Morgunblaðið - 06.12.1987, Side 50
r n
i
50
MORGUNBLAÐIÐ,. SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987
Saga úr
sveitinni
Bókaútgáfan Skjaldborg hef-
ur gefið út bókina Sumar á
Brattási eftir Ingebrigt Davik og
Oddbjörn Monsen í þýðingu
Kristjáns frá Djúpalæk.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„Þessi bók segir frá ungum dreng
sem elst upp í borginni hjá pabba
og mömmu. Hann fer síðan í sveit-
ina til ömmu og afa á Brattási. Þar
kynnist hann dýrunum á bænum
og lærir að umgangast þau. Þar
eru geitur, kýr, hestar, kisa og
hundur, og líka svín, hæsni, gæsir
og endur. Tómas, söguhetjan okk-
ar, lendir í ýmsum ævintýrum með
þessum vinum sínum og kynnist
heyskapnum og umhverfinu."
í bókinni eru yfir 30 litmyndir
af dýrunum sem Tómas kynnist og
þrjú kvæði eftir íslenska höfunda.
Kvæðunum fylgja nótur.
Rætt um
dagvistar-
mál á Sel-
tjarnarnesi
JC NES gengst fyrir borgara-
fundi mánudagskvöldið 7.
desember í glerhýsinu við Eiðis-
torg kl. 20.00.
Á fundinum verður rætt um
framtíðar byggingar- og dagvistun-
armál á Seltjamamesi.
Frummælendur verða Sigurgeir
Sigurðsson bæjarstjóri, Guðrún
Þorbergsdóttir og Guðmundur Ein-
arsson bæjarfulltrúar.
Pearlcorder L200 in Hand
Týsgötu1,
simar 10450-20610
Pósthólf-1071
ReykjaviV.
Margar gerðir, verð frá kr. 6.980,-
HEILDSALA - SMÁSALA
Einnig fáanleg ífríhöfninni.
Sendum í póstkröfu.
OLYMPUS
L-200 er minnsta og fullkomnasta segulbands-
tækið frá OLYMPUS, og eins og myndin sýnir
kemst það fyrir í brjóstvasa.
Tækið hefur raddrofa, þriggja tíma upptöku, tvo
hraða og margtfl.
Notaðt.d. af lögreglu, ráðherrum, læknum, blaða-
mönnum og skólafólki.
HAFÐU ALLT Á
HREINU
FÁÐU ÞÉR
OTDK
’KÍIM/V
PANNA
Fyrir rafmagnshellur
„Kína" pannan er notuð til að snöggsteikja. Snöggsteiking er
aðal eldunaraðferð íkínverskrir matargerðarlist. Pannan er
- hituð með olíu t.d. soyjaolíu. Þegar pannan er orðin vel heit
er smáttskorinn maturinn settur í og snöggsteiktur með því
að snúa og velta honum hratt. Leiðbeiningar um notkun og
nokkrar uppskriftirfylgja. Þessi panna er steypt með sér-
stakri fargsteypuaðferð sem gefur bestu hugsanlegu hitaleiðni.
Þess vegna hentar hún mjög vel fyrir snöggsteikingu á raf-
magnshellum. Kínapönnuna má nota til að djúpsteikja og
gufusjóða. Einnig til að brúna og krauma (hægsjóða). Fæst í
um 80 búsáhaldaverslunum um allt land.
Framleidd af Alpan hf., Eyrarbakka.
Heildsöludreifing Amaro-heildverslun, Akureyri s: 96-22831.
Alvcg mcirí háttar kaffi.
Vörumarkaðurinn hf.
Kringlunni - sími 685440
BÍLASÝNING
í Reykjavík og á Akureyri í dag kl. 13-17
Bílvangur sf.f Höfðabakka 9, og Véladeild KEA, Akueyri