Morgunblaðið - 06.12.1987, Síða 51

Morgunblaðið - 06.12.1987, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987 11 Ævintýraferðir til Bangkok með hóteli í hálfan mánuð. 90 Evrópu.ferðir. 20 Bandaríkjaferðir. 392 Innanlandsferðir. Ungmennafélag Hveragerðis og ölfus Pantanir (sima 99-4220 „AÐ SÝNA SIG OG SJÁ AÐRA“ / myrkri og misjöfnum veðrum vetrarmánaðanna er góður Ijósabúnaður mikilvægt öryggistæki. Fullkominn Ijósabúnaður tryggir ökumanni gott útsýni og eykurþanng öryggi hans og annarra vegfarenda. Mörgum biieigendum þykir einnig til bóta að ijóskerin prýði útlit bllsins. RING aukaljóskerin skila þessu tvlþætta hlutverki vel. Þau eru með sterkum halogen perum sem lýsa betur en hefðbundnar glóþráðaperur. RING aukaljóskerin fást f mörgum stærðum og gerðum, bæði með gulu og hvltu gleri og leiðbeiningar á Islensku tryggja auðvelda ásetningu. Þeir bllaeigendur, sem kjósa öryggi samfara góðu útliti, ættu að koma við á næstu benslnstöð Skeljungs og kynna sér nánar kosti RING aukaljóskeranna. Kveðjuorð: Sveinsína “Sísí“ Tryggvadóttir Fædd 30. nóvember 1935 Dáin 19. nóvember 1987 Hún lést á Landspítalanum 19. nóvember sl., rúmu ári eftir að hún fór að finna fyrir þeim sjúkdómi er dró hana tii dauða. Hún hafði tekið sjúkdóm er olli lömun og við hann varð ekkert ráðið. Þrátt fyrir að aðstandendur hennar og nánustu vinir gerðu sér fulla grein fyrir því að við þennan sjúkdóm yrði ekkert ráðið, er alltaf jafn erfitt að sætta sig við dauðann og þá sérstaklega þegar í hlut á manneskja á besta aldri, full af lífskrafti og lífsvilja, sem sífellt miðlaði öðrum af andleg- um nægtabrunni sínum, var styrk stoð þeirra sem til hennar leituðu með margvísleg vandamál sín. En við vinir hennar og vandamenn verðum að sætta okkur við lögmál lífs og dauða, hún Sísí er horfin sjónum okkar, henni hefur verið kippt burtu af þessu jarðneska sviði, en eftir standa minningamar ljóslif- andi, sem vitna um merka konu. Hún var fædd 30. nóvember 1935, einkabam hjónanna Tryggva Kristjánssonar og Magnfríðar Sig- urbjömsdóttur, sem bæði vom ættuð af Snæfellsnesi. Tryggvi fað- ir hennar lést árið 1964, en móðir hennar Magnfríður varð 80 ára í sömu vikunni og Sísí dó. Magnfríð- ur býr á Hofteigi 16 í Reykjavík og er fjölmörgum að góðu kunn. Vegna vanheilsu Magnfríðar móður hennar dvaldist Sísi frá því að hún var á öðm ári á því ágæta heimili Reykjum í Mosfellssveit hjá frænd- fólki sínu til ársins 1941, en síðan dvaldi hún um hríð að Klömbmm við Reykjavík. Á áttunda ári kemur hún svo aftur í foreldrahús og elst upp hjá foreldmm sínum. Hún gift- ist árið 1955 Stefáni Jóhannssyni rafvirkja og eignuðust þau þijú böm, en þau em, Lára, gift Gísla Gíslasyni framkvæmdastjóra, Fríður Bima, gift Óskari Jónssyni blikksmíðameistara, og Jóhann Gunnar sem er sölustjóri hjá Olís hf. Öll búa þau í Reykjavík. Þau Stefán slitu samvistir árið 1980. Bömin vom öll uppkomin og því sneri Sísí sér að sínum áhugamál- um, sem vom fyrst og fremst mannúðar- og líknarmál, hún menntaði sig, lauk stúdentsprófi frá Öldungadeild Hamrahlíðarskóla, sótti námskeið bæði hérlendis og erlendis og vann síðan meðan heils- an lejnfði á vegum SÁÁ. Vann hún þar að björgunar- og hjálparstörf- um og munu þeir ófáir sem eiga henni mikið að þakka frá þessum ámm sem hún var ráðgjafi að Sogni í Ölfusi, ennfremur var hún um tíma að Staðarfelli við samskonar störf. Ósérhlífni hennar og dugnaður var einstakur, sem sýndi sig meðal annars í því að hún ók gjaman hvem dag á milli heimilis síns í Reykjavík og vinnustaðarins að Sogni, jafnvel eftir að hún fór að finna fyrir lömuninni, lét hún það ekki aftra sér frá því að stunda vinnuna. Loks var lömunin orðin það mikil að hún varð að hætta að vinna og neyddist til að selja íbúð sína við Safamýri. Þrátt fyrir þetta var enga uppgjöf að fínna hjá henni. Þegar hún lést átti hún íbúð með er líða tekur á ævina. Og eftir að hún stofnaði sitt eigið heimili í Reykjavík, bmstu aldrei þau bönd sem bundin vom í æsku. Fyrir mér var Sísí hin lífsglaða fallega stúlka, full af gefandi orku sem erfítt er að útskýra. Síðast heimsótti ég hana í sept- ember á heimili hennar í Hátúni, þá var þegar séð hvert stefndi. En hún var þrátt fýrir allt full af bjart- sýni, hún talaði um íbúðina sína við Grafarvog með barnslegri tilhlökk- un og lífsvilja sem einkenndi hana alla tíð. Og nú er þessi fallega tign- arlega kona fallin frá. Eftir stendur mikil eyða sem erfitt verður að fylla út í, en minningamar sem eftirlif- andi ástvinir eiga um hana em svo bjartar að þær lýsa fram á veginn og gera leiðina greiðfærari. Eg vil fyrir hönd systkina minna minnast þessarar frænku okkar með þakklæti og votta ástkærri aldraðri móður, sem nú sér á bak einkabami sínu, bömum hennar og bamabörnum einlæga samúð. Guð blessi minningu hennar. Kristinn Kristjánsson NÆST ÞÁ FÆRÐ ÞÚ f TVIST í í byggingu inn við Grafarvog, sem var sérhönnuð fyrir lamaða, hún fylgdist vel með hvemig gengi með bygginguna og hlakkaði til að kom- ast í hana. Á meðan dvaldi hún í lítilli íbúð við Hátún. Sísí hafði mikla ánægju af ferðalögum og ferðaðist mikið bæði innanlands og utan. Síðustu ferðina fór hún nokkr- um vikum fyrir andlát sitt til Grikklands með syni sínum og yngri dóttur. Eftir heimkonuna dvaldi hún aðeins eina viku í Hátúninu með aðstoð vina og vandamanna, en þá vom kraftamir á þrotum, hún lá aðeins í eina viku á Landspítalan- um, en þá var hún öll. Eg og systkini mín eigum svo margar fallegar minningar um þessa frænku okkar. Þegar hún var barn að aldri og kom í sína áriegu ferð vestur að Hellnum með móður sinni til ömmu sinnar, var sem sól- argeisli birtist, þessi fallega unga stúlka átti svo auðvelt með að glæða umhverfí sitt hreinni birtu og fersk- leika. Þessar heimsóknir hennar í sveitina verða nú að þeim óbrot- gjömu gullum sem maður leikur sér Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson Þjónustumiðstöðin Kringlan í byggingu í Vogunum. Þj ónustumiðstöð byggð í Vogunum Vogum. í VOGUM standa yfir fram- kvæmdir við byggingu þjónustu- miðstöðvar, þar sem er gert ráð fyrir að minnst sex aðilar starfi. Það er byggingarfyrirtækið Lyngholt hf. sem stendur fyrir byggingunni, sem í daglegu tali er nefnd „Kringlan". Húsið er staðsett á horni Vatnsleysustrandarvegar og Iðnvals, og er um 600 fermetrar að stærð. Gert er ráð fyrir að Kaupfélag Suðumesja verði með verslun í hús- inu sem verði opnuð í marsmánuði næst komandi, heilbrigðisþjónusta á vegum Heilsugæslu Suðumesja, lyfjaafgreiðsla, skrifstofur Vatns- leysustrandarhrepps og afgreiðslur Útvegsbankans og Brunabótafélags íslands. Gert er ráð fyrir að framkvæmd- um verði lokið um mitt næsta ár. - EG.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.