÓKAFORLAG Máls og menn-
ingar hefur gefið út bókina í
aðalhiutverki Inga Laxness, sem
Silja Aðalsteinsdóttir skráði.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„Ingibjörg Einarsdóttir, öðm nafni
Inga Laxness, er uppalin á miklu
menningarheimili í Reykjavík á
fyrstu áratugum aldarinnar. Hún
er dóttir Einars Arnórssonar,
síðasta íslandsráðherrans, sem var
einn áhrifamesti stjómmálamaður
á sinni tíð. 16 ára gömul kynnist
hún Halldóri Laxness og segir hér
skemmtilega frá kynnum þeirra og
hjónabandi sem stóð í 10 ár. Þau
skrifuðust mikið á, einkum meðan
Halldór dvaldist í Ameríku.
Þegar Láms Pálsson stofnaði
leiklistarskóla sinn árið 1940 varð
Inga fyrsti nemandi hans. Hún
stundaði einnig leiklistamám í Bret-
landi og Bandaríkjunum og lék
bæði þar og hér heima, á sviði og
í útvarpi, um 20 ára skeið."
Bókin er 255 bls. að stærð með
hátt á annað hundrað ljósmyndum,
prentuð í Prentsmiðjunni Odda hf.
Teikn sá um hönnun kápu.
Jólamatinn færðu í
Svínahamborgar-
hryggur m/beini 748,
Endur 506,- kr.kg.
Kalkún 645,- kr.kg.
Bayonsskinka 729,- kr.kg.
kr.kg.
Rauðvmsmarinerað
lambalæri úrb. 679,
- kr.kg.
Hangiframpartur
úrb. 519,- kr.kg.
Hangilæri m/beini
frá Fellabæ 489,
- kr.kg.
Reykjavík Akureyri Njarðvik