Morgunblaðið - 13.12.1987, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 13.12.1987, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987 Mögnuð og átakanleg lýsing á grimmum og miskunnarlausum örlögum og mann- legri þjáningu, saga sem grípur lesandann heljartökum og heldur honum föngnum frá upphafi til enda. Þetta er saga manns sem er hrakinn út í ógæfuna af eigin ás.tríð- um og örvæntingu, sjúkur á sál og líkama. Eitt sinn var hann elskaður og dáður urri allan heiminn, en nú er hann flestum gleymdur. Eftir tuttugu ára bið fær hann loks eitt einasta tækifæri til að sýna hvað í honum býr. En er það of seint? Hefur hann þegar steypt sjálfum sér og öðrum í glötun? Ógnvekjandi saga sem lýsir skuggahliðum mannlífsins og örlagaþrungnum atburðum vægðarlaust en þó af djúpum skilningi og samkennd. Sá sem hér segir frá hlífir engum, hvorki sjálfum sér né fesendum, við afdráttarlausri játningu sinni. IÐUNN Einstæð og eftirminnileg saga manns sem leggur allt undir í örvæntingar- fullri baráttu sinni við óvægin örlög, bók sem oft hefur verið líkt við fræga ævisögu Martins Grey, Ég lifi, enda vekur hún sömu tilfinningar hjá les- endum. „Það aldin út er sprungið — og ilmar sólu mót“ segir sr. Matthías í þýðingn sinni á gömlum sálmi um jólarósina (sbr. Blóm vikunnar nr. 33 - 13.12. 1986). Skrá yfir greinar birtar á árinu 1987 Þá er komið að síðasta þættinum á þessu ári sem fer brátt að syngja sitt síðasta. Talsvert hefur borið á því að tölusetning greinanna hafi brenglast, einnig hafa nöfn höfunda margsinnis fallið niður í prentun svo að við bregðum nú á það ráð að birta skrá yfir greinar ársins 1987 og vonum fastlega að hún komist rétt til skila. I fremri röðinni er töflusetningin rétt, en röngu núm- erin eru í sviga. Við vonumst líka til að myndin af hinni dáfögru jóla- rós (Helleborus niger) prentist vel og verði til þess að prýða úrklippu- safn lesenda. I desembermánuði í fyrra birtist um jólarósina ágæt grein eftir Ólaf Björn Guðmunds- BLOM VIKUIMNAR 80 Umsjón: Ágústa Björnsdóttir Skrá Tölu- setning Fyrirsögn Höfundur Birt 34 Slönguhnoðri Ólafur Bjöm Guðmundsson 10.01. 35 Perlufesti Ólafur Bjöm Guðmundsson 17.01. 36 Snigitlinn o.s.frv. ÞórhallurJónsson 24.01. 37 Tómatar SvalaJónsdóttir 31.01. 38 Gróðurskáli o.s.frv. Hilmar Magnússon í 07.02. 39(38) Alparós Grænu höndinni IngólfurDavíðsson 14.02. 40 (39) Hawaii-rós Umsjónarm. ÁB 21.02. 41 Klivia Umsjónarm. ÁB 28.02. 42 Sineraria—Sólbrúður Óli Valur Hansson 07.03. 43 Riddarastjama Hafsteinn Hafliðason 14.03. 44 Pálmaliija — Yucca Ingólfur Davíðsson 21.03. 45 Fjaðraglóð Ólafur Bjöm Guðmundsson 28.03. 46 Maríusóley Hermann Lundholm 04.04. 47 Gloxinía Hafsteinn Hafliðason 11.04 48 Sumarmálarabb SigríðurHjartar 25.04. 49 Bóndarós Kristinn Guðsteinsson 09.05. 50 Dalíur Kristinn Helgason 16.05. 51 Rabbað um nytjajurtir Sigurlaug Ámadóttir 23.05. 52 (51) Á kartöflutíð Einar I. Siggeirsson 30.05. 53. Hvítasunnulilja Kristinn Guðsteinsson 06.06. 54 Kúlulykill ÞórhallurJónsson 13.06. 55 Hjartablóm Elsa Óskarsdóttir 20.06. 56 Álfakollur Herdís Pálsdóttir 27.06. 57 Úr Hollandsferð GÍ: (1) Sigríður Hjartar 04.07. 58 Linneaus-garðurinn ÚrHollandsferð GÍ (2) Lára Halla Jóhannesdóttir 11.07. 59 Grágresi Umsjónarm. ÁB. 18.07. 60 Geldingahnappur SigurlaugÁmadóttir 25.07. 61 Snæsúra Umsjónarm. ÁB 01.08. 62 Apablóm ÞórhallurJónsson 08.08. 63 Úr Hollandsferð GÍ (3) Ingibjörg Steingrímsdóttir 15.08. 64 Háskólagarðurinn í Utrecht Skógartoppur — Vaftoppur SigríðurHjartar 22.08. 65 Berberis Halldóra Haraldsdóttir 29.08. 66 „Risar" ígörðum(l) Umsjónarm. ÁB 05.09. 67 „Risar" í görðum (2) Umsjónarm. ÁB 12.09. 68 Haustið og litir laufanna Hafsteinn Hafliðason 19.09. 69 Balkönsk skógarsóley Kristinn Guðsteinsson 26.09. 70 Haustlaukamir boða vorkomuna Kristinn Guðsteinsson 03.10. 71 Að rækta lauk í krús Kristinn Guðsteinsson 10.10. 72 Tveir auðræktaðir laukar í stofuna Kristinn Guðsteinsson 17.10. 73 Aðdrífalauka(l) Kristinn Guðsteinsson 24.10. 74 Að drífa lauka (2) Kristinn Guðsteinsson 31.10 75 Drekaliljur — Cordyline SigurðurÞórðarson 07.11. 76 Blágresi Ólafur Bjöm Guðmundsson 14.11 77 Nóvemberkaktus Óli Valur Hansson 21.11. 78(79) Jóiastjaraa Óli ValurHansson 28.11. 79 Úr Hollandsferð GÍ Þórhallur Jónsson 05.12. 80 rí Skoðun einkagarða Skrá um Blóm vikunnar 1987 Umsjónarm. ÁB 12.12 Góðir lesendur, bestu jóla- og nýárskveðjur. Hittumst með hækkandi sój. Umsjónarmaður ÁB Framsókn: Afar áríðandi að ná markmið- um söluskatts- breytinga ÞINGFLOKKUR Framsóknar- flokksins hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að flokkurinn telji afar áríðandi að þeim markmiðum verði náð, varðandi innheimtu söluskatts, að allt eftirlit með skilum á skatt- inum verði mun auðveldara og skilvirkara og hann muni skila sér betur í ríkissjóð. Segir flokk- urinn að þetta sé meginforsenda þeirrar breytingar sem verið sé að gera á söluskattskerfinu og meginröksemdin sem réttlæti það mikla rask sem breytingin hafi í för með sér. í yfirlýsingunni bendir flokkurinn á að eftirlit með fjármagnsstreymi í fyrirtækjum sé ein af forsendum þess að árangur náist. Felur þing- flokkurinn ráðherrum sínum að fylgja þessu máli fast eftir í ríkis- stjóminni og treystir jafnframt því að núverandi fjármálaráðherra liggi ekki á liði sínu við að koma inn- heimtu hans í eðlilegt horf. Beta og ( ') VILLTI FJALLAFOLINN Ný unglinga- bók - Beta og villti fjallafolinn BETA og villti fjallafolinn heitir bók eftir Vigfús Björnsson sem nýlega kom út. Bókin fjallar um Betu sem tekur að sér að vera ráðskona hjá afa sínum þegar amma hennar deyr. Þá er hún aðeins ellefu ára gömul. Sagan hefst á því þegar Beta fer með afa sínum að sækja Vitru- Skjónu í fjallið. Þar sér hún rauð- skjótta villta fjallafolann í fyrsta sinn. Segir síðan frá samskiptum Betu og folans. Á bókarkápu segir að þrátt fyrir að bók Vigfúsar Bjömssonar flokk- ist sem unglingabók sé hún engu að síður fyrir afa, ömmu, pabba og mömmu. Vigfús Bjömsson velur bókum sínum rammíslenskt sögu- svið. Beta og villti fjallafolinn er 106 síður að stærð. í bókinni eru teikn- ingar eftir Sigríði Vigfúsdóttur. Fer inn á lang flest heimili landsins!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.