Morgunblaðið - 06.12.1987, Side 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987
Læknar og hjúkrunar
fheðinizar á Kvenna-
Þóra Grönfeldt hjúkrunar-
fræðingur á skurðstof u
Kvennadeildar Landspitaians
við skápinn með brúðunum
hennar.
í glerskáp framan við mat-
salinn á Landspítalanum
má sjá skemmtilegar brúð-
ur. Fer ekki á milli mála
að allt eru þetta læknar og
hjúkrunarfræðingar í full-
um skrúða, hvítum sloppum
eða grænum, sem notaðir
eru inni á sjúkrahúsum og
á skurðstofum og bera við-
eigandi grímur og höfuð-
búnað. Kunnugirþekkjaþar
lækna og hjúkrunarfræð-
inga af Kvennadeild Lands-
pítalans og eru ekki í
vandræðum með að greina
hver þar fer hverju sinni,
enda ber hver brúða einhver
tæki sem táknræn eru fyrir
störf hvers um sig. Búnaður
og tæki nostursamlega unn-
in og andlitssvipur ótrúlega
líkur. Brúður þessar hefur
Þóra Grönfeldt, hjúkrunar-
fræðingur á skurðstofu
Kvennadeildar Landspítal-
ans unnið. Byrjaði á einni
að gamni sínu og svo hlóð
þetta utan á sig. Þegar hún
hafði búið til nokkrar kom
til skjalanna ungur læknir,
Hrafnkell Óskarsson, og tók
að yrkja vísur sem áttu við
hvem og einn. Oggamanið
hélt áfram. Loks var beðið
um leyfi til að setja brúð-
umar þar sem fleiri gætu
notið þess að sjá þær og
nýlega var smíðaður skápur
við matsalinn þar sem þeim
var komið fyrir með viðeig-
andi vísu.
Fyrsta brúðan sem Þóra gerði var af Báru Gísladóttur, aðstoðardeildar-
stjóra,sem fær þessa vísu:
Málshætti brátt verður breytt
barasta fyrir þá sök;
í evac á skurðstofu eitt
er oftlega ein bára stök.
Ort er fyrir munn yfírlæknisins Jóns Þ. Hallgrímssonar, sem heldur hér á
bláum pakka:
Eitt er alveg örugg vöm
ef þú vilt ei eignast börn.
Kaupa pillupakkann bláa
og pillu setja milli hnjáa.
Prófessor Gunnlaugur Snædal, yfirlæknir Kvennadeildar. Um hann er ort:
Öðrum sneggri á öllum stigum aðgerðar.
Fljótur er að kasta kveðju á konurnar.
eyðir bvers kyns uppistandi einkar laginn
með því einu að brosa blítt og bjóða „daginn“.
Þóra Fischer kvensjúkdómalæknir stendur í keisaraskurði með nýfædda
bamið í fanginu. Um hana er ort:
/ keisara hún kæfir glott
Ef krakkinn hlýtur skeinu.
A Schwarzvald klínik kallast gott
að krukka í tvo í einu.