Morgunblaðið - 22.12.1987, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 22.12.1987, Blaðsíða 72
ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR. New York Times: Fólk hvatt til að sjá Vesalingana í Reykjavík NEW YORK Times birti í sér- stöku ferðablaði sem fylgdi síðasta sunnudagsblaðinu stutta frétt um að Flugleiðir byðu nú upp á sérstakar ferðir til ís- lands fyrir fólk sem hefur áhuga á að sjá söngleikinn Ves- alingana á íslandi. Söngleikur- inn er nú sýndur þar vestra við mikla aðsókn og hefur mönnum reynst erfitt að fá miða á sýn- inguna. I fréttinni segir að þeir sem ekki fá miða á Vesalingana á Bro- adway í New York ættu ekki að örvænta, því miðar eru til á sýn- ingar á söngleiknum á Islandi frá 26. til 31. desember. Síðan er bent á að Flugleiðir bjóða nú ferðir og hótelgistingu í 2 til 3 nætur fyrir leikhúsáhugafólk á 362 banda- ríkjadali, eða um 13.000 íslenskar krónur. Að sögn Steins Loga Bjömsson- ar fulltrúa forsijóra Flugleiða er 'T Vnikið af lausum sætum í vélum félagsins yfír hátíðamar og sama má segja um hótelherbergi í Reykjavík. Því þótti tilvalið að bjóða upp á ferð til íslands og vekja um leið athygli fólks á að hægt væri að sjá söngleikinn Ves- alingana, sem byggður er á sögu Victors Hugo, í Reykjavík. Mikið var spurt um þessar ferð- ir á skrifstofu Flugleiða í New York í gær og höfðu tveir þegar bókað sig. Alfreð Gísla- 'son í KR ALFREÐ Gíslason, einn af mátt- arstólpum íslenska landsliðsins í handknattleik og Vestur-Þýska- landsmeistara TUSEM Essen, hefur ákveðið að flytja til Islands í vor og leika með KR næsta keppnistímabil. Alfreð lék með KR í þijú ár áður en hann fór til Essen 1983. Yfír- standandi tímabil er hans fímmta með liðinu og er árangurinn sérlega glæsilegur; tvisvar meistari og einu sinni í 2. og 3. sæti. Að sögn Jó- hanns Inga Gunnarssonar, þjálfara Essen, verður skarð Alfreðs hjá ^ÞEssen vandfyllt. Nánar á bls. 71. Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson Afmæliskerti í miðju Látrabjargi Tólf kertaljós voru tendruð í Flaugamefi í miðju Látrabjargi á laugardaginn til að minnast björgunarafreksins sem þar var unnið f desembermánuði fyrir fjömtíu árum, en þá var tólf skipveijum af enska togar- anum Dhoon bjargað af tólf mönnum sem sigu niður á Flaugamef. Kertaljósin vom tendrað á þeim stað þar sem sjö skipbrotsmenn höfðust við í eina nótt áður en hægt var að koma þeim alla leið upp á bjargbrúnina, en þetta var hluti af athöfn sem björgunarsveit- armenn á Patreksfirði og í Rauðasandshreppi stóðu fyrir. Það er Ómar Unnarsson úr Björgunarsveitinni Blakki á Patreksfirði sem kveikir á kert- unum, en á bak við hann er Barði Sæmundsson, formaður björgunarsveitarinnar. Sjá bls. 20 og 21: „Tólf ljós á Látrabjargi . . .“ Bátur vélarvana út af Sandgerði: Kólnandi veður um allt land NORÐANÁTT mun ríkja um allt land á Þorláksmessu. Á öllu norðanverðu landinu, frá Vest- fjörðum til Austfjarða, verður hvassviðri með éljagangi eða snjókomu, en á sunnanverðu landinu verður stinningskaldi og úrkomulítið. Hiti verður ná- lægt frostmarki fyrir norðan, en á bilinu 2 til 4 stig fyrir sunn- an. Horfur á aðfangadag eru þær að lægð, sem veldur veðrinu á Þor- láksmessu, verður farin að ijar- lægjast landið samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Þá verður minnkandi norðan- og norð-vestanátt og éljagangur á norðanverðu landinu. A Suður- og Suð-vesturlandi lítur út fyrir breyti- lega átt og þar verður úrkomulaust. Veður fer kólnandi og sennilega verður frost um allt land. Á jóladag lítur út fyrir að hæðar- hiyggur verði yfír landinu. Vindátt verður hæg og breytileg og víðast þokkalegt veður. Áfram verður kalt í veðri um allt land. Auglýsendur athugið Auglýsingar í Morgunblaðið á aðfangadag, 24. desember, þurfa að berast auglýsingadeild fyrir kl. 16.00 þriðjudaginn 22. desember. Fyrsta blað eftir jól kemur út þriðjudaginn 29. desember. Skilatími auglýsinga er fyrir kl. 16.00 á Þorláksmessu, þann 23. desember. Auglýsingar í blaðið á gaml- ársdag, 31. desember, þurfa að berast fyrir kl. 16.00 þriðjudag- inn 29. desember. Fyrsta blað á nýju ári kemur út sunnudaginn 3. janúar og þurfa auglýsingar í það að ber- ast eigi síðar en kl. 11.00 miðvikudaginn 30. desember. Maður og 3 böm hætt komin Keflavík. LITLU munaði að illa færi fyrir framan innsiglinguna í Sand- gerði á sunnudaginn þegar vélarbilun varð skyndilega hjá Hildi RE-123 sem var á leið frá Sandgerði til Reykjavíkur. Haf- borg KE 11 tonna bátur sem var í Sandgerðishöfn kom til hjálpar og náði að draga Hildi frá landi og síðan kom stærri bátur Ragn- ar GK sem dró bátinn til hafnar í Sandgerði. Þá var komið hið versta veður af suðvestri með talsverðum sjó. Um borð í Hildu, sem er nýr 9,9 tonna stálbátur, var skipstjórinn ásamt 3 böraum, 8 ára stúlku og tveim 11 ára drengjum. Sigurður Ingi Lúðvíksson skip- stjóri og eigandi Hildar RE sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði ætlað til Reykjavíkur þar sem géra hefði átt smá lagfæringar á bátnum. „Veður var gott þegar við lögðum af stað og þetta átti að verða stutt skemmtisigling. Ég var með bömin mín tvö, 8 ára stúlku og 11 ára dreng og hann var með vin sinn með sem er líka 11 ára. Þegar ég var kominn út fyrir inn- siglingarmerkin drapst skyndilega á vélinni og mér tókst ekki að koma henni í gang aftur. Bátinn tók strax að reka að landi, því þama er mik- ill straumur. Ekki bætti úr skák að hann gekk í vaxandi suðvestan átt og fljótlega var komið hið versta veður með talsverðum sjó.“ „Ég hafði þegar samband við Áma Eðvaldsson á Hafborgu KE sem ég mætti í innsiglingunni og hann lagði þegar af stað okkur til hjálpar. Þegar Hafborg kom að okkur vomm við tæpa mílu frá landi. Illa gekk að draga bátinn, við vorum með lélegt tóg og Hildur er engin léttavara. Taugin slitnað' hvað eftir annað og eftir 3 tíma basl kom Ragnar GK sem er stæiri bátur okkur til aðstoðar. Hann var með sterkari dráttartaug og dró bátinn til Sangerðis. Þangað kom- um við um hálfníuleytið, tæpum 5 tímum eftir að við lögðum af stað.“ Sigurður Ingi sagði ennfremur að bömunum hefði ekki orðið meint af sjóferðinni, en þau hefðu verið illa haldin af sjóveiki og ekki gert sér grein fyrir hvað fram fór. Skip- stjóri á Ragnari er Ingimar Sumarliðason. BB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.