Morgunblaðið - 22.12.1987, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.12.1987, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987 SPARISJÓDUR HAFNARFJARDAR 85 ÁRA í DAG: Sparisjóður Hafnarfjarðar er 85 ára í dag, 22. desember. Var hann stofnaður árið 1902 en saga sparisjóðsstarfsemi í Hafnarfirði er þó eldri eða allt frá árinu 1875 þegar Sparisjóður Alftaneshrepps tók til starfa í bænum. Var starfsemi hans nokkur framan af en síðasta áratuginn lítil sem engin. Á árunum fyrir aldamót var hart í ári hjá Hafnfirðingum eins og öðrum landsmönnum, aflabrestur og erfiðleikar e og bæjarbúum fór fækkandi. Með nýrri öld rofaði aftur til og sama árið og Sparisjóðurinn var stofnaður hófst vélbátaútgerð á íslandi. Þremur árum síðar urðu Haf nfirðingar f yrstir til að ríða á vaðið með togaraútgerð og svo vill til, að fyrsta lánveiting Sparisjóðsins var til Jóhannesar Reykdals, þess manns, sem ruddi brautina fyrir rafvæðingu á íslandi. Það má því með sanni segja, að Sparisjóðurinn hefur átt þátt í framfaramálum Hafnfirðinga og landsmanna allra. Gamli barnaskólinn við Suðurgötu. Þar var haldinn stofnfundur Sparisjóðs Hafnar- fjarðar. Stuðlað að framförum og vaxið með viðgangi bæjarins í drögum að „Sögu Sparisjóðs Hafnarfjarðar", sem Lúðvík Kristj- ánsson rithöfundur tók saman í tilefni af 60 ára afmæli hans, talar hann um Sparisjóðinn sem „bol- mikla eik“ og á það ekki síður við nú 25 árum síðar. Talnadálkamir kunna að virðast þurr lesning við fyrstu sýn en þegar betur er að gáð segja þeir merka sögu. Þeir eru eins og vog eða mælir á mannlífíð í bænum, greina frá erfíðleikum, sem lýsa sér í minni inn- og útlán- um, og uppgangurinn birtist í vaxandi umsvifum Sparisjóðsins og allra bæjarbúa. Hugsj ónamaðurinn Páll Einarsson sýslumaður Haustið 1899 var Páll Einarsson skipaður sýslumaður í Gullbringu- sýslu og 1908, þegar Hafnarfjörður fékk kaupstaðarréttindi, varð hann fyrsti bæjarfógetinn þar í bæ. Fað- ir Páls, Einar Guðmundsson, bóndi í Hraunum í Fljótum, hafði verið einn helsti hvatamaður að stofnun Sparisjóðs Siglufjarðar árið 1873, elsta, starfandi sparisjóðs á landinu, og hafði Páll snemma smitast af áhuga hans og hugsjónaeldi. Hófst hann enda handa skömmu eftir komuna til Hafnarfjarðar og 22. desember árið 1902 komu saman 10 kunnir menn í bænum og stofn- uðu Sparisjóð Hafnarfjarðar. Voru stofnendurnir auk Páls þeir Ágúst Flygenring kaupmaður, Einar Þorgilsson, kaupmaður og hrepps- stjóri, Finnur Gíslason seglamakari, Jóhannes Sigfússon kennari, Jón Gunnarsson verslunarstjóri, Jón Þór Gunnarsson sparisjóðsstjóri og Jónas Reynisson aðstoðarsparisjóðsstjóri. Séð yfir aðalafgreiðsluna við Strandgötu. Þórarinsson skólastjóri, Sigfús Bergmann verslunarstjóri, Sigur- geir Gíslason vegagerðarmaður og Ogmundur Sigurðsson kennari. Frá árinu 1884 hét Sparisjóður Álftaneshrepps Sparisjóðurinn í Hafnarfírði og má rekja nafnbreyt- inguna til þess, að þá hafði hinum foma Álftaneshreppi verið skipt í Bessastaðahrepp og Garðahrepp og fyigdi Hafnarfjörður þeim síðar- Sparisjóður Hafnarfjarðar við Strandgötu. nefnda. Með stofnun Sparisjóðs Hafnarfjarðar tók hann við eignum og skuldum Sparisjóðsins í Hafnar- fírði og hóf þegar starfsemi en fyrsta lánveitingin var þó ekki ákveðin fyrr en á stjórnarfundi 4. febrúar 1903. Fyrsta lánið til Jóhannesar Reykdals Jóhannes Reykdal, sá mikli fram- kvæmdamaður og frumkvöðull að rafvæðingu hér á landi, fékk fyrsta lánið hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar, að vísu lítið, víxillán upp á 125 krónur, en síðar á árinu fékk hann nokkuð stórt fasteignalán til að koma á fót fyrsta trésmíðaverk- stæði hér á landi. Er það Dvergur hf., elsta iðnfyrirtæki í Hafnarfírði. Jóhannes varð þó ekki fyrstur til að fá fasteignaveðlán hjá sjóðnum, það var í millitíðinni veitt út á hús- ið Kirkjuveg 3. Eins og fyrr segir hefur það ver- ið stefna Sparisjóðsins að stuðla að eflingu atvinnulífsins í bænum og sýna þessi fyrstu skref hans, að hann hefur ekki aðeins komið við sögu merkilegra nýjunga í Hafnar- firði, heldur einnig átt þátt í framfaramálum, sem til heilla hafa horft fyrir alla landsmenn. Öll stjórnin viðstödd Tvö fyrstu árin, sem Sparisjóður Hafnarfiarðar starfaði, var öll stjómin viðstödd þá einu klukku- stund, sem hann var opinn. Var þessu síðar breytt þannig, að for- stöðumaðurinn sá einn um dagleg störf og var bæði gjaldkeri og bók- ari. Fyrstu áratugina varðveittu forstöðumennimir sjóðinn á heimili sínu en árið 1929 var starfsemin flutt í leiguhúsnæði og henni jafn- framt tvískipt. Var Sigurgeir Gíslason ráðinn gjaldkeri en Ólafur Böðvarsson bókari og forstöðumað- ur. Fram til ársins 1935 var stjóm Sparisjóðsins skipuð þremur mönn- um, sem ábyrgðarmenn kusu á aðalfundi, en þá kom til sú laga- breyting, að stjórnin skyldi skipuð fímm mönnum, þremur kosnum af ábyrgðarmönnum og tveimur af bæjarstjóm. Er hún nú þannig skip- uð, að Matthías Á. Mathiesen ráðherra er formaður en aðrir í stjóm em Stefán Jónsson forstjóri, Ámi Grétar Finnsson hæstaréttar- lögmaður, Hörður Zóphaníasson fræðslustjóri og Ágúst Flygenring forstjóri. A þeim 85 árum, sem Sparisjóður Hafnarfjarðar hefur starfað, hafa eftirtaldir menn gegnt starfí sparisjóðsstjóra: Jóhannes Sigfússon, Jón Gunnarsson, Guð- mundur Helgason, Ólafur Böðvars- son, Matthías Á. Mathiesen, Guðmundur Guðmundsson, Guð- mundur Hauksson og núverandi sparisjóðsstjóri er Þór Gunnarsson. Aðstoðarsparisjóðsstjóri er Jónas Reynisson og útibússtjóri Þorleifur Sigurðsson. Starfsmenn Sparisjóðsins em nú 72 í 68 stöðugildum og má af því sjá, að hann er með stærstu vinnu- veitendum í Hafnarfírði. Húsnæðiö er að verða of lítið Fyrstu 62 starfsár Sparisjóðsins var hann til húsa víðs vegar um bæinn, framan af á heimili forstöðu- mannanna en síðan í leiguhúsnæði. Árið 1964 komst hann loks í eigið húsnæði, sem hann hafði látið reisa við Strandgötuna, og var það mikil breyting til hins betra, jafnt fyrir starfsfólk sem viðskiptavini. Nú horfír þó þannig, að húsið verði fullnýtt þegar á næsta ári. Á miðju ári 1978 fékk Sparisjóðurinn leyfí fyrir útibúi í Norðurbænum og var það opnað í ársbyijun 1979. Hefur starfsemi þess aukist ár frá ári. Sparisjóður Hafnarfjarðar hefur ávallt reynt að leggja sitt af mörk- unum til að stuðla að auknum spamaði og aðstoðað viðskiptavin- ina við að ávaxta sitt pund á sem bestan hátt. Það var m.a. með þetta í huga, að samþykkt var á aðal- fundi Sparisjóðsins árið 1931, að hveiju skírðu bami í Hafnarfirði og Garða- og Bessastaðahreppi skyldi gefín sparisjóðsbók með nok- kurri innstæðu. Hefur þessum sið verið haldið síðan á starfssvæðinu Fékk fyrstu spari- sjóðsbókina í tannfé „FAÐIR minn var einn af stofnendum Sparisjóðs Hafnar- fjarðar og hann gaf mér þessa bók í tannfé, fyrstu sparisjóðsbókina, ásamt 10 króna innstæðu,“ segir Hall- dór M. Sigurgeirsson, sonur Sigurgeirs Gíslasonar, eins af stofnendum Sparisjóðs Hafnarfjarðar. • Halldór er jafnaldri Sparisjóðs- ins, fæddur 27. október árið 1902, og hefur starfsemi sjóðsins verið snar þáttur í lífi hans alla tíð. Voru málefni hans að sjálf- sögðu mikið rætt á æskuheimili hans enda faðir hans ekki aðeins stofnandi, heldur einnig starfs- maður Sparisjóðsins um skeið, og þá hefur Halldór sjálfur verið einn af ábyrgðarmönnum sjóðs- ins frá árinu 1929. „Þegar ég byggði fékk ég lán hjá Sparisjóðnum eins og aðrir enda hefur sjóðurinn verið mikil lyftistöng fyrir bæjarfélagið og aðstoðað marga við að eignast þak yfír höfuðið. Á þessum tíma- mótum óska ég honum velfamað- ar og vona, að hann megi blómgast eins og hingað til," sagði Halldór M. Sigurgeirsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.