Morgunblaðið - 22.12.1987, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 22.12.1987, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987 . 71 HANDKNATTLEIKUR AKreð Gíslason frá Essen og aftur í raðir KR-inga Mikill ávinningurfyrir KR og handknattleik á íslandi, segirJóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari Essen Alfrsð Qlslason I leik með Essen. Hann leikur á ný með KR næsta keppnistímabil. „ÞEGAR þessu tímabili iýkur hef ég ieikið í fimm ár með TUSEM Essen, sem er langur tími, en segja má að fjöl- skylduástæður ráði því að við flytjum aftur heim til íslands í vor. Ég skipti því aftur yfir í KR og þó önnur félög hafi sýnt áhuga, kom ekkert ann- að en KR til greina," sagði Alfreð Gíslason við Morgun- blaðið í gær. Alfreð Gíslason lék með KR í þrjú ár áður en hann hélt til Vestur-þýskalands 1983 og var kjörinn íþróttamaður KR að loknu síðasta tlmabilinu með félaginu. Hann hefúr verið og er ein styrk- asta stoð íslenska landsliðsins og mikilvægasti hlekkur Essen. Glæsilegurferill „Fáir ef nokkur erlendur leikmað- ur á ems glæstan feril að baki í þýsku úrvalsdeildinni og Alfreð," sagði Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari Essen. „Hann hefur tvisvar orðið meistari með liði sínu, einu sinni hafnað í öðru sæti, einu sinni í því þriðja og svo er það yfírstandandi tímabil. Hann er einn allra besti vamar- maður deiidarinnar og þrátt fyrir að vera oft í strangri gæslu, er hann frábær sóknarmaður, skorar mörg mörk og opnar fyrir aðra. Hann getur því farið með góðri samvisku. Félagaskiptin voru tilkynnt fyrir leikinn á sunnudag og urðu aðrir ieikmenn fyrir miklu áfalli, því Alfreð er kjaminn í þessu liði og skarð hans verður vandfyllt Því óttast ég að þetta verði til þess að fleiri fari frá félaginu," sagði Jóhann Ingi. „Að sama skapi er þetta mikill ávinnihgur fyrir KR og hand- knattleikinn á íslandi. KR er með ungt og efnilegt lið og leikmenn- imir geta ekki fengið betri fyrir- mynd. Alfreð er metnaðargjam og leíkmenn KR eiga örugglega eftir að smitast af réttu hugarfari hans,“ bætti Jóhann Ingi við. „Eins og gefur að skilja erum við geysiiega ánægðir með að fá Al- freð aftur i okkar raðir,“ sagði Kristján Öm Ingibergsson, form- aður handknattleiksdeildar KR. „Við emm með efnilega stráka, en til að vera með f baráttunni á toppnum á næstu ámm þurfúm við mann eins og Aifreð. Þetta er ánægjuleg jólagjöf til KK og reyndar handknattieiks á íslandi," bætti hann við. Alfreð hefur skorað 65 mörk í 11 Ieikjum Essen í vetur og bauð félagið honum að framlengja samninginn um tvö ár. „Ég lofaði að láta þá vita fyrir áramót og um helgina gerði ég endanlega upp hug minn. Ég hlakka mildð til að leika aftur með KR og það verður gaman að koma inn í upp- sveifluna heima,“ sagði Alfreð. HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ Frábær skemmtun í Laugardalshöll íslendingar hefndu ófaranna frá því á HM í Sviss Valur Jónatansson skrifar ÍSLENSKA landsliðið í hand- knattleik sýndi það gegn Suður-Kórumönnum f gær- kvöldi að það getur leikið „sirkushandboltau eins og hann gerist bestur. Leikurinn bauð upp á gífurlegan hraða, vel útfærðar sóknirog skemmtileg mörk. Áhorfendur, sem troðfylltu Höllina, kunnu vel að meta þessa góðu skemmtun. Islenska liðið réði gangi leiksins eftir að jafnræði hafi verið með liðunum fyrsta stundarfjórðunginn. íslendingar náðu fimm marka for- ystu 17:11 er 5 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik og létu hana ekki af hendi eftir það. íslenska liðið náði að hefna ófa- ranna gegn Kóreumönnum í fyrsta leik heimsmeistarakeppninnar í Sviss 1986 sem enn eru í fersku minni. Islensku piltamir hafa svo sannarlega lært af reynslunni og nýttu sér hana í þessum leik. Þeir spiluðu mjög skynsamlega bæði í vöm og sókn, komu vel út á móti Kómmönnum og klipptu þannig vel á sóknir þeirra og keyrðu svo upp hraðann í sókninni sem enduðu oft- ast með marki. Kómmenn léku mjög framarlega í vöminni og tóku leikstjómandann úr umferð í byrjun. Þá tók Bogdan það til bragðs að nota tvo línu- menn, Óttar og Geir, og kom það Kómmönnum oft í opna skjöldu. íslenska liðið hélt einbeitingunni út allan leikinn og uppskar eftir því. Suður-Kóreumenn em með mjög léttleikandi lið sem gaman er að horfa á. Mikill hraði er í leik þeirra og oft vel útfærðar sóknir. þeir spila mjög stuttar sóknir, í mesta lagi 30 sekúndur, þekkja ömgglega ekki leiktöf. Liðið er mjög heil- steypt, þó ber að geta frammistöðu Jae-Hwan Kim (nr.2) sem er geysi- lega fjölhæfur og getur skorað úr ótrúlegustu fæmm. Markakónur heimsmeistarakeppninnar, Jae- Wan Kang, náði ekki að sýna sínar bestu hliðar enda í strangri gæslu Þogils Óttars. Kristján og Óttar vom bestu leik- menn íslenska liðsins. Óttar var sérstaklega sprækur og naut sin Island—S-Kórea 36 : 31 Laugardalshöll, vináttulandsleikur, mánudaginn 21. desember 1987. Gangur leiksins: 0:2, 2:2, 2:4, 5:4, 7:7, 7:9, 12:9, 12:11, 18:13, 20:16, 22:17, 25:20, 25:21, 28:22, 29:24, 30:27, 33:29, 34:31, 36:31. Áhorfendur: Uppselt. Mörk íslands: Kristján Arason 10/4, Þorgils óttar Mathiesen 7, Atli Hilm- arsson 5, Geir Sveinsson 5, Karl Þrainsson 3, Guðmundur Guðmunds- son 2, Valdimar Grímsson 2, Sigurður Gunnarsson og Jakob Sigurðsson eitt mark hvor. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 18, Einar Þorvarðson 3. v Utan vallar: 10 mínútur. Mörk Suður-Kóreu: Jae-Hwan Kim (nr.2) 12/4, Jae-Wan Kang (nr.13) 7, Sang-Jae Lee (nr.14) 7, Young-Dae Park (nr.5) 2, Young-Suk Sin (nr.3) 2 og Suk-Chang Koh (nr.6) 1. Utanvallar: 2 mínútur. Dómarar: Gunnlaugur Hjálmarsson og Óli P. Olsen. Sýndu Kórumönnum full mikla gestrisni á stundum. vel og Kristján var duglegur við að mata hann inn á línuna. Guðmund- ur Hrafnkelsson varði einnig mjög vel eftir að hann kom inná fyrir Einar um miðjan fyrri hálfleik. Geir lék einn af sínum betri land- sleikjum og Atli er óðum að komast í sitt besta form. Annars var liðið í heild mjög gott og sigurinn verð- skuldaður. Aftur í kvöld Þjóðimar leika aftur í Laugardals- höll kl. 20.30 t kvöld. HSI býður öllum fyrrverandi landsliðmönnum í handknattleik í afmælishóf sem haldið verður í anddyri Hallarinar og hefst kl. 19.00. Þeir sem ekki hafa fengið miða geta vitjað þeirra á skrifstofu HSÍ í dag. Morgunblaðið/Einar Falur Þorgils Óttar Mathlesan átti stórleik ( gærkvöldi og skoraði mörg giæsi- leg mörk. Hér hefur hann stungið Kang og Park af og skorar. Hvað sögðu þeir? Steinþór Guóbjartsson skrifar Bogdan Kowalczyk, þjálfari „Suður-Kóreumenn spila skemmtilegan handbolta, sem er allsstaðar í hávegum hafður. Sóknir þeirra eru mjög stuttar og það er erfítt að stöðva þá, en við náðum loks að sigra. Þetta var fjörugur leikur eins og ég átti von á, skemmtun eins og hún gerist best.“ Guðmundur Hrsfnkel&son „Svona handbolti hlýtur að vera skemmtilegur fyrir áhorfendur, mikiil hraði og mötg mörk. Ég er ánægður með minn hlut, en málið er að reyna að lesa leik þeirra. Þeir spila allt öðruvísi en við eigum að venjast, eru snöggir og skjóta einkennilega, en okkur tókst betur upp í þetta sinn.“ Gelr Sveinsson „Ég átti von á þessari markasúpu og þetta er skemmtileg tilbreyting frá hinum harða leik, sem við þekkjum betur. Þetta^ var mikii keyrsla og mjög erfiður leikur — ég hélt hreinlega að ég væri búinn eftir 15 mínútur, en jafnaði. mig fljótt.“ Krlstján Arason „Leikurinn var eins og við var að búast, en við höfúm lært af reynsl- unni og það er fyrir mestu. Hraðinn hjá þeim er gífúrlegur, en við hægðum ekki á ferðinni fyrr en undir lokin. Kang og Lee eru frábærir og njóta sín vel í þessu liði, en þeir ættu erfitt upp- dráttar með þýskum liðum." Þorgils Óttar Mathlesen „Við fórum í þennan leik með sama hugarfari og alltaf, en þeir leika óvenjulega, hraðinn var meiri en ég gerði ráð fyrir og því var þetta mjög erfitt. En við gerð- um færri mistök og það er ajltaf ánægjulegt að sigra, að ég tali ekki um þegar Höllin er troðfull."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.