Morgunblaðið - 22.12.1987, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.12.1987, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987 MESSÍAS Polýfónkórinn 30 ára Hljómplötur Egill Friðleifsson Um þessar mundir er þess minnst að þrír áratugir eru liðnir frá því að Pólýfónkórinn hóf fyrst upp raust sína. Stofnun kórsins er einn af vendipunktum íslenskrar tónlistarsögu. Þar kvað við alveg nýjan tón, fágaðri og fegurri en áður hafði heyrst. En það var ekki aðeins söngurinn, verkefnavalið var einnig nýstárlegt, þar sem meistarar flölröddunarinnar voru fyrirferðarmiklir. Undirritaður minnist margra ógleymanlegra stunda frá fyrstu árunum, en þá fóru tónleikar kórsins gjaman fram í Kristskirkju við Landakot, sem er frábært hús fyrir kórsöng. Tær tónlist þeirra Orlandi Di Lasso, Palestrina og fleiri snillinga hljóm- aði líkt og opinberun i fáguðum flutningi kórsins. Raunar hef ég aldrei orðið samur maður eftir að hafa heyrt I kómum í fyrsta sinn. Hér er ekki um ýkjur að ræða. Silfurtær og upphafinn söngur kórsins umbylti gjörsamlega öllum fyrri hugmyndum mínum um söng- máta og söngstfl og ég hygg að svo hafi verið um fleiri. Seinna stækkaði kórinn og réðst í stærri verkefni, en kórinn hefur frumflutt hér á landi mörg af helstu stórverk- um tónbókmenntanna. Stofnandi og stjómandi kórsins „meistari hins hreina tóns“, Ingólf- ur Guðbrandsson, hefur unnið þrekvirki með kómum. Hann getur nú með stolti litið yfir farinn veg og glaðst yfir góðum sigrum. Ing- ólfur hefur ekki alltaf siglt lygnan sjó og oft hefur gustað í kring um hann. En dugnaður hans, hæfni og úthald ásamt takmarkalausum listrænum metnaði hefur dugað til að stjama Pólýfónkórsins skín skært á himni hins íslenska listalifs og þrítugsafmælisins er nú minnst á mjög myndarlegan hátt. Fyrir Ingólfur Guðbrandsson, stjórn- andi Pólýfónkórsins. nokkmm dögum komu út geisla- diskar sem hafa að geyma söng kórsins ásamt einsöngvurum og hljómsveit í Messíasi Hándels tekin upp á tónleikum í Hallgrímskirkju í desember 1986. Um leið kom út hljómplata með völdum köflum úr verkinu og auk þess veglegt af- mælisrit, sem ber titilinn „I ljósi líðandi stundar" en þar er litrík saga kórsins rakin. Raunar er hér um heila bók að ræða, sem telur um 120 blaðsíður, og er prýdd fjölda ljósmynda. Varðandi flutning kórsins á þessu meistaraverki Hándels, sem fram fór í Hallgríms- kirkju dagana 11. og 13. desember 1986 sem fyrr segir, birtist umsögn um tónleikana hér í blaðinu og er vitnað í hana í afmælisritinu og verður ekki endurtekið hér. Á það skal aðeins minnst að þó flutningur sé ekki alveg hnökralaus er hlutur kórsins mjög góður, blæfagur, hreinn og rismikill, sömuleiðis stendur hljómsveit sig ágætlega og einsöngvarar en það eru þau Maureen Brathwaite, Anna M. Kaldalóns, Sigríður Ella Magnús- dóttir, Jón Þorsteinsson og Peter Coleman-Wright. Þessi útgáfa er kómum til mikils sóma. Um leið og kómum og stjóm- anda hans eru færðar bestu þakkir og afmæliskveðjur er við hæfi að vitna í afmælisbókina, en þar segir Thor Vilhjálmsson m.a.: „Hér er söngur sem gengur til hugar og hjarta, hófstilltur vel og fágaður, andstæður öskrinu, hrekkur undan harkinu og sigrar það þó.“ Pólýfónkórinn SOGUSTAÐUR vm SUND Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson PáU Líndal: REYKJAVÍK. Sögnstaður við Sund. Ritstjórn: Einar S. Arnalds. Ritstjórn myndefnis: Örlygur Hálfdanar- son. Prentlögn: Kristinn Sigur- jónsson. 2. bindi. H-P. Bókaútgáfan Örn og Örlygur 1987. í öðru bindi Reykjavíkur, sögu- staðar við Sund heldur Páll Líndal áfram fræðslu sinni um höfuð- borgina fyrr og nú. Hér er um að ræða uppsláttarrit og að þessu sinni nær það frá bókstöfunum H-P. Myndefni er stór hluti rits- ins. Fyrir, utan venjulegar upplýs- ingar um hús, götur og fólk eru birt ýmiskonar ummæli um borg- ina. einkum tekin úr bókum. í Reykjavík, sögustað við Sund er fylgt þeirri_ stefnu sem mótaði Landið mitt, ísland. Sami útgef- andi gefur bæði ritin út og hefur lagt metnað sinn í að þau verði að öllu leyti sómasamleg. Hvað annað bindi Reykjavíkur, sögu- staðar við Sund varðar get ég ekki betur séð en að hér sé mikið og þarft efni saman komið á ein- um stað og það sem athygli vekur í sambandi við myndimar er hve gamlar myndir og nýjar samtengj- ast vel. Það er langt síðan spumir bár- ust af því að Páll Líndal væri manna fróðastur um Reykjavík og sögu borgarinnar, að minnsta kosti eftir að Áma Óla naut ekki lengur við. Sem betur fer lét Páll ekki nægja að leiðbeina erlendum gestum sem embættismaður borg- arinnar. Þekkingu hans og skemmtilegan frásagnarhátt höf- PáU Líndal um við nú í bókum. Það er vissulega mikil saga og líklega óþijótandi sem til er um borgina. Engin furða þótt sumt verði snubbótt sem stendur um götur og götunúmer. Það sem Páll og samstarfsmenn hans vita ekki um eða engar prentaðar heimildir em til um er skilið útundan. Eyður verða í sögu borgarinnar. Svo er líka að meta hvað eigi heima í bók. En Páll er mjög fundvís á allt sem gefur sögu borgarinnar lit og þótt sumt sem í bókinni stendur þyki ansi léttvægt og margendurtekið í ræðu og riti er þess að gæta að uppsláttarrit um borgina gegnir ekki síst því hlut- verki að vera nýjum kynslóðum bmnnur að sækja í. Menn. geta því verið sáttir við þetta rit sem slíkt. Ekkí hættur að segja frá Spallað við séra Emil Björnsson STARF séra Emils Björnssonar hefur lengst af verið að segja frá einhverju. í útvarpi hefur hann sagt landsmönnum fréttir af mönnum og málefnum og í kirkjunni hefur hann sagt þeim frá guði. En séra Emil er ekki hættur að segja frá; nýlega kom út annað bindi af æviminning- um hans sem nefnist „Litríkt fólk“. Þar segir frá samferða- mönnum og atburðum á fjórða og flmmta tug aldarinnar. Af þessu tilefni ákváðu Morgun- blaðsmenn að spjalla við útvarps- og guðsmanninn séra Emil Björnsson. Allt á hverfanda hveli Nú liggur þér vel orð til þeirra manna sem þú segir frá og segir yfírleitt frá því jákvæðasta sem þú veitir eftirtekt í fari þeirra. Hefur þú nokkum tímann rekist á slík óþverramenni að þú getir ekki sagt nokkurt gott orð um þau? „Erfíð spuming. Segðu hvorki já né nei en svaraðu mér þó allt- ént, eins og segir í gömlum orðaleik. Það hlýtur að vera eitt- hvað gott í hveijum einasta manni. Bólu- Hjálmar sagði: „Guð á margan gimstein þann, sem glóir í mannsorpinu.““ Á fjórða og fimmta áratugnum urðu miklar breytingar í íslensku þjóðlífí. í dag eru líka miklar breytingar að gerast. Hvað finnst þér líkt og ólíkt meðþessum tveim- ur breytingaskeiðum? „Það var allt á hverfanda hveli þá og það er allt á hverfanda hveli nú. Það var mikið umrót þá og það er mikið umrót nú. Það er líkt með þessum tveimur tímabilum. En þó held ég að tíundi maí 1940 marki slík þáttaskil í íslensku þjóð- félagi að það verði seint að slíkt gerist aftur. Og svo kom kjamork- an til sögunnar, ekkert verður eins eftir það. Það sem er óiíkt með þessum tveim tímabilum er að fátæktin, allsleysið og atvinnuleysið ríkti fyrir 1940 en í dag vantar fólk í störf. í stríðinu og upp úr stríðinu fengu menn peninga og fóru að eyða. Og eyða um efni fram og hafa gert það síðan. Menn em ekki hagsýnir." Aðgát skal höfð Einn kaflinn i bók þinni er sér- stæður fyrir það að þar eru menn ekki nafngreindir. Hann lýsir „mannfagnaðiu sem þú sóttir sem fréttamaður ríkisútvarpsins. Veisla þessi var haldin i ónefndri menningarstofnun. Skrifaðir þú þennan kafía öðrum til viðvörunar? „Nei, ég vildi ekki skrifa siða- predikun, ég skrifaði þennan kafla eingöngu vegna þess hvað þessi „mannfagnaður" varð mér minnis- stæður." Þú manst þennan „mannfagn- að“ vel, varstu „edrú“? „Eðlileg spuming; því ekki er sagt frá allsgáðum manni í sam- kvæminu. Ég var í sjálfu sér ekki betri en aðrir, en þannig stóð á að ég var að lesa undir próf og var fenginn til að hlaupa í skarðið sem fréttamaður til að segja frá þessum mannfagnaði í fréttum daginn eftir, ég hafði hreint og beint ekki tíma til að verða timbr- aður. Sem góður fréttamaður hélt ég út alla nóttina þótt ég smakk- aði ekki dropa af áfengi en ég varð forvitnari og forvitnari eftir því sem á leið. Þessi veisla grópað- ist í minni mitt. Hún var jafnframt táknræn fyrir margar veislur á stríðsárunum og kannski allar götur síðan. Þess vegna freistaðist ég til að setja þennan kafla með.“ Nú samdir þú kurteislega frétt fyrir útvarpið af „ánægjulegu“ samkvæmi og þú segir í bókinni að íslenskir fréttamenn séu flest- um kollegum sínum mjúkhentari. Ættu þeir að vera harðhentari? „Nei, ég held að íslenskir frétta- menn ættu ekkert að vera harð- hentari heldur en þeir enl. Ég setti þennan mannfagnað í „mjúkt ljós“. Héma er afar sérkennilegt og fámennt þjóðfélag og aðgát skal höfð í nærvem sálar, ekki síst í litlu samfélagi. Þegar ég var við sjónvarpið brýndi ég fyrir fréttamönnum, að varast að setja nokkurt málefni Morgunblaðið/Sverrir Séra Emil Björnsson. eða nokkum mann eða stofnun í niðrandi ljós. Það eru allir mann- legir og það verður að taka tillit til náungans. Ég held að íslenskir fréttamenn séu alls ekki of mjúk- hentir í sínu starfí en hitt er svo annað mál að menn mega ekki vera svo mjúkhentir að þeir láti spillingu þrífast og þori ekki að fletta ofan af því sem miður fer og þarf að taka á.“ Voru menn illskeyttari ogrætn- ari í deilum á þessum árum? „Menn voru afar viðkvæmir. Það var mikið að gerast og mikil spenna. Það voru deilur um her í landinu og kalda stríðið var í upp- siglingu og tortiyggnin var ofboðsleg. Menn voru miklu per- sónulegri og óvægnari í átökum en þeir eru orðnir núna.“ Þú varst fréttamaður í innlend- um fréttum á fímmta áratugnum þegar þessi spenna og tortryggni var í hámarki. Var hægt að flytja óhlutdrægar fréttir án þess að þær yrðu litlausar? „Sú hætta lá við borð að frétt- imar yrðu litlausar. Upphaflega hylltist maður til að taka afar varlega eða létt á, jafnvel sleppa fréttum sem voru viðkvæmar eða vandmeðfamar. Eftir að upptöku- tæknin kom til sögunnar varð auðveldara að láta ólíkar skoðanir og sjónarmið vegast á. Útvarpsstjóri sagði einu sinni að á meðan við værum ásakaðir um hlutdrægni frá báðum hliðum værum við á réttri leið og að ásak- anir um hlutdrægni á einn veg væru oftast dulbúnar kröfur um hlutdrægni á hinn veginn." / bók þinni greinir þú frá trú- fræðideilum í guðfræðideildinni. Heldur þúað slíkt gæti gerst í dag? „Varla, núna deila menn meira um siðfræðilegar spumingar eins og fóstureyðingar, lífið og dauð- ann og tæknina. Innantómt trú- fræðistagl er ekki í brennidepli eins og er, sem betur fer.“ Eitthvað eftir í pokahorninu? Nú eru komin út tvö bindi end- urminninga þinna og þú aðeins kominn fram að þrítugasta og sjötta aldursári. Hvað verða bindin mörg? „Eg vil engu lofa eða hóta í þessu efni en það má vel vera að eitthvað sé eftir í pokahominu."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.