Morgunblaðið - 06.12.1987, Side 39

Morgunblaðið - 06.12.1987, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987 39 Á Páskaeyjum árið 1975, en ferðin þangað var sú síðasta sem Davíð fór með foreldrum sínum og viðtók strangt læknanám. eignast systkini og ætlaði að eiga minnst þrjú böm. Eg sakna þess að eiga ekki fleiri böm.“ — Davíð býr í Noregi. „Já, hann starfar sem barna- læknir við háskólasjúkrahúsið í Þrándheimi, einnig kennir hann við háskólann." — Vildirðu ekki hafa hann í meiri nálægð? „Jú, þó ekki væri nema í sama landi. Ég lít þó svo á að fyrst gefum við börnunum það besta sem við eigum í sjálfum okkur, síðan verði að leyfa þeim að fljúga frá okkur. Ég er ánægð ef hann er ánægður. Hann kemur hingað til íslands á Þorláksmessu og ætlum við að eyða jólunum og nýárinu héma.“ — Á Davíð íjölskyldu? „Nei, hann er mikill vinnuþjarkur og ég hef sagt við hann, að hann nái sér aldrei í konu meðan hann vinni til ellefu á hveiju kvöldi! Af endurminningunum má ráða að Halla tekur dijúgan þátt í sam- kvæmislífinu í Los Angeles. Við spyijum hana hvernig það sé? „Það er ógurlega skemmtilegt og líkist einna helst ævintýri. Eg er mjög félagslynd og líður aldrei eins vel og þegar ég er sjálf með fullt hús af gestum. Hér er líka venjan sú að ef þér er boðið í sam- kvæmi þá verður þú að gjalda í sömu mynt, því annars er þér ekki boðið lengur." Hún segist umgangast mest kon- umar, sem eru með henni í félags- skap. „Þær eru flestar eiginkonur manna, sem stýra stærstu fyrir- tækjum Bandaríkjanna og búa við mikið ríkidæmi. Eg stend auðvitað hvergi nærri þessu fólki hvað efni varðar, ég er heldur ekkert að keppa við það. Það tekur mér eins og ég er. Þessar konur hafa reynst mér afar vel, þær sáu til dæmis um erfídrykkju Hals," segir hún. — Nú ert þú ræðismaður íslend- inga, umgengst þú þá ekki töluvert? „Jú, ég reyni að aðstoða þá eftir bestu getu. Á meðal þeirra á ég nokkra virkilega góða vini.“ í bókinni segir þú: „Það býr í mér lítil prinsessa.“ Hvað áttu við? „Æ, mér finnst svo gaman að láta dekra við mig. Mér finnst líka gaman að vera í fínum fötum, fara í góðar verslanir og hótel, aka um í glæsilegum límósínum með einkabílstjóra, sem opnar fyrir mér hurðina og ber fyrir mig farangur- inn. Slíkt líf á mjög vel við mig. En ég er óvön því að láta stjana við mig og ber mínar byrðar sjálf." í bók sinni tala Halla afar opin- skátt um tilfinningalíf sítt og virðist fátt hafa að fela. Við spyijum hana | því jafn opinskátt: Þú kynnist ást- inni á miðjum aldri, heldur þú að hún sé jafn funheit og hjá yngra fólki? „Ekki síður. Ég get lýst því þann- ig, að þegar ég kynntist Riek Jason var ég eins og eiturlyij aneytandi, þeir þurfa á efninu að halda en ég þurfti á ást hans að halda. Mér leið illa ef ég var ekki í návist hans. Ég var með honum í þijú ár eða þangað til að ég var búin að fá nóg.“ — Það kemur fram í bókinni að þetta var mikill kvennabósi og fremur óáreiðanlegur, hvað sástu við hann? „Mér fannst hann allur fallegur, meira að segja tærnar líka! — Það er nokkuð útbreidd skoð- un að með aldrinum minnki löngun fólks til að njóta kynlífs, er þetta þitt álit? „Nei, það tel ég ekki. Tilfmning- in er enn fyrir hendi en kynþörfin getur minnkað. Ástæðan fyrir því getur verið sú að fólk er búið að vera gift lengi og kynlífíð orðið hversdagslegt, þetta er fólkinu sjálfu að kenna. Það þarf rómantík, til að vekja þessar kenndir." — Ert þú rómantísk? „Já, ég er alltof rómantísk," seg- ir hún eins og hún sé svolítið þreytt á því. Halla hefur síðastliðið ár verið að vinna efni af ferðalögum þeirra Hals á myndband og nokkur þeirra eru komin á markaðinn. Góður vin- ur hennar hefur aðstoðað hana við þetta verk, hann hvatti hana einnig til að skrifa ævisöguna, sem nú er komin út og er tilefni þessara skrifa. Það er komið að lokum samtals- ins við Höllu og það er ekki annað hægt en að dást að henni. Hún er hugrökk kona, hrein og bein og laus við fordóma enda séð og reynt svo ótal margt. Þær eru ekki marg- ar sem fara í fötin hennar. Við spyijum hana hvort hún sé að hugsa um að koma heim? „Já, ég hugsa um það, því mér finnst ég í raun og veru á hálfgerðu flæðiskeri stödd. Hér býr móðir mín. En ég veit þó ekki hvað ég ætti að gera hér. Eitt er víst að ég vil búa hér þegar ég eldist." — í lok bókar sinnar segir Halla: „Ef til vill stend ég á þröskuldi mesta ævintýris lífs míns.“ Við spyijum hana á hveiju hún eigi von? „Ég er ennþá að skirna," segir hún og ber höndina upp að enninu eins og hún sé að skyggja á sólina, sem vami henni sýn. „Það er alltaf eitthvað að gerast og ég er ekkert hrædd við að stökkva. Eg hef aldr- ei haft gaman af því að fara í spilavíti en ég er þó tilbúin til að veðja eigin lífi.“ REYKJAVIK Mörk lögsagnarumdæma Verðureign ^Reykjavíkur Land í lögsögu Kópavogs verður eign Reykjavíkur Ný mörk lögsagnar- umdæma Reykjavíkur og Kópavogs skv. samkomulagi 24. nóvember 1987 TVÆR MILLJÓNIR FYRIR 9 HEKTARA Reykjavíkurborg og Kópavogur hafa náð samkomulagi um ný mörk milli bæjarfélaganna. Samningur- inn felur í sér makaskipti á löndum við Lækjarbotna og ELliðavatn. Komu rúmlega níu hektara úr landi Reykjavíkur í hlut Kópavogs umfram makaskipti og greiðir Kópavogsbær Reykjavíkurborg 2 miUjónir fyrirþá. Trúnaðarráð og stjórn Hvatar. Trúnaðarráðsfundur Hvatar FYRSTI trúnaðarráðsfundur Hvatar var haldinn 23. nóvem- ber sl. Áður hafði stjómin skipt með sér verkum sem hér segir: Form- aður María E. Ingvadóttir, vara- formaður Hanna Johannessen, gjaldkeri Hulda Ólafsdóttir, ritari Katrín Gunnarsdóttir, varagjald- keri Áslaug Friðriksdóttir, vara- ritari Ásdís Loftsdóttir, með- stjómendur Anna Borg, Anna Kristjánsdóttir og Guðrún Zoéga. Á þessum fundi var rætt um vetrarstarfíð og gerð drög að ráð- stefnum og fundum vetrarins. Einnig var rætt um á hvem hátt mætti brydda upp á nýjungum í starfí félagsins til að efla starf- semi þess og taka enn frekar þátt í málefnalegri stefnumótun flokksins. Síðast en ekki síst var rætt um að fá sem flestar konur til starfa og konur á öllum aldri. (Fréttatilkynning frA Hvöt.) AUÐVELD I NOTKUN. SÖLUAÐILAR KENNA ÞÉR Á HANA- IBM PS/2

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.