Morgunblaðið - 06.12.1987, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987
55
Þessi skemmtilega brúða í önnum er Davíð A. Gunnarsson, forstjóri
Ríkisspítalanna. Hans vísa hljóðar svo:
Húfan fína og frakkinn þinn
færa um það sanninn
að fara vel með fatnaðinnn
fötin skapa manninn.
Guðjón Sigurbjömsson yfirlæknir svæfíngadeildar á Kvennadeild til hægri
og Gunnar Herbertsson læknir til vinstri. Gunnar orti sjálfur vísu með sinni
brúðu, en síðan bætti Hrafnkell annarri við:
Sæmir dúkku siðsemi
sveipuð hvítri flík
hún er gull og gersemi Og seinni vísan:
Gunnsa reyndist lík. Mér væri svo sem fjúft að lofann
liti hann ekki stórt á sig.
Vísan sem hér er að ofan
er eftir Gunnsa en ekki mig.
Kristján Sigurðsson.yfirlæknir Krabbameinsleitarstöðvarinnar, heldur hér á
tæki sem smokk er brugðið yfir og skýrir vísan það:
Smokkar hindra smitun vel
og smíði bama.
Ég gúmmíverjur góðar tel
til geislavama.
Auðólfur Gunnarsson, sérfræðing-
ur í kvensjúkdómum er hér sýndur
með stækkunargleraugun sem
hann notar við aðgerðir. Hann
hefur fengið tvær vísur, önnur er
svona:
Þótt kona fari fötum úr
mér finnst hún ekki vitund klúr,
en ofurlítið örvandi ems og gengur,
en eftir ferð í fræðslutúr
sem farin var til Singapore
þá banana ég borða ekki lengur.
Eg hefi gaman af
ýmiskonar
handavinnu, eins
og hver góð hús-
móðir“, segir
Þóra Grönfeldt.
Hún kveðst aldr-
ei hafa lært neitt
í þá áttina, oft ætlað að gera það,
en ekki verið mikill tími aflögu.
Hún hefur verið starfandi hjúkrun-
arfræðingur í 20 ár og haldið heimili
með eiginmanni og þremur bömum,
svo ekki hefur gefist tími til þess.
Stóra húsið þeirra með garði og
hitapotti ber þess líka merki að þar
hefur margt handtak verið unnið
og listræn hönd farið um. Einn
góðan veðurdag settist Þóra niður
til að búa til brúðu sem væri tákn-
ræn fyrir stétt hennar , til að tjá
sig og eiga til minja, eins og hún
segir. Og hafði hana af eðlilegum
ástæðum klædda eins og skurð-
stofuhjúkrunarfræðing.
“Þegar ég kom með brúðuna á
vinnustað, varð Báru Gísladóttur
að orði að þetta væri bara alveg
eins og hún. Aðrir tóku undir það.
Og ég ákvað að búa líka til einn
lækni. Fólki þótti gaman að þessu
og brúðumar urðu fleiri, þar til
komnir vom 23 læknar og hjúkmn-
ar fræðingar. Vísumar hans
Hrafnkels vöktu líka kátínu og
hvöttu mig. Hann var að senda mér
eina og eina. Ég var alltaf svolítið
kvíðin þegar ég kom með nýja
brúðu, vissi ekki hvemig þessu yrði
tekið, hvort einhver tæki grínið
nærri sér. En það varð ekki reynd-
in. Svo stakk einhver upp á því að
stilla brúðunum upp í skáp. For-
stjóri Ríkisspítalanna, Davíð
Gunnarsson, var því hlynntur, og
fyrir hálfum mánuði var þeim öllum
komið fyrir í glerskápnum.“
Ljósmyndari Morgunblaðsins
Ámi Sæberg tók myndir af nokkr-
um brúðanna og við fengum leyfi
til að birta þær til gamans með til-
heyrandi vísum.
-E.Pá.
HANDAVINNUPOKINN
Sætasta músin í bænum
Já, hér kemur það, seinasta
gæludýrið í ár. Þessi líka bráð-
skemmtilega mjúka mús. Hún
verður áreiðanlega vinsæl hjá
yngri deildinni. Það sama gildir
um þessa uppskrift og þær
fyrri: það er auðvelt að sauma
músina ef fylgt er vandlega
númerunum.
Músin er um 38 sentimetra há,
og sniðin em að þessu sinni með
saumum. í hana fara um 30 sm.
af 150 sm. breiðu plussefni auk
smábúts af t.d. flóneli, flaueli eða
velúr, sem notaður er innan í eyr-
un (að framan), í sólana og í
skottið. í bolinn þarf 23x54 sm.
af jersey efni, og í pilsið 60 sm.
af tjull efni. En auðvitað getið þið
notað hvaða efni sem er þótt
músin sé skemmtileg úr þessum
efnum. Einnig þarf 2 kringlótt
augu (gler eða plast) og svo upp-
fyllingarefni.
Eins og ég hef áður bent á er
auðvitað bezt að teikna sniðin á
röngu efnisins. Og ég endurtek:
sniðin em með saumfari (6 mm).
Sniðin em alls 13, og númemð
eins og hér segir:
Nr. 1, höfuð, framstykki, 2,
höfuð, framstykki, 3, eyra, 4,
höfuð, bakstykki, 5, búkur, 6,
handleggur, 7, fætur, 8, fótlegg-
ur, 9, sóli, 10, skott, 11, bolur,
framstk., 12, bolur, bakstk., 13,
pils.
Leiðarvísir.
Notið frekar gróft saumspor á
vélinni. Byijið á höfuðstk. nr. 1.
Saumið saman á röngunni innan-
verðan saum og framsaumana.
Þræðið saman höfuðstykki nr. 1
og 2. Saumið lekið neðan á höfð-
inu. Saumið síðan saman eyrun á
röngunni, bæði efnin, skiljið eftir
op að neðan, „saxið“ í sauminn
allt í kring og snúið við - sjáið
mynd og frekari leiðbeiningar á
sniðsörk. Þræðið eyrun á milli
merkinga á höfuðið. Saumið mið-
saum á bak-höfuðstykki nr. 4, og
síðan fram og bakstykki saman.
Fýlgið númemm. Snúið stykkinu
við. Saumið augun föst á sinn
stað og búið til lítinn svartan,
þéttan dúsk. Þetta er nefíð. Fes-
tið það á sinn stað. Troðið í
höfuðið og saumið opið saman,
eða herpið það saman, en ekki
of fast.
Saumið saman miðsaum á búk-
stykki nr. 5, saxið í saumfarið.
Bijótið handlegg, snið nr. 6, til
helminga, rétt móti réttu, látið
númer standast á, saumið hand-
legginn saman, en skiljið eftir op
til að troða í (merkt á sniði), sax-
ið í saumfar. Snúið stykkjunum
við, þræðið saman saumfar að
ofan, sbr. mynd, þræðið handleggi
á búkinn samkvæmt merkjum, og
saumið síðan fast. Saumið lek á
öxl, saumið axlasaum, snyrtið
homið.
Saumið þá fótstykki nr. 7,
þræðið það á fótlegg nr. 8, rétt
mót réttu. Bijótið fótlegg til helm-
inga, og saumið bæði stykkin
saman, skiljið eftir op til að troða
í. Þræðið þvert fyrir saum að of-
an, sbr. mynd. Saumið sólann á,
snúið stykkinu við.
Að utanverðu, þræðið fótleggi
á búk, þræðið neðri hluta búks,
saumið saman (sjá mynd á sniðs-
örk). Leggið skottið saman eftir
endilöngu, rétt mót réttu, saumið
saman en skiljið eftir op við end-
ann. Snúið stykkinu við. Þræðið
á búk (merkt). Saumið miðsaum
á baki (búkstykki, nr. 5). Saumið
saman neðst á búkstykki (skottið
saumast þá með). Fylgið merkj-
um. Snúið réttunni út.
Troðið fyllingarefni I hand- og
fótleggi (sjáið mynd á sniðörk)
og saumið op saman í höndunum.
Saumið með þykku svörtu út-
saumsgami í „hendur" og tær
sbr. mynd á sniði.
Troðið vel og vandlega í búk-
inn. Saumið höfuðið á og gætið
þess að saumar standist á að
framan og aftan. Saumið gjaman
2svar allt í kring um hálsinn.
Notið hörtvinna eða eitthvað álíka
sterkt.
Veiðihárin: Klippið 8 stykki
hvom megin af stífum hörtvinna,
12 sm. löng, og saumið þau föst
á trýnið, sbr. mynd.
I verzluninni Bamarúm við
Skólavörðustíg hef ég fengið mjög
gott uppfyllingarefni, sem er bæði
dijúgt og ódýrt. Það kallast ullar-
dúnn. Augu úr plasti og gleri fást
í úrvali bæði í verzluninni Sauma-
sporinu í Kópavogi og Litum og
Föndri við Skólavörðustíg.
Vona að ykkur gangi vel með
þetta. Ef þið viljið fá sniðin send,
þá skrifíð eftir þeim. Utanáskrift-
in er:
Dyngjan, Aðalstræti 6,
Morgunblaðinu, 101 Reykjavík.