Morgunblaðið - 13.12.1987, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.12.1987, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987 23 íslenskur fróðleíkur Með þessari bók lýkur þriggja binda safni heimildaþátta þess- ara. Hannes Pétursson þræðir á margslunginn hátt örlagavegu kynslóðanna og segir frá at- burðum og lífshlaupi, sem fáum hefði komíð í hug að fyrir- fyndust meðal Íslendínga. Lesa má um hermann í sveitum sem börðust gegn Napóleoni, fátæk- an pilt sem dó í hárri elli auðug- ur hóteleigandi í Vesturheimi, Skúla Bergþórsson á Meyjar- landi á Reykjaströnd, eitt síð- asta rímnaskáldíð og ótal fleiri einstaklinga, sem vekja jafnt aðdáun lesandans sem forvitni. Hannes Pétursson fylgir af festu kröfum heimildarþáttarins um nákvæmni og trúleik við sannfræði. En um leið kann hann að gæða nöfn og þurrar staðreyndir lífi og lít. í þáttum hans stíga fram úr rökkri tímans karlar og konur fyrri kynslóða, hver með sínum sérkennum. Þetta fólk verður lesandanum oft engu síður minnílegt en samferðamennirnir hér og nú. Sem fýrr kennir margra grasa í safni Gests. íslenskur fróðleik- ur gamall sem nýr er hér færður í búning ritleikni og smekkvísi undir ritstjórn Gíls Guðmunds- sonar. Hér má lesa um Bessastaða- ferð Þorsteins Erlingssonar skálds, forna trú á byggð úti- legumanna í „huldum pláss- um“, lífið á Homströndum fyrr á öldinni og störf lögreglunnar í Reykjavík í upphafi aldar svo stiklað sé á stóru. Það er óhætt að segja að í frásögnum þessa bindis kenni margra grasa. Við kynnumst hér hversdagslífi fólks og lífsbaráttu og fáum líka ávæning af sögu- legum tíðindum í landinu. Þætt- ir af þessu tagi verða mörgum hugtækur lestur og þeir kunna að reynast því verðmætari sem lengra líður og þjóðlífið tekur meiri stakkaskiptum. ■ ty«» g?- - ~;iu i.iwaii. ■ • jj-|jjj- ■ - - - Fyrir fáum árum kom út fyrsta bindi þessa glæsilega bókaflokks, og Qallaði það um íslenska stjórnmálaskörunga sem sett höfðu svip á öldina. Bókin hlaut afburða góðar við- tökur Iesenda jafnt sem gagn- rýnenda. Hér er haldið áfram þar sem frá var horfið og hafið að segja frá íslenskum athafna- mönnum. Sumir brutu sér leið úr fátækt, aðrir voru bomir tíl auðs og metorða. En hveijir vom þessir menn? Hvað var það sem greindi þá frá fjöldanum og gerði þá að um- svifamiklum kaupsýslu- og at- hafnamönnum, framvörðum nýrra tíma til sjávar og sveita? Þeir settu svip á öldina er ómetanlegt framlag til íslenskr- ar atvinnusögu. Ritstjóri: Gils Guðmundsson Vér ísiands böm flytur efni af sama toga og íslenskt mannlíf: listrænar frásagnir af íslenskum örlögum og eftirmínnilegum at- burðum, sem reistar em á traustum, sögulegum gmnni og ítarlegri heimíldakönnun. Jón Helgason kunni öðmm betur að glæða liðna sögu Hfi, og gilti þá einu hvort viðfangsefni hans vom æðstu valdsmenn þjóðarinnar eða umkomulausir kotungar. Jón Helgason „fer lístamanns- höndum um efni sitt, byggir eins og listamaður af þeim efnivið, sem hann dregur saman sem visindamaður," eins og dr. Kristján Eldjám komst að orði í ritdómi. SN m \ 111 IÐUNN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.