Morgunblaðið - 06.12.1987, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 06.12.1987, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987 Harún-AI-Rashid Þjóðhöfðinginn í „1001 nótt“ Harún-Al-Rashid, kalífi í Abbasidastórveldinu, sem náði frá Indlandi til Norður-Afríku, var fæddur 763 (sumir telja þó tveimur árum síðar) og dó 809. Það hefur verið litið á tuttugu og tvö ríkisstjórnarár hans og sonar hans, Mamuns kalífa, sem gullöld munaðar og endurreisnar, hvað lærdóm og vísindi snertir. Sú öld hefur verið vegsömuð af skáldum, tónlistarmönnum og rithöfundum þessara tíma og hlotið heimsfrægð í sögunum „Arabískar nætur“ (1001 nótt), þar sem Harún kalífa skýtur oft upp. ó að upprunans að mörgum sagnanna sé að leita í Persíu og Egyptalandi, þá gefa þær einkar góða mynd af glæsilegu lífi í Bagdad með ótal höllum og auð- ugri kaupmannastétt. Lega borgar- innar á bökkum Tígris-fljóts hafði verið hyggilega valin af afa Har- úns, kalífanum ÁI-Mansur, sem á að hafa sagt: „Það er enginn þrösk- uldur á milli okkar og Kína. Allt sem fljtur á hafínu getur borizt til okkar eftir Tígris.“ Vissulega óx Bagdad ört og varð miðpunktur heimsverslunarinnar þangað sem skipin sigldu, hlaðin silki, kryddjurt- um og gimsteinum frá Kína, Indlandi, Ceylon (nú Sri Lanka) og Austur-Afríku. Þrælar voru fluttir inn að unnum styijöldum, svo að markaðimir voru fullir af ánauðug- um Grikkjum, Asíubúum úr ná- grannalöndum og Afríkönum, piltum og stúlkum. Fegurstu stúlk- uraar voru seldar kalífanum og öðrum æðstu mönnum Bagdad- borgar. í ævisögu Harun-Al-Ras- hid, lýsir John Philby þrælamarkaði þessum þannig, að allur ljómi og skart Hollywood sé aðeins svipur hjá sjón samanborið við hann: „Óhóf í kynlífí fór út í öfgar meðaí auð- stéttanna, meðan hinn almenni hirðir — hlaðinn sköttum — dró vart fram lífíð, og varð að láta sér nægja einkvæni." Hinn ímynduna- rauðugi heimur andstæðna og öryggisleysis, sem lýst er í „Árabískum nóttum" er fjarri því að vera tómur tilbúningur. Þrællinn í Bagdad gat í sjálfu sér allt í einu orðið voldugur og auðmaðurinn fá- tæklingur. Það áhugaverðasta í stjóm Har- úns kalífa, og það sem hafði víðtæk áhrif í öilum arabaheiminum og Evrópu, var endurreisn lærdóms- iðkana. Guðfræðingar íslams, sem höfðu mikil áhrif á þessum tíma í Bagdad, vissu lítið um heimspeki og vísindi Grikklands hins forna. Fyrir þeirra sjónum var ekkert til sem hét orsök og afleiðing; allt var fyrirfram ákveðið af Guði. Og þar sem Kóraninn gaf svar við öllu, þá var það óguðlegt að spyrja spum- inga um alheiminn. Enda þótt Harún-Al-Rashid væri trúaður maður og færi fótgangandi pílagrímsferðir til Mekka annað hvert ár, var hann engu að síður fróðleiksfús maður og vel viti bor- inn. Og því var það að hann safnaði að sér grískum og indverskum handritum og lét þýða þau á arabísku. Aðrar miklar framfarir vom fólgnar í pappírsgerð, sem upprunalega var komin frá Kína, en áður höfðu arabar orðið að gera sér að góðu notkun pergaments og pappírssefs. Þá kunni kalífinn vel að meta skáldskap og sönglist, og fyrir hans tilstilli var tónlistarskól- um komið á fót undir stjóm hæfustu kennara. Ymiss konar fræðsla tók fjörkipp við fjölgun erlendra menntamanna við hirðina, einkum Persa og ind- verskra spekinga og töframanna. Þeir bám með sér aukna þekkingu, vöktu listræna hæfileika og nýjar skáldskaparstefnur til lífs. Harún fæddist skömmu eftir að miðborg Bagdad var reist árið 762. Það gerði Abu Jafar kalífi, annar í röð Abbasída, en hann gekk undir nafninu Al-Mansur. Hann flutti frá A1 Kufa fyrir sunnan Bagdad, þeg- ar nýja höfuðborgin var fullger. Al-Mansur hafði sent Mahdi, son sinn, sem útnefndur hafði verið eft- irmaður hans, til þess að bæla niður uppreisn landstjórans í Tabaristan í Persíu. Eftir að Mahdi hafði sigr- að landstjórann hafði hann numið brott tvær ungmeyjar úr kvenna- búri hans sem herfang. Önnur þeirra var Khaizaran, sem ól Mahdi tvo drengi, Hadi og Hamn, í borg- inni Raig í grennd við Teheran. Með hinni eignaðist Mahdi stúlku, er hlaut nafnið Abbasa og fyrir til- stilli Harúns átt.i hún ömurleg ævilok. Um þetta leyti fæddist Fadl, sonur Persans Yahya ibn Marmak, en Khalid faðir hans gegndi háu embætti hjá Mansur kalífa. Harún og Fadl urðu fóstbræður, því að Sigling á fljótinu Efrat. vinfengi var með mæðmm þeirra og skiptust þær á að hafa drengina á brjósti. Ekki er mikið vitað um Harún fyrr en eftir dauða Al-Mansurs 775 þegar Mahdi, nýi kalífinn, sendi Harún, sem þá var átján ára til að stjóma herleiðangri hundrað þús- und manna gegn Irem, grísku keisaradrottningunni í Konst- antínópel. Harún fór í þann leiðang- ur, fullviss þess að ef hann stæði sig ekki, mætti hann sín lítils í heimaborg sinni í framtíðinni. Her Harúns elti Grikki allt til Sæviðar- sunds og neyddi drottninguna til þess að semjá frið oggreiða kalífan- um stórfé árlega. Mahdi kalífi var svo ánægður með frammistöðu son- ar síns að hann útnefndi hann landstjóra ýfir nýlendunum allt frá Sýrlandi til Abserbadsjan. Honum var gefín nafnbótin Ál-Rashid — hinn dyggðugi eða rétttrúaði — og stóð þar með næstur kalífatign, að Siepptum Hadi bróður sínum. Khaizaran, móðir Harúns, hafði verið gerð að drottningu með því að giftast kalífanum og hafði hún vemleg áhrif á hann. Harún var uppáhaldssonur hennar og hún fékk Mahdi til að gera hann að vara- kalífa í stað eldra bróðurins, Hadi. En Hadi, sem var í herferð í Persíu, neitaði að víkja, og kalífinn studdur af Harún-Al-Rashid, lagði upp með her frá Bagdad til að beija hann til hlýðni. Á leiðinni át kalífínn eitr- aðan ávöxt. Það dró kalífann til dauða, aðeins fjömtíu og þriggja ára gamlan. Harún-Al-Rashid sýndi Svartar ambáttir dansa fyrir tvo araba. ur Harúns, gerði allt sem hann gat til þess að telja kalífanum hug- hvarf, var honum varpað í fangelsi. Skömmu eftir þann atburð veiktist Hadi, og var hann þá kæfður af hjákonum sínum. Er talið að Khaiz- aran hafí staðið að baki morðinu. Fyrir atfylgi hennar var Harún nú gerður að kalífa og kom ekki til neins uppistands. Þá var Harún aðeins tuttugu og tveggja ára gam- all. Sonur Harúns, Al-Mamún, var alinn af persneskri ambátt daginn sem faðir hans tók við völdum. Síðar ól Zubeida kona hans honum annan son, en hún var sonardóttir fyrri kalífa, Al-Mansúr, og því stóð hann næstur til ríkiserfða. Síðar, að Har- ún látnum, skarst í odda milli sona hans, borgarastyijöld braust út, sem endaði með sigri Al-Mamúns og persneskra áhrifa. Keppnin milli arabískra og ekki arabískra múhameðstrúarmanna hélt áfram á ríkisstjórnarárum Har- úns kalífa. En persnesk áhrif voru drottnandi, einkum sakir mikils valds Barmakis, þar eð Yahya og synir hans tveir, Fadl og Jafar, voru kallaðir til. Yahya varð vesír, einskonar forsætisráðherra. Hann hafði unnið til þess eftir að hafa setið í fangelsi fyrir að hafa varið löglegan rétt Harúns til kalífátign- ar. Fadl varð fulltrúi hans við stjórn ríkisins og Jafar, yngri sonurinn, var gerður að ritara og eftirlits- manni við stjórn alríkisins. Báðir synirnir gengu undir nafninu „litlu vesírarnir“. Jafar, sakir mælsku sinnar, vitsmuna og persónutöfra. Arabískur riddari. Papýrus teikning frá tíundu öld. þá mikil hyggindi. Herinn var á hans bandi og hann hefði auðveld- lega getað fylgt ráði föður síns eftir og orðið kalífí, en í þess stað gerði hann Hadi boð um að skunda til Bagdad og verða þar kalífí. Þetta féll Khaizaran illa. Við valdatöku nýja kalífans varð hún því lokuð inni í kvennahverfínu og meinað að hafa minnstu áhrif á stjóm landsins. En hún hafði fullan hug á að koma Hadi sem fyrst á kné. Hadi kalífí gerði þau mistök að neita réttlátri kröfu Harúns að verða eftirmaður hans, en setti son sinn í hans stað. Þegar Yahya, vin-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.