Morgunblaðið - 22.12.1987, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1987
4
A
Efnalaug opn-
uð í Borgamesi
Borgarnesi.
OPNUÐ hefur verið ný efnalaug
i Borgarnesi og hlaut hún nafnið
Múlakot eftir samnefndu húsi á
Borgarbraut 49, Borgarnesi, þar
sem starfsemin er til húsa.
Það eru hjónin Herdís Guð-
mundsdóttir og Páll Guðbjartsson
sem eiga fyrirtækið. Kvaðst Herdís
hreinsa allan fatnað, gluggatjöld,
vatt-teppi, svefnpoka o.fl. og einnig
vinnufatnað frá fyrirtækjum. Sagði
Herdís að þjónustusvæði efnalaug-
arinnar gæti orðið nokkuð víðfeðmt
því engin efnalaug væri á Snæfells-
nesi né í Dala- eða Strandasýslu.
Kvaðst Herdís hafa fullkomnar vél-
ar til hreinsunar og einnig vélar til
að pakka inn fatnaði og búa til
sendingar.
- TKÞ
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
Herdis Guðmundsdóttir og Einar Pálsson, sonur hennar, við störf i efnalauginni Múlakoti.
Safn ís-
lenskra þjóð-
sagna og
ævintýra
á finnsku
KOMIÐ er út í Finnlandi safn
islenskra þjóðsagna og ævintýra
í umsjón Hallfreðar Arnar
Eiríkssonar þjóðsagnafræðings,
Stofnunar Árna Magnússonar og
hefur Maijatta ísberg annast
þýðinguna.
í fréttatilkynningu segir m.a.:
„Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk-
ar þjóðsögur birtast á fínnsku.
Útgefandi er Suomalaisen Kiijall-
isuuden Seura, Hið fínnska
bókmenntafélag, sem gegnir í
Finnlandi _ svipuðu hlutverki og
Stofnun Áma Magnússonar á ís-
landi. Bókin er 200 blaðsíður að
stærð og skreytt myndum. Nafn
sitt, „Thorgeirin hárká", Þorgeirs-
boli, dregur bókin af kápumyndinni,
sem er eftir málverki Jóns Stefáns-
sonar af Þorgeirsbola frá árinu
1929. Langur formáli er að bókinni
og er þar rakin stuttlega saga lands
og þjóðar og ítarlega ritað um íslen-
skar þjóðsögur og söfnun þeirra. í
lok bókarinnar er heimildaskrá."
Útgáfan hefur notið styrks úr
Norræna þýðingarsjóðnum.
pv-öV^jö^
Ql) PIONEER
HUÓMTÆKI
Rúllugluggatjöld
pílu
gluggatjÖld Sufturlandibmut 6. Simi: 91 - 8 32 15.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Áramótaferð Útivistar
í Þórsmörk
30. des-2. jan. 4 dagar
Brottför kl. 8.00. Rúmgóö og
þægileg gistiaðstaða i skálum
Útivistar í Básum, Þórsmörk.
Fjölbreytt dagskrá með göngu-
ferðum, kvöldvökum, áramóta-
brennu o.fl. Fagnið nýju ári með
Útivist. Fararstjórar: Arnar Jóns-
son og Reynir Sigurösson. Örfá
sæti laus vegna forfalla. Uppl.
og farmiðar á skrifst. Grófinni
1, simar: 14606 og 23732.
Sjáumst. Takiö miða strax.
Greiöslukortaþjónusta.
Gleðileg jól.
Útivist, ferðafólag.
IP
Dagskrá Samhjálpar um hátíð-
arnar verður sem hér segir:
Aðfangadagur: Almenn sam-
koma í Þríbúðum kl. 16.00.
Sunnudagur 27. des.: Almenn
samkoma i Þribúöum kl. 16.00.
Gamlársdagur: Samkoma i Hlað-
gerðarkoti kl. 16.00.
Laugardagur 2. jan.: Opið jóla-
hús í Þríbúöum kl. 14.00-17.00.
Sunnudagur 3. jan.: Almenn
samkoma i Þríbúðum kl. 16.00.
Fjölbreytt dagskrá. Mikill söng-
ur. Allir eru velkomnir.
Gleöilega hátíð.
Samhjálp.
Hilmar Foss
lögg. skjalaþýð. og dómt.,
Hafnarstræti 11,
símar 14824 og 621464.