Morgunblaðið - 06.12.1987, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 06.12.1987, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987 59 Síðan drögum við hvern skip- brotsmanninn í land á fætur öðrum. Margir þeirra eru gagnteknir af skelfíngu, enda höfðu þeir orðið að horfa upp á óblíð örlög félaga sinna og að öllum likindum verið búnir að missa alla von um björgun. Flestir eru mennimir sæmilega á sig komnir, sumir jafnvel að mestu leyti þurrir, og einstaka maður hafði getað tekið með sér lítilsháttar af föggum sínum. Nokkrir skipbrotsmanna eru þó illa útataðir í olíu cg þá látum við það verða okkar fyrsta verk að klæða þá úr hlífðargallanum. Einn þeirra, sem þannig var ástatt um, er mér sérstaklega minnisstæður, en hann virtist með öllu orðinn viti sínu fjær af ótta og örvæntingu. Hann er með band hnýtt um sig miðjan, og Gamalíel, sem ég gat um áðan, stór maður vexti og þrek- inn, er með hníf í hendi og ætlar að skera sundur bandið, svo að við getum klætt manninn úr gallanum. En þá tryllist hann gersamlega, svo að við verðum að hjálpa Gamalí- el að halda honum. Aumingja maðurinn hefur ugg- laust verið sannfærður um, að við ætluðum að kála sér! Nei, það var síður en svo auð- velt að taka á móti vesalings færa þá í hlý föt, hlúa að þeim og hlynna. Það er af Sigurði Þorleifssyni að segja. að hann og menn hans gengu með fram fjörunni, eins og talað var um. Þá verða þeir varir við manninn, sem einn hafði synt til lands og komist upp í skútann. Þeir rejmdu fyrst að renna til hans kaðli, en hann virtist ekki geta bundið sig nógu rammlega til að treystandi væri á að draga hann upp. Svo vel vildi til, að í hópi björg- unarmanna var Björn Þórðarson, skipstjóri á vélbátnum Grindvík- ingi, en hann var ættaður úr Vestmannaeyjum og þaulvanur bjargsigi. Hann býðst nú til að síga niður í skútann, gerir það síðan snarlega og tekst að ná til manns- ins, sem var orðinn kaldur og þrekaður og þjáðist auk þess af olíunni, sem hann hafði þurft að synda í á leiðinni til lands. Og Björn tekur manninn óðara á bakið, og síðan eru þeir báðir dregn- ir upp. Maðurinn var strax sendur til vitavarðarbústaðarins til annarra félaga sinna, sem bjargast höfðu. Þegar við erum búnir að taka saman björgunartækin leggjum við af stað áleiðis eftir fjörunni til að athuga hvort við gætum hjálpað til Með Eggert G. Þorsteinssyni, sem var sjávarútvegsráðherra 1965-71. mönnunum þama á bjargbrúninni — á flughálli olíuleðju í þessum hryssingslega sjávargangi. Nítjándi og síðasti maðurinn, sem við björgum í stólinn er skipstjór- inn, L. E. Clayton að nafni. Hann var lítll maður vexti og grannur — og hríðskalf, eflaust bæði af kulda og hryllingi. Ég tek undir handlegg honum og geng með hann að klettabelti, þar sem hann getur tyllt sér. Hon- um veitti sannarlega ekki af að hvíla sig stundarkom. Allt í einu dregur hann þá upp úr barmi sínum tvö sígarettukarton, réttir mér þau og þakkar um leið mörgum orðum fyrir björgun sína og sinna manna. Ég spyr hann, hvort fleiri menn séu um borð í skipinu, og þegar hann hefur fullvissað mig um að svo sé ekki, læt ég skera á líflínuna og segi félögum mínum að byija að taka saman björgunartækin. Við fömm síðan með mennina nítján til vitavarðarbústaðarins, en þangað em þá komnar allmargar konur af bæjum í Staðarhverfí og hjálpa til við að þrífa mennina, þar. Við hittum Sigurð og hans menn. Þeir höfðu þá gengið allar fjömr og fundið sjö lík. Þau liggja þama hlið við hlið, fimm af Kínverjum en tvö af Eng- lendingum. Síðar hef ég samband við bifreið- arstjóra, Karl Karlsson frá Ási í Grindavík, og við fömm að sækja líkin. Við setjum þau á bflpallinn og breiðum yfir. Síðan ökum við að vitanum. Bfllinn átti að halda áfram til Grindavíkur með líkin, því að gerð- ar höfðu verið ráðstafanir til að flytja þau til Reykjavíkur. Það er afráðið að hafa þann hátt- inn á. í sama bili kallar bflstjórinn til mín, biður mig að finna sig og segir: „Ég treysti mér ekki til að fara einn með þennan flutning." Ég bið þá tvo menn að fara með honum. En sagan er ekki öll. Nokkm síðar selur Karl bflinn. Hann gat ekki hugsað sér að eiga hann eftir þetta. MYNDBANDSTÆKI VELDU ^TDK EGAR ÞU VILT HAFA ALLT Á HREINU Þú færð jólagjöf íþrótta- mannsins í Spörtu Panda dúnúlpur Litir: Dökkblátt, turkish, milli- blátt. Nr. 140-152-164 kr. 5.590,- Nr. S-M-L-XL- XXL kr. 5.990,- Matinbleu gallarnir Loksins fáanlegir aftur í mörgum tegundum. Margir litir. Verð frá kr. 4.885,- Frábært úrval af fatnaði fyrir eróbikk, jassballett og fim- leika. Bolir, buxur, belti, samfestingar o.fl. Matinbleu barnagallar 3 týpur. Verð frá kr. 3.890,- Adidas Laser Kominn aftur í nýjum litum. Nr. 150 til 198 kr. 6.950,- Adidas Liverpool Dökkblár m/ljósbláum rönd- um. Nr. 128-176 og 3-9. Rautt 128,152, 164, 176. 128-176, verð kr. 2.925,- 3-9, verð kr. 2.995,- Adidas Victory Glansgalli. Nr. 140-176 og 46-54. Dökk- blátt og rautt m/dökkbláum buxum. Kr.3.518,- Adidas Challenger Litir: Grátt/svart, rautt/blátt, svart, Ijósblátt, grátt/dökk- blátt, Hvítt/ljósblátt, dökk- blátt. Nr. 138-198 kr. 6.290,- 'fitsí Adidas Alberta Regngallar. 100% regnhelt efni. Dökkblátt, svart, rautt, Ijósblátt. Kr. 3.596,- Búningasett frá Adidas. Manchester United. 3 litir. Liverpool, heima, úti og vara- búningar. Arsenal, Luton, West Ham sett kr. 1.940,- Treyja kr. 1.130,- Póstsendum samdægurs SPORTVÖRUVERSLUNIN LAUGAVEGI 49 SIMI 12024 1
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.